Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 37

Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 Á Herzl-hæð í Jerú- salem stendur sérstæð bygging sem nefnist Yad Vashem. Hún er í senn minningarreitur og safn. Þar er gestum opnaður heimur gyð- ingahaturs sem í gegn- um aldirnar hefur tekið á sig ýmsar myndir, flestar skelfilegar. Lokahluti safnsins er helgaður minningu þeirra sem urðu fórnarlömb haturs- ins á 20. öld og þar er ljósi varpað á hvernig vítisvélar Þriðja ríkisins reyndu að fullkomna drauma þeirra sem hatast út í tilvist gyðinga og fóru langt með að ná ætlunarverkinu, að þurrka gyðinga út af jörðinni. Einhverjir héldu að þegar tjaldið féll um miðbik síðustu aldar og í ljós kom hvernig Hitler og samverka- menn hans breyttu Evrópu í slátur- hús myndi hatrinu slota. Enn fleiri töldu mikilvægt að gyðingar fengju stofnað eigið ríki – í skjóli frá því fólki sem hatar þá mest. Árið 1948 stóðu Sameinuðu þjóðirnar að stofnun Ísr- aelsríkis, á landsvæði þaðan sem gyð- ingar hafa forðum verið herleiddir og hraktir. Þar höfðu gyðingar leitað skjóls á ný allt frá 19. öld og keypt þar jarðnæði, ræktað upp og breytt úr eyðimörk í gróðurvin. En þá tók hatrið alræmda á sig nýja mynd og strax við stofnun rík- isins réðust nágrannaríkin á Ísrael. Hefur það ástand varað með hléum síðan og í hverju varnarstríðinu á fætur öðru hafa Ísraelar unnið stærra svæði í kringum upphafleg landamæri ríkis síns, einkum í því skyni að tryggja öryggi sitt. Á það við um svæðin allt frá Gólanhæðunum í norðri og niður að Sínaískaganum í suðri. Sum af þessum svæðum verða aldrei látin af hendi – öryggisráðstaf- anir ráða því. Önnur svæði hefur Ísr- ael látið eða boðið í skiptum fyrir frið. Það á m.a. við um stór landsvæði á Vesturbakkanum. Miðuðu Óslóar- samkomulögin tvö að því marki og lögðu leiðtogar á borð við Bill Clinton og Itzak Rabin allt í sölurnar fyrir sátt milli Palestínumanna og Ísraela. Sá síðarnefndi galt raunar fyrir þá viðleitni með lífi sínu (það hafa fleiri gert, m.a. Anwar Sadat, forseti Egyptalands). Sáttin var sprengd í loft upp, eink- um vegna framgöngu Yassirs Arafats sem aldrei vildi frið og safnaði gríð- arlegum auði persónulega í skjóli átaka milli þjóðanna tveggja. Enn er tekist á en reyndar hefur á síðustu ár- um orðið friðvænlegra á svæðinu. Ísr- aelar hafa friðmælst við sífellt fleiri þjóðir í Mið-Austurlöndum og er sá friður mikill þyrnir í augum þeirra sem gegnsýrðir eru af gyð- ingahatri. Draumur þeirra virðist sá að Ír- anar reki Ísraela á haf út eða sprengi í loft upp með kjarnorku- sprengjum sem þeir paufast við að smíða. Í þessum aðstæðum gera almennir borg- arar, jafnt Ísraelar og Palestínumenn, tilraun til þess að lifa eðlilegu lífi og uppfylla vonir sín- ar og væntingar til lífsins. Þar skiptir efnahagsleg afkoma miklu máli. Er aðdáunarvert að fylgjast með fólkinu, m.a. á Vesturbakkanum, nýta sér ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu til þess að skapa sér og sínum góð lífsskilyrði. Döðlurnar sem ræktaðar eru við Dauðahafið eru engu líkar og gestrisni og móttökur ferðaþjónustu- aðila í Jeríkó eru eftirminnilegar. Þar starfa gyðingar og Palestínumenn hlið við hlið. Hagsmunir þeirra eru gagnkvæmir og samofnir. Samstarfið þar á milli hefur aukið á friðinn og dregið úr spennu sem er ærin fyrir. Um þetta samstarf leyfði ég mér að fjalla í grein í ViðskiptaMogga í liðinni viku og benti fólki á að gaman sé að dreypa á rauðvíni úr smiðju Psagot, vínræktanda sem starfar á Vesturbakkanum. Komst vínið í frétt- ir þegar það var skráð á vefsíðu Vín- búðanna með upprunalandið Ísrael. Hið rétta er að á umbúðum vínsins er það sagt upprunnið á landsvæði „hins forna