Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 09.10.2021, Síða 12
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun n Gunnar Brexit- sinnar segjast ekki hafa fengið sitt Brexit. Og Brexit- andstæð- ingar segja verstu sviðs- myndina hafa ræst. Í ljós kom að þótt fylgst væri með fólki svindlaði það ekkert síður. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is Stjórnmálafræðingurinn knái Hannes Hólm­ steinn Gissurarson hélt fyrirlestur í vikunni þar sem hann sagði skattasniðgöngu vera dyggð. Byggði hann ályktunina á siðferðis­ kenningum heilags Tómasar af Aquino, þrett­ ándu aldar munks og guðfræðings. Á sama tíma bárust fréttir af vafasömum fjármálagjörningum kaþólsku kirkjudeildar­ innar Hersveitar Krists, trúarreglu sem þekkt er fyrir stórtækt barnaníð. Í Pandóruskjöl­ unum, stærsta leka á fjármálaupplýsingum í sögunni, sést að Hersveitin átti háar fjárhæðir í leynilegum aflandssjóðum. Öldum saman hafa heimspekingar leitað að upptökum siðferðisins, lögmálum þess og tilgangi. Svo torskildar eru tilfinningarnar sem bærast með okkur þegar við stöndum frammi fyrir spurningum um rétt og rangt að margir hafa dregið þá ályktun að siðferði hljóti að vera einhvers konar yfirnáttúrleg lög að ofan. Nichola Raihani er dýrafræðingur sem stundar rannsóknir á þriflum, lítilli fiskteg­ und sem lifir við kóralrif og nærist á sníkju­ dýrum og dauðum hreisturflögum annarra fiska. Þrifillinn og „viðskiptavinurinn“ njóta góðs af samstarfi þar sem annar fær máltíð, hinn húðsnyrtingu. Einn hængur er þó á. Þriflinum finnst betra að snæða lifandi líkamsvef viðskiptavinarins. Hvernig er samstarfi viðhaldið þegar annars aðilans er stöðugt freistað að svindla? Raihani komst að því að það er gert með tvennu móti. Annars vegar með refsingu: Þegar hópur þrifla hreinsar viðskiptavin og einn bítur, syndir viðskiptavinurinn í burtu og allir verða af máltíðinni; þeim sem beit er refsað af hinum þriflunum. Hins vegar álitshnekki: Fylgist tilvonandi viðskiptavinur með störfum þrifils, vandar hann sig betur við að styggja ekki núverandi viðskiptavin. Í nýútkominni bók sinni heldur Raihani fram að þær aðferðir sem tíðkast í samskipt­ um þrifla og viðskiptavina séu í raun það sem heimspekingar hafa öldum saman kallað siðferði í mannlegu samfélagi. Raihani er ekki ein þessarar skoðunar. Hæfni mannsins til að vinna saman í stórum hópum er lykillinn að yfirburðum hans. Mannfræðingurinn Oliver Scott Curry skoðaði siðferðisgildi í sextíu samfélögum. Niðurstöðurnar sýndu að öll samfélög fylgdu sömu siðferðisreglunum, óháð trúarbrögðum. Curry segir samstarf og siðferði það sama; siðferði sé lausn mann­ kynsins á vandamálum sem koma upp við samvinnu þess. Annars konar dýrlingar Uppljóstranir í Pandóruskjölunum um skattasniðgöngu, misbjóða nú siðferðis­ vitund fólks um heim allan. Tony Blair notaði aflandsfélag til að kaupa fasteign í London og spara sér 55 milljónir íslenskra króna í stimpilgjald. Konungur Jórdaníu á í laumi lúxushúseignir í London og Malibú þótt land hans reiði sig á þróunaraðstoð. Við háskólann í Amsterdam var nýverið gerð rannsókn þar sem þátttakendur köstuðu teningi og unnu fé. Því hærri tölu sem þeir sögðust hafa fengið því hærri upphæð unnu þeir. Aðstæður voru með þrennu móti: 1) Ekki var fylgst með teningakastinu svo þátt­ takandi gat svindlað að vild. 2) Fylgst var með en trúnaði heitið. 