Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
50 ÁRA Sigurður er Reykvíkingur, ólst upp í
Árbænum en býr í Vesturbænum. Hann er
eigandi drónaverslunarinnar DJI Reykjavík.
Sala á drónum hefur aukist mjög í kjölfar
gossins í Geldingadölum. „Hún hefur fjórfald-
ast frá sama tíma í fyrra,“ segir Sigurður.
Hann segir að afföllin á drónum séu minni en
hann hefði haldið. „Við höfum ekki heyrt af
fleiri en tíu drónum sem hafa eyðilagst. Hins
vegar hafa margir farið of nálægt gosinu og
fengið að grillast aðeins en þeir virka samt
flestir og hafa verið sendir í viðgerð. Svo hafa
margir drónar týnst, þeim flogið of langt, hafa
þá misst samband við eigendur og ekki ratað
til baka vegna ónákvæmrar gps-staðsetningar
heimapunkts, en eigendur eiga það til að fara of fljótt með drónana í loftið
áður en dróninn nær að tengjast við 10 eða fleiri gervitungl. En við höfum að-
stoðað marga sem hafa fundið dróna við að koma þeim til réttra eigenda.“
Eiginkona Sigurðar er Karin Sandberg, f. 1980 í Gautaborg, hjúkrunar-
fræðingur á Landspítalanum. Börn þeirra eru Alvin Óskar, f. 2007, Ester
Elma, f .2009, og Agens Eva, f. 2016.
Sigurður Þór Helgason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Láttu ekki ummæli annarra í þinn
garð skemma fyrir þér daginn. Ekki láta í
minni pokann fyrir öðrum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú getur hlakkað til sumarsins, það
verður fjörugt og skemmtilegt. Hjálpaðu
til þar sem þess er þörf.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Allt hefur sinn tíma og það á
líka við um góða hluti og slæma. Ekki
benda á aðra heldur líttu í eigin barm og
breyttu til.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Oft skýtur hlutum upp í hugann
án þess að maður sé beint að hugsa um
þá. Haltu að þér höndum í fjármálum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Farðu yfir eigur þínar og losaðu þig
við allan óþarfa. Sumt í kringum þig er á
síðasta snúningi. Gerðu við eða losaðu
þig við það dót.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þér hættir til að láta tímann líða
án þess að þú komir miklu í verk. Dag-
draumar eru í lagi, bara ekki of lengi í
einu. Þú hittir gamlan vin á förnum vegi.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Sýndu vinum og maka þolinmæði og
hlustaðu á það sem sagt er við þig. Nú er
rétti tíminn til að skipuleggja sumarið.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Hugrenningar þínar eru
óvenjulegar í dag. Taktu það ekki nærri
þér þótt einhverjir séu þér ósammála.
Það er ekki hægt að þjóna tveimur herr-
um.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Alls konar hlutir skjóta upp
kollinum og setja allar áætlanir úr skorð-
um. Vertu á varðbergi og bíddu eftir tæki-
færi til að láta drauma rætast.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það hefnir sín jafnan að ana
fyrirhyggjulaust áfram. Sköpunargleði og
auðugt ímyndunarafl eru vissulega af
hinu góða, en hið sama gildir um áreið-
anleika og staðfestu. Ekki gleyma barninu
í þér.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ert ekki í skapi fyrir sjálfs-
aga og sjálfsafneitun í dag og því langar
þig meira til að skemmta þér en vinna.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú þarft að læra að nýta þér þann
eiginleika sem fær fólk til þess að opna
hjarta sitt fyrir þér. Ekki láta flækja þér
að óþörfu í deilur annarra.
kynntist forystumönnum og stofn-
endum Pólýfónkórsins og Þjóðdansa-
félags Reykjavíkur í Kennaraskól-
anum, þar sem bæði kenndu. Þau
kynni leiddu til ævilangs samstarfs
meðan þau lifðu. Auk þessara áhuga-
mála bættist formennska í Söng-
kennarafélaginu við í nokkur ár og
liggur því í augum uppi að fjarvera
vegna fjarveru úr sveitinni vegna
náms og launavinnu. Ég var heima á
sumrin við venjuleg sumarstörf og
vann oft í sláturhússvinnu þar til
skólinn kallaði. Ég flutti endanlega
til Reykjavíkur eftir að kennslustörf
hófust. Eftir flutning til Reykjavíkur
urðu aðaltómstundastörfin að syngja
í kór og sækja dansæfingar. Ég
G
uðmundur Guðbrands-
son fæddist 24. apríl
1936 í Tröð í Kolbeins-
staðahreppi í Hnappa-
dalssýslu og ólst þar
upp. „Ég var í farskóla í sveitinni þar
sem kennt var á ýmsum bæjum, oft
tvær vikur samfellt og tvær vikur
heimanám vegna þess að sveitinni
var skipt í tvö skólasvæði og kennt
þar til skiptis.“ Hann stundaði verka-
mannavinnu í Reykjavík og Keflavík
veturinn 1952-1953. Guðmundur hóf
nám til landsprófs í Reykholti í Borg-
arfjarðarsýslu haustið 1953 og lauk
þar landsprófi og gagnfræðaprófi
vorið 1955. Hann vann í frystihúsi í
Keflavík veturinn 1955-1956. Hann
byrjaði nám í Kennaraskóla Íslands
haustið 1956 og lauk þaðan kennara-
prófi vorið 1960.