Ísraels“ og er það rétt. Vín- ræktin fer hins vegar fram á her- numdu svæði, en lýtur yfirráðum Ísraels. Á Vivino og víða annars stað- ar er kirfilega greint frá því að vínið er frá Vesturbakkanum og hefði farið ágætlega á því að sami háttur væri hafður á þegar kom að skráningunni hér á landi. Grein þessi um vínið varð til þess að tveir kumpánar, Hjálmtýr V. Heiðdal og Einar Steinn Valgarðs- son, sem báðir segjast vera meðlimir í félaginu Ísland-Palestína, rituðu grein í Morgunblaðið sem birt var í gær. Þar fullyrða þeir að undirritaður sé stuðningsmaður mannréttinda- brota Ísraelsríkis. Ganga þeir raunar svo langt að halda því fram að ég hafi sagt mig úr samfélagi siðaðra manna með skrifum mínum. Þeim finnst það ódýrt lymskubragð að segja viðskipti og atvinnulíf skapa frið á svæði á borð við Vesturbakkann. Bera þeir fyrir sig Genfarsáttmálann og Mannrétt- indasáttmála Sameinuðu þjóðanna og reyna um leið að spyrða skoðanir mínar saman við afstöðu stjórn- málaflokks sem lýtur forystu núver- andi forsætisráðherra Ísraels. Einari Steini og Hjálmtý er aug- ljóslega mikið í mun að enginn friður náist milli Ísraela og Palestínumanna og rímar sú afstaða mjög við opinbera stefnu félagsskaparins sem þeir tengja sig við. Þeir eru í grundvallar- atriðum á móti tilveru Ísraelsríkis og sú afstaða virðist byggjast á andúð og hatri á gyðingum. Að saka menn um slíkt er vissulega alvarlegur hlutur en skrif þeirra bera hins vegar vott um hina miklu heift. Birtist hún ekki að- eins í afstöðunni til gyðinganna sjálfra heldur einnig hvernig þeir missa stjórn á sér vegna saklauss greinarkorns um rauðvín. En kannski á þessi afstaða þeirra félaga ekki að koma á óvart. Skemmst er að minnast þess að Hjálmtýr vann sér til frægðar á fyrri tíð að hafa gerst sérstakur talsmaður Pols Pots hér á landi. Varði hann, svo eftir var tekið, ófreskjuna sem stýrði Kambódíu með harðri hendi á átt- unda áratug síðustu aldar. Reyndi hann æ ofan í æ að gera lítið úr þjóð- armorðinu sem Pot stóð fyrir og sagði tölur um mannfall í landinu hið minnsta stórlega ýktar – eins og það væri afsökun fyrir blóðbaðinu. Þessi fylgispekt Hjálmtýs verður lengi í minnum höfð og skipar honum á bekk með ákveðnum hópi manna. Væri for- vitnilegt að kalla eftir því hvernig Hjálmtýr telur framgöngu andlegs leiðtoga síns samræmast fyrr- nefndum Genfarsáttmála eða mann- réttindasáttmálanum. Best hefði þó verið að geta borið þá spurningu und- ir þær tvær milljónir manna sem féllu fyrir hendi Pols og með velþóknun þeirra sem studdu hann og styðja. Sú hugmyndafræði sem Hjálmtýr og Einar Steinn aðhyllast varð undir á 20. öldinni. Það er ástæðan fyrir því að þessi skoðanaskipti geta átt sér stað. Hefðu skoðanir þeirra orðið of- an á væri ekki um neitt slíkt að ræða. Þeir sem taka undir ofstæki þeirra fé- laga notast hvorki við SodaStream né leggja sér til munns rauðvínið frá Psagot. Þeir hinir sömu verða að lesa vandlega á umbúðir bestu lyfja sem framleidd eru í heiminum og neita væntanlega að taka þau inn þótt lífið liggi við. Illa dulið gyðingahatur Eftir Stefán Einar Stefánsson » Skrif þeirra bera hins vegar vott um hina miklu heift. Birtist hún ekki aðeins í afstöðunni til gyðinganna sjálfra heldur einnig hvernig þeir missa stjórn á sér vegna saklauss greinar- korns um rauðvín. Stefán Einar Stefánsson Höfundur er fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu. Það hefur vakið at- hygli á undanförnum misserum að Arnar Þór Jónsson héraðs- dómari hefur oftsinnis skrifað blaðagreinar um viðhorf sín til hinn- ar lagalegu aðferðar sem og stundum um önnur þjóðfélagsmál sem til meðferðar hafa verið í þjóðfélaginu. Að baki greinum Arnars hefur ávallt