3) Fylgst var með og þátt­ takanda sagt að upplýsingum um framferði hans yrði deilt með öðrum. Í ljós kom að þótt fylgst væri með fólki svindlaði það ekkert síður. Þegar þátttakendur áttu hins vegar á hættu að hegðun þeirra fréttist, snarminnk­ aði svindlið. Að gefa sér þær forsendur að kaþólskur dýr­ lingur sé gild heimild um rétt og rangt er eins og að leita í smiðju Svarthöfða að uppeldis­ ráðum handa nýbökuðum feðrum. Pandóruskjölin sýna að það eru annars konar dýrlingar sem veitt geta aðhald þeim „þriflum“ meðal okkar sem falla nú í freistni: Þeir kallast uppljóstrarar. ■ Svindlarar og siðferði Alþjóðleg fjármálafyrirtæki eru að flýja Bretland. Því er spáð að helsta kaupahéðnahverfið í Lundúnum verði brátt ekki svipur hjá sjón. Fyrirtækin sem þar hafa verið eru lögð á flótta til Lúxemborgar, Frankfurt og Sviss. Veitingahúsakeðja í Bretlandi sem selt hefur mexíkóska kjúklingarétti um árabil hefur ákveðið að loka 48 stöðum. Ástæðan er einföld. Það er kjötskortur í landinu, svo alvarlegur að forráðamenn keðjunnar sjá ekki fram úr vandanum. Íslensk kona sem lengi hefur verið búsett í Lundúnum man ekki eftir öðrum eins vöru­ skorti í hverfinu sínu frá því hún settist þar að. Í samtali við Fréttablaðið segir hún að þá sjaldan bensínstöðin í grennd sé opin myndist röð upp alla götuna. Það er verið að sjúga vitið úr gömlu heims­ veldi sem er heimaskítsmát eftir fölskustu þjóðar atkvæðagreiðslu sem nokkurt þjóð­ ríki hefur staðið fyrir á síðustu tímum. Og landsmenn eru að átta sig á stöðu mála, jafnt í hverfinu sínu og atvinnulífinu – og ónefnd eru þá háskólasamfélögin um allt land sem eru að tapa styrkjum og nemendum. „Þetta er búið að vera hægfara bílslys síðan 2016,“ sagði íslenski viðmælandinn í téðri frétt blaðsins, um óánægjuna með Brexit sem fer hratt vaxandi á meðal almennings. Ný könnun YouGov sýnir að 18 prósent Breta eru nú sátt við Brexit, en voru 38 prósent í júní. Frá byrjun sumars hefur þeim Bretum sem ósáttir eru við útgönguna sem kosið var um fyrir fimm árum fjölgað um 15 prósent. Nú segja 53 prósent þeirra að hún hafi misheppn­ ast. Og það eru allir reiðir. Brexit­sinnar segjast ekki hafa fengið sitt Brexit. Og Brexit­andstæð­ ingar segja verstu sviðsmyndina hafa ræst. Bretland var auðvitað aðili að fjórfrelsinu með fulltingi ESB­aðildar. Einn þáttur þess er frjáls för og búseta íbúa innan sambandsins og fullt frelsi til starfa á við heimamenn í hvaða aðildarlandi sem er. Hátt í þrjár milljónir Austur­Evrópubúa, einkum Pólverjar, fluttu til Bretlands eftir að austrið bættist í ESB­hópinn og tóku þar að sér erfiðustu og verst launuðu störfin, svo sem í flutningageiranum, landbúnaði og verka­ mennsku hvers konar. Eftir Brexit hefur þetta fólk hrakist til baka þar sem það fékk ekki lengur dvalar­ og starfs­ leyfi. Og það sem Brexit­forkólfar héldu fram, að heimamenn myndu fylla í störfin, hefur einfald­ lega ekki gerst. En, guð blessi drottninguna. ■ Heimaskítsmát Brautirnar eru fáanlegar með mjúklokun Mikið úrval rennihurðabrauta frá Þýsk gæðavara. Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 9. október 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.