Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
Hof 1 Austurhús og Klettasel í Sveitarfélaginu Hornafirði
Fasteignamiðstöðin er með til sölu jörðina Hof 1 Austurhús og Klettasel í Sveitarfélaginu Hornafirði. Staðsetning 20 km frá
þjóðgarðinum í Skaftafelli í vestur og 38 km frá Jökulsárlóni í austur.
Hof 1 Austurhús á um 1/5 hluta heildarjarðarinnar sem er mjög landmikil. Húsakostur er mjög glæsilegt einbýlishús og sumarhús.
Einbýlishúsið er um 120,1 m2 auk þess sambyggt sérstakt gestaherbergi 28 m2 og geymsla 10,2 m2. Einbýlishúsið skiptist í
alrými með eldhúsi, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Öll tæki í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum fylgja með. Allar
innréttingar í húsunum eru sérsmíðaðar úr þýskum hlyn (cycamore) og hvítir eldhússkápar, þvottahúsinnrétting og baðinnrétting. Í
gestaherberginu er einnig baðherbergi. Gólfefni er íslenskt gabbró sem var flutt frá Breiðamerkursandi til Reykjavíkur, þar sem grjótið
var unnið í flísar, alls 150 fermetrar á gólf og tæpir 100 fermetrar á verönd. Fyrir utan húsið er heitur pottur og jafnframt er húsið
skreytt með steindum gluggum eftir Nínu Tryggvadóttur. Húsið er steypt í hólf og gólf og er með torfþaki. Með glæsilegri húsum sem
Fasteignamiðstöðin hefur haft til sölu.
Sumarhúsið er 32,2 m2 stakstætt fullbúið hús með 1 svefnherbergi, alrými með eldhúskróki og baðherbergi. Útsýni er glæsilegt.
Náttúrufegurð Öræfanna er engu lík. Í vestri handan við svartan Skeiðarársand blasir við Lómagnúpur þar sem einn af landvættum
Íslands tók sér bólfestu. Öræfajökull trónir yfir sveitinni með hæsta fjall landsins Hvannadalshnjúk og niður hlíðar fjallanna skríða
tignarlegir skriðjöklar. Í suðri blasir við Ingólfshöfði umleikinn svörtum sandi og hafinu. Fyrsti landnámsmaður Íslands Ingólfur
Arnarson tók sér þar vetursetu, en í dag ráða þar lundinn og aðrir fuglar ríkjum. Áhugaverð jörð og húsakostur sem vert er að skoða.
Frábær staðsetning.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson.
Sérstakar aðstæður urðu þess
valdandi að skip Landhelgisgæsl-
unnar, varðskipin Týr og Þór og
sjómælingabáturinn Baldur, mætt-
ust nýverið og sigldu hlið við hlið á
Ísafjarðardjúpi. Á vef Gæslunnar
segir að skipin séu sjaldnast á sama
tíma á sama stað nema þegar þau
liggja bundin við bryggju í Reykja-
vík yfir jól eða á milli eftirlitsferða.
„Sérstakar aðstæður vegna mis-
munandi verkefna skipanna urðu
til þess að varðskipin og sjómæl-
ingabáturinn Baldur mættust á Ísa-
fjarðardjúpi og við það tilefni var
tekin mynd af öllum flotanum.
Áhöfnin á Tý var við eftirlitsstörf á
miðunum, áhöfnin á Þór var í ár-
legu vitaverkefni í samstarfi við
Vegagerðina og áhöfnin á Baldri
var við mælingar í Djúpinu,“ segir
þar. Guðmundur St. Valdimarsson,
bátsmaður á Tý, greip tækifærið og
tók meðfylgjandi mynd.
Stefnumót
á Ísafjarð-
ardjúpi
Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Konur eru 40 prósent þeirra sem gefa
kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í ár. Alls bjóða 52 einstak-
lingar fram krafta sína og freista þess
að skipa sæti á listum flokksins fyrir
alþingiskosningar í haust. Fimm
karlar og þrjár konur bjóða sig fram í
oddvitasæti.
Karlarnir eru að meðaltali sjö ár-
um eldri en konurnar; meðalaldur
karla sem bjóða sig fram í prófkjör-
inu er 48 ár en meðalaldur kvenna 41
ár.
Mikið var rætt um stöðu kvenna í
Sjálfstæðisflokknum eftir síðasta
prófkjör flokksins árið 2016. Þá röð-
uðust karlar í efstu þrjú sætin í Suð-
urkjördæmi en Ragnheiður Elín
Árnadóttir, þá ráðherra flokksins,
lenti í fjórða sæti. Hún ákvað í kjölfar-
ið að kveðja stjórnmálin.
