Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 ÚRVAL AF LJÓSUM FRÁ BELID Þ rátt fyrir nokkra óvissu um stöðu sóttvarnamála ákvað stjórn SÍ að hefja keppni í landsliðsflokki eins og áætlað hafði verið sl. fimmtudag í sal Siglingaklúbbsins Ýmis í Kópavogi án áhorfenda. Þar voru einungis tíu keppendur og nokkrir starfsmenn mótsins. Mótið er vel skipað en töfluröð lítur svona út: 1. Vignir Vatnar Stefánsson. 2. Alexander Oliver Mai. 3. Helgi Áss Grétarsson. 4. Sigurbjörn Björnsson. 5. Hannes Hlífar Stefánsson. 6. Hjörvar Steinn Grétarsson. 7. Guðmundur Kjartansson. 8. Björn Þorfinnsson. 9. Bragi Þorfinnsson. 10. Jóhann Hjartarson. Hart var barist í 1. umferð. Ekk- ert jafntefli! Helgi Áss, Hjörvar Steinn, Bragi, Björn og Jóhann unnu sínar skákir. Stigahæsti keppandinn, Hjörvar Steinn Grétarsson, ætlar sér áreið- anlega stóra hluti í þetta sinn og vann sigur á Hannesi Hlífari í spennandi skák fyrstu umferðar: Hannes Hlífar Stefánsson – Hjörvar Steinn Grétarsson Drottningarindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5. b3 d5 6. Bg2 Rbd7 7. cxd5 exd5 8. 0-0 Bd6 9. Rc3 0-0 10. Bb2 He8 11. a3 c6 12. He1 Re4 13. Hc1 Bb7 14. b4 a5 15. bxa5 Hxa5 16. Rxe4 dxe4 17. Rd2 Rf6 18. Rc4 Hd5 19. Rxd6 Léttir um of á stöðu svarts. 19. Db3 Bc7 20. a4 kom sterklega til greina. 19. … Dxd6 20. Db3 h5 21. a4 h4!? 22. Ba3 Hjörvar hugðist sennilega svara 22. Dxb6 með 22. … e3 með flókinni stöðu. 22. … Dd7 23. e3 Hh5 24. Dxb6 Rd5 25. Db2 25. Db1 kom til greina en svartur á 25. … Ba6! – ekki 25. … f5 26. Bd6! og hvítur á betri stöðu. 25. … He6 26. De2 Heh6 27. g4 Hg5 28. h3 f5 29. f4 exf3 30. Bxf3 fxg4 31. hxg4 Hhg6 32. Kh1 c5! Snarplega leikið. Nú opnast fyrir biskupinn. Báðir keppendur voru í talsverðri tímapressu sem Hjörvar höndlaði mjög vel. 33. e4 Hhxg4 34. Bxg4 Hxg4 35. Hb1 Hg5 36. Dh2? 36. Df1 gaf meiri von. Nú á svart- ur nokkrar leiðir til að knýja fram vinning. 36. … Hg3 37. Hxb7 Vonast eftir 37. … Dxb7 38. Dxh4! 37. … Dg4! 38. Hg1 Dxe4+ 39. Hg2 Re3 40. Hb8+ Kh7 41. He8 Db1+ - og hvítur gafst upp. Framhaldið gæti orðið 42. Hg1 Db7+ 43. Hg2 Rxg2 o.s.frv. Lausnir á afturvirkum dæmum Í síðasta pistli voru birtar tvær þrautir úr bókinni The chess mys- teries of Sherlock Holmes: Hvítur á leik. Hver var síðasti leikur svarts – og hver var leikur hvíts þar á und- an? Svartur lék 1. … Kxa8 og leikur hvíts þar á undan var 1. Rb6-a8. Svartur á leik. Er löglegt að hrókera? Gefið er að hvorki hvítur né svart- ur hefur drepið annan taflmann í síð- asta leik. Síðasti leikur hvíts var ekki með peðinu á f3 því það hefði verið með uppskiptum, e2xf3. Ekki var hrók leikið því að frá e1 væri svarti kóng- urinn í skák. Hafi kóngi verið leikið frá h2 eða h1 gæti svartur ekki hrók- erað. Þá er sá möguleiki fyrir hendi að hvítur hafi hrókerað síðast. En hver var þá síðasti leikur svarts? Kóngs- eða hróksleik má útiloka. Ekki var það með biskupinum því að þá ætti hvítur engan leik sem leyfði stutta hrókun. Hafi svartur leikið c- peðinu þýddi það að síðasti leikur hvíts væri e2xf3 en þá hefði bisk- upinn á d1 verið vakinn upp af peði sem upphaflega stóð á d7, brotist í gegn á d2 með skák og þá gæti hvít- ur ekki hrókerað. Svarið er því: Svartur getur ekki hrókerað. Spennandi Íslandsmót hafið Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Voice press. Næsti áskorandi? Jan Nepomniachtchi hefur vinnings forskot þegar fjórar umferðir eru eftir af áskorendamótinu í Yekaterinburg í Rússlandi. Samskiptamynstur á vinnumarkaði hefur tek- ið stakkaskiptum á 21. öldinni með tilkomu stafrænna lausna og snjalltækja en flestir há- skólamenntaðir búa nú við það að vera stöðugt tengdir við vinnu sína gegnum tæki sem vinnuveitendur þeirra útvega. „Endalausa bak- vaktin“ eins og sumir myndu kalla það en það er ljóst að rétturinn til að af- tengjast (RTA) verður sífellt meira að- kallandi réttindamál á vinnumarkaði og baráttan fyrir RTA verður samofin kjarabaráttunni á næstu árum. 60% aðspurðra trufluð minnst einu sinni í viku Í nýlegri könnun