Fréttablaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 4
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
Katrín
Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Lofts lags
áætlun stjórn
valda byggist
á raun hæfum
að gerðum og
öflugu sam starfi
við ó líka geira sam fé lagsins. Nú
þarf að halda á fram á sömu braut,
tryggja að lofts lags málin verði
á fram í fyrsta sæti á komandi
kjör tíma bili og varða leiðina að
kol efnis hlut lausu Ís landi með
rétt látum um skiptum.■
Guðjón Sigur
bjartsson
viðskiptafræðingur
Margra mánaða
og jafnvel meira
en árs bið er
eftir ýmsum
aðgerðum svo
sem liðskiptum,
augasteinaskiptum, krabbameins
lækningum, hjartaþræðingum
og offituaðgerðum. Skimun fyrir
krabbamein er áfátt. Skortur er
á hjúkrunarúrræðum. Yfirgengi
legt álag er á bráðamóttöku. Of fá
sjúkrarúm eru í landinu. Geðheil
brigðisþjónusta er ónóg. ■
Kolbrún
Baldursdóttir,
borgarfulltrúi
Flokks fólksins
Eftirlaunafólk
á að fá að vinna
eins og það hefur
áhuga og tök á,
án skerðinga, og
njóta afraksturs
vinnu sinnar eins og aðrir. Fjöl
mörg störf koma til greina fyrir
þennan hóp, enda er mikill
mannauður til staðar sem er með
dýrmæta reynslu. Vonandi mun
meirihlutinn í borgarstjórn taka
þessari tillögu fulltrúa Flokks
fólksins vel á fundi borgarstjórnar
nk. þriðjudag. ■
■ Tölur vikunnar
60
lyklum var stolið úr Grafarvogs-
laug á þremur vikum.
142
meðlimir eru nú skráðir í
Hjálpræðisherinn.
1.098
íbúakort Bílastæðasjóðs voru
skráð í Reykjavík árið 2020.
1.279
milljónir voru heildarvinningur
íslensks þátttakanda í
Víkinglottóinu í vikunni.
675
fyrirtæki fengu greitt í formi
ferðagjafar stjórnvalda.
■ Þetta sögðu þau
Okkur vantar fleiri
skóla til að taka við
nemum á sérnáms-
brautir. Það eru ein-
hverjir nemendur með
fötlun enn án skóla-
pláss.
Inga Guðrún
Kristjánsdóttir,
Unglingar með þroskafrávik
sóttu um skólavist í fram
haldsskólum í febrúar en
þrátt fyrir að það sé kominn
júní eru sumir unglingarnir
að fá svör um skólavist fyrst
núna. Sumir standa eftir með
framtíðina að veði.
benediktboas@frettabladid.is
MENNTAMÁL Fatlaðir unglingar eru
flestir nýbúnir að fá svör um skóla
vist í framhaldsskóla næsta haust
en sum eru ekki enn komin með
skólavist. Þeir skólameistarar skóla
sem taka við fötluðum nemendum
og Fréttablaðið náði tali af sögðu
það vera á milli 10–20 sem eru ekki
komin með skólavist.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, sagði að þau
væru 30 í ræðu sinni á Alþingi.
„Afsökunin er að árgangarnir séu
allt of fjölmennir. Það er búið að vita
þetta í 16 ár. Hvar hafa ráðherrarnir
verið?“ spurði Þorgerður og beindi
orðum sínum til Lilju Alfreðsdóttur
menntamálaráðherra og Ásmundar
Einars Daðasonar félagsmálaráð
herra. Þorgerður var menntamála
ráðherra á árunum 2003–2009.
Unglingar með þroskafrávik
sækja um skólavist í febrúar og eru
einhverjir nýbúnir að fá svör en
önnur bíða enn.
Þeir unglingar sem eru með
Downsheilkenni geta til dæmis
ekki gengið að því vísu að fá skóla
vist í þeim skólum sem hentar þeirra
getustigi né þar sem vinir þeirra eru.
„Okkur vantar fleiri skóla til að taka
við nemum á sérnámsbrautir. Það
eru einhverjir nemendur með fötlun
enn án skólapláss á sérnámsbrautir,“
segir Inga Guðrún Kristjánsdóttir,
formaður Félags áhugafólks um
Downsheilkenni.
Benedikta Birgisdóttir, sem situr í
stjórn Félags áhugafólks um Downs
heilkenni, skrifaði harðorðan pistil
á Facebook sem vakti mikla athygli.
Þar kom fram að sonur hennar, sem
er með Downsheilkenni, hafi feng
ið inngöngu í Fjölbrautaskólann við
Ármúla, sem hentar honum ekki, en
drengurinn vildi fara í annaðhvort
FB eða Borgarholtsskóla. Þar séu
vinir hans. Benedikta fékk svar um
skólavist sonar síns á miðvikudag.
Inga Guðrún segir að það sé
skiljanlegt áfall ef börnin fá ekki
að elta vini sína og hafi getuna til
þess að vera í annaðhvort FB eða
Borgarholtsskóla. „Það er áfall fyrir
foreldra en sorgin er mest hjá börn
unum,“ segir hún.
Hún bendir á að það sé hennar
vilji að skólakerfið mæti þörfum
allra, hvort sem það eru fatlaðir eða
ófatlaðir unglingar. „Við viljum að
skólakerfið mæti okkar börnum
þar sem þau eru. Það á að vera hægt
að búa til skólakerfi fyrir þau eins og
öll önnur börn, fötluð sem ófötluð.
Reyndar er það svo að við sjáum
í þeim skýrslum og öðru þar sem
er verið að meta árangur og annað
að skólakerfið er í vandræðum að
mæta börnum almennt á margan
hátt – þótt það sé ekki algilt – en sem
betur fer er líka margt sem gengur
vel. Við verðum að læra það betur
og betur að koma vel til móts við
þarfir barna og unglinga með fatl
anir,“ segir Inga.
Þorgerður Katrín benti á í ræðu
stól Alþingis að fötluð börn hefðu
gleymst í áætlun ríkisstjórnar
innar. Börnin hefðu verið fötluð frá
fæðingu og það ætti ekki að koma á
óvart þegar svo stór árgangur væri
að koma inn í kerfið. Það hafi verið
vitað í 16 ár. ■
Tugir fatlaðra unglinga eru ekki enn
komnir með svar um framhaldsskóla
Frá vígslu Sensory pool, eða skynörvunarsundlauginni, sem styrkt var af Kiwanisklúbbnum Kötlu á sérnámsbraut
Fjölbrautaskólans við Ármúla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
4 Fréttir 12. júní 2021 LAUGARDAGUR