Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.09.2021, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 15.09.2021, Qupperneq 26
Allir þekkja spurninguna um hvað sé í matinn. Réttir þurfa ekkert endilega að vera flóknir til að vera góðir. Hér eru góðar uppástungur um hversdagsmat. elin@frettabladid.is Þegar kólnar í veðri fær fólk oft löngun í eitthvað bragðmikið og hlýtt. Hér er uppskrift að gulróta- súpu með tvisti og heimabökuðu brauði annars vegar og hins vegar chili con carne sem er vinsæll réttur hjá öllum. Asísk krydd Þessi gómsæta gulrótasúpa inni- heldur skemmtileg asísk krydd. Mjög góð og vítamínrík súpa sem hentar vel þegar kólna fer í veðri. Gulrótasúpa Uppskriftin miðast við fjóra 6 stórar gulrætur 1 laukur 2 hvítlauksrif 3 dl kókosmjólk 3-5 dl kjúklinga- eða grænmetis- soð 2 tsk. kóríanderfræ 1 tsk. heil, ristuð piparkorn 1 tsk. garam masala ½ tsk. cumin 1 tsk. engifer, rifin Safi úr 1 límónu Salt og pipar eftir smekk Ferskt kóríander Chilli-flögur Hitið ofninn í 175°C. Skrælið laukinn og skerið niður ásamt gulrótum og hvítlauk. Grænmetið á að baka í um það bil 20 mín- útur eða þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar. Setjið piparkorn og kóríanderfræ á þurra steikar- pönnu á miðlungs hita. Ristið þar til kryddilmur berst. Setjið í mortel og maukið. Látið suðuna koma upp í soðinu. Má nota vatn og súputening. Setjið grænmetið í pottinn og látið allt sjóða saman, því næst er kókos- mjólk sett saman við. Maukið súpuna með töfrasprota, kryddið hana og bragðbætið með salti og pipar. Setjið í súpuskálar og skreytið með fersku kóríander og chilli- flögum. Með súpunni er gott að hafa nýbakað brauð en uppskrift fylgir hér. Auðvel að baka Nýbakað heimagert brauð er alltaf mjög gott. Hér er uppskrift að góðu brauði sem einfalt er að gera. Upp- skriftin ætti að duga í tvö brauð. Það má skipta hveiti út fyrir heil- hveiti ef fólk vill hafa það grófara. Heimabakað brauð 100 g smjör 6,5 dl mjólk 1 pakki þurrger 1 kg. hveiti 2 tsk. salt 2 tsk. sykur 1 egg 1 egg til að pensla með 4 msk. sesamfræ Byrjið á að bræða smjörið. Bætið því næst mjólkinni við og hitið upp í 37°C eða fingurvolgt. Setjið gerið út í blönduna. Hveiti, salt og sykur sett í hrærivélaskál og hnoðað smá- vegis. Setjið eggið í skál og hrærið. Síðan sett út í þurrblönduna ásamt gerblöndunni. Hnoðið deigið vel og látið síðan hefast undir plastfilmu í að minnsta kosti eina klukkustund. Skiptið deiginu í tvennt og setjið í tvö aflöng vel smurð form. Penslið með egginu og stráið sesamfræjum yfir. Látið hvíla í 30 mínútur. Hitið ofninn í 200°C og bakið brauðið í 40 mínútur. Afkælið á rist. Frá Texas Chili con carne þýðir í rauninni Chilli með kjöti. Þetta er ekki ekta mexíkóskur matur heldur á réttur- inn rætur sínar að rekja til Banda- ríkjanna, líklega Texas. Þetta er bragðgóður matur sem hentar vel ef fólk vill eitthvað sterkt og gott. Uppskriftin er einföld og miðast við fjóra. Chili Con Carne 400 g nautahakk 2 msk. smjör eða olía til steikingar 1 laukur, fínt hakkaður 2 hvítlauksrif, smátt skorin 1 chilli-pipar, smátt skorinn 1 dós tómatar 1 dós chilli-baunir 1 rauð paprika, skorin í bita 1 græn paprika, skorin í bita 1½ tsk. chilli-duft ½ tsk. cumin ½ tsk. salt Setjið olíu eða smjör í pott og brúnið hakkið með lauk, hvítlauk og chilli. Hellið tómötunum yfir og leyfið öllu að malla í 4 mínútur. Bætið þá við chilli-baunum, papriku og kryddum. Látið malla áfram í nokkrar mínútur. Bragðbætið með salti ef með þarf og chilli ef rétturinn þarf að vera sterkari. Berið fram með góðu brauði. n Bragðmiklir hversdagsréttir Öðruvísi gulrótasúpa með asískum kryddum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Sterkur