Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 19

Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '* -�-"% ,�rKu!, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Bólusetningar vegna kórónuveirunnar hafa heppnast vel samkvæmt nýrri rannsókn í Bret- landi. Líkurnar á að smitast minnkuðu verulega við fyrri skammt bóluefnanna AstraZeneca og Pfizer. Gögnuðust þau 75 ára og eldri og fólki með undirliggjandi heilsufarsvanda jafnvel og öðru fólki. Rannsóknir bresku hagstofunnar ONS og Oxfordháskóla leiddu líka í ljós að veruleg mót- efnissvörun átti sér stað í öllum aldurshópum við hvoru bóluefninu sem var. Rannsóknirnar fóru fram hvor í sínu lagi. Byggjast þær á veiru- prófunum á 370.000 Bretum. Niðurstaðan þykir sanna að bóluefnin sem brúkuð hafa verið til að verja landsmenn fyrir sýkingu af völdum kór- ónuveirunnar geri það. Í fyrri rannsókninni voru 65% minni líkur á að fólk sem fengið hafði eina sprautu af ann- aðhvort Oxford-AstraZeneca eða Pfizer-BioN- Tech sýktist af veirunni. Þremur vikum eftir bólusetningu á tímabilinu desember 2020 og þar til í byrjun apríl fækkaði sýkingum með sjúkdómseinkennum um 74% og sýkingum án einkenna um 57%. Þá voru þeir sem höfðu feng- ið seinni skammt Pfizer-bóluefnisins 90% ólík- legri til að sýkjast. Sama útreikning var ekki hægt að beita AstraZeneca þar sem þátttak- endur voru of fáir. Einn af yfirmönnum rannsóknanna, Koen Pouwels, segir að gögnin staðfesti að rétt hafi verið að auka bilið milli fyrri sprautu og þeirrar seinni til að hámarka dreifingu sprautaðra og draga úr spítalavist og dauðsföllum. Pouwels sagði gögnin sýna að enn væri fyrir hendi sú hætta að bólusettir sýktust aftur og dreifðu sýkingunni til annarra og því væri áfram brýnt að bera andlitsgrímu og halda tiltekinni fjar- lægð milli manna. Í seinni rannsókninni tóku þátt um 46.000 manns sem sprautaðir höfðu verið einu sinni. Sýndu þeir sterka mótefnissvörun í öllum ald- urshópum sem þykir benda til að bóluefnin hafi örvað varnarkerfi líkamans gegn kórónuveir- unni. Svörunin stóð í stórum dráttum sagt allt að 10 vikur, að sögn vísindamannanna. Mótefnisstyrking 80 ára og eldri Betri svörun átti sér stað hjá lægri aldurs- hópum fullorðinna en 60 ára og eldri með hvoru bóluefninu sem var. En eftir tvo skammta mældist mótefni Pfizer meira í öllum aldurs- hópum, segja skýrsluhöfundar. Ein uppgötvun sem hefur komið vísinda- mönnunum í opna skjöldu er hversu mótefna- svörunin jókst mikið hjá 80 ára og eldri eftir seinni sprautuna, sem var miklu meiri en í yngri aldurshópunum. Niðurstaðan beinir athyglinni að nauðsyn þess að fólk fái seinni skammt bólu- efnisins líka til aukinnar verndar. Áfram þykir þó óljóst hvað aukning mótefnisprótína eftir bólusetningu táknar í raun og veru. Aðalstjórn- andi rannsóknanna, prófessor Sarah Walker í Oxford, segir enn óvitað hversu mikil mótefn- issvörunin þarf að vera og hve lengi til að verja fólk fyrir kórónuveirunni til langframa. Upplýs- ingar sem draga megi út úr rannsóknunum út næsta ár gæti hjálpað til við að svara því. Bólusetning gagnleg öllum Bólusettur Hátt til fjalla í Nepal sprautar læknir mann með Covishield-bóluefni á heilsu- gæslustöð skammt frá bænum Lukla. - Veruleg mótefnissvörun átti sér stað í öllum aldurshópum við bæði AstraZeneca og Pfizer Brotið var blað í sögu geimferða með geimskoti SpaceX Falcon 9-geimflaugarinnar í Flórída í gær. Var þetta í fyrsta sinn sem flaug og geimhylki áhafnar eru end- urnotuð. Með í för voru fjórir geimfarar frá þremur þjóð- um sem stunda munu rannsóknir og gera á annað hundr- að tilraunir fram á haust í alþjóðlegu geimstöðinni, en geimfar þeirra mun tengjast henni í dag, laugardag. Á sviði líf- og læknisfræði munu þeir rannsaka m.a. öldrun ónæmiskerfisins, nýrnastarfsemi og vöðvarýrnun. Þá munu þeir gera rannsóknir á sviði umhverfismála, en einnig munu þeir koma fyrir nýjum sólrafhlöðum á stöð- inni. agas@mbl.is AFP Út í geim á endurnotuðu geimfari Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní hætti hungurverkfalli sínu í rússnesku fangelsi í gær eftir 24 daga svelti. Fyrr í gær lögðu einka- læknar hans hart að honum að neyta matar ellegar væri lífi hans og heilsu stefnt í voða. Navalní hóf að afþakka fangels- ismatinn 31. mars til að vekja at- hygli á kröfu sinni um betri lækn- isþjónustu innan fangelsismúranna. Hann segir borgaralega lækna hafa skoðað sig tvisvar og „miðað við framgang sveltisins og aðstæður hætti ég nú hungurverkfallinu“. Það mun hann gera jafnt og þétt, sagði Navalní á samfélagsvefnum Instagram. Læknar hans vöruðu við því um síðustu helgi að andófsmaðurinn gæti dáið á hverri mínútu. Seint í fyrrakvöld vöruðu þeir hann aftur við og sögðu „frekara hungur“ geta skaðað heilsu hans verulega og leitt til dauða. Navalní er helsti gagnrýnandi Vladímírs Pútíns forseta Rússlands og var hann klófestur við heim- komu til Rússlands í janúar eftir að hafa farið til Berlínar til lækninga við eitrun sem hann var beittur í Síberíu í fyrra. Þar var taugaeitr- inu novítsjok laumað í nærbuxur hans. Féll hann í dá og barðist dög- um saman fyrir lífi sínu. Rússnesk yfirvöld hafa neitað að hafa komið þarna nærri. agas@mbl.is Navalní hættur hungurverkfalli AFP Mótmæli Stuðningsmenn Navalní innan Rússlands sem utan hafa efnt til mótmæla honum til stuðnings. Er þessi mynd af slíkum í Berlín í fyrradag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.