Morgunblaðið - 06.05.2021, Side 62
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021
Chelsea og Manchester City mætast
í úrslitaleik Meistaradeildar Evr-
ópu karla í knattspyrnu. Chelsea
sló í gær sigursælasta lið í sögu
keppninnar, Real Madríd, út í und-
anúrslitum 3:1 samanlagt. Chelsea
hafði betur 2:0 í síðari leik liðanna í
London en mörkin skoruðu Timo
Werner og Mason Mount á 28. og
85. mínútu.
Þjóðverjinn Thomas Tuchel er
því búinn að koma Chelsea í úrslit
Meistaradeildarinnar á sínu fyrsta
tímabili sem knattspyrnustjóri en
hann tók við í janúar.
Chelsea í úrslit í
þriðja sinn
AFP
Kátir Andreas Christensen og
Thomas Tuchel fagna sigri Chelsea.
Gömlu stórveldunum ÍBV og Fram
er spáð tveimur efstu sætunum í 1.
deild karla í fótbolta, Lengjudeild-
inni, en keppni hefst þar í kvöld. Ís-
lensk getspá og Íslenskur topp-
fótbolti fengu formenn, þjálfara og
fyrirliða til að raða liðunum upp.
Fjölnir og Grindavík voru sett í
þriðja og fjórða sæti en Þrótti R og
Aftureldingu spáð falli.
Keppni í Lengjudeild kvenna
hefst einnig í kvöld og þar var FH
og Aftureldingu spáð tveimur efstu
sætunum, síðan KR og Haukum, en
ÍA og Grindavík var spáð falli.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Líkleg Eyjamenn og Framarar
þykja með sigurstrangleg lið.
Gömul stórveldi
á leiðinni upp?
TINDASTÓLL – ÞRÓTTUR 1:1
1:0 Hugrún Pálsdóttir 35.
1:1 Katherine Cousins 90.
MM
Amber Kristin Michel (Tindastóli)
Katherine Cousins (Þrótti)
M
Hugrún Pálsdóttir (Tindastóli)
Bryndís Rut Haraldsdóttir (Tindastóli)
Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti)
Dómari: Sveinn Arnarsson – 8.
Áhorfendur: 150.
VALUR – STJARNAN 2:1
1:0 Ída Marín Hermannsdóttir 18.
2:0 Anna Rakel Pétursdóttir 56.
2:1 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 77.
M
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Elísa Viðarsdóttir (Val)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (Val)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Anna Rakel Pétursdóttir (Val)
Chanté Sandiford (Stjörnunni)
Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni)
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjörn)
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (Stjörn)
Dómari: Bríet Bragadóttir – 7.
Áhorfendur: 143.
KEFLAVÍK – SELFOSS 0:3
0:1 Brenna Lovera 45.
0:2 Brenna Lovera 66.(víti)
0:3 Hólmfríður Magnúsdóttir 82.
MM
Brenna Lovera (Selfossi)
M
Natasha Anasi (Keflavík)
Dröfn Einarsdóttir (Keflavík )
Marín Rún Guðmundsd. (Keflavík)
Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfossi)
Anna María Friðgeirsdóttir (Selfossi)
Þóra Jónsdóttir (Selfossi)
Caity Heap (Selfossi)
Dómari: Atli Haukur Arnarsson – 7.
Áhorfendur: 57.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þeir spádómar að Valur og Breiða-
blik yrðu áfram í sérflokki í
kvennafótboltanum á komandi
sumri virðast geta alveg átt við gild
rök að styðjast. En ólíkt höfðust
liðin að í fyrstu umferðinni. Blikar
voru með flugeldasýningu gegn
Fylki í fyrrakvöld en Valskonur
máttu þakka fyrir að halda fengn-
um hlut og sigra Stjörnuna 2:1 á
Hlíðarenda í gærkvöld.
_ Ída Marín Hermannsdóttir,
sem fyllir skarð Hlínar Eiríks-
dóttur í byrjunarliði Vals, skoraði
fyrra markið gegn Stjörnunni og
Akureyringurinn Anna Rakel Pét-
ursdóttir sem hefur leikið í Svíþjóð
undanfarin tvö ár bætti við marki
með skoti af 30 metra færi.
_ Hildigunnur Ýr Benedikts-
dóttir, sem skoraði sex mörk fyrir
Stjörnuna sextán ára gömul sum-
arið 2019 en náði ekki að skora í
fyrra, kom Garðabæjarliðinu inn í
leikinn með marki á 77. mínútu.
Stjarnan fékk tvö ágæt færi und-
ir lokin og Garðbæingar heimtuðu
vítaspyrnu í uppbótartímunum.
„Valskonur voru stálheppnar gegn
spræku Stjörnuliði,“ sagði Bjarni
Helgason í lýsingu á mbl.is.
