Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 28

Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég átti ýmsar frásagnir og myndir sem mér fundust vera merkilegar heimildir um fólkið í landinu. Þetta voru léttir og skemmtilegir kaflar sem gátu verið yndislestur. Ég umskrifaði allar greinarnar og bjó þær í nýjan búning sem hentaði bókarforminu,“ sagði Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu. Hann var að gefa út bókina Allskonar fólk. Hún geymir 39 viðtöl, pistla og mann- lífsmyndir auk fjölda ljósmynda. Höf- undur gefur bókina út. „Margbreytileiki mannlífsins er meginstef bókar þessarar. Titill henn- ar kom því af sjálfu sér, því þetta er bók um fólk. Allskonar fólk,“ segir í formála. Efnið er fjölbreytt, auðlesið og flæðir vel. Það spannar breitt litróf mannlífsins og má segja að höfundur hafi lagt eyrað að grasrótinni og hlust- að eftir því sem liggur á hjörtum fólks til sjávar og sveita. Á meðal viðmæl- enda er þjóðþekkt fólk eins og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, lista- maðurinn Erró, Sigþrúður Guð- mundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, Gunnar Þórð- arson tónlistarmaður, Wioletta Mas- zota veðurathugunarmaður, Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra og formað- ur Framsóknarflokksins, og Sæmi Rokk. Einnig er rætt við fólk sem ekki er eins áberandi í þjóðlífinu en hefur frá mörgu að segja. Þverskurður af mannlífinu „Allt tengist þetta þeirri upp- sprettu lífsgleði sem ég finn í því að hitta fólk og heyra sögur þess. Mér finnst mikilvægt að halda því til haga hvernig lífið er í landinu. Oft finnst mér ég vera að erja allt annan garð eða róa á önnur mið en aðrir fjölmiðla- menn gera,“ sagði Sigurður Bogi. Hann byrjaði í blaðamennsku á ung- lingsárum og stendur nú á fimmtugu. Greinasafnið er því orðið mikið að vöxtum. „Ég hef verið að rifja upp síð- ustu daga ýmsar greinar sem hefðu mátt vera með í bókinni, en plássið var takmarkað. Ég reyndi að hafa safnið fjölbreytt. Þarna eru karlar og konur, Ísland og útlönd og allir landshlutar. Góður þverskurður af mannlífinu,“ sagði Sigurður Bogi. Fleiri viðmælendur eru úr dreifð- um byggðum en úr þéttbýlinu. Hvernig stendur á því? „Mér hefur alltaf þótt gaman að vera úti á landi og þar hef ég hitt margt áhugavert fólk. Þegar ég lít yf- ir farinn veg virðist mér vera gegn- umgangandi stef í mínu skrifum: Landið og fólkið. Oft finnst mér fólk úti á landi vera í betri snertingu við umhverfi sitt en algengt er á höf- uðborgarsvæðinu. Mér hefur alltaf þótt gaman að tengja saman manninn og umhverfið,“ sagði Sigurður Bogi. „Ég á efni í margar bækur til við- bótar. Svo er alltaf nýtt efni að bæt- ast við. Framhaldið ræðst af því hvernig þessari bók verður tekið.“ Sótt í uppsprettu lífsgleðinnar - Meginstefið í bókinni Allskonar fólk er margbreytileiki mannlífsins - Frásagnir og myndir af fólkinu í landinu - Viðfangsefnið er landið og fólkið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þingvallavatn Jóhannes Sveinbjörnsson bóndi á Heiðarbæ stímir á murtumiðin. Hann er einn viðmælenda. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Myndlistarkona Sigrún Jónsdóttir á Ásvelli í Fljótshlíð. Morgunblaðið/Höskuldur Daði Bókarhöfundur Sigurður Bogi með nýju bókina sína. Á fundi bæjarráðs Kópavogs í síðustu viku var meðal annars fjallað um framkvæmdir vegna viðhalds gatna og vega í sveitarfélaginu. Frestað var til næsta fundar afgreiðslu á útvegun malbiks í kjölfar útboðs, en Malbik- unarstöðin Höfði átti lægsta tilboð upp á tæpar 80 milljónir. Colas bauð næstlægst, 81,8 milljónir. Í Kópavogspóstinum fjallar Karen Elísabet Halldórsdóttir, varafor- maður bæjarráðs, um málið og segir meðal annars undir fyrirsögninni Malbik, lægstbjóðandi er Reykjavík: „Reglulega þarf að bjóða út fram- kvæmdir og meðal annars efnisút- vegun malbiks. Sú sérstaka staða kom upp nýverið að Malbikunar- stöðin Höfði, sem er í eigu Reykjavík- urborgar, var lægstbjóðandi í útboði hjá Kópavogi. Þessi rekstur hefur vakið hörð viðbrögð hjá Samtökum iðnaðarins sem benda á brot á jafn- ræði á þessum markaði gagnvart öðr- um fyrirtækjum sem ekki eru rekin fyrir skattfé Reykjavíkurbúa. Bæjarráð frestaði erindinu en í mínum huga er þetta einfaldlega rangt og í því samhengi mætti velta fyrir sér að Kópavogur stofnaði steypustöð og myndi bjóða í sínar eig- in framkvæmdir eða í öðrum bæjar- félögum,“ skrifar Karen Elísabet. Knýjandi þörf Í bókun óskar bæjarráð eftir upp- lýsingum frá Vegagerðinni um stöðu hreinsunar og malbiksyfirlagna Ný- býlavegar. „Knýjandi þörf er orðin á lagfæringu vegarins,“ segir í bókun- inni. aij@mbl.is Morgunblaðið/Hari Kópavogur Vorverk við Nýbýlaveg. Lægst- bjóðandi Reykjavík - Höfði bauð lægst í malbik í Kópavogi Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að aðgerðaáætlun fyrir bráða- þjónustu og sjúkraflutninga til árs- ins 2030. Aðgerðaáætlunin er byggð á til- lögum starfshóps sem Svandís Svav- arsdóttir heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu á þessu sviði ásamt drögum að þjónustuviðmiðum. Um- sagnarfrestur er til 21. maí næst- komandi. Þyrlan ekki hluti af áætlun Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs- ins kemur fram að heilbrigðisráð- herra hafi í október 2019 skipað starfshóp um stefnumótun í sjúkra- flutningum til ársins 2030. Í byrjun árs 2020 skilaði starfshópurinn ráð- herra tillögum að stefnu og drögum að þjónustuviðmiðum. Á grundvelli þeirrar vinnu hefur heilbrigðisráðuneytið unnið drög að aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu og notið liðsinnis fagráðs sjúkraflutninga í þeirri vinnu. Tekið skal fram að tillaga um rekstur á sérhæfðri sjúkraþyrlu er ekki hluti af þessari áætlun. Vilja heyra í hagsmunaaðilum Í fréttatilkynningu á vef Stjórn- arráðsins segir að heilbrigðisráðu- neytið leggi áherslu á víðtækt sam- ráð við lokagerð framkvæmda- áætlunarinnar og birti hana til umsagnar með áherslu á að hags- munaaðilar á breiðum grunni fái tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og efnislegum ábendingum á framfæri. Birta drög að nýrri aðgerðaáætlun - Ný áætlun fyrir sjúkraflutninga Morgunblaðið/Eggert Sjúkraflutningar Ný drög birt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.