Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 Hópur Færeyinga á Íslandi kom saman á þriðjudag á Hótel Örkin, færeyska sjómanna- heimilinu í Reykjavík. Tilefnið var að fagna komu Höllu Nolsøe Poulsen, nýs aðalræð- ismanns Færeyja á Íslandi, og Barböru Hann- adottir Jenssen, sem tók nýverið við sem hót- elstjóri Hótel Örkin. Þær hófu báðar störf á síðasta ári en vegna kórónuveirufaraldursins hafa þær lítið getað blandað geði við aðra Fær- eyinga á Íslandi hingað til. Með afléttingum samkomutakmarkana birtir hins vegar til. Halla segir að nokkrir heldri Færeyingar bú- settir hér á landi hafi haft frumkvæði að sam- komunni. Margir þeirra hafi búið lengi á Ís- landi en haldi enn þá í færeysku ræturnar. Þá sé í venjulegu árferði talsvert um samkomur meðal samfélags Færeyinga á Íslandi. Rúmlega 300 Færeyingar eru búsettir hér á landi ef þeir eru taldir sem ýmist fæddust í Færeyjum eða eiga foreldri sem fæddist þar. Færeyska sjó- mannaheimilið hefur lengi verið samkomu- staður Færeyinga á Íslandi en það var byggt árið 1991. Upphaflega gegndi það hlutverki heimilis fyrir færeyska sjómenn sem voru við veiðar við Íslandsstrendur. Á myndinni eru Halla Nolsøe Poulsen, Paul Guðmundsson, Sól- björn Jensen og Barbara Hannadottir Jenssen. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Færeyingar á Íslandi koma saman á ný Búið er að prenta nýtt upplag af bókinni Íslenskur fuglavísir en hún hafði ekki verið til í einhvern tíma. Samkvæmt höfundi bókarinnar, Jó- hanni Óla Hilmarssyni fuglafræð- ingi, er fuglavísirinn ein af þeim rit- smíðum sem mega ekki seljast upp á Íslandi. „Hún er ein af þessum bók- um sem má ekki vanta. Sálmabókin, Biblían og fuglavísirinn, þetta eru þessar bækur sem þurfa alltaf að vera til.“ Íslenski fuglavísirinn kom fyrst út árið 1999 og var gefin út önnur út- gáfa af bókinni árið 2011. Áform eru hjá Jóhanni Óla um að vinna að mögulegri nýrri útgáfu af henni. „Við erum byrjuð að spá í endur- útgáfu eftir einhver ár. Það tekur náttúrlega sinn tíma að vinna við endurútgáfu. Það verða væntanlega ekki eins dramatískar breytingar næst en það verður væntanlega eitt- hvað gert. Það er alltaf bætt við nýj- um tegundum og svo framvegis,“ segir Jóhann Óli. Alls hafa yfir 50 þúsund eintök selst af fuglavísinum, á íslensku, ensku og þýsku. hans@mbl.is Á vettvangi Jóhann Óli Hilmarsson. Nýtt upplag var prentað - Íslenskur fuglavís- ir fáanlegur á ný Verið hjartanlega velkomin á kosningaskrifstofu Arnars Þórs Jónssonar að Bæjarlind 2 í Kópavogi Frelsi og fullveldi Prófkjör Sjálfstæðisflokkssins í Suðvesturkjördæmi 10–12. júní facebook.com/arnarthorjonsson jonssonarnarthor@gmail.com Arnar Þór í 2.–3. sæti Opnunartími virka daga kl. 17:00 – 20:00 Laugardag og sunnudag kl. 11:00 – 15:00 Gætt verður að reglum um sóttvarnir. Arnar Þór leggur áherslu á að: • verja lýðræðislegt stjórnarfar og fullveldi Íslands • standa vörð um frelsi einstaklingsins, þ.m.t. tjáningarfrelsið • vernda náttúruauðlindir Íslands • efla menntun • valdi fylgir ábyrgð • lög eigi sér lýðræðislega rót, séu skýr og skiljanleg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.