Mikil umskipti hafa orðið á liði
Selfyssinga á milli ára en byrjunin
er fín, nokkuð sannfærandi úti-
sigur á nýliðum Keflavíkur, 3:0.
_ Brenna Lovera er komin aftur
til landsins eftir að hafa skorað sex
mörk í níu leikjum fyrir ÍBV árið
2019 og hún lét strax að sér kveða í
Keflavík þegar hún kom Selfyss-
ingum yfir á lokamínútu fyrri hálf-
leiks. Lovera bætti við marki úr
vítaspyrnu og hefur því gert átta
mörk í tíu leikjum í efstu deild.
_ Hólmfríður Magnúsdóttir,
sem er markahæst núverandi leik-
manna í deildinni, innsiglaði 3:0
sigur Selfoss með sínu 123. marki í
deildinni.
Nálægt sigri í fyrsta leik
Nýliðum Tindastóls hefur verið
spáð botnsætinu af nær öllum fyrir
þetta tímabil en litlu munaði að
Skagfirðingarnir hæfu fyrsta tíma-
bil sitt í efstu deild með sigri þegar
Þróttarar komu í heimsókn á Sauð-
árkrók.
_ Hugrún Pálsdóttir skoraði
fyrsta mark Tindastóls í efstu deild
þegar hún kom liðinu yfir á 35.
mínútu. Hugrún, sem er 24 ára
gömul, er að hefja sitt tíunda tíma-
bil með meistaraflokki Tindastóls
og hefur áður skorað fjórtán mörk
fyrir félagið í B-deildinni.
_ Katherine Cousins bjargaði
stigi fyrir Þrótt á Sauðárkróki í
sínum fyrsta leik hér á landi en hún
kom til Þróttar frá Bandaríkjunum
í vor.
_ Allir leikmenn Tindastóls léku
sinn fyrsta leik í efstu deild gegn
Þrótti. Í byrjunarliðinu voru sex
uppaldir leikmenn Tindastóls, einn
frá Akureyri og fjórir erlendir leik-
menn. Allar sem komu inn á sem
varamenn eru uppaldar hjá félag-
inu og engin af þeim níu skagfirsku
konum sem tóku þátt í leiknum hef-
ur spilað fyrir annað félag.
Stálheppnar
Valskonur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlíðarendi Nýsjálenska landsliðskonan Betsy Hassett úr Stjörnunni rennir
sér fram hjá tveimur Valskonum í viðureign liðanna í gærkvöld.
- Unnu nauman sigur á Stjörnunni
- Selfyssingar voru sannfærandi
Pepsi Max-deild kvenna
Tindastóll – Þróttur R.............................. 1:1
Valur – Stjarnan....................................... 2:1
Keflavík – Selfoss ..................................... 0:3
Staðan:
Breiðablik 1 1 0 0 9:0 3
Selfoss 1 1 0 0 3:0 3
Valur 1 1 0 0 2:1 3
Þór/KA 1 1 0 0 2:1 3
Tindastóll 1 0 1 0 1:1 1
Þróttur R. 1 0 1 0 1:1 1
ÍBV 1 0 0 1 1:2 0
Stjarnan 1 0 0 1 1:2 0
Keflavík 1 0 0 1 0:3 0
Fylkir 1 0 0 1 0:9 0
Meistaradeild karla
Undanúrslit, seinni leikur:
Chelsea – Real Madrid ............................ 2:0
_ Chelsea sigraði 3:1 samanlagt og mætir
Manchester City í úrslitaleiknum.
Hvíta-Rússland
Bikarinn, undanúrslit, seinni leikur:
Torpedo Zhodino – BATE Borisov ....... 1:1
- Willum Þór Willumsson lék allan leikinn
með BATE Borisov.
_ BATE í úrslit, 5:2 samanlagt.
Grikkland
Meistarakeppnin:
AEK Aþena – PAOK ............................... 1:2
- Sverrir Ingi Ingason var ekki í leik-
mannahópi PAOK.
Aris – Olympiacos.................................... 1:1
- Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahópi Olympiacos.
_ Olympiacos 83, PAOK 61, Aris 59, AEK
Aþena 55, Panathinaikos 52, Asteras Tri-
polis 46.
Lettland
Riga – Ventspils ....................................... 3:0
- Axel Óskar Andrésson lék ekki með
Riga vegna meiðsla.
Þýskaland
Eintracht Frankfurt – Essen ................. 3:1
- Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem
varamaður hjá Eintracht á 90. mínútu.
_ Efstu lið: Bayern München 54, Wolfs-
burg 52, Hoffenheim 37, Turbine Potsdam
32, Leverkusen 32, Eintracht Frankfurt 30.