Í Suðvesturkjördæmi var Bryndís
Haraldsdóttir færð úr fimmta sæti
listans í annað sætið til að auka hlut
kvenna eftir að karlar lentu í fjórum
efstu sætunum í prófkjöri.
Aðeins ein kona leiddi lista Sjálf-
stæðisflokksins í kosningunum 2016.
Það var Ólöf Nordal heitin sem þá var
innanríkisráðherra og varaformaður
flokksins.
Fyrir kosningarnar árið 2017 var
ákveðið að stilla upp sömu listum, en
þá vék Brynjar Níelsson úr oddvita-
sætinu í Reykjavíkurkjördæmi suður
fyrir Sigríði Andersen. Hann hafði
færst upp um sæti í kjölfar andláts
Ólafar. Sigríður er því sem stendur
eini kvenkyns oddviti Sjálfstæðis-
flokksins. Fjórar konur sitja á Alþingi
fyrir flokkinn á yfirstandandi kjör-
tímabili en tólf karlar.
Í ár bjóða þrjár konur sig fram til
að leiða lista Sjálfstæðisflokksins,
þær Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir ráðherrar flokksins og Guðrún
Hafsteinsdóttir, sem kemur ný inn á
sjónarsviðið.
Minnihluti setið á þingi áður
Töluverður minnihluti frambjóð-
enda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
hefur setið á þingi áður, eða 37 pró-
sent. Þó er munur á landsbyggðinni
og höfuðborgarsvæðinu í þessu tilliti,
en helmingur frambjóðenda í Suð-
vesturkjördæmi og rúmur helmingur
frambjóðenda í Reykjavík hefur áður
tekið sæti á þingi. Á landsbyggðinni
er hærra hlutfall nýrra frambjóðenda.
Tæpur þriðjungur frambjóðenda er
með lögfræðimenntun og þá má nefna
að rúmlega þriðjungur frambjóðenda
hefur áður setið í bæjar-, sveitar- eða
borgarstjórn.
Konur 40% frambjóðenda í prófkjöri
Morgunblaðið/Golli
Framboð Sjálfstæðismenn glaðbeittir í upphafi kosningabaráttunnar 2017.
- Alls bjóða 52 sig fram í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins sem haldin verða í öllum kjördæmum á
næstu vikum - Meðalaldur karla í röðum frambjóðenda er 48 ár en meðalaldur kvenna 41 ár
Kærunefnd jafnréttismála hefur
komist að þeirri niðurstöðu, að
Reykjavíkurborg hafi hvorki brotið
gegn lögum um jafna stöðu og jafn-
an rétta kvenna og karla né lögum
um jafna meðferð á vinnumarkaði
þegar ráðið var í stöðu kennara við
grunnskóla í borginni.
Karlmaður lagði fram kæruna og
taldi Reykjavíkurborg hafa mis-
munað sér við ráðningu í starf
grunnskólakennara í Foldaskóla
vegna kyns og aldurs en sú sem var
ráðin er yngri kona. Rök hans fyrir
kærunni voru þau að hann hafi bæði
meiri menntun og lengri starfsferil
en konan sem var ráðin.
Fram kemur í úrskurðinum, að
Reykjavíkurborg telji að bæði karl-
inn og konan hefðu mætt skilyrðum
starfsauglýsingarinnar en þar sem
konan var með 13 ára starfsreynslu
sem kennari en hann aðeins með
tæplega átta ára reynslu, mátu þau
það svo, að konan væri hæfari í
starfið. Bætti einnig borgin við að þó
að maðurinn væri með meiri há-
skólamenntun en konan töldu þau
svo að menntun konunnar og starfs-
reynsla hennar myndi nýtast betur í
starfi grunnskólakennara. Einnig
hefði konunni gengið betur í starfs-
viðtalinu en honum.
Málefnaleg sjónarmið réðu
„Ákvörðunin um ráðningu var
tekin á grundvelli málefnalegra
sjónarmiða. Hæfasti umsækjandinn
hafi verið ráðinn og ólögmæt sjón-
armið, svo sem kyn eða aldur um-
sækjenda, hafi ekki haft þýðingu við
mat á umsækjenum um starfið,“
segir í úrskurðinum. logis@mbl.is
Ráðning ekki brot
á jafnréttislögum
- Karlmaður kærði
ráðningu konu í starf
grunnskólakennara
Morgunblaðið/Eggert
Jafnrétti Deilt var um hvort jafn-
réttislög voru brotin við ráðningu.