Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 8

Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 8
Það er búið að hanna kerfi sem nær yfir allan heiminn sem er ekki ólöglegt en alltum- lykjandi og peningar streyma þarna hægri vinstri. Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni Félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem heyra undir málefnasvið félagsmálaráðuneytisins. Félagasamtök sem hljóta styrki á árlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum árlaga fyrir sömu verkefni. Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum félags- og barnamálaráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Þá má meðal annars veita til verkefna sem felast í því að: • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi. • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna. • Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf. Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem stuðla að virkni, vellíðan og valdeflingar einstaklinga í viðkvæmri stöðu s.s. þá sem búa við félagslega einangrun, ofbeldi eða aðstæður sem hindra þátttöku í samfélaginu. Hafi umsækjandi áður fengið styrk frá félagsmálaráðuneytinu til verkefnis skal fylgja greinargerð með upplýsingum um framkvæmd þess og ráðstöfun styrkárins, til þess að ný umsókn verði tekin til greina. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 8. nóvember 2021. Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umöllunar. Úthlutun fer fram eigi síðar en 15. febrúar 2022. Sækja skal um á rafrænu formi. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef félagsmálaráðuneytisins (www.frn.is). Pandóruskjölin, einn stærsti leki fjármálaupplýsinga sögunnar, afhjúpa auðævi auðmanna og þjóðarleiðtoga. Blaðamaður Stundarinnar, sem rannsakaði hlut Íslend- inga í skjölunum, segir lekann staðfesta að aflandshagkerfi heimsins sé alltumlykjandi og kerfisbundið. thorvaldur@frettabladid.is AFHJÚPUN Pandóruskjölin eru samansafn 11,9 milljóna ólíkra skjala frá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í uppsetninga aflandsfélaga og aflandssjóða. Skjölunum var lekið til alþjóðlegra samtaka rannsóknar- blaðamanna (ICIJ) sem deildi þeim með fjölmiðlum í 117 löndum. Blaðamenn Stundarinnar, þeir Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson, fengu það verk- efni að rýna í skjölin, ásamt Jóhann- esi Kr. Kristjánssyni hjá Reykjavík Media. Aðalsteinn segir verkefnið hafa verið nokkuð umfangsmikið. „Það er búið að vera nokkurra mánaða vinna við að kemba þetta. Ég og Jóhannes Kr. Kristjánsson, hjá Reykjavik Media, höfum unnið saman við að vinna fréttir upp úr sams konar lekum sömu samtaka þannig að það lá beint við að við yrðum fengnir til að fara yfir þau íslensku nöfn sem kynnu að vera í þessum gríðarlega stóra leka.“ Gögnin eru af ólíkum toga. Upp- runa þeirra má rekja til 14 fyrir- tækja víða um heim og er heildar- stærðin um 2,94 terabæti. Þótt marga Íslendinga sé að finna í skjöl- unum er fjöldi þeirra ekki nærri því jafn mikill og í Panamaskjölunum árið 2016 er Ísland sló heimsmet miðað við höfðatölu. Að sögn Aðal- steins eru Pandóruskjölin um margt frábrugðin fyrri lekum. „Þarna er verið að leka upplýsing- um frá þjónustufyrirtækjum sem stofna og reka aflandsfélög og sjóði sem ekki voru í beinu viðskiptasam- bandi við íslensk fyrirtæki eins og íslensku bankana. Það er kannski fyrst og fremst munurinn á þessum skjölum núna og þeim sem við köllum Panamaskjölin sem unnið var úr árið 2016. Þar vorum við með lögfræðiskrifstofu Mossack Fon- seca sem var í beinum tengslum við íslenska bankamenn.“ Gögnin í Panamaskjölunum brugðu nýju ljósi á tímabilið um og eftir hrun og staðfestu það sem marga hafði lengi grunað um útbreiðslu af landsfélaga innan íslensks viðskiptalífs. Aðalsteinn segir skrýtið andrúmsloft hafa ríkt í íslensku viðskiptalífi á því tímabili. „Bankarnir seldu sín aflandsfé- lög eins og hverja aðra vöru. Það var bara eins og að fá debet- eða kreditkort eða sparnaðarreikning fyrir barnið sitt. Peningarnir sem voru í umferð á þeim tíma og regl- urnar sem giltu um þetta voru bara allt aðrar. Í dag sjáum við færri íslenska einstaklinga í þessu en upp- hæðirnar eru líka allt aðrar og eðli þeirra gjörninga sem eru í gangi er allt annað.“ Er leki skjalanna að segja okkur eitthvað nýtt og heldurðu að hann muni breyta einhverju í hinu stóra samhengi umfram Panamaskjölin? „Það sem þessi leki núna segir okkur kannski fyrst og fremst er að aflandshagkerfið er ekki afleiðing þess að eitt og eitt fyrirtæki bjóði upp á þjónustu sem er þess eðlis eins og birtist í Panamaskjölunum. Þarna erum við með leka úr fjórtán ólíkum fyrirtækjum sem sýnir, eins og ekki verður umflúið, að þetta er kerfi sem er hannað til þess að funk- era svona.“ Aðalsteinn og aðrir hafa áréttað að ekki er ólöglegt að nota félög í skattaskjólum. Máli skipti hvernig skattgreiðslum sem snerta slík félög og eigendur er háttað. „En þetta auðveldar þeim sem vilja stunda ólöglega starfsemi að stunda þá starfsemi og gerir það erfiðara fyrir yfirvöld, sama hvort það er á Íslandi eða annars staðar, að hafa hendur í hári þeirra sem stunda ólöglega starfsemi. Það er búið að hanna kerfi sem nær yfir allan heiminn sem er ekki ólög- legt en alltumlykjandi og peningar streyma þarna hægri vinstri. Og það er kannski það sem þessi leki sýnir og staðfestir.“ ■ Fé streymir um alltumlykjandi aflandshagkerfi Aðalsteinn Kjartansson segir skjölin af ólíkum toga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR gar@frettabladid.is DÓMSMÁL Landsréttur hefur dæmt Hör pu og Sinfóníuhljómsveit Íslands til að greiða sviðsmanni þrjár milljónir króna í bætur vegna slyss árið 2012. Varanleg örorka mannsins var metin 22 prósent. Slysið varð er maðurinn „leitaðist við að stíga upp á um það bil 60 sentí- metra háan pall af um það bil 25 til 30 sentímetra háum palli í hljóm- sveitargryfju í Eldborgarsal Hörpu í því skyni að kalla til ljósamanns sem varð til þess að hann rann á brún efri pallsins og rak hnéð í hana“, eins og segir í dómi Landsréttar. ■ Borgi sviðsmanni bætur vegna slyss Í Eldborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK thorvardur@frettabladid.is JARÐSKJÁLFTAR Laust eftir mið- nætti aðfaranótt föstudags varð skjálfti þrír að stærð við Keili en lítil skjálftavirkni hefur verið þar síðustu daga. „Hrinan heldur áfram en ekki af sömu ákefð og var fyrstu dagana,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúru- vársérfræðingur hjá Veðurstofunni. Hægt hefur verið um eldgosið við Fagradalsfjall síðustu vikur. Elísabet segir að áfram sé vel sé fylgst með stöðunni á gosinu. ■ Dregið hefur úr skjálftavirkni við Keili. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Dauf skjálftavakt 8 Fréttir 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.