Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 28

Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Elsku amma mín. Síðasti mánuður hefur verið skrítinn. Í byrjun mars kíkt- irðu við hjá mér og við fórum svo saman í 95 ára af- mælið hennar Helgu mágkonu þinnar. Þú varst ótrúlega hress og kát, en fékkst nú samt að leggja þig aðeins áður en við lögðum af stað. Síðan veiktistu svo að þú þurftir að fara á spít- alann og þér leið greinilega ekki vel. Þú þráðir að komast á Lund og það fékkstu. Stundirnar þar eru minnisstæðar og innst inni vissum við hvert stefndi en vor- um kannski ekki alveg tilbúin í að kveðja. En kallið var komið, kominn tími fyrir þig til að hitta afa á ný og eftir sitjum við með minningarnar. Minningar sem ylja hjartað og fá mig til að brosa og gleðjast yfir því að hafa fengið að kynnast ykkur báðum svona vel. Það eru forréttindi að fá að alast upp í næsta húsi við ömmu og afa, að geta alltaf leitað til þeirra og lært af þeim. Flestar af mínum bernsku- minningum innihalda þig, amma mín. Mjaltir í fjósinu, sauðburð- ur, sláturtíð, réttir, heyskapur og jólakökubakstur. Ég gæti enda- laust talið upp og örugglega Sigríður Vilmundardóttir ✝ Sigríður Vil- mundardóttir fæddist 2. nóv- ember. Hún lést 8. apríl 2021. Útförin fór fram 23. apríl 2021. skrifað heila bók um samband okkar tveggja, en það bíð- ur betri tíma. Ég man þegar ég skokkaði yfir til þín, til að spyrja hvort þú vildir ekki elda rabarbaragraut í eftirmat. Í minning- unni sagðirðu alltaf já, þá tölti ég út í rabarbaragarð og tíndi nokkra fallega leggi og fór með til þín. Grauturinn var alltaf jafn fallega rauður og bragðgóð- ur. Þegar þið afi fluttuð svo á Selfoss, þá var rabarbarinn skil- inn eftir í sveitinni, en góð vin- kona sem þú eignaðist á Selfossi gaf þér oft rabarbara svo þú gast haldið áfram að búa til rabarbar- agraut handa okkur. Þú elskaðir sveitina okkar, Rangárvellina, en hafðir alltaf sterkar taugar á Suðurnesin og þau tóku vel á móti okkur þegar við fórum 3 saman í dagsferð á Suðurnesin fyrir nokkrum árum, þú, ég og mamma. Veðrið var yndislegt, heiðskírt og logn. Við byrjuðum á að fara í Staðar- hverfið, kíkja á leiðin hjá ástvin- um og svo nýttum við okkur það að það var opið heim að Löndum. Við gengum að húsgrunninum þar sem æskuheimili þitt hafði staðið og svo gengum við niður að fjörunni þinni, sem þú lékst þér í sem krakki. Margar sög- urnar hef ég heyrt frá þér um líf- ið í Staðarhverfinu og þegar þú varst í Þórukoti og kynntist Gróu sem dó alltof ung. Vinkonu þinni Gróu sem ég er skírð í höfuðið á, það tengdi mig enn meir við þig. Síðasta bílferðin okkar saman var einmitt um Keflavík og Njarðvík. Við kíktum á húsið á Vatnsnesi, þar hafði nú búið svo mikið sómafólk. En veistu, amma mín, síðustu daga hefur fólk talað um þig við mig á sama máta og þú talaðir um fjölskylduna á Vatnsnesi. Svo mikil sómakona varst þú. Ég trúi ekki að það sé komið að kveðjustund, að ég eigi ekki eftir að kíkja til þín í heimsókn og fá smá nammi, sýna þér hvað ég hafi verið að prjóna og spjalla við þig. Eitt er víst að ég á eftir að minnast þín á hverjum degi því það er svo margt í mínu dag- legu lífi sem tengist þér og ég veit að þið afi fylgið mér áfram í gegnum lífið. Takk fyrir mig. Ég elska ykkur bæði. Hafrún Gróa. Elsku amma mín. Mikið sem ég sakna þín. Sem betur fer á ég ansi margar minningar frá stundum okkar saman í gegnum tíðina sem geta yljað mér í stað- inn. Ég var svo lukkulegur að fá að vera nokkuð mikið hjá ykkur afa, ásamt Báru, Árna og Haf- rúnu í Hjarðarbrekku. Eitt það mest einkennandi fyrir þig var hversu hvetjandi þú varst í hverju sem ég tók mér fyrir hendur. Þú hvattir mig alltaf til að fara að mennta mig og á end- anum tókst mér að gera það. Áhugi minn á garðyrkju hefur sennilega