Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 18
OPIÐ HÚS Á MORGUN MILLI KL. 14-15 Fallegur 59,8 fm sumar- bústaður byggður 2011 sem skiptist í þrjú herb., svefnlofti, stofu, baðherb. og eldhús. Heitur pottur, vinnuskúr og gróðurhús. Leigulóð en mögulegt að kaupa hana. Um 1. klst. frá Rvk. Hitatúpa og nýlegir rafmagnsofnar. Verð 29,5 millj. HB FASTEIGNIR Hrafnhildur Bridde Löggiltur fasteignasali Sími 821 4400 Kringlan 7, 103 Reykjavík – Sími 821 4400 – hbfasteignir.is Selsás 9 í landi Borga í Borgarnesi Rétt fyrir ofan búðina Baulu (Nú Orkan) 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segir að hár kostnaður vegna komu ferðamanna til landsins hamli því að ferðir til landsins kom- ist hratt í gang. Kostnaðurinn verð- ur einkum til í heimalöndum ferðamanna, en einnig að hluta til hér á landi. Kristófer Oli- versson, fram- kvæmdastjóri Center Hotels, gagnrýndi kostn- aðinn í samtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni. Hann kenndi þar háu verði á svo- kölluðum PCR-prófum um að eng- inn rífandi gangur yrði líklega í bók- unum í sumar, eins og hann orðaði það. Prófin, sem taka þarf þrisvar til fjórum sinnum í ferð, muni draga úr ferðavilja. Álíka og flugfargjaldið Eins og sést á meðfylgjandi töflu er kostnaður Breta, sem voru 13% þeirra ferðamanna sem sóttu Ísland heim árið 2019, hæstur, eða rúmar sjötíu og átta þúsund krónur á mann. Ef fjögurra manna bresk fjöl- skylda væri á ferð væri kostnaður- inn vegna þessa vel yfir þrjú hundr- uð þúsund krónur. Eins og Jóhannes bendir á er kostnaðurinn álíka mikill og af flugfargjaldinu sjálfu. Kostnaðurinn leggst á í tveimur skrefum. Fyrir brottför felst hann í forskráningu sem kostar 2.600 krón- ur og PCR-prófi, sem nauðsynlegt er að framvísa við komuna til lands- ins til að sýna fram á að viðkomandi sé ekki sýktur af Covid-19. Það kostar 26.406 krónur. Á Íslandi fer ferðamaðurinn í tvö próf og 5-6 daga sóttkví, en þessi próf eru gjaldfrjáls. Áður en landið er yfirgefið þarf að taka próf sem kostar 14 þúsund og í Bretlandi tekur við tíu daga sóttkví. Í sóttkvínni þarf að taka tvö próf sem kosta samtals 35.208. Samtals gera þetta 78.214 miðað við gengið þegar upplýsingarnar voru upp- færðar síðast, 20. apríl sl. Þess ber að geta að ólöglegt er fyrir Breta að ferðast til Íslands sem stendur. Bresk yfirvöld hafa sagt að fyrsta mögulega dagsetning fyrir ferðir til útlanda sé 17. maí nk. en sú dagsetning hefur ekki verið staðfest. Jóhannes segir að af hálfu ís- lenskra stjórnvalda hafi landamæra- skimun verið gjaldfrjáls síðan hún var gerð að ófrjávíkjanlegri kröfu. Kostnaðurinn verði að mestu til í hverju landi fyrir sig. „Við vonumst til að þessi kostnaður lækki hratt þegar kemur inn á sumarið, þegar bólusetningar verða orðnar almenn- ar. Þá verði slakað beggja megin á þessum skimunarkröfum og þar með lækki kostnaðurinn.