Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.12.1964, Síða 13
þess. Á síðastliðnu vori samþykkti því bandalagsstjórnin
að ráða sérstakan fulltrúa, en Guðjón og Haraldur
önnuðust áfram stjóm skrifstofunnar. þótt hvorugur
þeirra gegndi þar fullu starfi.
Eftir að starfið hafði verið auglýst var einróma sam-
þykkt í stjóm B.S.R.B. að ráða Þórð Hjaltason, fyrr-
verandi póst- og símstjóra, til starfa á skrifstofu banda-
lagsins. Hóf hann störf 1. júlí s.l.
Starfsmenn bandalagsins em nú:
Guðjón B. Baldvinsson,
Haraldur Steinþórsson,
Þórður Hjaltason,
Ása Kristjánsdóttir.
Með auknu starfi og fjölgun starfsmanna kom að
því, að húsnæði það, sem bandalagið hefur haft á leigu,
varð of lítið.
Vom húsnæðismálin rædd á nokkrum fundum
bandalagsstjómar og meðal annars athugaðir mögu-
leikar á húsakaupum.
Að lokum var ákveðið að taka tilboði S.Í.B.S. um
leigu á 5. hæð að Bræðraborgarstíg 9. Hið nýja hús-
næði er hæfilega stórt og hentugt fyrir starfsemi banda-
lagsins.
Jafnframt samþykkti bandalagsstjórnin að sækja til
borgarstjórnarinnar um lóð undir framtíðarfélagsheim-
ili B.S.R.B. og einstakra bandalagsfélaga.
Dómsmál.
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar óskaði aðstoðar
bandalagsins vegna uppsagnar Geirs Gunnarssonar,
skrifstofustjóra, en bæjarstjórnin sagði Geir upp stöðu
hans án tilgreindrar ástæðu.
Bandalagsstjómin gerði kröfu um afturköllun upp-
sagnarinnar, en hún var ekki tekin til greina. Var þá
höfðað mál gegn bæjarstjórninni, sem ekki er enn
lokið. Málflutningsmaður er Egill Sigurgeirsson, hæsta-
réttarlögmaður. Bandalagið greiðir helming málskostn-
aðar og starfsmannafélag Hafnarfjarðar hinn helm-
inginn.
Hinn 1. janúar 1962 var þremur skipuðum lögreglu-
mönnum á Keflavíkurflugvelli sagt upp störfum. Voru
það Einar Ingimundarson, Baldur Guðjónsson og Gunn-
ar Albertsson. Ástæðan fyrir uppsögninni var talin
fækkun lögregluþjóna.
Þegar synjað hafði verið kröfu um að afturkalla
uppsagnir þessar höfðuðu hlutaðeigandi starfsmenn mál
gegn ríkissjóði.
Undirréttardómur er fallinn í málum þessum og féllst
hann á þá skoðun stefnda, að ráðherra hafi skýlausa
heimild til að vikja frá skipuðum ríkisstarfsmönnum,
sbr. 20. gr. stjómarskrárinnar nr. 33/1944 per analogiam.
Hlutaðeigandi ráðherra eða eftir atvikum yfirmaður
hlutaðeigandi stjórnsýslugreinar eigi frjálsan ákvörð-
unarrétt, þegar fækkað er starfsmönnum.
Fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs var hins vegar gert
að greiða hverjum þeirra um 20 þúsund krónur um-
fram það, sem þeim hafði verið greitt, er þeir fengu
uppsagnarbréfið. En það voru um 40 þúsund krónur
fyrir hvem.
Málflutningsmaður var Ragnar Ólafsson, hæstaréttar-
lögmaður. Eftir er að taka ákvörðun um áfrýjun máls-
ins til hæstaréttar.
Þórður Hjaltason, starfsmaður B.S.R.B. (Ljósm.: Oddur
Ólafsson).
Þar sem hér er um mikið réttindamál að ræða fyrir
ríkisstarfsmenn almennt, mun B.S.R.B. greiða allan
kostnað af málinu.
Læknamálið.
Á árinu 1962 sögðu sjúkrahússlæknar upp stöðum
sínum hjá ríkisspítölunum. Uppsagnarfrestur rann út
1. nóvember 1962, og lögðu þá sjúkrahúslæknar niður
vinnu, nema yfirlæknar spítalanna. Uppsagnir þessar
stöfuðu af því, að ríkisstjórnin hafði synjað læknunum
um launabætur, sem þeir fóru fram á.
Hinn 10. nóvember 1962 var formaður bandalagsins
kallaður á fund heilbrigðismálaráðherra, og þangað
höfðu einnig verið kvaddir formaður Læknafélags ís-
lands og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Við-
staddir voru ráðuneytisstjóri og yfirlæknar sjúkra-
húsanna.
A þessum fundi skýrði heilbrigðismálaráðherra frá
því, að ríkisstjórnin væri reiðubúin til að beita sér
fyrir lausn læknadeilunnar svokölluðu á þeim grund-
velli, að læknum þeim, sem hlut ættu að máli, reikn-
ist þau kjör, sem um kynni að semjast milli ríkis-
stjórnarinnar og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
eða ákveðin yrðu með dómi Kjaradóms í stað þess að
aðrir starfsmenn yrðu væntanlegra breytinga aðnjót-
andi 1. júlí 1963. Skilyrði fyrir þessari lausn á lækna-
deilunni var, að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
lýsti því yfir, að það væri samþykkt þessari málsmeð-
ferð og myndi ekki byggja kröfur vegna annarra starfs-
hópa á henni.
Bandalagsstjórnin hélt formannafund um þetta mál.
Lagði stjómin til við félögin, að ákveðið yrði, að mæla
ÁSGARÐUR 13