kviknað í garðinum í Hjarðarbrekku. Líklega var það sagan sem þú sagðir mér oft, um sóleyjarnar sem ég á að hafa tek- ið og plantað í blómapotta, sem hjálpaði mér við að ákveða far- veg minn í lífinu. Ég klippti alltaf tré og runna hjá þér í garðinum í Grenigrundinni og setti niður fyrir þig sumarblóm. Það var orðin hefð að koma í kringum 17. júní og gera beðin fín og munu stjúpur og morgunfrúr alltaf minna mig á þig. Ég mun alltaf muna eftir heimsóknunum í Grenigrundina. Var það æði oft sem ég renndi framhjá seint á kvöldin og ef ég sá ljós hjá þér kom ég og fékk mér kókglas eða kaffibolla hjá þér og ræddum við um heima og geima. Mikið sem ég mun sakna þess að koma með strákana mína tvo í heimsókn, en það þótti þeim ákaflega skemmtilegt og bað Hrafntýr oft um að fara í heim- sókn til langömmu. Það var líka svo einstaklega ánægjulegt að sjá hversu glöð þú varst þegar þeir komu og voru eitthvað að brasa í kringum þig. Ég á líka ansi skemmtilegar minningar við að skreyta fyrir jólin hjá þér því alltaf vildir þú hafa fínt í kringum þig. Það var alveg sama hvort það var í kring- um jólin eða með gróandanum, þú vildir hafa umhverfi þitt vel tilhaft. Það var eins með þig sjálfa. Þú lagðir mikið upp úr því að vera vel tilhöfð, fín um hárið og með lakkaðar neglur. Það gleður mig að eiga allar þessar minningar af tímum okk- ar saman og það gleður mig mik- ið að strákarnir mínir og Silla hafi fengið að kynnast þér. Árni Rúnarsson. „Getum við kveikt á kertinu hennar langömmu svo hún brosi á himninum?“ Þannig spurði Þuríður Karen (4 ára) eitt kvöldið þegar við sát- um við matarborðið fjölskyldan og rifjuðum upp góðar stundir með langömmu. Þuríður Karen nefndi einnig að núna segðum við „bless“ við ömmu en hún var dugleg að knúsa langömmu og njóta nærveru hennar. „Nammi,“ sagði Dagný Lilja (7 ára) þegar við ræddum um hvað kæmi upp í hugann þegar við hugsum til langömmu. Nammiskálin hennar langömmu var aldrei tóm og börnin iðin við að reyna að tæma hana. Gestris- in var hún amma og tók alltaf vel á móti okkur. „Brosið hennar, hún var alltaf brosandi,“ nefndi Bryndís Halla (10 ára). Þar er langömmu rétt lýst, brosmild og léttlynd. Það var alltaf gott að vera í návist hennar og þegar vel stóð á gat hún sannarlega spaugað og hleg- ið. „Góð og trúuð,“ sagði Helga Dögg (13 ára). Langamma var einstaklega hjartahlý og sparaði ekki fallegar guðskveðjur til okk- ar þegar við kvöddum hana eftir góða heimsókn. Síðasta kvöld hennar á lífi sátu þær tvær elstu og lásu fyrir hana kvöldsálmana sem hún hafði hjá sér. Trúin var henni mikilvæg og barnatrúin er sterk hjá systrunum líka. Við foreldrar þessara fjögurra stúlkna erum svo þakklátir fyrir að þær hafi fengið að kynnast langömmu sinni. Væntumþykja þeirra í garð hennar er mikil og þær sömuleiðis fundu fyrir mikl- um kærleika frá henni. Hún var stolt af sínu fólki og hún var óspör á hrósin, sérstaklega þegar langömmubörnin sungu eða spiluðu á hljóðfæri fyrir hana. Minningarnar lifa og við munum hjálpa dætrunum að varðveita þær. Einnig eigum við margar góð- ar minningar sem gott er að ylja sér við. Við áttum svo margar skemmtilegar og góðar samræð- ur í Hjarðarbrekku og á Greni- grundinni, um líðandi stund eða gamla tíma. Í huga Önnu Krist- ínar verður undirbúningur jólanna aldrei samur því það var órjúfanlegur þáttur af jólahaldi síðustu ára að eiga notalegan dag á Grenigrundinni og skreyta hús- ið að innan og utan. Amma svo glöð með að fá jólaskrautið upp og að hafa fólkið sitt í kringum sig. Óla er efst í huga þakklæti þegar hann hugsar til ömmu sinnar. Þakklæti fyrir þær góðu stundir og umhyggju sem hún veitti honum og fjölskyldu hans. Einnig var amma alltaf svo þakk- lát. Fyrir hverja heimsókn og minnsta viðvik var þakkað fyrir, það brást ekki. Amma var einstök kona