legið djúp hugsun og málefnalegur heiðarleiki. Að þeim hefur verið mikill fengur fyrir al- menning. Nú berast þau tíðindi að Arnar hafi sagt sig úr Dómarafélagi Ís- lands „vegna ágreinings um tjáning- arfrelsi dómara og efni siðareglna félagsins“. Gegnum þetta má lesa að aðrir félagsmenn í DÍ hafi amast við skrifum Arnars og vilji meina dóm- urum að tjá sig um þjóðfélagsmálin. Þetta eru kostuleg tíðindi. Auðvit- að njóta dómarar allra sömu mann- réttinda og aðrir borgarar, þ.m.t. tjáningarfrelsis. Hafi þeir skoðanir á málefnum sem deilum valda í þjóð- félaginu, t.d. um innfluttar reglur um orkupakka, er auðvitað heppi- legt að þeir tjái þær opinberlega. Vitneskja um slíkar skoðanir getur síðan valdið því að dómari sem tjáir sig geri sig vanhæfan til að sitja í dómi í máli þar sem kann að verða tekist á um málefnið sem um ræðir. Öllu réttlæti er þá fullnægt með því að málsaðilar geta gert kröfu um að dómarinn víki sæti ef á þetta reynir. Þeir hafa nefnilega fengið að vita um skoðanir dómarans í tíma. Nú skulu menn ekki telja eitt augnablik að starfandi dómarar í landinu hafi ekki skoðanir á marg- víslegum ágreiningsefnum sem uppi eru í samfélaginu á hverjum tíma. Þær hafa þeir allir og oft getur verið mikill tilfinningahiti í sálum þeirra, þó að þeir hafi aldrei tjáð sig opin- berlega um slíkar skoðanir sínar. Flestir þeirra hika ekki við að taka sæti sem dómarar í málum þar sem reynir á slík ágreiningsefni. Þetta finnst þeim í lagi, þar sem enginn veit um þessar skoðanir. Hið sama gildir þegar þeir eiga beinna hags- muna að gæta sem enginn veit um, eins og dæmin sanna. Þeir ganga svo margir í dómsstörf blygð- unarlaust í þágu þeirra viðhorfa sem þeir aðhyllast eða hagsmuna sem þeir eiga. Væri nú ekki betra að þeir hefðu kunngjört opinberlega um slík atriði sín, svo að aðilar dómsmálanna geti þá krafist þess að þeir víki sæti ef þeim þykir tilefni til? Muna menn til dæm- is eftir upplýsingunum sem komu fram fyrir nokkrum árum, um að fjöldi dómara hefði átt fjárhagsmuna að gæta sem fóru for- görðum við bankahrunið 2008? Þeir hikuðu samt ekki við að taka sæti sem dómarar í málum, þar sem menn voru sóttir til saka fyrir að hafa valdið hruninu og þar með tapi þeirra. Um þetta vissi enginn fyrr en löngu eftir að dómar voru gengn- ir. Nú eru að koma slag í slag óskir frá Strassburg um upplýsingar um fjárhagsmuni dómara sem svona stóð á um. Er þetta ekki dásamlegt? Svo sitja þessir sömu dómarar á fundum í DÍ og amast við því að aðrir dóm- arar komi fram af þeim heilindum sem þeir sjálfir forsmáðu. Má ég frekar biðja um grandvaran og hugsandi mann eins og Arnar Þór Jónsson í dómarasæti. Þess skal getið að siðareglur dóm- aranna voru settar á aðalfundi í nóv- ember 2017. Þar er m.a. að finna reglu sem mælir fyrir um háttsemi dómara sem látið hafa af störfum. Það eina sem vantaði í regluna var nafn mitt. Ég var samt ekki félagi í þessu félagi eftir að ég lét af störf- um sem hæstaréttardómari á árinu 2012. Það eru miklir grínistar sem sækja aðalfundi Dómarafélags Ís- lands til að setja dómurum siða- reglur. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Flestir þeirra hika ekki við að taka sæti sem dómarar í málum þar sem reynir á slík ágreiningsefni. Þetta finnst þeim í lagi, þar sem enginn veit um þessar skoðanir. