Morgunblaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 65 –Grunnverð kr. 9.475.000,- Klettar 80 –Grunnverð kr. 11.975.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingarlýsingumá finna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinni Klettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis ákvað 7. apríl að leggja dagsektir á Vöku frá og með 1. maí þar til „svæði Vöku á Leirvogstungumelum hefur verið hreinsað af öllum úrgangi samanber bréf heil- brigðiseftirlits 26. janúar sl. Fjárhæð dagsekta er ákveðin 20.000 kr. á dag. Ef ekki verður brugðist við innan hæfilegs tíma mun heilbrigðisnefnd endurskoða fjárhæð dagsekta,“ segir í fundar- gerð. Þar segir einnig að Vaka hafi verið áminnt formlega með bréfi 24. febrúar í samræmi við bókun heilbrigðisnefndar á 59. fundi. Þá var til- kynnt að áformað væri að beita frekari þving- unarúrræðum og að til skoðunar væri að leggja á dagsektir til að knýja á um að svæði fyrirtækisins á Leirvogstungumelum verði hreinsað. Fyrir- tækið fékk frest til að andmæla ákvörðuninni inn- an þriggja vikna. Engin andmæli bárust. Í fundargerð frá 59. fundi, 19. janúar, segir að í eftirliti 12. nóvember sl. hafi komið í ljós að búið var að hreinsa mikið til og voru svæði 2, 3, og 4 orðin „hér um bil hrein“. Þar segir einnig: „Á svæði 1 voru enn þá munir sem á eftir að flytja á brott og skipa út. Vaka sótti um framlengingu frests til að klára tiltekt á Leirvogstungumelum til 10. desember nk. Svæðið var aftur skoðað 12. janúar. Munir voru eftir á svæði 1. Þar var um að ræða [svo] gámar fullir af efni sem á eftir að skipa út, heilir gámar, stór ökutæki og aðskiljanlegri munir af ýmsu tagi. Engin vinnsla á að eiga sér stað og ekki hefur verið ekið með nýtt efni á svæðið.“ Framkvæmdastjóra var falið að hefja þvingunaraðgerðir gegn Vöku. Sektað að óathuguðu máli „Þetta er mjög íþyngjandi aðgerð af hálfu heil- brigðisnefndarinnar, en ég hef trú á að okkur tak- ist að klára þetta fyrir 1. maí,“ sagði Reynir Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Vöku. Hann sagði að samkvæmt stjórnsýslulögum eigi ekki að beita meiri hörku en tilefni er til. „Þeir komu í vettvangsferð í nóvember og aftur í janúar. Við skrifuðum þeim eftir það og sögðum að það væri búið að taka enn meira til, en það hef- ur ekki verið nein vettvangsferð síðan í janúar. Nefndin ákvað að beita fyrirtækið dagsektum að óathuguðu máli,“ sagði Reynir. Farið verður fram á nýja úttekt í næstu viku. Hann gerir einnig at- hugasemd við að Vaka hafi ekki andmælt bréfinu frá 24. febrúar. „Ég bað um fund með formanni heilbrigðis- nefndarinnar til að fara yfir málin. Hún neitaði því og sagði að ég ætti að tala við framkvæmda- stjórann. En þetta er ákvörðun nefndarinnar og formannsins. Ég hef átt gott samstarf við fram- kvæmdastjórann. Þetta mál er komið á skrítinn stað þegar ákveðið er að beita sektum án þess að vita hvað er á staðnum,“ sagði Reynir. Hann sagði að enginn úrgangur væri á svæð- inu. Þar séu meira og minna hreinir málmar og efni, ýmist til eigin nota eða útflutnings. Búið er að fjarlægja allt sem getur valdið efnamengun. „Það eru fleiri hundruð tonna farin. Við höfum líka hreinsað upp ýmislegt sem aðrir hafa skilið eftir á lóðinni. Ég hef staðið í miklum hreins- unarstörfum, bæði á Leirvogstungumelum og við Héðinsgötu. Það á eftir að fínisera svæðið, mála gáma og brytja niður gáma sem ekki eru í lagi. Það er bara ekki hægt að gera allt í einu.