Morgunblaðið - 06.05.2021, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
Stærðir: 36-40
7.996.- / 9.995.-
Vnr.: MAR28302
Stærðir: 36-41
10.396.- / 12.995.-
Vnr.: MAR28344
KRINGLUKAST
20% afsláttur af völdum skóm
Stærðir: 36-40
12.796.- / 15.995.-
Vnr.: MAR23787
Stærðir: 37-40
12.796.- / 15.995.-
Vnr.: MAR23744
KRINGLAN - SKÓR.IS
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
Óháð og sjálfstæð eftirlitsnefnd með starf-
semi samfélagsvefjarins Facebook staðfesti í
gær áframhaldand útskúfun Donalds
Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna,
af vefnum.
Nefndin lagði hins vegar fyrir fyrirtækið
að endurskoða bannið innan hálfs árs. Talið
er að það gæti haft víðtæk áhrif á reglur um
málfrelsi og tjáningarfrelsi á vefmiðlum.
Ákvarðanir nefndarinnar eru bindandi fyr-
ir Facebook. Skírskotaði hún til atburðanna
6. janúar sl. en þar hefði „Trump skapað um-
hverfi þar sem veruleg hætta var á ofbeldi“
en þann dag létu stuðningsmenn hans öllum
illum látum í og við þinghúsið í Washington
DC.
„Miðað við alvarleika ofbeldisverkanna og
viðvarandi hættu á ofbeldi var það réttlæt-
anleg ákvörðun hjá Facebook að loka áskrift
hans að síðunni 6. janúar og framlengja bann-
ið daginn eftir,“ sagði nefndin. Aftur á móti
var það „ekki viðeigandi af Facebook að
þröngva hinni ómarkvissu og óstöðluðu refs-
ingu ótímabundið upp á forsetann fyrrver-
andi“. Lagði nefndin að Facebook að taka
bannið til skoðunar innan sex mánaða og
ákveða og réttlæta hlutfallsleg viðbrögð.
Fyrrverandi starfsmannastjóri Trumps,
Mark Meadows, sagði ákvörðun endurskoð-
unarnefndarinnar hrollverkjandi fyrir um-
ræður og brjóta þyrfti Facebook-fyrirtækið
upp eða koma reglum yfir það. „Hryggð-
ardagur fyrir Ameríku, hryggðardagur fyrir
Facebook,“ sagði Meadows. agas@mbl.is
Facebook
íhugi bannið
á Trump
AFP
Ný samskiptasíða Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verður áfram í banni á samfélagsvefnum Facebook og verður að finna sér fót-
stall fyrir boðskap sinn og stjórnmálabaráttu á öðrum vefjum. Opnaði hann nýverið eigin vettvang fyrir skilaboð sín til stuðningsmanna.
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Franska ríkisstjórnin hefur varað Breta við því
að hún gæti gripið til þess ráðs að rjúfa raf-
magn til bresku Ermarsundseyjarinnar Jersey
vegna deilna um fiskveiðiréttindi í kjölfar
Brexit-samningsins.
Sjávarútvegsráðherrann Annick Girardin
sagði í franska þinginu að nýjar reglur um
veiðistýringu við eyjarnar í Ermarsundi væru
óviðunandi. Sagði hún Frakka „tilbúna að
beita … hefndaraðgerðum“ í samræmi við
samning um viðskipti Evrópusambandsins
(ESB) og Frakka eftir Brexit. „Það er leitt að
til þessa skyldi koma en við verðum að gera
það ef við verðum.“ Jersey er stærst Ermar-
sundseyjanna og fær um 95% raforku sinnar
um neðansjávarstreng frá Frakklandi.
„Einskis verðar“ aflaheimildir
Sjávarútvegsráðuneytið í París segir Breta
hafa kynnt til sögu „nýjar tæknilegar út-
færslur“ við úthlutun aflaheimilda við eyjarnar
fyrrnefndu sem þeir hafa ekki komið á fram-
færi við ESB. Því væru þær „einskis verðar“.
Þessar nýjustu yfirlýsingar þykja til marks
um stigmögnun deilnanna um fiskveiðiréttindi
sem voru einn helsti ásteytingarsteinn í við-
ræðum um samskiptin eftir útgönguna.
Franskir sjómenn hafa kvartað undan því að
þeim hafi verið útskúfað úr breskri efnahags-
lögsögu vegna þessu hversu erfitt sé að verða
sér úti um aflaheimildir. Forsenda þess að fá
kvóta samkvæmt samningi ESB, segja þeir, er
að geta sýnt fram á veiðisögu á svæðinu. Ráða-
menn einir á Jersey geta úthlutað veiðiheim-
ildum í lögsögu eyjunnar og frá og með síðustu
viku eru allar veiðar þar bundnar leyfi.
Á föstudaginn var deildi stjórn Jersey út 41
veiðileyfi til franskra fiskiskipa sem búin eru
staðsetningarbúnaði þann veg að hægt er að
fylgjast með ferðum þeirra. Franska stjórnin
segir að böggull hafi fylgt skammrifi og Bretar
gert kröfur til skipanna sem útgerðarmönnum
þeirra hafi ekki verið gerð grein fyrir áður.
Sjávarútvegsráðuneytið í París segir nýju
reglurnar „mæla fyrir um hvert skip geta farið
og hvert ekki“ ásamt því hversu marga daga
þeir geti verið í lögsögunni. „Þetta er ótækt
með öllu,“ sagði frú Girardin. „Samþykkjum
við þetta fyrirkomulag fyrir Jersey mun það
vinna gegn aðgangi okkar alls staðar annars
staðar.“
Samtímis þessu hafa útflytjendur sjávar-
fangs í Bretlandi goldið hart fyrir bann ESB
við útflutningi lifandi skelfisks frá Bretlandi.
Mikill meirihluti þessara fyrirtækja er skoskur
og við mörgum þeirra blasir fátt annað en
gjaldþrot.
Bretum hefur og enn sem komið er mistekist
að ná nýjum fiskveiðisamningi við Norðmenn.
Af þeirri ástæðu fá breskir togarar ekki sótt í
þorsk undan ströndum Norður-Noregs.
Frakkar hóta að myrkva Jersey
AFP
Brexit Breskur sjómaður beinir trollinu sína leið á veiðum undan suðvesturströnd Englands.
- Saka Breta um að reisa nýjar hindranir við fiskveiðum í lögsögu sinni - Skelfisksbann bítur hart