Fréttablaðið - 09.10.2021, Page 50

Fréttablaðið - 09.10.2021, Page 50
 gardabaer.is BREKKUÁS 2, GARÐABÆ, ÍBÚÐAKJARNI Garðabær óskar eftir þátttakendum í forvali vegna fyrirhugaðs lokaðs alútboðs vegna byggingar á 7 íbúða kjarna fyrir fatlað fólk. Heildarstærð kjarna er áætluð 400-600 m2. Um er að ræða alhliða hönnun á íbúðakjarna frá grunni og fullnaðarfrágang byggingar og lóðar. Forvalsgögn eru aðgengileg á útboðsvef vso.ajoursystem.is Umsóknum um þátttöku skal skilað eigi síður en 20. október 2021 kl:14:00 á útboðsvefinn. FORVAL VEGNA ALÚTBOÐS ÚTBOÐ Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í byggingu sambýlis að Kirkjubraut 20 á Seltjarnarnesi. Um er að ræða 553 m2 staðsteypt hús á einni hæð sem samanstendur af 6 íbúðum ásamt þjónusturými. Byggingin á að skilast fullbúin að utan sem innan með innréttingum tilbúin til notkunar og lóð fullfrágengin. Verkinu öllu skal að fullu lokið 1 febrúar 2023. Afhending útboðsgagna fer fram rafrænt í gegnum útboðs- vef hjá www.strendingur.is frá og með þriðjudeginum 12.október 2021 Opnun tilboða verður þriðjudaginn 2. nóvember 2021 kl. 14:00 hjá Strendingi ehf verkfræðiþjónustu Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.Erum við að leita að þér? Sérfræðingur í alþjóðamálum Embætti ríkislögreglustjóra leitar að öflugum sérfræðingi til starfa í teymi Alþjóðadeildar. Við leitum að einstaklingi sem hefur starfað á alþjóðlegum vettvangi, tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi og hefur brennandi áhuga á að starfa í síkviku umhverfi. Alþjóðadeild annast alþjóðleg boðskipti og alþjóðasamskipti á sviði löggæslu og starfrækir m.a. Sirene-skrifstofu og upplýsingakerfi Schengen. Alþjóðadeild er jafnframt þjónustuskrifstofa fyrir Europol, Interpol og PTN auk þess sem samvinna er við lögreglu og tollgæslu auk ýmissa verkefna tengdum erlendri lögreglusamvinnu. Umsóknarfestur er til 22. október nk. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsóknarfestur er til 22. október nk. Umsóknir skulu berast í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) undir starfsauglýsingu embættisins (Sérfræðingur í alþjóðamálum hjá embætti ríkislögreglustjóra). Öllum umsóknum verður svarað að loknum ráðningum. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Einnig þurfa umsækjendur að uppfylla kröfur til að fá öryggisvottun á grundvelli reglugerðar nr. 959/2012. Nánari upplýsingar veita: Ágústa H. Gústafsdóttir mannauðsstjóri, agustah@logreglan.is og Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn, karlsteinar@logreglan.is - sími 444 2500. Helstu verkefni og ábyrgð • Ber ábyrgð á vinnslu og greiningu erinda sem berast frá erlendum lögregluyfirvöldum og tryggir að þau fari í viðeigandi ferli. • Fylgist með nýjungum og framþróun á sviði alþjóðasamskipta og samvinnu löggæslu- stofnana og kemur að innleiðingu þeirra. • Tekur þátt í verkefnum og teymisvinnu sem snúa að starfsemi alþjóðadeildar. • Ber ábyrgð á ákveðnum málaflokkum. • Kemur fram fyrir hönd alþjóðadeildar á innlendum og erlendum vettvangi. • Sinnir upplýsingaöflun, samskiptum og samstarfi við innlend og erlend lögreglulið. Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og hluti af teymi • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum Aðrir starfstengdir þættir • Góð færni í einu Norðurlandamáli • Góð færni í frönsku og/eða spænsku • Talnalæsi og reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi Upplýsingar um vinnustaðinn Embætti ríkislögreglustjóra er lifandi vinnustaður þar sem starfa tæplega 200 starfsmenn sem sinna fjölbreyttum verkefnum. Við leggjum áherslu á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og vinnum í samræmi við stefnu embættisins um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Embætti ríkislögreglustjóra hefur hlotið jafnlaunavottun. Embætti ríkislögreglustjóra er ríkisstofnun sem heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Ríkislögreglustjóri hefur með höndum samhæfingu og samræmingu í störfum lögreglu og annast ákveðna miðlæga þjónustu við lögregluembættin. Ríkislögreglustjóri hefur einnig með höndum sérstök verkefni samkvæmt lögreglulögum nr. 90/1996 og í samræmi við nánari ákvörðun ráðherra. Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is 20 ATVINNUBLAÐIÐ 9. október 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.