Morgunblaðið - 06.05.2021, Qupperneq 41
UMRÆÐAN
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
20%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM SKÓM
KRINGLUKAST
6.-10. MAÍ
KRINGLAN - SKÓR.IS
LandRoverDiscovery Sport Pan. ‘18, sjálfsk.,
ekinn 31þús. km. Verð: 5.990.000 kr.
Greiðsla á mánuði: 42.688 kr.*
800006
Hótel um land allt 65 Orkustöðvar
um land allt
Notaðir bílar
Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. *Forsendur: 7 ára lán hjá Lykli með 50% útborgun. Sjá nánari upplýsingar um kaupauka á notadir.benni.is
Kaupauki með völdum notuðum bílum
Sjö nætur á Fosshotel Eldsneytiskort Óvæntur ferðag
laðningur
Að verðmæti allt að 210.000 kr. Að verðmæti 50.000 kr. Dregið út
vikulega
Bílabúð Benna gefur þér tækifæri til að kynnast Íslandi betur í sumar og styðja við íslenska ferðaþjó
nustu í leiðinni.
ÍSLAND VILL SJÁ ÞIG Í SUMAR
SsangYongTivoli Dlx ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 76þús. km. Verð: 2.290.000 kr.
SsangYongKoranodHlx ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 74þús. km. Verð: 3.790.000 kr.
Opel Astra Enjoy ST. ‘18, sjálfsk.,
ekinn 40þús. km. Verð: 2.990.000 kr.
Toyota Corolla ActiveHybrid ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 37þús. km. Verð: 3.690.000 kr.
Greiðsla á mánuði: 26.356 kr.* Greiðsla á mánuði: 21.386 kr.* Greiðsla á mánuði: 16.415 kr.* Greiðsla á mánuði: 27.066 kr.*
800043
800006
720134 446829 446836
Lengsta og erfiðasta
vetri á minni starfsævi
er lokið. Vetri kvíða,
vetri álags, vetri
áhyggna, vetri and-
vöku en einnig vetri
sigurs. Sigurs öldr-
unarþjónustunnar yfir
Covid-19-veirunni. Allt
það frábæra starfsfólk
öldrunarþjónustu
landsins, Grund-
arheimilanna þar á meðal, lagði á sig
feikn mikið og fórnaði sínu hvers-
dagslega lífi til að geta sinnt þeim
sem hjá okkur búa. Voru meira og
minna í sjálfskipaðri sóttkví síðast-
liðið ár. Og fyrir það verð ég ævinlega
þakklátur. Einnig er ég þakklátur því
mikla æðruleysi sem heimilisfólkið
sýndi í vetur. Auðvitað áttu margir
þeirra erfitt og ekki síður aðstand-
endur þeirra. En með þrautseigju,
góðu skipulagi og öllu þessu frábæra
starfsfólki tókst okkur að komast í
gegnum þessar hörmungar og getum
borið höfuðið hátt. Þá sýndu aðstand-
endur þessum erfiðu aðstæðum skiln-
ing og nú er gaman að sjá hversu
margir heimsækja sína nánustu. Tak-
markanir á heimsóknum á Grund-
arheimilin eru í lágmarki og hverfa
alveg á næstunni.
Fram undan er sumar
og sól. Hlýja, notaleg-
heit, heimsóknir, ferðir
út í bæ, ferðir á kaffihús,
sólbekkjaseta í görð-
unum okkar og svo
mætti lengi telja. Ekki
förum við til útlanda á
næstunni, í það minnsta
ekki fyrri part sumars.
Njótum íslenska sum-
arsins saman og gerum
eitthvað skemmtilegt.
Bæði í vinnunni og í
sumarfríinu langþráða. Að vakna
snemma á morgnana og sjá daginn
verða til, fuglana vakna og vita og
hlakka til þess að þessi dagur verði
fallegur og góður. Þvílík tilfinning.
Njótum lífsins saman í sumar!
Gleðilegt sumar
Eftir Gísla Pál
Pálsson
Gísli Páll Pálsson
» Fram undan er sum-
ar og sól. Hlýja,
notalegheit, heimsóknir,
ferðir út í bæ, ferðir á
kaffihús, sólbekkjaseta í
görðunum okkar og svo
mætti lengi telja
Höfundur er forstjóri
Grundarheimilanna.
gisli@grund.is
Reykjavíkurborg hefur ekki látið
sitt eftir liggja í að bregðast við Covid-
faraldrinum, hvorki í sóttvörnum né
efnahagslega. Strax var ákveðið að
fylgja leiðsögn helstu hagfræðinga og
erlendra stofnana og fara ekki í mikinn
niðurskurð og uppsagnir starfsmanna
og ýta þannig enn frekar undir vand-
ann. Þess í stað var ákveðið að sækja
fram með kraftmiklu grænu plani og
vaxa út úr vandanum.
