Fréttablaðið - 09.10.2021, Qupperneq 40
Askja • Krókhálsi 11-13, 110 Reykjavík • 590 2100 • askja.is
Óskum eftir færum bifvélavirkjum.
Í boði eru spennandi störf hjá öflugu þjónustufyrirtæki í fremstu röð.
Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls í Reykjavík. Hjá Öskju
starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við
gæðastaðla birgja. Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia og Honda. Markmið okkar er að
vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika
og gleði.
Ábyrgð og verkefni
Almenn viðhalds og viðgerðarvinna
Þjónustuskoðanir
Meðhöndlun bilanagreininga
Þrif og frágangur á verkstæði
•
•
•
•
Hæfniskröfur
•
•
•
•
•
Sveinspróf í bifvélavirkjun
Samstarfs- og samskiptahæfni. Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
Góð enskukunnátta, lesin, skrifuð og töluð og vilji til að læra íslensku
Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
Ökuréttindi•
• Vinnutími er mán.-fim. kl. 08-16 og fös. kl. 08-14:45.
• Um er að ræða 100% framtíðarstörf.
•
•
Umsóknarfrestur er til og með 17. október nk.
Eingöngu er tekið við umsóknum á vefsíðu Öskju:
askja.is/storf-i-bodi
Hönnuður burðarvirkja
NNE Verkfræðistofa leitar eftir góðu fagfólki til framtíðar-
starfa á burðarvirkjasvið. Í boði er gott og fjölskylduvænt
starfsumhverfi.
Starfið felst í allri almennri hönnun burðarvirkja.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tækni- eða verkfræðimenntun
• Gott vald á Revit og Autocad
• Lágmark 3ja ára starfsreynsla
• Sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið sao@nne.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
NNE Verkfræðistofa er lítið en öflugt fyrirtæki á sviði
mannvirkjahönnunar. Fyrirtækið þjónustar fjölbreyttan
hóp viðskiptavina og framundan eru spennandi verkefni.
www.nne.is
Við hjá Landsvirkjun gerum okkar ýtrasta til að gera heiminn grænan.
Til þess að svo megi verða leitum við sífellt að betri lausnum við
endurbætur og viðhald á aflstöðvum okkar með það að markmiði að
auka áreiðanleika og lengja líftíma þeirra svo nýta megi endurnýjanlegar
orkuauðlindir þjóðarinnar á enn hagkvæmari hátt.
Nú leitum við að liðsinni í þessari viðleitni okkar og auglýsum eftir leiðtoga
í starf forstöðumanns á deild endurbóta innan sviðs framkvæmda.
Á deildinni eru unnin fjölbreytt og spennandi störf við undirbúning og
framkvæmd endurbótaverkefna í aflstöðvum og veitumannvirkjum í
rekstri. Forstöðumaður leiðir hóp verkefnisstjóra og sérfræðinga, sem
saman vinna að því að verkefnin nái tæknilegum markmiðum sínum,
séu unnin innan marka fjárhagsáætlunar og að framkvæmd þeirra sé í
samræmi við stefnu fyrirtækisins og áherslur þess í einstaka málaflokkum.
Hæfni og menntun
– Háskólamenntun sem nýtist í starfi, einkum á sviði véla-,
rafmagns- eða byggingaverkfræði
– Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
– Reynsla af stjórnun auk góðrar þekkingar á verkefnastjórnun
– Frumkvæði, samviskusemi, metnaður og jákvæðni
Umsóknarfrestur er til og með 19. október
Sótt er um starfið hjá Hagvangi
hagvangur.is
Lætur þú
verkin tala?
Starf
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR