Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég er á þeim aldri að Björg-vin Halldórsson hefur alltafverið til. Og alltaf verið risi.
Er það ekki merkilegt að þannig
hefur það í raun verið allar götur
síðan hann var valin poppstjarna
ársins árið 1969, þá ekki nema
átján ára? Að minnsta kosti hefur
ekki þótt tilefni til að velja aðra
slíka.
Björgvin hefur alltaf vitað
lengra en nef hans nær. Skynugur
á tíma sinn og hvað móðins er um
leið og hann hefur aldrei verið múl-
bundinn af slíku. Snöggur upp á
lagið, fljótur að hugsa, beittur.
Sjarmerandi, iðinn og hæfileika-
ríkur. Söngvinn, gítarsláttumaður
og lagahöfundur. Okkar maður var
vel nestaður þegar hann lagði upp í
ferð og ákvað að gefa tónlistinni öll
sín bestu ár, líf sitt í raun.
Björgvin skilur líka vel í hvaða
bransa hann er og um hvað hann
snýst á endanum. Það þarf að
skemmta fólkinu. Popp og vinsældir
hafa aldrei verið lastmæli í hans
bókum nema síður sé. Þetta um-
faðmaði hann með glæsibrag á átt-
unda áratugnum og svo allar götur
síðan. Mér hefur fundist ansi
merkilegt að skoða hvernig barið
var á honum og hans mönnum af
sjálfskipaðri listaelítu á sínum tíma.
Mín kynslóð sér þetta ekki sömu
augum. Brimkló dældi út vinsælda-
Að lita tímans svörð
Morgunblaðið/Eggert
Sjötugur Björgvin í Rokksafni Íslands þar sem ferli hans eru gerð góð skil.
efni á sínum tíma en Björgvin vissi
upp á hár hvað hann var að gera
með því batteríi. Það er t.d. vel
hægt að höfða til fjöldans en halda í
smekkvísi um leið. Á Rock‘n‘Roll,
öll mín bestu ár (1976), fyrstu
breiðskífu Brimklóar, er t.d.
ábreiða á „In My Hour of Dark-
ness“ eftir Gram Parsons og
Emmylou Harris og „Full Circle“
eftir Gene Clark og eru bæði við
íslenska texta að sjálfsögðu. Rán-
dýr tökulög! Efa að fólk hafi tekið
almennilega eftir þessu á sínum
tíma en við sem böðuðum okkur
upp úr jaðarkántríi í kringum alda-
mótin sáum að Bó vissi vel hvar átti
að leita eftir ærlegum lagasmíðum
(og hamraði hann kántríjárnið frek-
ar bæði sóló og með Brimkló og
Hjartagosunum á fyrsta og öðrum
áratug nýs árþúsunds).
Björgvin hélt sterkri stöðu á
níunda áratugnum; söng vinsæl lög,
gaf út jólaplötur og var allra handa
poppmógúll (gleymi því aldrei þeg-
ar hann söng melódíuna við „Hjálp-
um þeim“ í símaviðtali við einhverja
útvarpsstöðina, lagið þá í vinnslu). Í
minningunni var maðurinn út um
allt. Hvort heldur að sprella með
HLH eða syngja einhverja hjarta-
tosandi ballöðuna.
Síðustu áratugi hefur maður
svo fylgst með Björgvini verða að
nokkurs konar „don“ íslenskrar
dægurtónlistar. Jólatónleikar hans
eru glæsilegt sjónarspil og það er
hægt að leika sér að samlíkingum
(Presley hittir Sinatra með dassi af
Cash?). Björgvin hefur borið sig
með reisn hvað þetta varðar og líka
magnað að sjá hvernig menn hafa
verið að mildast með árunum. Í
gegnum fjasbókina sér maður ekk-
ert nema kærleik, þakklæti og
hjörtu. Hvernig hann talar við og
um börnin sín á þeim vettvangi,
hvetur þau áfram í sinni list, er
beinlínis hjartavermandi.
Björgvin hefur alltaf verið risi
og utan við tímann á einhvern hátt
eins og jafnan er með sígilda tón-
listarmenn. En svörð hans hefur
hann engu að síður litað eins og
segir í laginu. Sterkum, skemmti-
legum og afar eftirminnilegum lit-
um.
»
Okkar maður var
vel nestaður þegar
hann lagði upp í ferð og
ákvað að gefa tónlistinni
öll sín bestu ár, líf sitt í
raun.
Morgunblaðið/Eggert
Feðgin Björgvin með dóttur sinni Svölu á Jólagestum Björgvins árið 2008.
Morgunblaðið/Kristinn
Í þá gömlu, góðu Gunnar Þórðarson og Björgvin afslappaðir árið 1976.
Björgvin Halldórsson
fagnaði sjötíu ára af-
mæli sínu á dögunum
vel og innilega. Var
meðal annars blásið til
afmælistónleika, nema
hvað? En hvar liggur
tónlistarlegt vægi þess-
arar lifandi goðsagnar?
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Rokkarar Björgvin og félagar í HLH-flokknum í stuði árið 1979.