Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 2

Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 Verona Verð frá kr. 19.950 önnur leið m/ handfarangri Verð frá kr. 39.900 báðar leiðir m/ handfarangri TAKTU FLUGIÐ TIL ÍTALÍU Í SUMAR Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Margs konar hátíðir boða lands- mönnum að sumarið sé komið. Flestum hátíðum var frestað á síð- asta ári en nú er útlit fyrir að dag- skráin verði þétt og spennandi þetta sumarið. Hér eru nefndar helstu hátíðir sem haldnar eru ár- lega, en sá fyrirvari fylgir að óvíst verður með stöðu samkomutak- markana í sumar. Bíladagar verða haldnir á Ak- ureyri 17. til 19. júní þar sem keppt verður í kappakstri og bílar sýndir. Í júlí verður Goslokahátíð haldin dagana 1. til 4. júlí í Vestmanna- eyjum. Hátíðin hefst með tónleikum í Eldheimum þar sem Svanhildur Jakobsdóttir og Ómar Ragnarsson munu koma fram. Sömu helgi verð- ur fjölskylduhátíðin Írskir dagar haldin á Akranesi. Þá verður Þjóð- lagahátíð á Siglufirði haldin 7. til 11. júlí þar sem boðið verður upp á dansa, námskeið og tónleika. Fjöl- skyldu- og tónlistarhátíðin Kóte- lettan á Selfossi verður haldin 9. til 11. júlí. Listahátíðin LungA verður haldin á Seyðisfirði 14. til 17. júlí með listasmiðjum, tónleikum o.fl. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði halda upp á 25 ára afmæli og sú bæjarhátíð verður haldin 22. til 25. júlí. Tónlistarhátíðin Bræðslan verður svo einnig haldin á Borg- arfirði eystri 24. júlí, en dagana þar á undan verða í boði fleiri tón- leikar. Mikil aðsókn á Þjóðhátíð Verslunarmannahelgin er 31. júlí til 2. ágúst þetta árið og hafa lands- menn úr þó nokkrum hátíðum að velja þá. Efst á lista er Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum en miðasala á hana hófst í gær og lá miðasalan strax niðri vegna mikillar aðsókn- ar. Innipúkinn verður einnig hald- inn sömu helgi og verður dagskráin tilkynnt í næstu viku samkvæmt Steinþóri Helga Arnsteinssyni, sem er einn af skipuleggjendum tónlist- arhátíðarinnar. Þá verður um verslunarmannahelgina Unglinga- landsmót UMFÍ haldið á Selfossi þar sem keppt verður í ýmsum greinum. Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður haldin á sama tíma á Akureyri en samhliða henni verða Íslensku sumarleikarnir haldnir þar sem m.a. fer fram Kirkju- tröppuhlaupið við Akureyr- arkirkju. Gleðigangan snýr aftur The Color Run verður haldið á Akureyri 1. ágúst og í Reykjavík 28. ágúst, en nú þegar er hægt að kaupa miða í hlaupið. Hinsegin dagar í Reykjavík verða svo haldnir 3. til 8. ágúst og verður Gleðigang- an á meðal viðburða. Þá verður Víkingahátíðin í Hafnarfirði haldin helgina 13. til 15. ágúst á Víð- istaðatúni samkvæmt Hafsteini Kúld Péturssyni, formanni Rimmu- gýgjar, sem heldur hátíðina. Bæj- arhátíðin Blómstrandi dagar verð- ur haldin í Hveragerði sömu helgi. Þann 21. ágúst verður Menning- arnótt fagnað í Reykjavík og síð- ustu helgina í ágúst verður svo bæj- arhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima. Vert er að nefna nokkrar hátíðir sem hafa verið blásnar af fram á næsta ár en það eru Secret Solstice, Eistnaflug, Neistaflug og Fiskidagurinn mikli. Margs konar hátíðir í boði um allt land - Margar hátíðir voru blásnar af í fyrra en snúa nú aftur Morgunblaðið/Ómar Hátíðir Landsmenn geta valið úr fjölbreyttu úrvali hátíða í sumar ef samkomutakmarkanir leyfa. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur birt áætlun um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum til 30 ára. Þetta er í fyrsta sinn sem slík áætlun er birt en gert er ráð fyrir að hún verði uppfærð ekki sjaldnar en á þriggja ára fresti, samkvæmt lögum um opinber fjármál. Í áætluninni kemur fram að staða Íslands sé góð. Landið sé nú eitt efn- aðasta land í heiminum. „Þjóðin er ung og fleiri eru á vinnumarkaði hér á landi en í öðrum löndum. Þótt heimsfaraldur kórónu- veiru hafi haft verulega neikvæð áhrif á afkomu og skuldir hins op- inbera á fimm ára tímabili fjármála- áætlunar fyrir árin 2022–2026, eru hagvaxtarhorfur til lengri tíma litið þó ágætar á Íslandi í samanburði við nágrannaríki,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þegar litið sé til næstu áratuga fel- ist ýmsar krefjandi áskoranir í þeim samfélagslegu og hagrænu breyting- um sem séu í augsýn. Stofnanir styðji við framleiðni „Má þar nefna að þjóðin er að eld- ast og munu helstu áskoranir stjórn- valda snúa að því að viðhalda góðum lífskjörum, ásamt því að tryggja stöðugan vöxt til lengri tíma, þrátt fyrir að hægi á fjölgun starfandi eftir því sem eldra fólki fjölgar. Samhliða því gætu umhverfisþættir eins og loftslagsbreytingar og aðrir ytri þættir haft mikil áhrif á vöxt og við- gang þjóðarbúsins.