Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 49

Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 49
reitum og trillukarlar í fjöru. Hey á túnum. Skólaárin með öllu sínu. Rigmor Hansen kom innan að með segulband og kenndi dansspor. Við settum upp lim- bóslá og æfðum limbódans. Matta hrókur alls fagnaðar, létt á fæti, gat látið til sín heyra, vinur og leikfélagi af bestu gerð. Ár- gangurinn okkar var óvenju fjöl- mennur og við héldum vel hópinn í bernsku og æsku. Sífelld tæki- færi til leikja og uppátækja. Hjartað og tilfinningin segir til um hve gott var að eiga Möttu sem skólafélaga og vin. Minning- in frá þessum tíma gefur hlýju í hjartað og bros á vör. Svo urðum við fullorðin og hver hélt sína leið. Þó svo að liði jafnvel löng tímaspönn milli hitt- ings þá var gengið til orðræðu og léttleika rétt sem skömm stund væri liðin. Þannig leið tíminn. Svo einn daginn gerðust þau Matta og Maggi staðarhaldarar á veitingastaðnum á Garðskaga. Og þá lifnuðu tengslin við að nýju. Hópar ferðalanga komu í mat og kaffi, vel tekið við gestum á Garðskaga, heimilislegur mat- ur, kaffibrauð og þykkar tertur með rjóma fyrir þá sem vildu. Jafnvel opinn bar eins og þurfti. Lífsgleði réð ríkjum. Vinahópur með Jens Sævar í fararbroddi stóð fyrir samkomum. Matta eld- aði, eins og ávallt hress og kát. Gestum látið líða vel. Nú er svo komið að Matta á Bjargi er hluti af minningu okkar sem höldum fram veginn um sinn. Sex fermingarsystkini okk- ar eru gengin. Þeirra er minnst með hlýju og virðingu. Við áttum góðan tíma saman í Garðinum sem börn og unglingar. Eitt af því góða sem lífið færir eru traustir vinir. Magga, fjölskyldu og vinum eru sendar samúðarkveðjur. Megi Matta á Bjargi eiga góð- an farveg á nýjum lendum. Hörður Gíslason. Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Víði Þau sorgartíðindi bárust á dögunum að Matthildur Ingv- arsdóttir hefði fallið frá og er þar stórt skarð höggvið í hóp fé- lagsmanna Víðis. Matta á Bjargi eins og hún var kölluð hóf að starfa fyrir félagið fyrir u.þ.b. 40 árum og var sér- staklega virk á gullaldarárum Víðis þar sem hún sinnti ýmsum störfum utanvallar af mikilli ósérhlífni og ástríðu fyrir félag- inu. Það er varla til það sjálfboða- starf sem Matta hefur ekki geng- ið í en hún var ávallt tilbúin að aðstoða við verkefni eins og fjár- aflanir, viðburði, leiki o.fl. Þá var Matta sérlega lagin við að hita hamsatólgina og mörinn og kenndi unga fólkinu þá kúnst því það var víst alls ekki sama hvern- ig það var gert. Allt gat hún Matta okkar og var ávallt reiðubúin fyrir félagið okkar. Matta var harðákveðin og hreinskilin og það var gaman að vera í kringum hana. Hún var oftar en ekki hrókur alls fagn- aðar hvar sem hún kom og hlát- urinn ómaði glatt. Eftirlifandi eiginmaður Möttu, Magnús Þór Magnússon, starfaði lengi vel fyrir félagið m.a. sem liðsstjóri og er enn tíður gestur á leikjum félagsins og hefur ávallt stutt vel við liðið í gegnum tíðina. Til merkis um það hversu stórt Víðishjartað var hjá þeim hjónum þá skírðu þau son sinn nafni félagsins, Sigmar Víðir, en hann kom í heiminn sama dag og Víðir tryggði sér deildarmeist- aratitil árið 1982 og kom víst ekkert annað til greina en að skíra drenginn í höfuðið á félag- inu. Á kveðjustund viljum við þakka Möttu fyrir allt það mikla og óeigingjarna starf sem hún innti af hendi í þágu félagsins og samfélagsins alls í Garði. Ljúfar og góðar minningar um góðan og traustan félaga munu lifa og verða okkur leiðarljós í átt að öfl- ugra starfi og betra félagi. Það er með mikilli virðingu og