Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 35

Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 35 Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu Dómsmálaráðuneytið leitar að metnaðarfullum og drífandi lögfræðingi sem hefur áhuga á að starfa með öflugum hópi starfsmanna á lagaskrifstofu ráðuneytisins. Á lagaskrifstofu er unnið að fjölbreyttum verkefnum er varða réttarfar, refsirétt, dómstóla, lögmenn og gjafsóknir, eignarréttindi og skaðabótarétt. Þá ber skrifstofan ábyrgð á framkvæmd kosninga, útgáfu Stjórnartíðinda og stjórnsýsluúrskurðum í kærumálum. Helstu verkefni og ábyrgð • Ritun frumvarpa og reglugerða á ábyrgðarsviði skrifstofunnar • Afgreiðsla ýmissa stjórnsýsluerinda • Þátttaka í verkefnum er varða kosningar og innlendu og erlendu samstarfi á verkefnasviði skrifstofunnar Menntunar– og hæfniskröfur • Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi • Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla sem lögfræðingur • Þekking og reynsla af réttarfari, refsirétti, stjórnsýslurétti og frumvarpavinnu æskileg. • Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Góð kunnátta í einu Norðurlandamáli er kostur • Frumkvæði, jákvæðni og metnaður í starfi • Sjálfstæð, fagleg og skipulögð vinnubrögð, mjög góð samskiptahæfni og hæfni til þátttöku í teymisvinnu Nánari upplýsingar veitir Bryndís Helgadóttir, skrifstofustjóri í síma 545 9000. Um fullt starf er að ræða. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á Starfatorg.is og er umsóknarfrestur til 3. maí nk. Umsókn skal fylgja prófskírteini, ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.