og hennar er sárt saknað. Guð geymi þig, elsku amma. Eyðist dagur, fríður, fagur, fagur dagur þó aftur rís: Eilífðardagur ununarfagur, eilíf skín sólin í Paradís. Ó, hve fegri og yndislegri unun mun sú, er þar er vís. (Sálmur 464, V. Briem) Ólafur, Anna Kristín og dætur. Elsku amma, já ég er svo heppin að hafa fengið að kalla þig ömmu. Eina amman sem ég man eftir að hafa átt og ekkert blóð- skyld mér. Margir hafa undrað sig á því hvernig við Sigga mág- kona gætum átt sömu ömmuna. Það voru sannarlega forréttindi að fá að vera hluti af hópnum þín- um, hópnum sem þú sýndir svo mikinn kærleika og áhuga alla tíð. Þegar ég kom austur í Hjarð- arbrekku 11 ára gömul fann ég strax að þar var gott að vera. Það var frábært fyrir mig þéttbýlis- barnið, en sveitastelpu inn við beinið, að fá tækifæri til að vera í sveit og ganga í verkin með ykk- ur öllum. Fara í fjósið með ykkur Báru þar sem ég lærði margt af frásögnum þínum. Þú varst nefnilega ekki bara húsmóðir þó svo sannarlega værir þú alvöru- húsmóðir. Ég hefði nú kannski mátt tileinka mér eitthvað fleira af húsmóðurhæfileikum þínum, t.d. að galdra fram margra manna veislu og alltaf nægt pláss fyrir alla í eldhúsinu í Hjarðar- brekku og svo áfram á Selfossi eftir að þú komst þangað, alltaf voru bornar fram veitingar. Tertan með bananakreminu var og er mitt uppáhald, kannski tekst mér einhvern tíma að baka hana. Það var alltaf svo gott að koma til þín og við gátum spjallað endalaust um allt mögulegt. Þú hafðir svo góðan húmor og oft hlógum við mikið. Meira að segja þegar ég hitti þig síðast á sjúkra- húsinu á Selfossi, þótt þrekið væri orðið lítið þá gátum við samt hlegið saman og slegið á létta strengi, þú varst svo spennt að komast aftur á Lund því þar leið þér vel. Sátt við að verja síð- ustu stundunum þar því það leyndi sér ekki að þú fannst að stundin nálgaðist. Ég veit að afi tekur vel á móti þér og líklega heyrist nú kallað í sumarlandinu: „Sigga, áttu kaffi?“ Handavinna var sameiginlegt áhugamál okkar þótt afurðirnar væru ólíkar. Heimilið skartar dúkunum þínum fallegu og rúmið fallegasta rúmteppi sem ég hef átt. Allt handverk frá þér sem er ómetanlegt að eiga núna. Ég mun varðveita minningu þína og hugsa til þín í hvert skipti sem ég bý um rúmið. Ég votta fjölskyldunni allri innilega samúð og megum við gleðjast yfir góðum minningum í framtíðinni. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú og þið afi gerðuð fyrir okkur Hörð og stór-Hjarð- arholtsfjölskylduna, við erum heppin að hafa fengið að vera hluti af fjölskyldunni ykkar. Hrund Harðardóttir. Amma mín. Við amma mín vorum alltaf góðar vinkonur, þau bönd styrktust enn frekar eftir að afi dó nokkrum árum eftir að þau fluttu hingað á Selfoss. Henni fannst ég ekki koma nógu oft í heimsókn á þessum tíma. Við ákváðum þá að borða saman í hádeginu á þriðjudögum. Aðra vikuna var steiktur fiskur og hina vikuna var blómkálssúpa og gott brauð með. Þetta voru dásamlegar stundir sem við áttum saman, þegar svo krakkarnir mínir áttu frítíma þá komu þau með mér og var oft glatt á hjalla þessa þriðjudaga. Þessa þriðjudaga áttum við sam- an í 16 ár. Þegar þau afi fluttu hingað á Selfoss tók afi hestana sína með. Stundum höfðum við amma skipti; hún hafði ofan af fyrir krökk- unum mínum á meðan ég hafði ofan af fyrir afa í hesthúsinu. Þetta þóttu öllum góð skipti. Það væri hægt að rifja upp alls konar samveru og minningar úr æsku minni þegar ég var í heim- sókn hjá ömmu og afa. Samvera í fjósinu í Hjarðar- brekku með ömmu og Báru er ein af þessum minningum, þar þeysti ég um á honum Skugga mínum og lærði vísur og að ríma orð meðan mjólkað var. Eða þegar amma lagði sig eft- ir hádegismatinn í sveitinni og ég átti að vekja hana eftir 10 mín- útur. Ég leyfði henni að sofa í hálftíma, mér fannst hún alveg eiga það skilið, eða kannski gleymdi ég bara að vekja hana. Mér finnst fyrri skýringin betri. Ekki man ég til þess að hún amma hafi skammað mig nokk- urn tíma. Nema kannski einu sinni, þá hafði ég stolist í spari- varalitinn hennar og málað mig ríkulega um varir og kinnar. Þá sagði hún: „Æ, elskan, varstu að gera þig fína?