Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 66

Morgunblaðið - 06.05.2021, Síða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2021 www.danco.is Heildsöludreifing yrirtæki og verslanir Sumarleikföng í úrvali Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Spaðasett Frozen m/Bolta Spiderman m/Bolta Hlaupahjól EVO - Inline ABEC Plop up fidget ainbow Pop-Up tjald PAW PATROL og Unicorn 85x85x95cm - Hoppubolti Frozen II - 50 cm Plop up fidget Lyklakippur Boltar FROZEN - 60 mm Peppa Pig Eldhús m/áhöldum 66x80 cm »Kvikmyndin Alma í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur var forsýnd í Háskólabíói á þriðjudagskvöld, en myndin fer í almennar sýn- ingar frá og með morgundeginum. Eftirvænting gesta í salnum var mikil enda eru 29 ár síðan Kristín frumsýndi síðast kvikmynd á hvíta tjaldinu. Kvikmyndin Alma í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur forsýnd í Háskólabíói Morgunblaðið/Árni Sæberg Glaðbeitt Kristín Jóhannesdóttir ásamt Snæfríði Ingvarsdóttur sem leikur titilhlutverk myndarinnar og Högna Egilssyni sem semur tónlistina. Framleiðendur Guðbjörg Sigurðardóttir og Guðrún Edda Þórhannesdóttir. Gestir Ingibjörg Jónsdóttir, Friðrik Steinn Kristjánsson og Sigrún Sandra Ólafsdóttir voru meðal prúðbúinna gesta sem mættu á forsýninguna. Vinir Leikstjórinn Kristín Jóhannesdóttir og Kristbjörg Kjeld sem fer með hlutverk Högnu, sem ásamt Hlíf tók Ölmu að sér þegar hún var barn. Eftirvænting Unnur Birgisdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir, sem leik- ur móður geðlæknisins í myndinni sem Hilmir Snær Guðnason túlkar. Boðið verður upp á tvær leið- sagnir í Lista- safni Reykjavík- ur í Hafnarhúsi í kvöld kl. 20. Ann-Sofie N. Gremaud, menn- ingarfræðingur og lektor í dönsku við Há- skóla Íslands, veitir leiðsögn um sýningu Ragn- ars Axelssonar ljósmyndara, Þar sem heimurinn bráðnar og ber leiðsögnin yfirskriftina Tímaleysi á tímum breytinga. Ann-Sofie mun draga saman sjónarmið úr klass- ískri listasögu og tengja við hug- leiðingar um hvernig loftslags- breytingum er miðlað og þann aukna áhuga sem merkja má á norðurslóðum í menningu sam- tímans, eins og segir í tilkynn- ingu. Leiðsögnin fer fram á ís- lensku og er nauðsynlegt að skrá sig í hana á vefsíðu safnsins, listasafnreykjavikur.is. Auður Lóa Guðnadóttir verður með leiðsögn um sýningu sína Já/Nei í D-sal og er skráning einnig nauðsynleg fyr- ir hana. Auður fæst mest við skúlptúr og vinnur gjarnan með hversdagslegt myndefni og sterkt myndmál og leitast við að túlka hið óvænta en almenna. Leiðsagnir um sýningar í Hafnarhúsi Ann-Sofie N. Gremaud Auður Lóa Guðnadóttir Rannveig Marta Sarc leikur einleik í Fiðlukonsert nr. 2 eftir Sergej Prokofíev á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 20 undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Rannveig hefur nýlokið meist- aranámi við Juilliard-listaháskól- ann í New York. Hitt verkið á efnis- skrá kvöldsins er Sinfónía nr. 4, sem einnig er nefnd „Ítalska sin- fónían“, eftir Felix Mendelssohn. Kynnir á tónleikunum er Árni Heimir Ingólfsson og er þeim út- varpað beint á Rás 1. Hæfileikarík Rannveig Marta Sarc hóf fiðlunám fjögurra ára gömul. Rannveig Marta einleikari í kvöld Kvikmynd Gríms Hákon- arsonar, Hér- aðið, hefur fengið afar já- kvæða dóma í Bandaríkjunum þar sem hún kom út á föstu- daginn var og er nú komin með ágætiseinkunnina „certified fresh“ á vefnum Rotten Tomatoes sem tekur saman gagnrýni fjölda gagnrýnenda og metur jákvæða og neikvæða þætti. Héraðið er nú með 86% á vefnum sem þýðir að hún er 86% fersk en myndir sem hlotið hafa neikvæða gagnrýni eru taldar „skemmdar“ eða „rott- en“ á ensku. Einkunnina „certi- fied fresh“, þ.e. staðfest að mynd- in sé „fersk“, fá þær kvikmyndir og sjónvarpsþættir sem hljóta hvað jákvæðasta gagnrýni og þurfa að uppfylla ákveðin skil- yrði, m.a. að fimm eða fleiri af virtustu gagnrýnendum síðunnar gefi þeim jákvæða dóma. Héraðið „ferskt“ Grímur Hákonarson Á sjöundu tónleikum tónleikarað- arinnar Síðdegistóna í Hafnarborg sem fram fara á morgun, 7. maí, koma fram Agnar Már Magnússon píanóleikari og Andrés Þór gítar- leikari. Þeir ætla að heiðra Jón Múla Árnason í tilefni af 100 ára afmæli hans með efnisskrá tileinkaðri hon- um. Tónleikarnir eru að auki út- gáfutónleikar en þeir Andrés og Agnar hafa nýverið hljóðritað hljómdiskinn Aldarfar af þessu til- efni og munu leika úrval laga af diskinum. Tónleikarnir hefjast klukkan 18 og standa yfir í klukku- stund og aðgangur er ókeypis. Vegna sam- komutakmark- ana eru færri tón- leikasæti í boði en vanalega en mögulegt er að panta sæti í síma 585-5790 á þjón- ustutíma safns- ins. Tekið er fram að grímuskylda er á tónleikunum sem verður einnig streymt beint og hægt að horfa á streymið bæði á heimasíðu Hafnarborgar og á fa- cebookviðburði tónleikanna. Heiðra Jón Múla Agnar Már Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.