Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 4

Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 4
Ljósmynd/Sæmundur Óskarsson Skræklóa Fuglinn sem sást í byrjun apríl við Hamragarða undir Vestur-Eyjafjöllum er fimmta skræklóan sem sést á Íslandi svo staðfest sé og það kom ljósmyndaranum í opna skjöldu að um svo sjaldgæfan fugl var að ræða. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tveir sjaldgæfir fuglar hafa í mán- uðinum glatt þá sem mest og best fylgjast með fljúgandi flækingum. Fyrir nokkru sást mjallhegri nokkrum sinnum við Markarfljót og ekki langt frá sást skræklóa við Hamragarða undir V-Eyjafjöllum. Þetta var fimmta skræklóan sem sést hér á landi svo staðfest sé. Hún sást fyrst árið 1939, en hefur síðan sést 1970, 1980, 2014 og núna 2021. Fyrri fundarstaðir eru á Rauða- sandi, Vestmannaeyjum, Selvogi og Garðskaga. Yann Kolbeinsson fuglafræðingur segir að fuglinn hafi væntanlega komið hingað frá Ameríku. Í Evrópu er skræklóa skilgreind sem sjaldgæfur flæk- ingur. Yann segir að svipur sé með skræklóu og frænku hennar sandló- unni. Mjallhegrar hafa sést víða Mjallhegrinn, sem sást nokkrum sinnum fyrri hluta mánaðarins, er 9. eða 10. fuglinn, sem finnst hér- lendis. Sá fyrsti fannst í maí 2000 í Beruvík undir Snæfellsjökli. Slíkir hegrar hafa einnig fundist á Reyk- hólum, Þórshöfn, Kelduhverfi, Djúpavogi, Lóni og í Leirársveit. Mjallhegri finnst víða í heimin- um, en um nokkrar undirtegundir er að ræða. Yann telur að nýjasti gesturinn hafi komið frá Evrópu þar sem útbreiðsla hefur aukist síð- ustu ár vestur eftir álfunni. Hann segir að mjallhegri geti lifað hér vor- og sumarlangt, en erfitt sé að segja hvað verði um þennan fugl. Ekki sé útilokað að hann reyni að komast aftur yfir hafið. Gráhegrar geri það vissulega og koma hingað til vetursetu frá m.a. Noregi. Þriðja sjaldgæfa fuglinn má nefna, en það er kolönd. Hún kem- ur sjaldan hingað til lands, en ein slík hefur í um áratug dvalið með æðarfuglum í grennd við Keflavík. Sjaldgæfar heimsóknir skræklóu og mjallhegra Ljósmynd/Daníel Bergmann Mjallhegri Þessi fugl sást austur í Lóni fyrir tæpum tveimur áratugum. - Svipur með skræklóu og frænku hennar sandlóunni 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Sérfræðingar í sölu fyrirtækja • Ört vaxandi matvælafyrirtæki leitar að fjármagni til að styðja við vöxt, áætluð velta í ár 1 milljarður. • Myndarlegt matvinnslufyrirtæki á Vesturlandi, fyrirtækið er með sterka stöðu á Vesturlandi. Meðal viðskiptavina eru veitingahús, stofnanir og sveitafélög. Velta er rúmar 100 milljónir. • Áhugaverð sérverslun á Laugaveginum með mikla sérstöðu og mikil tækifæri þegar ferðamenn birtast á ný. • Öflugt fyrirtæki í barnavörum, velta tæpar 200 milljónir, góður hagnaður. • Netverslun með íþróttavörur, mikill vöxtur. • Við vinnum að sölu á herrafataverslun, verslunin er með góð viðskipta- sambönd. Góður hagnaður hefur verið af starfseminni um árabil. • Við höfum til sölu kvennfataverslun í Kringlunni, velta um 100 milljónir. • Sérhæft innflutningsfyrirtæki í góðum rekstri. • Vinsæll veitingastaður í Hafnarfirði, velta um 200 milljónir. • Matvarvagna fyrirtæki með um 200 milljóna veltu. Töluverð eftirspurn er eftir fyrirtækjum á verðbilinu 50 til 200 milljónir. Mest er spurt eftir fyrirtækjum í heildsölu, innflutningi, veitingahúsum, ferðaþjónustufyrirtækjum og verktakafyrirtækjum auk þess er eftirspurn eftir fyrirtækjum í sjávarútvegi. Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að skoða sölu á þínu fyrirtæki. