Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 32
Vinn Vinn Vinn
Vinn Vinn Vinn
Vinn Vinn Vinn
Vinn Vinn Vinn
Vinn Vinn Vinn
Borgarleikhúsið leitar að kröftugum stjórnanda með ríka þjónustulund og framúrskarandi
samskiptahæfni til að sinna starfi veitingastjóra leikhússins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með allri þjónustu og veitingasölu Borgarleikhússins.
- Umsjón með stefnumótun veitingadeildar og ábyrgð á innleiðingu stefnunnar.
- Umsjón með heildarupplifun af viðmóti og þjónustu í forsal Borgarleikhússins.
- Umsjón með vöruframboði, innkaupum, mönnun veitingadeildar, sölu og uppgjöri.
- Yfirmaður starfsfólks í forsal, umsjón með þjálfun og ráðningum.
Hæfnikröfur
- Reynsla og fagleg þekking á sviði stjórnunar og rekstrar.
- Umfangsmikil reynsla og fagleg þekking á þjónustu og veitingasölu.
- Kostur að vera með menntun á sviði þjónustu og upplifunar sem nýtist í starfi.
- Leiðtogafærni, frumkvæði, jákvæðni, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Nóg til frammi
Veitingastjóri óskast
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf umsækjanda og er umsóknarfrestur
til og með 21. október, 2021.
Umsóknir óskast fylltar út á vinnvinn.is
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Nýir tímar og nýjar áherslur kalla á grænar lausnir sem eru sjálfbærar og hlífa loftslaginu.
Við hjá Landsvirkjun leitum að öflugum liðsfélaga í nýsköpunardeild, til að taka þátt í
undirbúningi og rekstri fjölbreyttra verkefna sem snúa að þróun nýrra og áhugaverðra
orkutengdra tækifæra.
Deildin er hluti af sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar. Hlutverk hennar er að þróa
ný tækifæri til orkusölu til spennandi greina sem fyrirsjáanlegt er að muni vaxa á
komandi árum. Þar má nefna vetni og rafeldsneyti, hátæknimatvælaframleiðslu, þróun
hringrásarlausna í iðnaði og þátttöku í alþjóðlegum þróunarverkefnum.
Helstu verkefni
– Verkefnisstjórn með þátttöku Landsvirkjunar í völdum samstarfs- og þróunarverkefnum
– Þróun nýrra nýsköpunarverkefna
– Faglegur stuðningur við viðskiptaþróun
– Samstarf við fyrirtæki, háskólastofnanir og sveitarfélög
– Þátttaka í alþjóðlegum þróunarverkefnum
Hæfni og menntun
– Framhaldsmenntun á háskólastigi í raunvísindum eða verkfræði
– Reynsla af verkefnastjórnun
– Þekking og reynsla af fjármögnun rannsókna og þróunarverkefna er kostur
– Frumkvæði og sköpunargleði til að þróa og móta nýjar hugmyndir og raungera þær
– Góð samskiptahæfni og geta til að miðla upplýsingum
– Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til og með 19. október
Sótt er um starfið hjá VinnVinn
vinnvinn.is
Rennur grænt blóð
í æðum þínum?
Starf