Fréttablaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 32
kopavogur.is
Aðstoðarleikskólastjóri
í leikskólann Núp
Leikskólinn Núpur er 5 deilda leikskóli sem staðsettur er í Núpalind 3.
Einkunnarorð Núps eru sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Lögð er áhersla á fjölgreindir í leikskóla-
starfi og að hin siðferðislegu gildi samfélagsins endurspeglist í öllu leikskólastarfinu, s.s. virðing fyrir ein-
staklingnum, samábyrgð, umhyggja, sáttfýsi og tjáningarfrelsi allra.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn
og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega for-
ystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn,
foreldra/forráðamenn og leikskóladeild.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Framhaldsnám sem nýtist í starfi æskilegt
· Reynsla af starfi og stjórnun leikskóla
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
· Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
· Góð tölvukunnátta
· Gott vald á íslensku, kunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2021.
Allar nánari upplýsingar um starfið má finna á vef Kópavogsbæjar undir auglýst störf.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Fjölskyldusvið Seltjarnarnesbæjar auglýsir
eftir rekstraraðila ungbarnadeildar, sem
hefja skal starfsemi frá komandi hausti.
Deildinni er ætlað að þjóna sérstöðu yngstu
leikskólabarnanna út frá kröfum til fagmennsku og
starfshátta fyrir aldurshópinn, samtvinnað umhyggju
og námi. Seltjarnarnesbær leggur til húsnæði, sér
um rekstur þess og viðhald, auk þess að sjá um
stofnbúnað fyrir starfsemina.
• Leitað er eftir aðilum með sterka fagþekkingu
og reynslu á sviði leikskólastarfs.
• Útfærsla starfseminnar skal unnin í samstarfi
fjölskyldusviðs og rekstaraðila.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um fyrirhugaða
starfsemi er bent á að senda fyrirspurnir á netfangið
baldur@seltjarnarnes.is
Umsóknarfrestur er til 21. júní næstkomandi.
Seltjarnarnesbær
Ungbarnadeild - rekstraraðili
seltjarnarnes.is
Helstu verkefni:
– Umsjón með umhverfisvottunum í framkvæmdaverkefnum,
s.s. Svansvottun og BREEAM
– Gögn um umhverfismál fyrirtækisins, kolefnisspor, losun o.fl.
– Þátttaka í rekstri og stýringu gæða-, umhverfis- og
öryggisstjórnunarkerfis fyrirtækisins
JÁVERK er 28 ára öflugt, áreiðanlegt og metnaðarfullt verktaka-
fyrirtæki. Starfsmenn eru um 120 í dag og verkefnastaða fyrir tækisins
er traust næstu árin. JÁVERK leggur áherslu á umhverfis-, öryggis- og
gæðamál ásamt samstarfshæfni. JÁVERK er eina verk takafyrirtækið
í flokki stórra fyrirtækja sem hefur fengið viður kenningu Creditinfo
sem Framúrskarandi fyrirtæki á hverju ári frá 2014. Gæðakerfi fyrir-
tækisins var vottað skv. ISO 9001 staðlinum árið 2019.
Starfsmannastefna fyrirtækisins gerir ráð fyrir að aðbúnaður og
starfsumhverfi séu með því besta sem þekkist. Starfsandi er frábær
og dugmikið starfsmannafélag stendur fyrir margskonar skemmtunum
og ferðalögum. Starfsmannavelta er mjög lítil. JÁVERK leggur áherslu
á að ráða kraftmikið og metnaðarfullt fólk sem sýnir frumkvæði og
sjálfstæði í starfi.
JÁVERK
Gagnheiði 28
800 Selfoss
Sími 480 1700
javerk@javerk.is
www.javerk.is
Verkefnastjóri í gæða-,
umhverfis- og öryggismálum
Hæfniskröfur:
– BSc eða MSc í verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
– Sjálfstæði í vinnubrögðum
– Góð hæfni í rituðu og töluðu máli
– Frumkvæði, áræðni og metnaður
– Hæfni í mannlegum samskiptum
Vegna aukins fjölda umhverfisvottaðra framkvæmda óskum við eftir að ráða verkefnastjóra
til að sinna gæða-, umhverfis- og öryggismálum.
Umsóknir sendist á javerk@javerk.is fyrir 25. júní. Fullum trúnaði heitið.Starfsstöð er á skrifstofum fyrirtækisins í Kópavogi.
2 ATVINNUBLAÐIÐ 12. júní 2021 LAUGARDAGUR