Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 64

Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 64
Matarsmekkurinn breytist oft þegar kólnar í veðri. Grillréttirnir eru sparaðir en bragðmiklir réttir koma í staðinn. Hér eru þrjár góðar klassískar uppskriftir sem henta vel á þessum árstíma. elin@frettabladid.is Nú ætti að vera hægt að fá nýtt lambakjöt í búðum og þá er ekki úr vegi að útbúa klassíska haust- pottrétti. Hér eru hugmyndir að tveimur slíkum og fiskigratíni að auki sem var vinsælt hér á árum áður. Matarmiklir pottréttir eru alltaf vinsælir og þeir geta jafnvel verið enn betri daginn eftir, ef það verður afgangur. Klassískur haustréttur fyrir 4 Lambapottréttur eða frikassé eins og rétturinn var oft nefndur í gamla daga er vinsæll matur í sláturtíð. Lambakjöt af nýslátruðu og nýupptekið grænmeti saman í einum rétti er hinn besti herra- mannsmatur. Hér er uppskrift að slíkum klassískum rétti sem er alveg ástæða til að rifja upp. 1 kg lambakjöt á beini 6 dl vatn 1½ tsk. salt 2 steinseljurætur 1 blaðlaukur 2 gulrætur 1 lítill blómkálshaus 6 dl soð af kjötinu 4 msk. hveiti, hrært í smá vatni 3 msk. dill 3 msk. rjómi 1 msk. sítrónusafi Setjið kjötbitana í víðan pott og hellið vatni yfir þannig að fljóti yfir kjötið. Látið suðuna koma upp og fjarlægið froðu ofasn af vatninu. Saltið. Lækkið hitann og látið malla í eina og hálfa klukkustund. Skolið grænmetið og skerið í bita. Setjið út í pottinn með kjötinu og sjóðið allt áfram í að minnsta kosti 10 mínútur eða þangað til grænmetið mýkist. Takið allt upp úr pottinum og sigtið vökvann. Sjóðið upp á honum aftur og bætið hveiti- blöndunni saman við þar til soðið þykknar. Látið malla í 5-10 mínútur. Bætið þá rjómanum út í. Bragðbætt með salti og pipar ásamt smávegis sítrónusafa. Setjið kjötið og grænmetið út í sósuna og hitið í smástund. Það má setja soðnar kartöflur út í eða bera Bragðmiklir pottréttir sem hita upp líkamann Soðið lambakjöt með grænmeti er ljúffengur réttur. FRÉTTA BLAÐIÐ/GETTY Franskur pottréttur með lambakjöti. Gamaldags fiskigratín sem er í uppáhaldi hjá mörgum. Matarmiklir pott- réttir eru alltaf vinsælir og þeir geta jafn- vel verið enn betri dag- inn eftir ef það verður afgangur. þær á borð til hliðar. Stráið dilli yfir til skrauts. Franskur lambapottréttur Matarmikill og góður réttur sem auðvelt er að gera. Þessi er ættaður frá Frakklandi og uppskriftin mið- ast við fjóra. 1 kg lambakjöt, skorið í bita 2 msk. smjör 10 skallotlaukar 2 hvítlauksrif, skorin smátt 2½ dl rauðvín 1 dós niðursoðnir tómatar, í bitum 1 dl tómatmauk (puré) 2 gulrætur, skornar í bita 1 tsk. timjan 1 lárviðarlauf ½ lítri vatn 150 g hvítar baunir í dós 1 tsk. sykur Hitið smjör á pönnu og steikið kjötið. Setjið það síðan yfir í góðan pott. Steikið laukinn á sömu pönnu og færið síðan í pottinn með kjötinu. Bætið við víni, tómötum, tómatmauki, gulrót og kryddi. Hrærið aðeins saman. Þá fer vatnið út í. Sjóðið upp og látið malla í um það bil eina klukkustund. Skolið baunirnar og setjið út í. Í lokin er bragðbætt með salti, pipar og sykri. Rétturinn er borinn fram með góðu brauði eða kartöflum, eftir smekk. Sumum finnst gott að setja pylsubita í réttinn en það er val hvers og eins. Gamaldags fiskigratín Fiskigratín var algengt á borðum hér fyrr á árum. Hvernig væri að rifja upp þennan góða rétt sem flestum þykir góður? 500 g soðin ýsa 3 msk. smjör 3 dl mjólk 3 msk. hveiti 3 egg ½ tsk. salt ½ tsk. pipar brauðrasp Smjörið er brætt og hveitinu hrært saman við. Bakað upp með mjólkinni og gerður jafningur. Látið malla við vægan hita í 5 mínútur á meðan jafningurinn þykknar. Látið síðan kólna áður en eggjarauðunum og kryddi er bætt út í og hrært. Því næst er fiskurinn settur í sósuna. Eggjahvítur eru stífþeyttar og þeim síðan blandað varlega saman við hræruna. Allt sett í vel smurða eldfasta skál og brauðraspi stráð yfir. Bakað í ofni við 175°C í eina klukkustund. Borið fram með kartöflum. ■ 6 kynningarblað A L LT 2. október 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.