Guðmundur hóf kennslustörf við
Vogaskóla í Reykjavík haustið 1960
og starfaði þar alla starfsævina sem
almennur kennari, tónmenntakenn-
ari, yfirkennari eða aðstoðar-
skólastjóri og loks skólastjóri síðustu
15 árin.
Guðmundur stundaði einnig
tveggja ára tónmenntakennaranám
veturna 1961-1963 við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík, samhliða kennslu,
og lauk því vorið 1963. Hann sótti
nám í tölfræði og prófagerð veturinn
1972-1973 og lauk því um vorið.
Hann fékk orlof til framhaldsnáms
veturinn 1978-1979 og stundaði þá
nám við háskólann í Stokkhólmi
ásamt eiginkonu sinni. „Við vorum
skráð sem áheyrnarnemendur, en
sóttum allar kennslustundir sem til
var ætlast í uppeldis- og sálarfræði.“
Hann tók eins vetrar nám til réttinda
í skóla fyrir leiðsögumenn um 1980
og stundaði leiðsögn í sumarfríum og
eftir að fastri vinnu var hætt haustið
1996. „Ég tók þá svokallaða 95-ára
reglu eftir sextugt og er því á skert-
um lífeyri.“
Guðmundur hefur alla tíð verið
áhugamaður um félagsstörf. „Strax í
Reykholti var þátttaka í kór og leik-
list tímafrek og síðari veturinn var ég
einnig formaður í nemendafélagi
skólans. Ég var í nokkur ár formaður
Ungmennafélagsins Eldborgar, en
gat ekki sinnt því starfi sem skyldi
frá heimili og fjölskyldu hefur verið
allnokkur. En alltaf var samt metn-
aður til þess að sjá um að heimilið
skorti ekkert af nauðsynjum. Heppni
með frábæra eiginkonu og hraust og
dugleg börn gerði það að verkum að
þetta gekk áfallalaust.
Eftir að kennslustörfum lauk og
leiðsögustarfið fjaraði út hefur tím-
inn verið notaður í bóklestur og
grúsk. Ég átti nokkurn þátt í efnis-
söfnun fyrir bókina „Í ljósi líðandi
stundar“, sem eru frásagnir úr starfi
Pólýfónkórsins í 30 ár og kom út árið
1987. Einnig hefur verið mikið
grúskað í gömlum blöðum um helstu
áhugamálin. Mér var mjög oft falið
að rita fundargerðir á kennara-
fundum eða öðrum almennum félags-
fundum.
Afmælisbarnið hafði í hyggju að
halda upp á 85 ára afmælið með veg-
legu samkvæmi, en vegna núverandi
aðstæðna hefur því verið frestað um
óákveðinn tíma.“
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 24. apríl
1964 Herdísi H. Oddsdóttur, f. 24.8.
1944 á Steinsstöðum í Öxnadal, d. 3.4.
2021. Þau hjónin skildu 1989. Móðir
hennar var Lilja Halblaub hjúkr-
unarkona, f. 21.5. 1912, d. 25.11. 1973.
Herdís var fósturdóttir hjónanna
Helgu Sigfúsdóttur og Odds Jóns-
sonar skósmiðs á Akureyri, en Oddur
var ömmubróðir Herdísar.
Guðmundur Guðbrandsson, fyrrverandi skólastjóri – 85 ára
Stafkarlar um áttrætt Bræðurnir Steinar og Guðmundur í Hnappadal.
Félagsmálin hafa verið tímafrek
Börnin Gunnlaugur, Bjargey og Helga Oddrún.
Afmælisbarnið Guðmundur.
Til hamingju með daginn
Vaglar í Skagafirði Eldey Kolka Gísla-
dóttir fæddist 19. júní 2020 á Sjúkra-
húsinu á Akureyri. Hún vó 3.920 g og var
52 cm löng. Foreldrar hennar eru Gísli
Björn Gíslason og María Hjaltadóttir.
Nýr borgari
VOLVO XC90 D5
Dökkgrár með leðuráklæði og
ríkulega útbúinn. Nýskoðaður,
ekinn 160 þús. km, árgerð 2011.
Ásett verð 2.880.000
TIL SÖLU
Bílasala Íslands | Sími 510 4990 | bilasalaislands@bilasalaislands.is