>;(//24)3;(
Dominos-deild kvenna
Breiðablik – Skallagrímur ................... 82:72
Fjölnir – KR........................................ 105:67
Haukar – Keflavík ................................ 67:63
Staðan:
Valur 20 17 3 1542:1234 34
Haukar 20 14 6 1457:1335 28
Keflavík 20 14 6 1579:1446 28
Fjölnir 20 13 7 1559:1453 26
Breiðablik 20 8 12 1320:1356 16
Skallagrímur 20 8 12 1390:1471 16
Snæfell 20 4 16 1435:1601 8
KR 20 2 18 1339:1725 4
_ Valur er deildarmeistari og fer í undan-
úrslit ásamt Keflavík, Haukum og Fjölni.
KR er fallið niður í 1. deild.
Meistaradeild Evrópu
8-liða úrslit:
Nizhnij Novgorod – Zaragoza ........... 78:86
- Tryggvi Snær Hlinason tók þrjú fráköst
fyrir Zaragoza á 11 mínútum.
_ Zaragoza mætir Pinar Karsiyaka frá
Tyrklandi í undanúrslitum keppninnar á
morgun.
NBA-deildin
Cleveland – Phoenix ................ (frl.) 118:134
Detroit – Charlotte............................. 99:102
Milwaukee – Brooklyn ..................... 124:118
Miami – Dallas .................................. 113:127
New Orleans – Golden State ........... 108:103
Oklahoma City – Sacramento ........... 99:103
LA Clippers – Toronto..................... 105:100
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kópavogsvöllur: Augnablik – KR ....... 19.15
Varmá: Afturelding – Grindavík ......... 19.15
Vivaldi-völlur: Grótta – ÍA................... 19.15
Ásvellir: Haukar – FH ......................... 19.15
Víkingsvöllur: Víkingur R. – HK ........ 19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Fjölnir . 19.15
Framvöllur: Fram – Víkingur Ó ......... 19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
HS Orkuhöll: Grindavík – Tindastóll.. 18.15
Ásvellir: Haukar – Höttur ................... 18.15
MG-höllin: Stjarnan – KR ................... 19.15
TM-hellirinn: ÍR – Njarðvík................ 20.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Origo-höllin: Valur U – HK ...................... 20
BLAK
Forkeppni karla, seinni leikur:
Álftanes: Álftanes – Þróttur V. (1:0)... 19.30
Í KVÖLD!
Haukar fóru upp að hlið Kefla-
víkur í Dominos-deild kvenna í
körfuknattleik í gær með sigri
67:63 þegar liðin mættust á Ás-
völlum í Hafnarfirði.
Erfitt er að segja til um hvern-
ig leikirnir munu raðast niður í
úrslitakeppninni en Valur, Hauk-
ar, Keflavík og Fjölnir munu
hafna í fjórum efstu sætunum.
Valur tryggði sér deildarmeist-
aratitilinn í vikunni og Fjölnir er
tveimur stigum á eftir Haukum
og Keflavík með 26 stig þegar ein
umferð er eftir.
Í lokaumferðinni eigast við:
Snæfell - Breiðablik, Keflavík -
Valur, Skallagrímur - Fjölnir og
KR - Haukar. Miðað við gengi
KR-liðsins sem er þegar fallið
niður í næstefstu deild eru allar
líkur á því að Haukar fái tvö stig
í lokaumferðinni þótt ekkert fáist
gefins í íþróttunum. Leikur
Keflavíkur og Vals verður áhuga-
verður svo nálægt úrslitakeppn-
inni.
Alyesha Lovett skoraði 25 stig
fyrir Hauka og tók 10 fráköst.
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði
17 stig og tók 14 fráköst fyrir
Hauka gegn uppeldisfélaginu.
Daniela Wallen Morillo skoraði 22
stig fyrir Keflavík og tók 12 frá-
köst.
Fjölnir rauf 100 stiga múrinn
gegn KR og vann 105:67 í Graf-
arvogi. Lina Pikciuté skoraði 22
stig fyrir Fjölni og Ariel Hearn
náði þrefaldri tvennu með 21
stig, 10 fráköst og 10 stoðsend-
ingar. Annika Holopainen skoraði
19 stig fyrir KR.
Þá vann Breiðablik sigur gegn
Skallagrími 82:72 í Smáranum.
Jessica Kay Loera var mjög at-
kvæðamikil og skoraði 28 stig
fyrir Breiðablik og þá tók lands-
liðskonan Ísabella Ósk Sigurð-
ardóttir 15 fráköst fyrir Blika.
Keira Breeanne Robinson var
stigahæst hjá Skallagrími með 20
stig og Embla Kristínardóttir
skoraði 18 stig. sport@mbl.is
Mikil barátta um annað sætið
Ljósmynd/Árni Torfason
Öflug Alyesha Lovett skoraði 25
stig fyrir Hauka gegn Keflavík.