“ Bara bólusettir komi Hann segir viðbúið eins og staðan er núna og líklega út júnímánuð, að stærstur hluti ferðamanna verði bólusettir ferðamenn. „Þá lækkar þessi kostnaður töluvert fyrir þá. Þeir þurfa þá ekki að framvísa PCR-prófi, en þurfa hins vegar bólusetningarvottorð. Því gæti auð- vitað fylgt einhver kostnaður, en hann er minni en skimunarkostn- aðurinn. Þá má kannski vonast til þess hvað bólusetta varðar að það verði ekki jafn strangar kröfur um framvísun nýrra prófa við heim- komu.“ Hann segir það von aðila í ferða- þjónustunni að kostnaður fyrir þá sem hafa smitast af veirunni eða eru bólusettir verði minni. „En fyrir hina er þetta gríðarleg hindrun, hvað þá ef maður reiknar þetta yfir á heila fjölskyldu. Svona aukakostn- aður spilar inn í ákvarðanatöku hjá mörgum.“ Jóhannes bendir á að Ísland sé ekki eyland að þessu leyti. Svipaðar ráðstafanir séu í gangi um alla Evr- ópu. Afla sér upplýsinga Spurður að því hversu vel ferða- menn séu upplýstir um kostnaðinn segir Jóhannes að ferðamenn séu al- mennt duglegir að afla sér upplýs- inga áður en lagt er upp í ferðalag. Hann segir að fólk nýti sér þær bjargir sem eru til staðar eins og upplýsingavefinn ReOpen Europe, en þar megi finna reglur sem gilda í hverju landi, sem og upplýsingar um kostnað. Hann segir að Icelandair og ferðaskrifstofur hér á landi séu gjarnan í góðu samstarfi við stórar erlendar ferðaskrifstofur. „Þau hafa reynt að miðla þessum upplýsingum eins hratt og vel og kostur er og á eins einfaldan hátt og hægt er einn- ig, bæði til almennings en einnig til stærri aðila á markaðnum. Það hef- ur gengið nokkuð vel. Það hefur að- eins skort upp á að upplýsingar ber- ist nógu hratt þegar breytingar verða og við höfum óskað eftir því að til væru spurningar og svör á helstu tungumálum um leið og hlut- irnir eru kynntir. En það hefur ver- ið allur gangur á því, enda gerast hlutirnir oft hratt.“ Hann segir íslenska ferðaþjón- ustuaðila, eins og Ferðamálastofu, Samtök ferðaþjónustunnar, atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytið og Isavia, hafa unnið vel saman að upp- lýsingamiðluninni. „Almennt séð held ég að fólk sé nokkuð vel upp- lýst um þetta þegar það fer að leita sér að bókunum.“ Hár kostnaður PCR fælir frá - Bresk fjögurra manna fjölskylda þyrfti að greiða 300 þúsund krónur fyrir próf - Dýrt fyrir Kan- adamenn og Bandaríkjamenn einnig - Allur aukakostnaður spilar inn í ákvarðanatöku ferðamanna PCR-próf » Til að greina SARS-CoV-2- kórónuveiru » Gert á sýkla- og veirufræði- deild Landspítala » Einnig notað við sýnatöku ferðamanna » Prófið leitar að erfðaefni veirunnar (kjarnsýru, RNA) Áætlaður kostnaður vegna sóttvarnaráðstafana við ferðalag til Íslands Kostnaður ferðamanna með búsetu í viðkomandi löndum, upphæðir eru í íslenskum krónum Bandaríkin Bretland Þýskaland Kína Frakkland Kanada Spánn Ítalía Danmörk Holland Svíþjóð Noregur Forskráning 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 2.600 Próf fyrir brottför frá heimalandi 18.911 26.406 22.785 2.474 0 16.107 15.190 14.279 0 15.190 21.749 10.637 Tvö próf og 5-6 daga sóttkví á Íslandi Próf fyrir brottför frá Íslandi* 24.000 14.000 14.000 24.000 14.000 24.000 14.000 14.000 ** ** 14.000 Próf við komu til heimalands 