Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 8

Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík Sími 569-6000 - www.os.is Ársfundur Orkustofnunar 2021 sendur út á www.os.is 29. apríl 14:00 - 16:30 D A G S K R Á 13:45 Mæting 14:00 Ávarp ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir 14:15 Ávarp orkumálastjóra Dr. Guðni A. Jóhannesson 14:30 Orkustefna, Green Deal og áherslur hjá Orkustofnun Danmerkur Kristoffer Böttzauw, forstjóri Orkustofnunar Danmerkur 15:00 Áskoranir í uppbyggingu dreifikerfis raforku Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets 15:15 Kaffihlé 15:20 Orkusjóður helstu áherslur Ragnar K. Ásmundsson Ph.D. verkefnisstjóri, Orkusjóður og orkuverkefni 15:35 Síðustu vígi jarðefnaeldsneytis á Íslandi Sigurður I. Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs 15:50 Orkan og skjölin Þórunn Erla Sighvats, sérfræðingur, upplýsingamál, Orkustofnun 16:00 Orkuskipti í samgöngum Þorvaldur Bragason, verkefnisstjóri gagnamál, Orkustofnun og Sigurður E. Hjaltason, sérfræðingur, gagnagrunnar, Orkustofnun 16:15 Fundarlok Fundarstjóri: Hanna Björk Konráðsdóttir, lögfræðingur, Orkustofnun Sérfræðingar í Bretlandi segja aðvegna mikilla bólusetninga ríki ekki lengur farsóttarástand þar í landi. Og ráðgjafar ríkisstjórn- arinnar ræða um að sumarið geti verið grímulaust og að þegar líður á júní verði öllum hömlum innanlands aflétt. Hér gengur hægar að bólusetja en í Bretlandi og skýrist það af því að af óút- skýrðum ástæðum ákváðu íslensk stjórnvöld að hengja sig aftan í Evrópu- sambandið við öflun bóluefna. - - - Þrátt fyrir þettaþokast mál áfram og í vikunni barst sú ánægjulega frétt að Norð- menn hefðu ákveðið að lána Íslend- ingum bóluskammta sem þeir væru ekki að nota, sem stendur að minnsta kosti. - - - Þetta hraðar bólusetningarferlinuen þetta rifjar líka upp orða- skipti á Alþingi fyrir rétt tæpum mánuði þegar heilbrigðisráðherra gaf skýrslu um hertar sóttvarna- reglur og Sigríður Andersen kallaði eftir því að Ísland óskaði eftir að fá lánað bóluefni sem þá lá ónotað í Evrópu. - - - Þetta þótti heilbrigðisráðherrafráleit hugmynd og vildi ekki „seilast í bóluefni sem eru á bið hjá nágrannaþjóðununum“. - - - Þetta er bara eitt dæmi um þver-girðingsháttinn í heilbrigð- isráðuneytinu um þessar mundir sem hefur meðal annars tafið bólu- setningar hér á landi. Nú er talið í lagi að fá lánað, en við hefðum lík- lega getað flýtt bólusetningum veru- lega ef viðhorfið hefði verið annað. Sigríður Andersen Líklega hefði mátt fá efni lánað fyrr STAKSTEINAR Svandís Svavarsdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Einvígi verður á milli tveggja úr hópi sigursælustu knapa landsins síðustu árin á lokamóti Meistara- deildar Líflands í hestaíþróttum sem fram fer í dag. Árni Björn Pálsson er hæstur í heildar- stigakeppninni fyrir lokamótið en Jakob Svavar Sigurðsson er skammt undan. Keppt verður í tveimur síðustu greinunum á lokamótinu, tölti og flugskeiði. Meðal keppenda eru sig- urvegarar greinanna á síðasta ári, Viðar Ingólfsson á Maístjörnu frá Árbæjarhjáleigu 2 í töltinu og Sig- ursteinn Sumarliðason á Krókusi frá Dalbæ í flugskeiðinu. Árni Björn og Jakob Svavar taka þátt í báðum greinum dagsins. Til í slaginn Árni Björn hefur sigrað fjórum sinnum í Meistaradeildinni, oftar en aðrir. Jakob Svavar hefur hins veg- ar sigrað síðustu tvö ár. Árni Björn segist vita vel af Jak- obi Svavari frekar nálægt sér. „Ég er til í slaginn, hlakka til að taka þátt í lokamótinu,“ segir Árni. Seg- ist hann vera með frábæra hesta og nefnir Ljúf frá Torfunesi, ríkjandi landsmótssigurvegara í tölti. Árni Björn er með 44 stig í heildar- stigakeppni knapa og Jakob Svavar með 38 stig. Lengra er í Eyrúnu Ýri Pálsdóttur sem er með 23 stig og Olil Amble með 20 stig og eiga þær aðeins fræðilegan möguleika á að sigra í heildarstigakeppninni. Top Reiter, lið Árna Björns, er efst í stigakeppni liða fyrir lokamót- ið. Hestvit/Árbakki er í öðru sæti. Vegna samkomutakmarkana verða ekki áhorfendur í höllinni. „Það er svolítið súrt því miklu skemmtilegra er að finna fyrir áhorfendum, það myndast ákveðin stemning, sem maður saknar,“ seg- ir Árni Björn. Mótið er í Ingólfshvoli í Ölfusi og hefst klukkan 17 í dag. Meistaradeild Jakob Svavar Sigurðsson á fljúgandi ferð í keppni. Einvígi háð um sig- ur í meistaradeild - Úrslit ráðast á lokamóti í dag Jakob Svavar Sigurðsson Árni Björn Pálsson „Það eru gríðarleg vonbrigði,“ segir Árni Björn Pálsson um þá ákvörðun stjórnar Feif og skipu- leggjenda í Danmörku að fella niður Heimsleika íslenska hestsins en mótið átti að halda í byrjun ágúst. Það var fellt niður vegna óvissu vegna kórónu- veirufaraldursins um mótið sjálft og ekki síður óvissu með það hvort öll liðin geta mætt til móts. Árni Björn segir að menn skipuleggi sig langt fram í tím- ann með ákveðna hesta fyrir Heimsleika. Segist hann hafa unnið með hryssu í þrjú ár með Heimsleika í huga. „Það er sorg- legt að mótinu skuli hafa verið aflýst. Ég þekki ekki allar hliðar málsins en velti því fyrir mér hvort ekki hafi verið hægt að kanna möguleika á að fresta mótinu fram í september,“ segir hann. Gríðarleg vonbrigði HM AFLÝST Landsliðshópur Íslenska landsliðið fer ekki til Danmerkur í sumar. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.