og góður chili con carne. Eftirlæti margra. Kristinn Karl Dul- aney hefur alltaf verið hrifinn af lækningamætti náttúrunnar og er að eigin sögn alinn upp við notkun fjalla- grasa. Síðustu tíu ár hefur Kristinn haft tröllatrú á krafti rauðrófa og segir hylkin frá ICEHERBS algera himnasendingu. Kristinn segist alltaf hafa verið fjörmikill og hress og stundað mikið íþróttir. „Sem ungur maður var ég í handbolta og fótbolta, frjálsum, sundi og fleiru. Í dag geng ég mikið og hjóla og er að vinna í því að þvera Ísland. Ég veit nú ekki hvað ég er ekki búinn að ganga á Íslandi en meðal annars hef ég krossað Ísland frá Reykjanesi yfir á Langanes, og sömuleiðis frá Horni austur í Lón. Einnig hef ég hjólað mikið erlendis, meðal annars á Kúbu, í Perú, Víetnam og víðar. Þá hef ég hjólað Jakobsveginn og Noreg endilangan. Í vor gekk ég svo frá Dalvík innst inn í Eyjafjörð sem er hluti af því að þvera Ísland.“ Fær kraft úr rauðrófum „Síðustu tíu ár hef ég haft tröllatrú á krafti rauðrófa. Rauðrófur eru stútfullar af vítamínum og fjörefn- um sem gefa kraft og auka úthald og lífsgæði. Í fjölda ára hef ég keypt ferskar rauðrófur og búið til minn eigin safa sem ég tek inn í skot- formi á hverjum einasta morgni með engiferi og sítrónu. Rauðrófur hafa vissulega fengist í safaformi í búðum en það hefur aldrei heillað mig. En þegar ég heyrði að íslenska fyrirtækið ICHEHERBS væri að framleiða 100% náttúrulegt rauð- rófuduft var ég ekki lengi að koma því inn í rútínuna mína. Íþróttafólk víðs vegar um heiminn hefur fundið hvað kraftur rauðrófunnar er mikill. Nú er ég jafngamall lýðveldinu, eða 77 ára, og rauðrófurnar gefa mér orku og úthald til þess að stunda göngur og hjól eins og mig lystir og auka þannig lífsgæði mín. Það sem er svo hentugt við dufthylkin er að þau taka svo lítið pláss. Ef ég er að ferðast, gangandi eða hjólandi, þá er töluvert auðveldara að kippa þeim með sér heldur en mörgum lítrum af rauðrófusafa. Duftið virkar líka alveg jafn vel og safinn.“ Rauðrófuduft stuðlar að aukinni snerpu og blóðflæði Rauðrófur eru þekktar fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæði. Með auknu blóðflæði eykst snerpa, orka og úthald og því hafa rauðrófur slegið í gegn á meðal íþróttafólks. Rauðrófur koma þér hraðar og lengra náttúrulega og eru því tilvaldar fyrir alla þá sem vilja auka æfingaúthald sitt fyrir reglulega íþróttaiðkun. Þær eru einnig stútfullar af steinefnum, trefjum og vítamínum og eru sönn ofurfæða. Rauðrófur eru gríðarlega andoxandi og hreinsa líkamann og styrkja ónæmiskerfið til muna. Ekki má gleyma því að aukið blóð- flæði getur einnig virkað sem nátt- úruleg kynörvun fyrir bæði karla og konur. Rauðrófur eru sannkölluð heilsubót. Íslensk og kröftug bætiefni ICEHERBS er íslenskt fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni. Lögð er gríðarleg áhersla á að vörur ICEHERBS nýtist viðskiptavinum vel, að virknin skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Gríðarleg áhersla er lögð á að vörurnar innihaldi engin óþarfa fylliefni og eru vörurnar fram- leiddar hér á landi. n ICEHERBS fæst í öllum betri matvöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum. Einnig hefur ICEHERBS opnað nýja vef- verslun þar sem hægt er að panta bætiefnin. www.iceherbs.is Tröllatrú á kraftinum úr rauðrófum Kristinn Karl Dulaney hefur nýtt sér kraft rauðrófunnar í tugi ára. Hann segir rauð- rófuduftið frá ICEHERBS auka orku og úthald hjá sér. Rauðrófur eru alger ofurfæða, stútfullar af vítamínum, auka blóðflæði og úthald. Þá virka þær einnig sem náttúruleg kynörvun fyrir öll kyn. 4 kynningarblað A L LT 15. september 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.