Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 43

Morgunblaðið - 24.04.2021, Síða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég er á þeim aldri að Björg-vin Halldórsson hefur alltafverið til. Og alltaf verið risi. Er það ekki merkilegt að þannig hefur það í raun verið allar götur síðan hann var valin poppstjarna ársins árið 1969, þá ekki nema átján ára? Að minnsta kosti hefur ekki þótt tilefni til að velja aðra slíka. Björgvin hefur alltaf vitað lengra en nef hans nær. Skynugur á tíma sinn og hvað móðins er um leið og hann hefur aldrei verið múl- bundinn af slíku. Snöggur upp á lagið, fljótur að hugsa, beittur. Sjarmerandi, iðinn og hæfileika- ríkur. Söngvinn, gítarsláttumaður og lagahöfundur. Okkar maður var vel nestaður þegar hann lagði upp í ferð og ákvað að gefa tónlistinni öll sín bestu ár, líf sitt í raun. Björgvin skilur líka vel í hvaða bransa hann er og um hvað hann snýst á endanum. Það þarf að skemmta fólkinu. Popp og vinsældir hafa aldrei verið lastmæli í hans bókum nema síður sé. Þetta um- faðmaði hann með glæsibrag á átt- unda áratugnum og svo allar götur síðan. Mér hefur fundist ansi merkilegt að skoða hvernig barið var á honum og hans mönnum af sjálfskipaðri listaelítu á sínum tíma. Mín kynslóð sér þetta ekki sömu augum. Brimkló dældi út vinsælda- Að lita tímans svörð Morgunblaðið/Eggert Sjötugur Björgvin í Rokksafni Íslands þar sem ferli hans eru gerð góð skil. efni á sínum tíma en Björgvin vissi upp á hár hvað hann var að gera með því batteríi. Það er t.d. vel hægt að höfða til fjöldans en halda í smekkvísi um leið. Á Rock‘n‘Roll, öll mín bestu ár (1976), fyrstu breiðskífu Brimklóar, er t.d. ábreiða á „In My Hour of Dark- ness“ eftir Gram Parsons og Emmylou Harris og „Full Circle“ eftir Gene Clark og eru bæði við íslenska texta að sjálfsögðu. Rán- dýr tökulög! Efa að fólk hafi tekið almennilega eftir þessu á sínum tíma en við sem böðuðum okkur upp úr jaðarkántríi í kringum alda- mótin sáum að Bó vissi vel hvar átti að leita eftir ærlegum lagasmíðum (og hamraði hann kántríjárnið frek- ar bæði sóló og með Brimkló og Hjartagosunum á fyrsta og öðrum áratug nýs árþúsunds). Björgvin hélt sterkri stöðu á níunda áratugnum; söng vinsæl lög, gaf út jólaplötur og var allra handa poppmógúll (gleymi því aldrei þeg- ar hann söng melódíuna við „Hjálp- um þeim“ í símaviðtali við einhverja útvarpsstöðina, lagið þá í vinnslu). Í minningunni var maðurinn út um allt. Hvort heldur að sprella með HLH eða syngja einhverja hjarta- tosandi ballöðuna. Síðustu áratugi hefur maður svo fylgst með Björgvini verða að nokkurs konar „don“ íslenskrar dægurtónlistar. Jólatónleikar hans eru glæsilegt sjónarspil og það er hægt að leika sér að samlíkingum (Presley hittir Sinatra með dassi af Cash?). Björgvin hefur borið sig með reisn hvað þetta varðar og líka magnað að sjá hvernig menn hafa verið að mildast með árunum. Í gegnum fjasbókina sér maður ekk- ert nema kærleik, þakklæti og hjörtu. Hvernig hann talar við og um börnin sín á þeim vettvangi, hvetur þau áfram í sinni list, er beinlínis hjartavermandi. Björgvin hefur alltaf verið risi og utan við tímann á einhvern hátt eins og jafnan er með sígilda tón- listarmenn. En svörð hans hefur hann engu að síður litað eins og segir í laginu. Sterkum, skemmti- legum og afar eftirminnilegum lit- um. » Okkar maður var vel nestaður þegar hann lagði upp í ferð og ákvað að gefa tónlistinni öll sín bestu ár, líf sitt í raun. Morgunblaðið/Eggert Feðgin Björgvin með dóttur sinni Svölu á Jólagestum Björgvins árið 2008. Morgunblaðið/Kristinn Í þá gömlu, góðu Gunnar Þórðarson og Björgvin afslappaðir árið 1976. Björgvin Halldórsson fagnaði sjötíu ára af- mæli sínu á dögunum vel og innilega. Var meðal annars blásið til afmælistónleika, nema hvað? En hvar liggur tónlistarlegt vægi þess- arar lifandi goðsagnar? Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Rokkarar Björgvin og félagar í HLH-flokknum í stuði árið 1979.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.