BHM á málefnum fjarvinnu sagðist um helmingur 4.000 svarenda vinna lengri vinnudag þegar unnið væri heima en þegar unnið væri á vinnustaðnum. Ennfremur vakti at- hygli að 60% aðspurðra sögðu yfir- mann sinn hafa samband við sig minnst einu sinni í viku vegna vinnu- tengdra mála utan hefðbundins vinnu- tíma. Að auki er vert að nefna að meirihluti aðspurðra taldi mikilvægt að í næstu kjarasamningum yrði lögð áhersla á rétt launafólks til að aftengja tölvupóst og/eða síma utan vinnutíma. Evrópulönd slá upp varnarmúr um frítímann Á undanförnum árum hefur verið töluvert fjallað um réttinn til að af- tengjast (RTA) í nágrannalöndunum. Sem dæmi má nefna að svo snemma sem árið 2001 komst Hæstiréttur Frakklands að þeirri niðurstöðu að launþega væri hvorki skylt að sam- þykkja að vinna heima né taka heim með sér vinnuskjöl eða vinnutengd tæki. Nokkrum árum síðar komst rétturinn svo að þeirri niðurstöðu að launþegi væri ekki að bregðast starfs- skyldum sínum þótt hann væri ekki ínáanlegur í síma utan vinnutíma. Í kjölfarið settu Frakkar ákvæði í vinnumarkaðslöggjöf sína um RTA og málsmeðferðarreglur sem vinnuveit- endum ber að fylgja. Nú nýlega hefur meirihluti þing- manna á Evrópuþinginu kallað eftir því að ESB setji reglur um RTA og í síðasta mánuði krafðist Evrópusamband stétt- arfélaga (ETUC) þess að framkvæmdastjórn ESB hefði án tafar frumkvæði að löggjöf í formi evrópskrar tilskip- unar um beitingu og fullnustu RTA, m.a. á þeim forsendum að heilsa fólks og vellíðan væri í húfi. „Endalausa bakvaktin“ Alkunna er að Íslendingum hefur löngum þótt dyggð að vinna fram eft- ir. Að því leyti er Ísland frábrugðið öðrum löndum sem búa við sama vel- ferðarstig en mikið er lagt upp úr jafnvægi frítíma og vinnutíma hjá öðr- um Norðurlandaþjóðum svo dæmi séu tekin. Á síðustu árum hafa augu margra opnast fyrir mikilvægi hóf- legs vinnutíma á Íslandi og fórn- arskiptum vinnu og lífsgæða m.a. með styttingu vinnuvikunnar. Minna hefur farið fyrir umræðu um mörk frítíma og vinnutíma s.s. áhrif sítengingar og ínáanleikans á lífsgæði og kjör. BHM hefur margsinnis lýst áhyggjum af áhrifum sítengingar starfsmanna á lengd vinnutíma og álag í starfi. Móta þarf skýrari reglur um vinnutengd samskipti utan hefð- bundins vinnutíma og afmarka þann tíma sem starfsmaður á rétt á að vera aftengdur. Þá þurfa starfskjörin að taka mið af heildarvinnuframlagi m.t.t. þess tíma sem sítengingin út- heimtir. Leiða þarf skýr ákvæði í lög á Íslandi sem tryggja réttinn til að af- tengjast. Ert þú aftengdur? Eftir Jóhann Gunnar Þórarinsson »Móta þarf skýrari reglur um vinnu- tengd samskipti utan hefðbundins vinnutíma og afmarka þann tíma sem starfsmaður á rétt á að vera aftengdur. Jóhann Gunnar Þórarinsson Höfundur er formaður Bandalags háskólamanna – BHM. johann@bhm.is Þráinn Guðmundsson fædd- ist 24. apríl 1933 á Siglufirði. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1902, d. 1974, og Guðmundur Þorleifs- son, f. 1886, d. 1968. Þráinn var kennari við Mið- bæjarskólann 1954-63 og síðan yfirkennari og skólastjóri við Laugalækjarskóla 1963-93. Hann var fræðslustjóri Reykjavíkur 1985-86 og á tíma- bili var hann skólastjóri Náms- flokka Reykjavíkur. Síðustu ár- in starfaði hann hjá Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur og lét þar af störfum 2003. Þráinn sat í stjórn Skák- sambands Íslands í nær 40 ár og var ritari þess þegar heims- meistaraeinvígið fór fram 1972. Hann var forseti Skák- sambandsins 1986-89 og í mörg ár var hann fulltrúi Íslands á þingum Alþjóðaskák- sambandsins FIDE. Þá var hann oft fararstjóri íslensku ól- ympíuskáksveitarinnar. Hann var alþjóðlegur skákdómari, ritstjóri tímaritsins Skák og ritaði sögu Skáksambands Ís- lands. Þráinn var heiðursfélagi bæði Skáksambands Íslands og Taflfélags Reykjavíkur. Eiginkona Þráins var Mar- grét Guðmundsdóttir, f. 21.1. 1934, d. 6.11. 2019. Börn þeirra eru fimm. Þráinn lést 20. mars 2007. Merkir Íslendingar Þráinn Guð- mundsson Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.