Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 43
Aðstoðarleikskólastjóri óskast
Auðarskóli í Dalabyggð auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra.
Um er að ræða 100% starfshlutfall frá og með 1. desember 2021.
Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, skapandi og vill vera
virkur hluti liðsheildar.
Helstu verkefni aðstoðarleikskólastjóra:
• Er hluti af stjórnunarteymi Auðarskóla, sem er sameinaður
skóli með þrjár deildir, grunnskóla-, leikskóla og tónlistarskóla-
deild.
• Vinnur að daglegri stjórnun og rekstri leikskólans, sem og
skipulagningu uppeldis- og kennslustarfsins.
• Er faglegur leiðtogi og ber að kynna sér nýjungar í starfi og
miðla þekkingu til starfsmanna.
• Sinnir þeim verkefnum er varða stjórnun, uppeldi og menntun
leikskólabarna og deilir út verkefnum til starfsfólks.
• Skipuleggur og ber ábyrgð á að undirbúningstímar starfs-
manna séu notaðir til skipulags og faglegs undirbúnings auk
anarra tilfallandi verkefna.
• Starfar samkvæmt stefnu og markmiðum Auðarskóla sem tekur
mið af skólastefnu Dalabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum
og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum sem við eiga.
Kröfur um menntun, kunnáttu, reynslu og hæfni
• Leikskólakennararéttindi eða önnur kennsluréttindi sem gefa
rétt til starfsins.
• Reynsla og/eða menntun í stjórnun æskileg.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Reynsla af kennslu og uppeldi ungra barna
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð íslenskukunnátta.
• Góð tölvukunnátta.
• Stundvísi og reglusemi
• Hreint sakavottorð
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og hentar starfið öllum
kynjum.
Umsóknarfrestur er til 25. október 2021.
Nánari upplýsingar veitir Herdís Erna Gunnarsdóttir,
aðstoðarleikskólastjóri, í síma: 430 4711 eða tölvupóstfang:
herdis@audarskoli.is og Haraldur Haraldsson, skólastjóri, í síma
430 4757 eða 626 5877, tölvupóstfang: haraldur@audarskóli.is
Umsóknum skal skilað til skólastjóra Auðarskóla, Haralds
Haraldssonar, Miðbraut 6-10, 370, Búðardal eða í tölvupósti á
netfangið haraldur@audarskoli.is.
Háskólapróf sem nýtist í starfi (BA, BS, B.ed eða sambærilegt).
Þekking og reynsla af umhverfismálum skilyrði.
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
Mikil hæfni í samskiptum og tengslamyndun.
Reynsla af ráðgjöf er kostur.
Reynsla af stjórnun og rekstri er kostur.
Góð þekking á atvinnulífi svæðisins er kostur.
Sjálfstæði, frumkvæði og góð skipulagshæfni.
Mjög góð færni í íslensku og ensku.
Góð almenn tölvukunnátta.
Menntunar- og hæfniskröfur
Vilt þú vera hluti af skemmtilegu og líflegu starfsumhverfi
með hugmyndaríku og drífandi fólki?
Leitað er að öflugum verkefnastjóra í teymi atvinnuþróunar og nýsköpunar hjá SSNE með
sérstaka áherslu á umhverfismál. Umhverfismál eru ein þriggja stoða Sóknaráætlunar
Norðurlands eysta. Meginmarkmið Sóknaráætlunar varðandi umhverfismál eru; Marka
framtíðar- og heildarsýn landshlutans í umhverfismálum, efla staðbundna þekkingu á svæðinu
í umhverfismálum, leggja okkar af mörkum til að mæta skuldbindingum Íslands varðandi
bindingu CO2 og að koma til móts við þau markmið sem sett eru fram í landsáætlun varðandi
meðferð úrgangs.
Um fullt starf er að ræða og gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Starfsstöð viðkomandi verkefnastjóra er á Húsavík en verkefnin spanna allt starfssvæði SSNE.
Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2021. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Umsjón með umhverfismálum SSNE og verkefnum á því sviði.
Samskipti við ríki, sveitarfélög og aðra hagaðila vegna umhverfismála.
Verkefnastýring stærri og minni verkefna sem tengjast verkssviði SSNE.
Ráðgjöf, upplýsingagjöf og stuðningur við frumkvöðla.
Helstu verkefni
VERKEFNASTJÓRI UMHVERFISMÁLA
HÚSAVÍK
Markmið með starfsemi SSNE er að efla Norðurland eystra sem eftirsótt til búsetu og atvinnu. SSNE
skal vera sterkur bakhjarl aðildarsveitarfélaga í sameiginlegum málum þeirra og stuðla að góðu
mannlífi, lifandi menningarlífi og öflugri atvinnustarfsemi á starfssvæðinu. Hlutverk SSNE er að
þjónusta sveitarstjórnir og atvinnulíf á starfssvæði landshlutasamtakanna til að ná framangreindum
markmiðum.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum,
sigga@mognum.is.
Tækniteiknari burðarvirkja
NNE Verkfræðistofa leitar eftir góðu fagfólki til
framtíðarstarfa á burðarvirkjasvið.
Í boði er gott og fjölskylduvænt starfsumhverfi.
Starfið felst í allri almennri teikningu burðarvirkja.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tækniteiknaramenntun
• Gott vald á Revit og Autocad
• Lágmark 3ja ára starfsreynsla
• Sjálfstæði í starfi
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið hoo@nne.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum verður svarað.
NNE Verkfræðistofa er lítið en öflugt fyrirtæki á sviði
mannvirkjahönnunar. Fyrirtækið þjónustar fjölbreyttan
hóp viðskiptavina og framundan eru spennandi verkefni.
www.nne.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 9. október 2021