“ Dagsektir á Vöku frá 1. maí - Framkvæmdastjóri Vöku segir að búið sé að hreinsa mikið á Leirvogstungu- melum - Segir að heilbrigðisnefnd hafi ekki skoðað svæðið síðan í janúar „Það er miður að við skulum ekki ná að lenda þessu máli. Það hefur afleið- ingar fyrir svæðið. Ég held að ekki sé ágreiningur um að þetta er mjög mik- ilvæg framkvæmd, sérstaklega út frá öryggi en einnig samkeppnishæfni og atvinnuuppbyggingu,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stöðu undir- búnings við Suðurnesjalínu 2. Landsnet hefur lengi undirbúið að leggja aðra línu til Suðurnesja. Nú hafa þrjú sveitarfélög á línuleiðinni samþykkt að gefa út framkvæmda- leyfi en það fjórða, Sveitarfélagið Vogar, synjaði umsókn Landsnets. Þórdís Kolbrún lagði fram minnis- blað um stöðu málsins á fundi ríkis- stjórnar í gærmorgun. Hún tekur fram að það hafi verið gert til að upp- lýsa ríkisstjórnina, hún hafi ekki lagt til neinar sértækar ráðstafanir. Spurð hvað sé til ráða segir Þórdís Kolbrún að unnið sé að lagabreytingum um einföldun regluverksins sem vonandi leiði til þess að mál af þessu tagi komi síður upp. Hún segir að valkostirnir séu að falla frá framkvæmdinni, sem hún tel- ur ekki góða niðurstöðu, eða að nýta kæruheimildir til úrskurðarnefndar eða dómstóla. Hún tekur fram að ákvörðunin sé á valdi Landsnets, hún hafi ekki afskipti af henni. „Eins og staðan er núna sér maður ekki alveg hvernig hægt er að lenda þessu máli á góðan hátt án þess að hefja málið upp á nýtt, sem tekur langan tíma,“ segir ráðherra. helgi@mbl.is Hefur afleiðingar fyrir öryggi á Suðurnesjum - Ráðherra kynnir stöðu Suðurnesjalínu 2 í ríkisstjórn Tölvuteikning/Landsnet Suðurnesjalína Línan á að liggja meðfram eldri háspennulínu. Framkvæmdastjóri Samtaka fyr- irtækja í velferðarþjónustu, Eybjörg Helga Hauksdóttir, segist vona að stjórnvöld taki loks á þeirri alvar- legu stöðu sem upp sé komin á hjúkrunarheimilum um land allt. Brýn þörf sé fyrir fjárveitingu, ell- egar stefni 87% hjúkrunarheimila í gjaldþrot. Skýrsla starfshóps um rekstur hjúkrunarheimila, sem stjórnvöld hafa sagt að sé forsenda aukinnar fjárveitingar til málaflokksins, birt- ist í gær. Samkvæmt niðurstöðum skýrsluhöfunda kostar rekstur hjúkrunarheimila 31,1 milljarð á ári. „Auðvitað er maður orðinn frekar óþreyjufullur, svo vægt sé til orða tekið, að það verði eitthvað gert í þessum málum, þetta gengur ekki svona.“ 87% í SFV stefna í gjaldþrot - Rekstur heimilanna kostar 31 milljarð króna Þær Ásthildur Ómarsdóttir og María Finnbogadóttir heimsóttu Fagradal í Mýrdal í gær þar sem þær fengu að berja nýborin lömb augum. Sauðburður er að hefjast í Mýr- dal og bændur nota ýmis ráð til að létta sér störfin í sauðburði, eins og þennan aflagða barnavagn sem er notaður til að keyra lömb milli húsa og ærnar elta. Kindin Gyða sést að ofan fylgjast með lömbum sínum. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sauðburður að hefjast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.