35.208 16.107 0 Sóttkví eftir komu Já 10 dagar 10 dagar 14 dagar 14 dagar 10 dagar 14 dagar 10 dagar 10 dagar 10 dagar 10 dagar Samtals kostnaður 45.511 78.214 39.385 29.074 16.600 58.814 17.790 30.879 16.600 17.790 24.349 27.237 Hlutdeild í ferðamannafjölda 23% 13% 7% 6% 5% 4% 3% 2% 2% 2% 2% 2% *Ferðamenn með evrópskt sjúkratryggingaskírteini og skilríki með mynd fá að mestu fellt niður 10.500 kr. komugjald á heilsugæslu hér. Því er gert ráð fyrir 14 þús. kr. kostnaði hjá Evrópubúum fyrir sýnatöku og vottorð en 24 þús. kr. fyrir aðra. ** Í Hollandi eru heimamenn ekki er krafðir um PCR-próf við komu frá Íslandi meðan Ísland er skilgreint sem lág-áhættusvæði. Sænskir ríkisborgarar þurfa ekki að framvísa PCR-prófi við heimkomu ef flogið er beint til Svíþjóðar frá Íslandi. Heimild: Ferðamálastofa.Tekið saman 20.4. 2021. Jóhannes Þór Skúlason 24. apríl 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.43 Sterlingspund 174.61 Kanadadalur 99.47 Dönsk króna 20.252 Norsk króna 14.994 Sænsk króna 14.836 Svissn. franki 136.59 Japanskt jen 1.1604 SDR 179.76 Evra 150.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.8485 Hrávöruverð Gull 1785.65 ($/únsa) Ál 2373.5 ($/tonn) LME Hráolía 66.22 ($/fatið) Brent « Ný verðtryggð húsnæðislán við- skiptabankanna voru langtum minni í marsmán- uði en umfram- og uppgreiðslur á sams konar lánum. Þetta sýna nýbirtar tölur Seðlabank- ans. Þar kemur fram að umfram- og uppgreiðslurnar hafi numið 4,9 millj- örðum umfram ný lán. Hefur svipaðrar þróunar gætt allt frá því í apríl í fyrra en frá þeim tíma hafa umfram- og upp- greiðslur numið hærri fjárhæð en ný verðtryggð útlán í hverjum mánuði. Samtals nema upp- og umframgreiðsl- urnar 70 milljörðum hærri fjárhæð en ný útlán á tímabilinu frá því í apríl 2020. Á sama tíma og verðtryggð útlán heimilanna hjá viðskiptabönkunum dragast hratt saman aukast óverð- tryggð útlán nokkuð stöðugt. Þannig námu óverðtryggð húsnæðislán 26,6 milljörðum í marsmánuði og jukust þau um 3,3 milljarða frá fyrri mánuði. Frá áramótum eru ný óverðtryggð húsnæð- islán jákvæð um ríflega 80 milljarða króna. Frá aprílmánuði í fyrra eru þau já- kvæð sem nemur 358,4 milljörðum króna og er sveiflan milli óverðtryggðra og verðtryggðra lána því ríflega 428 milljarðar á tímabilinu. Enn gefa verðtryggðu lánin eftir innan bankanna STUTT « 105 einstaklingar gengust undir hæf- ismat fjármálaeftirlits Seðlabankans í fyrra en því er ætlað að meta hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra hjá eftirlitsskyldum aðilum. Enginn féll á prófinu í fyrra. Var það nokkur breyting frá fyrri árum. Árið 2019 voru fjórir einstaklingar sem ann- aðhvort stóðust ekki hæfismat vegna ófullnægjandi þekkingar eða mættu ekki í boðað viðtal. Árið 2018 voru þeir sex talsins. Í nýju riti Seðlabankans, Fjármálaeftirlit 2021, segir að ekki hafi tekist að taka viðtöl við nokkurn fjölda stjórnarmanna í fyrra vegna kórónu- veirunnar og að því verði lokið í ár. Enginn féll í hæfismati hjá fjármálaeftirlitinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.