Fréttablaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.10.2021, Blaðsíða 18
Ég vil að hráefnið fái að njóta sín og sé ekki of mikið að yfirkeyra allt annað, ég segi alltaf að það voru bara þrír gæjar í Nirvana og það virkaði. Veitingastaðurinn Brút var opnaður nú um helgina í hinu sögufræga Eimskips- húsi í Pósthússtræti 2. Þar er ætlunin að bjóða upp á ferska fiskrétti úr óhefðbundnu hráefni. bjork@frettabladid.is Á bak við veitingastaðinn stendur sama þrenningin og á bak við Vín- stúkuna Tíu sopa, en það eru þeir Ólafur Örn Ólafsson, Bragi Skafta- son og Ragnar Eiríksson, en við náðum tali af þeim síðastnefnda á lokasprettinum fyrir opnun. „Þetta er búin að vera löng fæðing en ég held að við höfum verið farnir að ræða að opna stað í þessu rými áður en við opnuðum Vínstúkuna,“ segir Ragnar, en heimsfaraldur tafði opnun sem upphaflega var ráðgerð fyrir ári síðan. „Óli er því búinn að sitja yfir þessu og ofhugsa þetta að eigin sögn í tvö ár, en þetta er svo- lítið hans hugarfóstur,“ segir Ragnar og á þá við meðeiganda sinn Ólaf Örn Ólafsson vínþjón. Hráefni sem sést sjaldan Ragnar stýrir eldhúsi staðarins en hann var yfirkokkur á veitingahús- inu Dill þegar það hlaut Michelin- stjörnu. „Við ætlum að gera sjávarréttum mjög hátt undir höfði og nota óhefð- bundið hráefni.“ Sem dæmi nefnir Ragnar beitukóng sem framreiddur verði eins og sniglar eru framreiddir í Frakklandi. „Við erum líka með reyktan ál og ufsa sem er frábær fiskur en er sjaldnast notaður á seðli.“ Boðið verður upp á íslenskan fisk og stuðst við evrópska matreiðslu með smá tvisti. Opið verður fyrir bæði hádegis- og kvöldverð og eins er ætlunin að bjóða upp á bröns frá og með næstu helgi. „Við ætlum að vera með óhefðbundið bröns hlað- borð, fisk og svolítið heilsusam- lega nálgun, það verður ekki allt löðrandi í beikoni,“ segir Ragnar í léttum tón. „Ég vil að hráefnið fái að njóta sín og sé ekki of mikið að yfirkeyra allt annað, ég segi alltaf að það voru bara þrír gæjar í Nirv- ana og það virkaði,“ segir hann að lokum. n Óhefðbundið á Brút Þríeykið á bak við Brút, þeir Bragi Skafta- son, Ólafur Örn Ólafsson og Ragnar Eiríksson. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Rýmið hefur verið fagurlega endur hannað af bresku innanhúss- hönnuðinum T. B. Bennett í útfærslu Traðar arkitektastofu. MYND/AÐSEND Bjart og létt yfirbragð einkennir staðinn þar sem íslensk samtímalist frá Gallerí Porti fær að njóta sín á veggjunum.  Þarna fer illa saman hljóð og mynd. n Í vikulokin Ólafur Arnarson Við mælum með Er ég mamma mín? Enn eru nokkrar sýningar eftir af verkinu Er ég mamma mín? eftir Maríu Reyndal. Í verkinu er saga tveggja kynslóða íslenskra kvenna túlkuð á snilldarlegan hátt, en það er magnað, fyndið og nánast óþægi- legt að rifja upp breytingarnar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá því verkið gerist í kringum 1980. Ef þú ert fædd/ur fyrir þann tíma farðu í Borgarleikhúsið og taktu mömmu þína með. n Ævintýraheimur Fiska.is Gakktu inn í ævintýraheim núðl- unnar á Fiska.is á Nýbýlavegi. Þar er tryllingslegt úrval af instant núðl- um frá allri Asíu auk almennt góðs úrvals af asískum mat, ávöxtum og grænmeti. Það tekur mann fram að jólum að smakka allar núðlu- tegundirnar en það er um að gera að taka nokkrar tegundir með úr hverri ferð og prófa sig áfram. n Skrímsladeildin vann þótt