Fréttablaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 42
INTERNATIONAL BUSINESS DEVELOPMENT
AND
PUBLIC AFFAIRS OFFICER
The Embassy of Canada in Reykjavik seeks to hire an
eligible candidate for the designated position as above.
The closing date for applications is 02 July 2021
Further details:
https://www.wfca-tpce.com/vacancyView.php?requirementId=4533&
https://www.wfca-tpce.com/fr/vacancyView.php?requirementId=4533&
Myndlistaskólinn í Reykjavík leitar að
verkefnastjóra til að hafa yfirumsjón með
skráningum á námsframboði skólans og
námsferlum nemenda og að stýra
innleiðingu Office 365.
Við leitum að einstaklingi með
þekkingu á námsumsjónarkerfinu inna.is
og skjalastjórnun, gott vald á íslensku og
ensku og áhuga á myndlist og hönnun.
Jákvæðni og lipurð í samskiptum,
frumkvæði, skipulagshæfileikar og
nákvæmni eru nauðsynlegir kostir.
Um er að ræða 60% starf sem er laust frá
og með miðjum ágúst.
Umsókn skal fylgja yfirlit yfir starfsferil
ásamt greinargerð þar sem fram koma
forsendur umsóknar og sýn umsækjanda
á starfið.
Umsóknir þurfa að berast á netfangið
starfsumsokn@mir.is fyrir kl. 16:00
miðvikudaginn 30. júní.
Öllum umsóknum verður svarað.
Verkefnastjóri óskast
Hjúkrunarfræðingur
Við hjá Læknastöðinni í Orkuhúsinu leitum að röskum hjúkrunarfræðingi. Starfið felst
aðallega í því að standa aðgerðir á skurðstofum, frágangi og meðhöndlun á verkfærum
og umönnun sjúklinga. Starfið er mjög fjölbreytt í hröðu umhverfi og fer fram á
dagvinnutíma alla virka daga. Starfshlutfall er frá 80% til 90%.
Menntunar- og hæfniskröfur
• BS-próf í hjúkrunarfræði, framhaldsmenntun
í skurðhjúkrun er góður kostur.
• Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi
með góða nærveru.
• Starfsumhverfið hentar vel fyrir þá sem eru skipulagðir
og þrífast í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.
Um okkur
Orkuhúsið fluttist með alla starfsemi í nýtt húsnæði árið 2020 og er komið með frábæra
aðstöðu að Urðarhvarfi 8 í Kópavogi. Hjá Læknastöðinni í Orkuhúsinu starfa rúmlega 50
manns og sérhæfing okkar er bæklunarlækningar. Árlega leita til okkar rúmlega 20.000
einstaklingar og við gerum um 5.000 aðgerðir á ári. Við leggjum metnað okkar í að veita
viðskiptavinum sem besta þjónustu og bjóðum upp á líflegt og gefandi starfsumhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri í síma 520
0100. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2021. Umsókn sendist á dagnyj@orkuhusid.is
og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og
fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Allar umsóknir eru geymdar í sex mánuði frá því þær berast, og
þeim síðan eytt. Haft verður samband við umsækjendur ef fleiri störf losna á tímabilinu.
Störf í boði hjá
Orkuhúsinu