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi dómari við Hæstarétt Íslands. Grínistar í Dómarafélagi Íslands Við lifum að sönnu sögulega tíma. Síðast- liðin ár hafa einkennst af sviptingum í al- þjóðakerfinu. Yfir- standandi heimsfar- aldur hefur svo sett samfélög um allan heim úr skorðum og breytt heimsmyndinni til frambúðar. Við svo hvikular aðstæður ríð- ur á að standa vörð um hagsmuni lands og þjóðar. Það hefur utanríkisþjónustan gert undanfarin misseri sem aldrei fyrr. Í dag verða utanríkismál rædd á Alþingi þegar ég flyt þinginu mína árlegu skýrslu ráðherra um utanrík- ismál, auk skýrslu um framkvæmd EES-samningsins. Það er afar mik- ilvægt að þingmenn eigi skoðana- skipti um þessi mikilvægu mál og sérstakt fagnaðarefni að utanríkis- mál eru á nýjan leik að fá verðugan sess í umræðunni. Öflug utanríkis- viðskipti eru und- irstaða áframhaldandi velsældar og aukinn stuðningur við útflutn- ingsgreinar mótar við- spyrnu okkar við far- aldrinum. Hjá viðskiptavaktinni sem leit dagsins ljós síðast- liðið haust geta íslensk fyrirtæki leitað að- stoðar við brýnum úr- lausnarefnum hvenær sem er. Um leið höfum við kappkostað að styrkja grundvöll utanríkisviðskiptanna. Efnahags- samráð sem sett var á fót með Bandaríkjunum 2019 er orðið að ár- vissum viðburði, framtíðarviðræður við Bretland verða vonandi brátt til lykta leiddar og hagsmunagæsla á vettvangi EES-samstarfsins er ávallt í öndvegi. Að sama skapi er áhrifaríkasta leiðin til að uppræta fátækt og bæta lífskjör í heiminum að styðja við at- vinnuuppbyggingu í þróunarlönd- unum. Aðkoma einkageirans er lyk- ilforsenda þess enda hafa þróunarlöndin sjálf kallað eftir henni. Heimstorg, samstarfsverk- efni utanríkisráðuneytisins og Ís- landsstofu, miðlar upplýsingum til íslenskra fyrirtækja um möguleg at- vinnuþróunarverkefni í þróunar- löndum og víðar. Samstarfssjóður atvinnulífs um heimsmarkmið Sam- einuðu þjóðanna er líka kominn á fullan skrið en hann er ætlaður ís- lenskum fyrirtækjum sem stuðla með starfsemi sinni að hagsæld í þróunarríkjum. Við höfum einnig lagt áherslu á að tryggja enn betur öryggi Íslands gagnvart þeim síbreytilegu ógnum sem nú eru uppi. Sérstök deild fjöl- þáttaógna hefur verið stofnuð í ráðu- neytinu sem greinir nýjar áskoranir, til dæmis á sviði netógna og upplýs- ingaóreiðu, og mótar viðbrögð við þeim. Öryggi grunninnviða á borð við ljósleiðaraþræði er líka for- gangsmál. Áfram leggjum við svo okkar af mörkum til öryggis- og varnarsamstarfs á vettvangi Atl- antshafsbandalagsins svo og Norð- urlanda og annarra líkt þenkjandi ríkja. Stigvaxandi þungi hefur færst í samstarf um málefni norðurslóða enda dylst engum þýðing þessa svæðis gagnvart þeim áskorunum sem mannkynið stendur nú frammi fyrir. Loftslagsmálin eru eitt af áhersluatriðum vel heppnaðrar for- mennsku Íslands í norðurskauts- ráðinu en henni lýkur með ráðherra- fundi í Reykjavík í maí. Við höfum sannarlega mikið fram að færa í þessum efnum, bæði hvað varðar nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa en líka nýsköpun á sviði kolefnis- bindingar. Mannréttindi eru leiðarljós í öllu okkur starfi sem og þau lýðræð- islegu gildi sem alþjóðakerfið bygg- ist á. Það er áhyggjuefni að sótt er að þessum gildum, oft í skjóli Co- vid-19. Fámenn herlaus ríki eins og Ísland eiga mikið undir því að sátt ríki um þessi grunngildi og al- þjóðalög almennt. Við beitum okkur á vettvangi alþjóðastofnana hér eftir sem hingað til og í einstökum mál- um. Síðastliðin misseri hafa verið bæði krefjandi og um margt þungbær en um leið sýnt fram á þolgæði þjóð- arinnar og styrk. Ég er stoltur af ár- angri utanríkisþjónustunnar við að styðja íslenskt atvinnulíf og gæta hagsmuna borgaranna á slíkum óvissutímum. Nú þegar við sjáum ljósið við enda ganganna stendur Ís- land sterkt að vígi í samfélagi þjóð- anna. Ljósið við enda ganganna Eftir Guðlaug Þór Þórðarson »Ég er stoltur af ár- angri utanríkisþjón- ustunnar við að styðja íslenskt atvinnulíf og gæta hagsmuna borg- aranna á slíkum óvissu- tímum. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.