flokkurinn tapaði fylgi En það viðbjóðs- legasta er kannski að afleiðingar slíkra brota eru engar. BJORK@FRETTABLADID.IS Össu r Skar phéðinsson telu r skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins vera sigurvegara kosninganna. Henni hafi tekist að halda Gunnari Smára og Sósíalistaflokknum utan þings, klekkja á Kristrúnu Frosta hjá Samfylkingunni og skaða Viðreisn, reyndar með góðri aðstoð. Þar á Össur við aðkomu seðlabankastjóra, sem aff lutti tillögur Viðreisnar í gjaldmiðilsmálum. Össur dáist að tímasetningu áhlaups skrímsladeild- arinnar, sem sé „frá tæknilegu sjón- armiði líklega óaðfinnanleg. Menn með áratugareynslu að störfum.“ Sjálfstæðisf lokkurinn segist vera f lokkur athafnafrelsis, lágra skatta, einkaframtaks og félags- legrar umhyggju. Í kosningabaráttu hamrar flokkurinn á stöðugleika og varar við glundroða, skattahækkun- um og vinstri slysum. Þarna fer illa saman hljóð og mynd. Sjálfstæðis- flokkurinn er ekki lágskattaflokkur í dag, og situr raunar í vinstri stjórn. Flokkurinn kallar reyndar veiði- gjöld „skatta“ og fallist menn á það má segja að Sjálfstæðisflokkurinn lækki „skatta“. Sú „skattalækkun“ nýtist þó sægreifum einum. Skatt- þrep staðgreiðslu voru lækkuð um síðustu áramót en persónufrádrátt- ur var jafnframt lækkaður þann- ig að þeir launalægstu fengu enga skattalækkun. Veiðigjöld lækkuðu hins vegar talsvert vegna lagabreyt- inga ríkisstjórnarinnar. Í dag hefur Sjálfstæðisflokkurinn það hlutverk helst að verja gífurlega hagsmuni sem stórútgerðin hefur af niðurgreiddum aðgangi að fisknum í sjónum. Grunngildum sjálfstæðis- stefnunnar hefur verið fórnað og hætt er við að gamlir foringjar f lokksins sneru sér við í gröfinni sæju þeir hlutskipti hans í dag. Sjálfstæðisf lokkurinn gengur ekki lengur til kosninga með grunn- gildi sín að vopni. Innantómum klisjum er slengt fram, stefnan skiptir ekki máli. Skrímsladeild- inni sleppt lausri. Sannleikurinn er afstæður. Tilgangurinn helgar með- alið. Sérhagsmunir stórútgerðar- innar skulu varðir. Össur er eldri en tvævetur í pólitík og veit hvað snýr fram og aftur á pólitískri skepnu. Skrímsladeildin vann þessar kosn- ingar. Spurningin er: Hver vinnur stjórnarmyndunarviðræður? n Christina Lamb, erlendur fréttaritari The Sunday Times, er væntanleg til landsins í næstu viku og mun hún tala á málþingi UN Women. Þar mun hún fjalla um nýjustu bók sína Líkami okkar, þeirra vígvöllur, eða Our Bodies, Their Battlefield. Christina sem hefur starfað sem erlendur fréttaritari í yfir þrjátíu ár hefur undanfarin sex til sjö ár merkt mikla aukningu í kynferðislegu ofbeldi gegn konum í stríði. Hún segir ofbeldið notað sem vopn og það kerfisbundið. Þó við flest höfum heyrt slíkar fréttir leyfi ég mér að efast um að við höfum raunverulega horfst í augu við þessa grimmd. Þetta viðurstyggilega vopn er notað um allan heim, ekki aðeins í fjarlægum löndum og það er notað til að niðurlægja og brjóta niður óvininn, sundra fjölskyldum og hræða fólk til flótta. Christina segir frá reynslu sinni í átakanlegu viðtali hér í blaðinu þar sem jafnvel má vara viðkvæma við viðbjóðslegum lýsingunum. En það viðbjóðslegasta er kannski að afleiðingar slíkra brota eru engar. Engar! n Afleiðingar engar 18 Helgin 9. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 9. október 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.