þakklæti sem Knattspyrnufélag- ið Víðir Garði sendir Magnúsi og öðrum aðstandendum sínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Matthild- ar Ingvarsdóttur. Fyrir hönd Víðis, Eva Rut Vilhjálmsdóttir. Ég hitti Möttu á Bjargi í fyrsta skipti á Flösinni þegar hún rak veitingastaðinn sem var í eigu sveitarfélagsins í Garði. Ég, nýlega ráðinn bæjarstjóri og kom til að kynna mér starfsem- ina. Mjúk en svo hressileg röddin sem gat líka verið hryssingsleg eins og norðanáttin sem tók á móti mér. Sagan segir að Lýð- veldisvitinn skýli lágreistri byggðinni við ysta nes Skagans fyrir kaldri norðanáttinni sem kemur askvaðandi yfir Flóann. Þar skellur hún á land þar sem fyrirstaðan er engin og þá þarf konan sem skýlir mörgum fyrir norðannepjunni að vera það bjarg sem aldrei bifast. Hún tók ekki sérstaklega hátíðlega á móti nýjum bæjarstjóra. Sagði honum að hún hefði nóg annað að gera en að sitja á rassgatinu í ein- hverju óþarfa spjalli þegar nóg væri að gera í vinnunni. Bæjar- stjórinn gæti bara komið þegar róaðist um og viðskiptavinirnir farnir. Það er svona fólk sem allir vilja hafa í vinnunni hjá sér. Starfsfólk sem tekur starfið fram yfir spjall við bæjarstjóra sem kemur á röngum tíma og nóg að gera. Matta var líka þeirrar gerðar að horfa beint í augun á bæjarstjóranum og þeim sem hún talaði við og sagði alltaf sína meiningu. Kona með bjargfasta meiningu og trú. Það er kostur við starfsmann sem vinnur sér inn traust með slíkum hætti. Samstarf okkar Möttu varð gott og þróaðist í vináttu og virðingu í garð hvors annars. Tíminn var ekki nýttur í meiningarlaus sam- töl en við áttum góðar stundir þegar við hittumst. Í veikindum hennar fylgdist ég vel með en Covid-fjandinn kom í veg fyrir heimsóknir til hennar. Við heyrð- umst reglulega í síma og í þeim samtölum upplifði ég þessa sterku konu sem var óbifanlegt bjarg í veikindum sínum sem öðru. Þar upplifði ég þennan sterka grunn og arfleifð sem hún reisti líf sitt á. Matta sagði mér í hispursleysi frá veikindum sín- um. Gerði ekki mikið úr stöðunni, en ég vissi betur. Matta endaði alltaf stutta yfirferð af veikind- um sínum með því að segja á sinn einlæga hátt: „Það eru nú marg- ir, Ási minn, sem hafa það verr en ég.“ Þannig stóð hún sjálf af sér norðanáttina í sínu lífi, það voru nefnilega alltaf einhverjir sem höfðu það verr en hún. Líkn- andi meðferðin gaf henni gleði- stund daginn fyrir andlátið. Helga Tryggvadóttir, nágranni hennar frá Laufási, sat hjá henni. Það var kærleiksstund fyrir vin- konurnar frá Laufási og Bjargi að hittast eftir allt Covid-fargan- ið. Þær sátu í sólhúsinu og vissu báðar að þetta gat verið síðasti sólardagurinn þeirra á æskuslóð- um. Maggi bakaði vöfflur og kom með rjóma og sultu. Þær sátu saman og spjölluðu en Guð hlust- aði. Þær eru báðar í hans liði og að handan biðu margir sem þær söknuðu. Matta dó innan sólar- hrings og tók með sér kveðjuna til Eyjólfs og hún mun kasta kveðjum á fleiri gamla vini í Garðinum við sjónarrönd. Bjarg- ið sem skýldi svo mörgum fyrir napri norðanáttinni hafði gengið frá öllu á lokadegi. Talað við prestinn, valið sálmana í útförina og gert sjóklárt fyrir síðustu sigl- inguna gegn norðanáttinni þegar Matta sigldi út Flóann á ný mið. Votta Magnúsi og fjölskyld- unni hjartans samúð. Ásmundur Friðriksson. MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 ✝ Þjóðbjörn Jó- hannsson fæddist á Akranesi þann 30. apríl 1974. Hann lést 25. apríl 2021 að heimili sínu. For- eldrar Þjóðbjarnar eru Guðríður Hannesdóttir, f. 22.3. 1948, og Jó- hann Þóroddsson, f. 27.10. 