Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 AFSLÁTTUR 20% ÚTSALA COUVIN Glerskápur/svart birki 151.992 kr. 189.990 kr. AFSLÁTTUR 20% ÚTSALA Fallegur borðbúnaður – tilvalinn í útileguna eða út á pallinn! KYNNINGAR AFSLÁTTUR 15% MEDUSA RICHMOND Skenkur 83.993 kr. 119.990 kr. AFSLÁTTUR 30% ÚTSALA EDE 3ja og 2,5 sæta sófar og hægindastóll í koníaksbrúnu áklæði. Set- og bakpullur eru þéttar, mjög þykkar og þægilegar. Fætur eru úr bogadregnu, svörtu járni. Glæsileg, tíma- laus hönnun. 2,5 sæta sófi 135.992 kr. 169.990 kr. 3ja sæta sófi 143.992 kr. 179.990 kr. Hægindastóll 95.992 kr. 119.990 kr. ÚTSALA Allt að 50% afsláttur SUMAR 2ja sæta sófi 118.993 kr. 169.990 kr. 3ja sæta sófi 132.993 kr. 189.990 kr. Hægindastóll 83.993 kr. 119.990 kr. SICILIA 2ja og 3ja sæta sófar og hæginda stóll. AFSLÁTTUR 30% ÚTSALA LOKAVIKA N ÚTSÖLULO K SUNNUD AGINN 11. júlí Tónlistarkonan Klara Elías- dóttir syngur um ást sem að brennur á þjóðhátíð í sumar- laginu Heim, sem kemur út í dag og hún hugsar öðrum þræði sem innlegg í umræð- una um að á 88 árum hafi aðeins ein kona samið þjóð- hátíðarlag. thorarinn@frettabladid.is Klara Ósk Elíasdóttir, forðum kennd við stúlknahljómsveitina Nylon, kallar sig Klara Elias á Spo- tify þar sem hún gefur í dag út lagið Heim. Sterk þjóðhátíðartaug er í laginu sem hún tileinkar íslensk- um tónlistarkonum sem hafa lítið komið við langa sögu þjóðhátíðar- laga en Ragga Gísla hefur ein samið og f lutt slíkt lag, Sjáumst þar, frá 2017. „Þetta er fyrst og fremst sumar- lag. Fullt af hamingju og bjartsýni en ég er líka að gefa það út í tilefni af Þjóðhátíð. Mig langaði svolítið til þess að gera þetta í ár vegna þess að það er búin að vera mikil umræða um mjög ójafna kynjaskiptingu í aðkomu kvenna að þjóðhátíðarlög- um. Og mig langaði einhvern veginn líka bara svolítið að undirstrika það að ég er kona að semja og búa til tón- list. Ég er að syngja og ég tek þátt í að útsetja lagið,“ segir Klara sem til- einkar Heim þannig bæði sumrinu og Þjóðhátíð í Eyjum. Þrjár konur á 84 árum Söngkonan Salka Sól hefur bent á að samkvæmt hefðinni, eins og hún orðar það, semji konur þjóðhátíðar- lagið á 84 ára fresti og þannig megi næst búast við slíku lagi eftir konu árið 2101. „Ef þær upplýsingar sem ég hef fundið um þetta eru réttar þá hafa þrjár konur tekið á einn eða annan hátt þátt í að semja eða flytja þjóð- hátíðarlagið og mig langar bara að vera með í því að breyta þessu,“ segir Klara. „Það breytist náttúrlega ekkert í ár því Eyjalagið er ekki samið af konu en þetta er samt sem áður mitt innlegg í umræðuna. Ég ákvað bara að taka þetta bara í mínar hendur, gefa þetta út og gera það í tilefni af Þjóðhátíð. Til heiðurs íslenskum tónlistarkonum.“ Hátíð þjóðar Sumarið og Þjóðhátíð renna svo- lítið saman í laginu enda tengjast yrkisefnin tvö sterkum böndum í huga hennar. „Ég er bara íslensk sumarpía og ég elska bara ekkert meira en íslensk sumur sem ég held að séu einstök í heiminum. Bara birtan og sólin og Íslend- ingar eru svo svakalega hamingju- samir á sumrin. Orkan er svo góð og það eru allir svo glaðir að það skiptir engu máli hvar þú ert að fagna þjóð hátíð,“ segir Klara og slítur orðið í sundur til áhersluauka. „Þetta kristallast í orðinu, þjóð – hátíð, og mér finnst þjóðhátíð bara einhvern veginn vera allt sum- arið en hún nær auðvitað hápunkti þessa fyrstu helgi í ágúst þegar allir finna að svona á lífið að vera. Lífið er yndislegt.“ Brennandi ást Klara segist aðspurð mjög til- finningatengd hinni einu sönnu Þjóðhátíð þaðan sem hún á ljúfar minningar. „Já, gersamlega. Uppá- haldslínan mín í laginu er líka „það er ekkert eins og ást sem að brennur á Þjóðhátíð.“ Ein besta sumarminn- ingin mín er að vera í Dalnum með systur minni að fagna Þjóðhátíð,“ segir Klara og bætir við að margar bestu minningar hennar tengist því að hafa verið á Þjóðhátíð. Klara hefur hins vegar aldrei verið á Þjóðhátíð sem skemmtikraftur. Jafnvel ekki á Nylon-tímabilinu. „Við komumst aldrei á Þjóðhátíð til að koma fram. Ég hef aldrei skemmt þar þannig að það væri rosa gaman ef það yrði af því á þessu ári.“ Allt að gerast Klara er með mörg járn í tónlistar- eldinum en segist undanfarið hafa verið mest í því að gefa út smáskífur eins og Heim, sem hún hefur ekki ákveðið hvort muni einnig rata á væntanlega plötu. „Ég er að vinna í plötu sem verður á íslensku en ég veit ekki hvort Heim verði hluti af henni,“ segir Klara, sem einnig er að leggja lokahönd á EP-plötu, svokallaða stuttskífu, sem kemur út fljótlega. „Ég er einhvern veginn alltaf að fresta þessu til þess að leyfa stöku lögunum sem ég er að gefa út að njóta sín. Það er alls konar í gangi hjá mér og ég er bara að búa til tón- list á fullu. Bæði á íslensku og ensku og semja fyrir sjálfa mig og aðra,“ segir Klara og bætir við að hún sé til dæmis mikið að semja tónlist fyrir sjónvarpsþætti. „Ég er bara að gera alls kyns hluti.“ n Klara réttir kynjahallann með eigin þjóðhátíðarlagi Klara Elias er hamingjusöm og komin heim og fagnar með því útgáfu lagsins Heim sem er hennar fyrsta lag á íslensku í rúman áratug. MYND/AÐSEND Klara samdi Heim ásamt Ölmu Guð- mundsdóttur og þær útsettu lagið ásamt James Gladius Wong. Ég ákvað bara að taka þetta bara í mínar hendur, gefa þetta út og gera það í tilefni af Þjóðhátíð. Til heiðurs íslenskum tónlistar- konum. 18 Lífið 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.