“ Hagvöxtur verði fyrst og fremst drifinn áfram af aukinni framleiðni og því þurfi stjórnvöld að tryggja að sú stofnanaumgjörð sem verði fyrir hendi á hverjum tíma styðji við þá þætti sem leiða til framleiðniaukn- ingar. Tilteknar eru nánar helstu niður- stöður skýrslunnar á vef Stjórnar- ráðsins. Áætlun um langtímahorfur - Ráðherra birtir nýja áætlun til 30 ára kínverskir borgarar horfa á ástand- ið, og svo á þá ákvörðun sem íslenska ríkisstjórnin tók, þá vakna hjá þeim svo margar spurningar. Þeir telja að þetta sé hræðilegur hlutur, sem ekki er hægt að sætta sig við.“ Fyrsta sem takast þarf á við Einnig fullyrti hann að Kína hefði boðið Íslandi aðstoð sína í kalda stríðinu, í fjármálakreppunni 2008 og í faraldri kórónuveirunnar. „Þessi ágreiningur hafði mjög nei- kvæðar afleiðingar fyrir tvíhliða samband okkar. Og það er ástæðan fyrir því að ég nefni þetta sem það fyrsta sem takast þarf á við. Við þurfum að sjá um þetta tvíhliða sam- band af mikilli varfærni,“ sagði Jin. „Þetta er ekki fyrsti ágreiningur okkar ríkja vegna mannréttinda- mála. En af hverju getum við ekki meðhöndlað þennan ágreining eins og þá sem orðið hafa í fortíðinni?“ Skúli Halldórsson sh@mbl.is Jin Zhijian, sendiherra kínverska al- þýðulýðveldisins, segir ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda um að taka þátt í viðskiptaþvingunum gegn kínversk- um embættismönnum, hafa haft mjög neikvæð áhrif á tvíhliða sam- band ríkjanna. Jin lét ummælin falla þegar hann flutti tölu á málþingi Íslensk-kín- verska viðskiptaráðsins, sem haldið var í gær, og bar yfirskriftina „Hve- nær koma kínversku ferðamennirnir og erum við tilbúin að taka á móti þeim?“ Jin benti á að Kína hefði fyrst ríkja tilkynnt sjúkdóminn Covid-19 til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar WHO. „Veiran fannst í Wuh- an-borg og það tók okkur þrjá mán- uði að ná stjórn á ástandinu.“ Hann sagði það athyglisvert að ekki bæri á mikilli umfjöllun vest- rænna fjölmiðla um gang farald- ursins í Kína núna. „Ástandið er, almennt séð, nokkuð gott,“ bætti hann við. Aðeins séu nokk- ur ný tilfelli veirusmita á hverjum degi innan Kína. „Flest þeirra greinast raunar á landamærasvæðunum.“ Ákvörðun valdið vandamálum Því næst vék hann að því, að ís- lensk og kínversk stjórnvöld þyrftu að taka á þeim atriðum sem þau greinir á um. „Nýleg ákvörðun íslensku ríkis- stjórnarinnar, um að fylgja Evrópu- sambandinu í refsiaðgerðum gegn Kína, vegna svokallaðra mannrétt- indabrota í Xinjiang, hefur valdið vandamálum fyrir okkur,“ sagði hann og vísaði þar til meðferðar kín- verskra stjórnvalda á minnihluta- hópi úígúra í Xinjiang-héraði. „Þegar íslenska ríkisstjórnin tók þessa ákvörðun gaf sendiráð okkar út yfirlýsingu, þar sem varpað er ljósi á heildarmyndina fyrir nærsam- félagið. Af hverju við höfðum ákveðið að setja einstakling á svarta listann okkar.“ Ekki neitt mannréttindamál „Þessa yfirlýsingu sáu fleiri en 75 milljónir Kínverja á innan við tveim- ur dögum. 75 milljónir manna. Þið getið ímyndað ykkur athugasemd- irnar. Ég hugsa að 99,9% þessa fólks hafi reiðst mikið vegna ákvörðunar íslensku ríkisstjórnarinnar.“ Jin bætti við að frá sjónarhorni kínverskra stjórnvalda sé ekki um að ræða neitt mannréttindamál. „Því að fyrir þá sem eru kunnugir sögulegum bakgrunni Xinjiang-hér- aðs fyrir nokkrum árum, þá er auð- veldlega hægt að sjá muninn. Fyrir fjórum eða fimm árum þjáðist hér- aðið af árásum hryðjuverkamanna, síendurtekið í nokkur ár, sem ollu dauða hundraða manna og særðu þúsundir manna.“ Málið snúi að fullveldi Kína Svo væri ekki lengur, þökk sé að- gerðum stjórnvalda. Þakkaði Jin meðal annars „menntunar- og þjálf- unarmiðstöðvum“ sem settar hefðu verið upp fyrir fólkið í héraðinu. Að baki árásunum hefði verið hóp- ur sem vildi stofna sérstakt ríki í Xinjiang, aðskilið stjórnvöldum í Peking. „Okkur finnst málið því snúa að fullveldi okkar. Hvort Kína geti haldið áfram sem sjálfstætt ríki þar sem Xinjiang tilheyrir ríkinu.“ Jin hélt áfram: „Þannig að þegar Þvinganir Íslands haft neikvæð áhrif Jin Zhijian - Þátttaka íslenskra stjórnvalda í viðskiptaþvingunum gegn kínverskum embættismönnum skaðaði tví- hliða samband Íslands og Kína, segir sendiherra alþýðulýðveldisins - 75 milljónir Kínverja hafi reiðst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.