Faraldur kallaði á aukin útgjöld
Ársreikningur Reykjavíkur, sem
ræddur var í borgarstjórn á þriðjudag,
ber þess merki. Hann ber merki þess
að atvinnuleysi Reykvíkinga jókst úr
því að vera 3.500 manns í upphafi árs í
8.600 í lok þess. Samdráttur í ferða-
þjónustu og minni umsvif þýddu tekju-
samdrátt hjá Faxaflóahöfnum, Strætó
og Sorpu. Veiking krónunnar og óstöð-
ugt gengi þýddi fimm milljarða bók-
færðan kostnað hjá Orkuveitu Reykja-
víkur.
Ársreikningurinn ber þess líka
merki að meirihlutinn í borgarstjórn
ákvað að standa með fólki og fyr-
irtækjum í Reykjavík á erfiðum tím-
um. Borgarráð samþykkti á síðasta ári
2,3 milljarða fjárveitingu í aðgerðir til
að styðja m.a. menningu, ferðaþjón-
ustu, íþróttir, skóla, frí-
stund og velferð í borg-
inni. Aukin þrif, til að
verjast faraldrinum,
kostuðu hátt í 100 millj-
ónir.
Auk beinna framlaga
eru ótaldar aðrar að-
gerðir, svo sem frestun
fasteignagjalda fyrir
fyrirtæki sem urðu illa
úti vegna faraldursins,
lækkun fasteignaskatta
á atvinnuhúsnæði og að-
gerðir sem fjármagn-
aðar voru úr fjárhags-
ramma sviða
borgarinnar. Þá eru líka ótaldar fjár-
festingar borgarinnar, sem ákveðið var
að flýta og styðja þannig við atvinnu-
lífið.
Vöxturinn þarf að vera grænn
Við í meirihlutanum settum okkur
þá stefnu við fjárhagsáætlun þessa árs
að gefa í við nauðsynlegar fram-
kvæmdir og taka stór græn skref til
framtíðar. Sem betur fer sjáum við,
m.a. á ársreikningi Reykjavík-
urborgar, að ástandið varð ekki eins
slæmt og svörtustu spár gáfu til kynna.
Skrefin fram á við geta því orðið léttari.
En nú er tíminn fyrir framkvæmdir og
fjárfestingar. Reykja-
víkurborg er öflugt
sveitarfélag sem hefur
góða burði til að auka
við fjárfestingar og örva
atvinnulífið.
Lægstu skuldir á höf-
uðborgarsvæðinu
Stór orð hafa verið
uppi um skuldastöðu
Reykjavíkurborgar,
sem gefa kolranga
mynd. Skuldir sveitarfé-
laga eru takmarkaðar af
sveitarstjórnarlögum
við 150% skuldaviðmið. Í ársreikningi
2020 er skuldaviðmið Reykjavík-
urborgar 88%. Af öðrum sveit-
arfélögum á höfuðborgarsvæðinu er
skuldaviðmið Garðabæjar 71%, Mos-
fellsbæjar 100%, Hafnarfjarðar 101%
og Kópavogs 105%.
Ef einungis er litið til þess hluta
borgarinnar sem er fjármagnaður með
skatttekjum og sinnir almennri þjón-
ustu við borgarbúa (A-hluta) er hlut-
fallið enn lægra og er skuldahlutfall
Reykjavíkurborgar lægst á öllu höf-
uðborgarsvæðinu. Skuldir Reykjavík-
urborgar, þegar hlutur Orkuveitunnar
er meðtalinn, hljóma kannski háar. En
á móti koma 730 milljarða eignir borg-
arinnar og er hrein eign á hvern íbúa
hvergi meiri á höfuðborgarsvæðinu.
Bjartir tímar fram undan
Áætlanir um bólusetningar gefa til-
efni til bjartsýni um að unnt verði að
ráða niðurlögum faraldursins á þessu
ári. Þríeykið hefur staðið sig vel í að
verja þjóðina gegn faraldrinum og ég
hef sjálf fengið að kynnast því hversu
gott skipulag er á bólusetningum.
Byrjað er að bólusetja síðasta for-
gangshópinn, þar sem árgangar sem
voru bara unglingar í gær hafa verið
boðaðir. Með hækkandi sól mun
Reykjavík áfram standa keik með fólki
og fyrirtækjum í borginni. Veita stuðn-
ing þegar á þarf að halda og standa við
áætlanir um hvernig við ætlum að vaxa
út úr kófinu.
Eftir Þórdísi Lóu
Þórhallsdóttur
»Við ákváðum að sækja
fram með kraftmiklu
grænu plani og vaxa út úr
vandanum.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Höfundur er formaður borgarráðs og
oddviti Viðreisnar.
Vöxum út úr kófinu