Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 67

Fréttablaðið - 09.10.2021, Side 67
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, Þóra Guðnadóttir áður til heimilis að Sólheimum 25, lést á hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 5. október. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. október, kl. 15. Gerður Guðnadóttir Bjarni Guðnason Jónína Margrét Guðnadóttir Sveinn Snæland og frændsystkin. Ástkær sonur okkar og bróðir, Einar Vignir Sigurjónsson Álfaskeiði 127, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 5. október. Útför verður auglýst síðar. Elín S. Hallgrímsdóttir Sigurjón E. Einarsson Hrafnhildur Elínardóttir Íris Sigurjónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ingibergur Elíasson framhaldsskólakennari, Álalind 16, Kópavogi, lést á Landspítalanum mánudaginn 4. október. Hann verður jarðsunginn frá Lindakirkju föstudaginn 15. október kl. 13.00. Lilja Dóra Gunnarsdóttir Eiríkur Steinn Ingibergsson Ragnar Ingibergsson Ingibergur Ingibergsson Edduson Magnús Grétar Ingibergsson Katrín Ingibergsdóttir og fjölskyldur.Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Óli Jörundsson frá Miðhrauni, lengst til heimilis á Sólvöllum 11, Selfossi, lést á hjúkrunardeildinni Ljósheimum sunnudaginn 3. október. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 14. október kl. 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Vinafélag Ljósheima og Fossheima. Kristbjörg Óladóttir Gestur Haraldsson María Óladóttir Svanur Ingvarsson afabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Alfonsdóttir frá Hnífsdal, lést 25. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þorgerður H. Halldórsdóttir Jakob K. Kristjánsson Grétar A. Halldórsson Ásdís Bragadóttir Bryndís Halldórsdóttir Jóhann Svavar Jóhannsson ömmu- og langömmubörn. Innilegar þakkir færum við vinum, vandamönnum og öðrum sem sýndu okkur samhug og hlýju og veittu okkur aðstoð er eiginmaður minn og faðir okkar Jón Bernódusson verkfræðingur, Hvammsgerði 8, lést miðvikudaginn 22. september sl., svo og þeim sem komu til útfarar hans í Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 1. október. Af alhug þökkum við samstarfsmönnum Jóns hluttekningu og samúðarkveðjur. Systkinum Jóns og fjölskyldum þeirra þökkum við stuðning við okkur og umhyggju. Vinátta og tryggð ykkar er og verður okkur mikill styrkur í sorginni eftir góðan mann. Martina Bernódusson María Lára Jónsdóttir Aðalbjörg Jóhanna Jónsdóttir Þökkum af alhug hlýjar kveðjur og samhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristínar Jónsdóttur Kjarnagötu 14, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu og starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Rafn Sveinsson Sveinn Rafnsson Berghildur Þóroddsdóttir Jón Rúnar Rafnsson Jónína Vilborg Karlsdóttir Ingvar Rafnsson Íris Dröfn Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, Gísli Þór Guðjónsson lést á fylkissjúkrahúsinu í Tönsberg í Noregi mánudaginn 4. október 2021. Guðrún Þóra Guðjónsdóttir Hrafnhildur Emma Gabríel Gaui Sara María Theódór Donni Ólíver Steinar Arnheiður Andrésdóttir Hrafnhildur Jónsdóttir Guðjón Grétarsson systkini og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhann Helgason fyrrv. skrifstofustjóri, Akureyri, lést sunnudaginn 3. október á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 14. október klukkan 13.00. Athöfninni verður streymt á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – Beinar útsendingar. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð á vegum Knattspyrnufélags Akureyrar. Sigríður Árnadóttir Stefán Jóhannsson Karólína Margrét Másdóttir Helgi Jóhannsson Kristín Sólveig Eiríksdóttir Hólmfríður Jóhannsdóttir Unnar Vilhjálmsson Sigríður Jóhannsdóttir Sigurður Sigurðsson Eiríkur S. Jóhannsson Friðrika Tómasdóttir Jónína Þ. Jóhannsdóttir Guðmundur Örn Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn. Hönnunarsjóður úthlutaði í vikunni 19 styrkjum til ólíkra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs auk níu ferðastyrkja. Að þessu sinni var 20 millj- ónum úthlutað en alls bárust 82 umsóknir um rúmar 208 millj- ónir. Endurnýting, nýsköpun og þróun efniviðar er rauður þráður verkefna styrkþega. benediktboas@frettabladid.is „Nýsköpun með grænum áherslum voru áberandi í þeim verkefnum sem hlutu styrk. Loftslagsváin knýr okkur til að endurhugsa allt með aukinni áherslu á gæði, endingu, fullnýtingu, þróun og staðbundna framleiðslu,“ segir Birna Bragadóttir, formaður stjórnar Hönn- unarsjóðs, en sjóðurinn úthlutaði í vik- unni 19 styrkjum, þegar 20 milljónum var úthlutað. Alls bárust 82 umsóknir um rúmar 208 milljónir. Hæsta styrkinn hlutu verk- efnin Frumgerð frá Plastplan og Frábær smábær – Hjallurinn, frá Ólafíu Zoëga sem hlutu tvær milljónir í þróunar- og rannsóknarstyrk hvort um sig. Feyging á íslenskum hampi og hönnun á vinnslu- búnaði frá Sigrúnu Höllu Unnarsdóttur hlaut einnig tvær milljónir í verkefna- styrk. „Það er gaman að sjá að tenging lands- ins við hafið og vatnið og vöruþróun tengd baðmenningu og upplifunar- hönnun, spilar stórt hlutverk í þessari úthlutun,“ segir Birna. Frábær smábær er verkefni sem snýr að því að efla tengingu lítils smábæjar við sjóinn, skúrana og bryggjurnar sínar, sem áður voru stærstu samkomustaðir bæjarins en eru að miklu leyti horfnir á braut. Heimamenn fá nýja aðstöðu til sjósunds og gufubaðs sem verður einstök og markmiðið að ferðamenn flykkist að. Verkefnið „Frumgerð” er annar fasi í stóru verkefni sem miðar að aukinni úrvinnslu á endurunnu plasti með áherslu á afurðasköpun. Unnið er að þróun tveggja vörulína, „Everyday“ og „Collect“ en afurðir þeirra verða fram- leiddar með sérsmíðuðum vélum, iðn- aðar-þrívíddarprentara og plötupressu. Íslenska brimbrettið frá Bumblebee Brothers hlaut 1,1 milljón í styrk en verkefnið felur í sér að framleiða tvær mismunandi gerðir af brimbrettum sem eru sérhönnuð og aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Feyging á íslenskum hampi og hönnun á vinnslubúnaði, hlaut tvær milljónir í verkefnastyrk. Markmiðið með verkefn- inu er að hanna staðlað vinnsluferli við feygingu á hampi og þróa búnað til að vatnsfeygja hamp í því skyni að hámarka gæði trefjanna með sem minnstum kostnaði. Hamptrefjarnar eru svo not- aðar í textílvinnslu. n Frumgerðir, íslenskt brimbretti og hampur meðal styrkþega Stjórn Hönnunarsjóðs, Friðrik Steinn Friðriksson, Hrólfur Karl Cela, Björg Ingadóttir, Birna Bragadóttir og Guðrún Inga Ingólfsdóttir ásamt Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. MYND/VÍÐIR B FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 9. október 2021 Tímamót 31

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.