Morgunblaðið - 27.05.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
Eftir margra ára umræður umóviðunandi rekstrarumhverfi
og erfiðleika íslenskra fjölmiðla hef-
ur þingið loks samþykkt fjárstuðn-
ing til þeirra í því skyni að leitast við
að gera stöðuna ögn
bærilegri. Af um-
ræðum í þinginu að
dæma virðist engum
detta í hug að núver-
andi lagasetning
leysi vandann. Með
þeim rökum meðal
annars var hún að-
eins látin gilda til tveggja ára, eins
og slík skammtímahugsun dragi úr
vandanum.
- - -
Fyrir þremur árum samþykktiþingið umræðulaust og með
miklum meirihluta stuðning við
bókaútgáfu. Þá áttu fjölmiðlar að
fylgja með en voru teknir út úr með
þekktum afleiðingum. Þá efaðist
enginn, en nú efuðust margir. Hvers
vegna?
- - -
Getur verið að pólitísk afstaðaráði för? Guðmundur Andri
Thorsson, þingmaður Samfylking-
arinnar, ákvað í umræðunum að
hnýta sérstaklega í Morgunblaðið
en hampa tveimur litlum miðlum á
vinstri vængnum. Og fram kom að
hann hefði viljað gera meira fyrir þá
en minna fyrir þetta blað. Þó er það
svo að sett var sérstakt þak á fjár-
stuðninginn við útgefanda Morgun-
blaðsins, en þingmenn á vinstri
vængnum vildu ganga lengra í mis-
mununinni.
- - -
Vilji þingið styðja fjölmiðla, semer ekki óeðlilegt í ljósi umsvifa
ríkisins á fjölmiðlamarkaði, þá er
sjálfsögð krafa að það mismuni
miðlum ekki. Fjandskapur einstakra
þingmanna og þingflokka í garð ein-
stakra fjölmiðla er stórkostlega
varasamur þegar rætt er um ríkis-
stuðning við fjölmiðla. Hann ýtir
undir hættuna á alvarlegri misnotk-
un fjárveitingarvaldsins.
Guðmundur
Andri Thorsson
Hættulegur
fjandskapur
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Á síðasta fundi byggingfulltrúa
Reykjavíkur var tekin fyrir um-
sókn Bjargs íbúðafélags um leyfi
til þess að byggja 4-5 hæða fjöl-
býlishús með 39 íbúðum á lóðinni
Hraunbær 133. Afgreiðslu málsins
var frestað. Borgin úthlutaði
Bjargi lóðinni í fyrra.
Stærð hins nýja fjölbýlishúss
verður 3.240 fermetrar. Bjarg
hyggst reisa tvö önnur hús á lóð-
inni og því verða á henni alls 64
íbúðir og heildarbyggingamagn
verður 8.436 fermetrar. Teikni-
stofa Gylfa Guðjónssonar og félaga
ehf. teiknar húsin.
Ósk um nýtt deiliskipulag fyrir
lóðina hefur verið til afgreiðslu í
borgarkerfinu undanfarna mánuði.
Það hefur verið afgreitt í ágrein-
ingi og kom til fullnaðarafgreiðslu
í borgarstjórn sl. þriðjudag. Þar
var
deiliskipulagið samþykkt með 13
atkvæðum borgarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar, Viðreisnar, Pírata,
Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri
grænna gegn 9 atkvæðum borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og
Miðflokksins. Borgarfulltrúi
Flokks fólksins sat hjá við af-
greiðslu málsins.
Nágrannar við Hraunbæ höfðu
gert athugasemdir við fækkun
bílastæða á lóðinni samkvæmt
nýja skipulaginu.
Bjarg lauk í fyrra byggingu fjöl-
býlishúsa með samtals 99 íbúðum
á næstu lóð við hliðina, Hraunbæ
153-163. Því mun Bjarg byggja alls
163 leiguíbúðir í Árbæjarhverfinu.
sisi@mbl.is
Fjölbýlishús rísi við Hraunbæ
Morgunblaðið/Baldur
Hraunbær 133 Lóðin er skammt Hraunbæ 153-163, þar sem Bjarg lauk í fyrra byggingu húsa með alls 99 íbúðum.
- Bjarg íbúðafélag hyggst byggja þrjú hús með 64 íbúðum
Íbúaráð Grafarholts og Úlfars-
árdals samþykkti bókun á síðasta
fundi sínum þar sem því er mót-
mælt að Strætó hafi dregið úr tíðni
ferða á leið 18. Þetta sé eina leiðin
sem þjónustar Grafarholt og Úlf-
arsárdal og með sérstakri sum-
aráætlun skerðist tíðni á ann-
atímum stóran hluta ársins.
Þar sem ekki er fyrirhugað að
borgarlína liggi um Grafarholt eða
Úlfarsárdal leggur íbúaráðið
áherslu á greiðar og örar tengingar
gangandi, hjólandi og Strætó við
fyrirhugaðar biðstöðvar borgarlínu
í Keldnaholti og á Ártúnshöfða.
Tryggja þurfi góðar almennings-
samgöngur við heilsugæslu og
þjónustumiðstöðvar hverfisins svo
og Egilshöll. sisi@mbl.is
Mótmæla fækkun ferða hjá Strætó
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
ÍSLENSK HÖNNUN
Útskriftar-
tilboð
Útskriftar-
tilboð
Stefnt er að því að 10% allra ferða í
Reykjavík verði farnar á hjóli árið
2025 og að hjólastígar verði þá
orðnir í það minnsta 50 kílómetrar
og 100 kílómetrar árið 2030. Þá á að
fjölga hjólastæðum við grunnskóla
umtalsvert og bæta vetrarþjónustu
þannig að stærra hlutfall stíga
verði greiðfært strax klukkan 8 á
morgnana. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í tillögum að nýrri hjól-
reiðaáætlun Reykjavíkur fyrir árin
2021-2025, sem samþykkt var í
skipulags- og samgönguráði
Reykjavíkurborgar í gær.
Í tillögunum er lagt til að fjár-
festingar í nýjum hjólreiðainnvið-
um í Reykjavík verði að lágmarki
fimm milljarðar á tímabilinu, eða
einn milljarður á ári.
Þegar kemur að aukinni hlutdeild
hjólreiða í heildarfjölda ferða íbúa
eru sett fram nokkur markmið til
ársins 2025. Af þeim má nefna að
minnst 10% allra ferða í borginni
verði farnar á hjóli og að ferðir
farnar í vinnu á hjóli verði að
minnsta kosti 10%. Þá verði að
minnsta kosti fjórðungur ferða
grunnskólanema í skólann farinn á
hjóli og minnst 10% ferða fram-
haldsskólanema í skóla.
Milljarður á ári í innviði hjólreiða
- Mikil uppbygging hjólastíga boðuð
- Fimm ára hjólreiðaáætlun í borginni
Morgunblaðið/Eggert
Hjólreiðar Fjölga á ferðum á reið-
hjólum og leggja net hjólastíga.