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mannanafnanefnd samþykkti ný- lega eiginnafnið Bryn og skyldi það fært á mannanafnaskrá yfir kyn- hlutlaus nöfn. nafnið tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bryns, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. greinar laga um mannanöfn. Aðalsteinn Hákonarson málfræð- ingur er formaður mannanafna- nefndar. Hann sagði að Þjóðskrá Ís- lands færði nöfn á mannanafnaskrá en mannanafnanefnd ákvæði hvaða nöfn fari á hana. „Almennt er nöfnum einungis bætt á listann vegna umsókna um nöfn sem stendur til að skrá á tiltek- inn nafnbera [nýfætt barn eða full- orðinn einstakling sem ætlar að breyta nafni sínu]. Það er ekki setið við að finna upp á nöfnum eða taka á móti almennum tillögum um nöfn,“ sagði Aðalsteinn í skriflegu svari. Eftir að lög um kynrænt sjálfræði voru sett fór mannanafnanefnd að fá umsóknir um nöfn leidd af hvor- ugkynsorðum svo sem Regn og Frost. Nefndin hefur samþykkt nokkur nöfn af þessu tagi. „Á mannanafnaskránni eru öll eiginnöfn flokkuð sem kvenkyns- eða karlkynsnöfn. Þar sem fyrr- greind nöfn eins og Regn og Frost geta hvorki talist kvenkyns- né karl- kynsnöfn þá mælti manna- nafnanefnd svo fyrir í fyrsta úr- skurði þar sem nafn af þessu tagi var samþykkt að það yrði fært á lista yfir kynhlutlaus nöfn [í greinargerð með lögum um kynrænt sjálfræði er líka raunar mælst til þess að slíkur listi sé útbúinn]. Eftir því sem ég best veit þá hefur þetta ekki verið gert, en nöfnin í staðinn færð bæði á lista yfir kvenkyns- og karlkyns- nöfn,“ sagði Aðalsteinn. Engin áhrif á nafnrétt fólks Hann sagði að helsta breytingin sem varð á mannanafnalögum þegar lög um kynrænt sjálfræði voru sam- þykkt hafi verið að málsgrein sem kvað á um að drengjum skyldi gefa drengjanöfn og stúlkum stúlknanöfn féll niður. „Margir virðast líta svo á að með því hafi verið ákveðið að öll nöfn skyldu vera kynhlutlaus. Því ætti ekki lengur að flokka nöfn eftir kyni. Að mínu mati er þetta ekki nauðsynleg afleiðing af nefndri laga- breytingu. Nöfn geta áfram verið kvenkynsnöfn eða karlkynsnöfn þótt ekki þurfi lengur að fara saman kyn nafnbera og kyn nafns. Í sumum til- vikum er líka erfitt að meta nöfn málfræðilega án þess að gera ráð fyrir að það sé af ákveðnu kyni, a.m.k. málfræðilega. Þá er manna- nafnaskráin líka hugsuð sem hjálp- artæki fyrir almenning og það má vera ljóst að flestum er gagn að því að nöfn séu flokkuð eftir kyni,“ skrif- aði Aðalsteinn. Hann sagði að þótt mannanafnanefnd hafi kosið að halda áfram að flokka nöfn eftir kyni þá hafi það ekki nein áhrif á nafnrétt fólks. Þótt nefndin flokki tiltekið nafn sem t.d. karlmannsnafn megi hver sem er taka það upp. Listi yfir kynhlutlaus nöfn væntanlegur - Mannanafnanefnd ákveður hvaða nöfn eru skráð - Þjóðskrá Íslands útbýr skrána - Bryn, Frost og Regn eru dæmi um kynhlutlaus nöfn - Bæði drengir og stúlkur geta t.d. heitið Eir, Júní eða Júlí Morgunblaðið/Kristinn Nýburar Nöfn eru orðin fjölbreytt. Aflamark í ýsu verður aukið um átta þúsund tonn á yfirstandandi fisk- veiðiári, samkvæmt reglugerð sem Kristján Þór Júlíusson sjávar- útvegsráðherra hefur undirritað. Hækkunin verður dregin frá því aflamarki sem annars yrði úthlutað á fiskveiðiárinu sem hefst 1. septem- ber. Tilefni þessarar ákvörðunar eru erfiðleikar sem rekja má til mikillar ýsugengdar á veiðisvæðum við Ís- land en 21. apríl var búið að veiða rúmlega 90% aflaheimilda í ýsu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Hafrann- sóknastofnun og Fiskistofa taka undir að nauðsynlegt sé að bregðast við vandanum, segir í frétt frá ráðu- neytinu. Í áliti Hafrannsóknastofnunar segir að stofnunin leggist ekki gegn því að aflamark verði aukið á yfir- standandi fiskveiðiári. „Stofnunin bendir á að aukningin nú gæti valdið því að svipaður vandi komi upp á næsta fiskveiðiári og því mikilvægt að öllum verði ljóst að aukningin nú verði til frádráttar á komandi fisk- veiðiári. Slík skilaboð samhliða út- hlutun gætu stuðlað að því að ekki verði farið í aukna beina sókn í ýsu- stofninn sem aukið getur á mögu- legan vanda á komandi fiskveiðiári,“ segir í álitinu. aij@mbl.is Aflamark í ýsu auk- ið um átta þús. tonn - Heimildir dragast frá á næsta ári Hjá Þjóðskrá Íslands fengust þær upplýsingar að mjög fljót- lega yrði birtur listi yfir kyn- hlutlaus nöfn á vefnum skra.is og mögulega einnig á island.is. Þjóðskrá sendi Morgunblaðinu eftirfarandi dæmi um kynhlut- laus nöfn: Logn, Bryn, Kaos, Frost og Regn. Eftirfarandi eru dæmi um nöfn sem eru á mannanafnaskrá sem drengja- og stúlknanöfn: Abel, Aríel, Auður, Blær, Elía, Eir, Júní, Júlí, Karma og Maríon. Listinn birtur mjög fljótlega KYNHLUTLAUS NÖFN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.