1942. Systur Þjóðbjarnar eru Valgerður Jóhannsdóttir og Rannveig Jóhannsdóttir. Val- gerður er gift Saikou Badje. Valgerður á dæturnar: 1) Marí- önnu Vestmann Grétarsdóttur, sambýlismaður hennar er Aron Örn Jónsson og 2) Sigurrós Vest- mann Þórð- ardóttur. Rannveig er gift Sigurbrandi Jakobssyni og eiga þau saman börnin: Emblu Rós Vest- mann, Anítu Sif Vestmann, Einar Snæ Vestmann, Jó- hann Pétur Vest- mann, Jakob Hannes Vestmann og Magnús Bjarma Vestmann. Þjóðbjörn lætur ekki eftir sig nein börn. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju 6. maí 2021 klukkan 13. Í dag kveðjum við frænda okk- ar og vin, Þjóðbjörn (Bjössa). Við viljum minnast hans í nokkrum orðum. Bjössi fæddist á Akranesi og ólst þar upp. Hann var góður drengur, rólegur í fasi og bros- mildur. Barngóður var hann og hjálpsamur. Bjössi átti góða for- eldra og fjölskyldu. Þegar hann var unglingur veiktist hann af flogaveiki, sem breytti lífi hans. Bjössi hugsaði mikið og spurði oft heimspekilegra spurninga um lífið og tilveruna. Hann fylgdist líka vel með þjóðfélagsmálum. Bjössi hafði ýmis áhugamál, var handlag- inn, m.a. varðandi tölvur og tækni- mál tengd þeim. Hann gaf einnig út nokkrar smásögur. Bjössi hafði góða söngrödd og hafði mikinn áhuga á tónlist, þá helst þunga- rokki. Hann átti mikið af geisla- diskum og spólum með myndum og músík. Hann fór einn vetur í pí- anónám og var líka einn vetur í lúðrasveitinni. Bjössi fór til Þýska- lands og lærði þar nudd og var þar í eitt ár. Við og hans fjölskylda höfum alltaf verið í góðu sambandi og oft hist við hin ýmsu tækifæri í gegnum árin. Við hittum Bjössa af og til þegar hann kom í heimsókn til foreldra sinna. Svo kom hann stundum í heimsókn til okkar. Það var alltaf gaman að hitta hann. Bjössi bjó í Reykjavík um tíma en flutti síðan til Selfoss þar sem hann bjó í eigin íbúð. Hann kunni vel við sig á Selfossi. Við fjölskyldan þökkum Bjössa fyrir allar góðar samverustundir í gegnum tíðina. Megi guð geyma hann og varð- veita. Við sendum foreldrum hans, systrum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Bjarni og Kristín, Þóroddur, Rúnar Dýrmundur, Freyr, Valur Oddgeir og fjölskyldur. Nú ertu farinn elsku bróðir minn og við munum ekki eiga fleiri gæðastundir saman. Þú áttir oft auðvelt með að láta mann brosa með þinni dásamlegu kaldhæðni, eins og þegar þú bjóst til jólakort handa fjölskyldunni og í því stóð: „Það er ekkert grín að vera svín og vera étinn á jólunum.“ Eða þegar við fórum saman á Titanic í bíó rétt áður en ég fór til Portú- gals 20 ára gömul og þú sást svo mikinn húmor í frekar sorglegri mynd að fólk fyrir aftan okkur var farið að sussa á okkur því við hlóg- um svo mikið. Þú varst alltaf stóri bróðirinn minn sem hugsaði vel um litlu systur frá því að við vor- um krakkar og þú dróst mig áfram á kassabílnum út um allt, ég fékk oft að vera með þér og vinum þínum í bíló eða playmó. Svo kenndir þú mér líka að gera sumt sem mamma var ekki hrifin af eins og að fara út um gluggann þinn upp á bílskúrsþak og hoppa niður eða klifra niður vegginn í garðin- um. Þú hafðir mikla hlýju að gefa og varst góður við þá sem áttu bágt og fjölskyldu þína og vini. Þú tókst því mjög illa ef einhver vog- aði sér að abbast upp á litlu systur þína og reyndir meira að segja að vernda mig gegn vinum sem þú sást í gegnum en ég neitaði að sjá að væru ekki góðir vinir. Þú hafðir nefnilega einstakt lag á því að sjá í gegnum fólk og varst fljótur að finna hverjum þú vildir kynnast betur eins og sýndi sig þegar þú kynntist Steina vini þínum sem þú áttir alveg sérstakt