“ Svo mörg voru þau orð. Elsku amma, takk fyrir allar dásamlegu samverustundirnar. Takk fyrir að vera til staðar fyrir krakkana mína. Takk fyrir allt og allt. Nafna þín, Sigríður Runólfsdóttir. Elsku amma langamma. Takk fyrir að vera til staðar fyrir mig alla grunnskólagöngu mína. Að koma til þín á nánast hverjum degi eftir skóla, konu með reynslu af einni mestu öld breyt- inga í nútíma, reyndist ungri stelpu mikilvægt veganesti fyrir framtíðina. Ég hef lært svo margt af þér, allt frá því að reima skóna mína og læra á klukku, til þess að vera sterk kona í enda- lausri hringiðu lífsins með góð- mennsku að leiðarljósi. Ég hef kynnst margri manneskjunni á minni annars stuttu ævi, en engri hef ég kynnst sem leit lífið eins björtum og hlýjum augum og þú. Þú talaðir mikið um gömlu tímana sem hefur kennt mér að taka ekki öllu sem gefnu. Þegar þú lýstir því hvernig þið fjöl- menna fjölskyldan komust af í húsi sem taldi aðeins fáeina tugi fermetra, án nokkurra deilna á milli ykkar systkinanna, fékk mig til að hugsa um hvernig smá- munir dagsins í dag geta breytt fólki og heilu fjölskyldunum. Það hefðu allir gott af því að taka til sín þetta hugarfar þitt sem ein- kenndist af æðruleysi. Eins og gengur og gerist fylgdu stundum vinkonur með mér í þessar heimsóknir eftir skóla og í eitt skipti þegar ein þeirra var með mér gat ég ekki setið á mér lengur og spurði þig hvernig í ósköpunum stæði á því að kona á þessum aldri (þú varst um áttrætt þá) væri ekki með hrukkur? „Það er vegna þess að ég er alltaf í góðu skapi.“ Svo ein- falt var það. Það lýsir þér svo vel að við fréttirnar sem fylgdu atburðin- um hinn 8. apríl fékk ég margar samúðarkveðjur og flestum þeirra fylgdu orðin „amma þín var ein besta kona sem ég hef kynnst“. Og það er líka hárrétt. Þú ert líklega besta manneskja sem allir sem þig þekktu höfðu kynnst um ævina. Þú ert það allavega fyrir mér. Takk fyrir allt amma – minn- ing þín mun lifa í hjarta mínu. Brynja. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSA ÞORVALDSDÓTTIR BALDURS, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánudaginn 19. apríl. Útför hennar fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 30. apríl kl. 13. Vegna samkomutakmarkana eru þeir sem vilja kveðja Ásu beðnir að hafa samband við aðstandendur. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fyrir frábæra umönnun. Jón Arnar Baldurs Jóhanna Pálsdóttir Ásgeir Baldurs Björg Jónsdóttir Óskar Hrafn, Steinunn Ása, Ása Karen, Unnar Páll, Kristján Ingi, Rúnar Freyr, Jóhanna Huld og langömmubörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ GARÐARSDÓTTIR, Helgubraut 4, Kópavogi, lést þriðjudaginn 13. apríl. Útförin fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 27. apríl klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Útförinni verður streymt: https://www.lindakirkja.is/utfarir Ólafur Sæmundsson Steingrímur Stefnisson Sigríður Samsonardóttir Auðunn Stefnisson Katrín Gísladóttir Guðný Stefnisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, HRAFNHILDUR BERGSVEINSDÓTTIR, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 14. apríl. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 28. apríl klukkan 15. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Athöfninni verður einnig streymt á vefslóðinni https://youtu.be/ubz2ewoRj9c Kristín Jóhanna Björnsdóttir Ingveldur Birna Björnsdóttir María Dóra Björnsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.