samband við með alveg einstakri vináttu þar sem þið studduð hvor annan gegn- um súrt og sætt. Við vorum vön að gera grín að veðrinu á afmælis- daginn þinn; alltaf var sól á mínum afmælisdegi en oftast rigning á þínum, en þú lést rigninguna ekki stoppa þig í að grilla á afmælis- daginn þinn og gerðir bara grín að því en fórst ekkert í fýlu yfir því. Þú sást oft spaugilegar hliðar á hlutum sem aðrir sáu kannski ekki og kvartaðir aldrei þótt þú hafir oft á tíðum átt erfitt sérstaklega vegna flogaveikinnar. Ég mun aldrei gleyma öllum góðu stund- unum sem við áttum saman þegar við bjuggum bæði í Reykjavík, þá brölluðum við ýmislegt saman. Þú mættir alltaf í partí hjá mér hress og kátur og þegar þú vannst sem dyravörður á skemmtistöðum í bænum kíkti ég stundum við bara af því að þú varst að vinna þar. Þú tókst þig svo vel út í því starfi og varst svo virðulegur og stóðst þig líka alltaf mjög vel. Minningarnar um þig eru of margar til að geta talið þær allar upp hér. En hvíldu í friði elsku bróðir minn og ég vona að þú hafir það gott þarna hinum megin, hver veit; kannski siturðu með Óðni og drekkur mjöð! Megi englarnir vaka yfir þér alltaf. Þín systir, Rannveig Jóhannsdóttir. Þjóðbjörn Jóhannsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN PÉTURSDÓTTIR, lést 22. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 7. maí klukkan 13. Steymt verður frá útförinni á facebook-síðunni: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - Beinar útsendingar. Kristinn Jóhannesson Tuula Jóhannesson Pétur Jóhannesson Berit Jóhannesson Sigurjóna Jóhannesdóttir Anna Jóhannesdóttir Ágúst Hafsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA TÓMASDÓTTIR frá Ólafsvík, en bjó lengst af í Hjálmholti 10 í Reykjavík, lést þriðjudaginn 27. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 10. maí klukkan 15 og verður einnig streymt á eftirfarandi slóð: https://youtu.be/yS_u7iQ1E1A. Sérstakar þakkir til heilbrigðisstarfsfólks á Blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítalans. Erla Berglind Tryggvadóttir Þórður Ófeigsson Ragnhildur Ýr Tryggvadóttir Ástþór Hugi Tryggvason Jónína Margrét Þórðardóttir Steinunn Ágústa Þórðardóttir Þórdís Erla Þórðardóttir Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, KRISTÓFER INGI KJÆRNESTED, lést sunnudaginn 25. apríl. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 12. maí klukkan 15. Streymt verður frá útförinni og hægt er að nálgast það á: www.mbl.is/andlat. Ásgerður Ósk Jakobsdóttir Stefán Kjærnested Viktoría Ósk Kjærnested Arndís Ósk Kjærnested Hrafnhildur Ósk Kjærnested Elínborg S. Kjærnested Símon Ingi Kjærnested Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, INGIMAR ÞORBJÖRNSSON frá Andrésfjósum, lést á Heilbrigðisstofnum Suðurlands fimmtudaginn 29. apríl. Útförin fer fram frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 8. maí klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda viðstödd. Athöfninni verður streymt á promynd.is/ingimar. Magnea Ástmundsdóttir Ingigerður Ingimarsdóttir Guðjón Guðmundsson Bjarni Ingimarsson Valgerður Rún Heiðarsdóttir Ingunn Helgadóttir Lárus Guðmundsson Ingimundur Kristinsson Ingibjörg Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur vinur minn og eiginmaður, ÍVAR KOLBEINSSON, lést föstudaginn 28. apríl. Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 11. maí kl. 13. Vegna fjöldatakmarkana verður athöfninni streymt á slóðinni: https://youtu.be/hxQBBTxOJbE og einnig á vefsíðunni: mbl.is/andlat. Hafþór Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.