Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN
Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is
http://gattin.os.is/web/index.html
https://www.stjornarradid.is/verkefni/audlindir/orkumal/orkusjodur/Orkusjodur.is
https://www.stjornarradid.is/verkefni/audlindir/orkumal/orkusjodur/ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2021
Átak ríkisstjórnar, fjármagnað af ANR og UAR ráðuneytum ásamt Orkusjóði.
Heildarfjárhæð til úthlutunar er 320 m.kr.
Verkefnastyrkir. Styrkir geta að hámarki numið 33% af áætluðum stofnkostnaði við
kaup á tækjum og búnaði honum tengdum.
1. Verkefni sem minnka verulega eða skipta alveg út jarðefnaeldsneyti í
framleiðslugreinum, matvælaiðnaði og sjávarútvegi, t.d. olíunotkun í þurrkurum, í
dísilvélum eða við bræðslu.
2. Líf- eða rafeldsneytisframleiðsla (t.d. vetni) og/eða orkugeymsla.
3. Stuðningur við kaup á flutningabílum sem nota vistvænt eldsneyti eða til
uppbyggingar innviða sem stuðla að notkun endurnýjanlegs eldsneytis fyrir slík
farartæki.
4. Stuðningur við kaup á vinnuvélum sem nota vistvæna orku.
Innviðastyrkir. Styrkir geta að hámarki numið 50% af áætluðum stofnkostnaði tækis
og búnaðar honum tengdum.
1. Uppsetning hleðslustöðva (viðmið 22 kW) við gististaði og fjölsótta
ferðamannastaði.
Sjóðurinn áskilur sér rétt til að forgangsraða styrkjum í samræmi við áherslur
stjórnvalda við orkuskipti, s.s. líta til þess hversu líklegt er að styrkhæft verkefni hraði
orkuskiptum og hversu mikil áhrif það hefur til minnkunar á kolefnisfótspori. Einnig
verður horft til dreifingu verkefna um landið og hversu hratt þau eru talin koma til
framkvæmda. Styrkupphæð til hvers verkefnis ræðst af getu sjóðsins og fjölda
umsókna.
Umsóknafrestur er til 30. júní 2021
Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkus ofnunar: gatt n.os.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samræmdar öryggiskröfur verða
gerðar fyrir öll jarðgöng á Íslandi
sem eru lengri en hálfur kílómetri
og eru opin fyrir almennri umferð.
Kröfurnar eru þó mismunandi eftir
aldri ganga og hvort þau eru á
hringveginum eða utan hans.
Kemur þetta fram í drögum að
nýrri reglugerð um öryggiskröfur í
jarðgöngum sem samgönguráðu-
neytið hefur kynnt í samráðsgátt
stjórnvalda.
Ekki sömu kröfur
Núverandi öryggiskröfur taka
aðeins til þeirra ganga sem til-
heyra hinu svonefnda samevr-
ópska vegakerfi, nánar til tekið
göngin fern á hringveginum, Hval-
fjarðargöng, Vaðlaheiðargöng, Fá-
skrúðsfjarðargöng og Almanna-
skarðsgöng. Þessi göng verða öll í
fyrsta flokki þar sem mestar ör-
yggiskröfur eru gerðar. Í þann
flokk falla einnig öll ný göng hér
eftir.
Í öðrum flokki eru jarðgöng ut-
an hringvegarins sem tekin voru í
notkun á árunum 2007 til 2020.
Sömu kröfur gilda um öryggi í
þeim og göngum í fyrsta flokki ut-
an þess að neyðarstöðvar mega
vera með 250 metra millibili í stað
150 metra. Það er sagt vera í sam-
ræmi við kröfur í Evrópureglum. Í
þennan flokk falla Héðinsfjarðar-
göng, Bolungarvíkurgöng, Norð-
fjarðargöng og Dýrafjarðargöng.
Í þriðja öryggisflokknum eru
jarðgöng utan hringvegarins sem
tekin voru í notkun á árinu 2007 og
fyrr. Þessi göng eru ýmist einbreið
alla leið eða einbreið að hluta og
þegar þau voru grafin voru örygg-
iskröfur aðrar en gilda í dag. Sér-
reglur gilda því um göng í þessum
flokki. Undir hann falla Stráka-
göng, Múlagöng og göng undir
Breiðadals- og Botnsheiði.
Ekki samræmi á leiðinni
Mismunandi flokkun jarðganga
gerir það að verkum að vegfarandi
sem ekur frá Bolungarvík til
Reykjavíkur fer fyrst um Bolung-
arvíkurgöng sem eru í öðrum ör-
yggisflokki, svo um Vestfjarða-
göng sem eru í „ruslflokki“, því
næst um Dýrafjarðargöng sem eru
í öðrum flokki og loks um Hval-
fjarðargöng sem eru í hæsta ör-
yggisflokki. Með sama hætti fer
vegfarandi sem leggur af stað frá
Siglufirði áleiðis til Akureyrar
fyrst í gegnum Héðinsfjarðargöng
sem eru í öðrum öryggisflokki og
síðan um einbreið Múlagöng sem
eru í þriðja flokki með tilliti til ör-
yggiskrafna. Ef hann heldur áfram
til Húsavíkur fer þessi vegfarandi
loks um göng í hæsta öryggis-
flokki, Vaðlaheiðargöng.
Ekki falla öll veggöng á Íslandi
undir þessar reglur. Göngin um
Arnardalshamar á milli Ísafjarðar
og Súðavíkur eru aðeins 30 metra
löng og því utan reglna. Þá eru
göngin sem sprengd voru á milli
Húsavíkur og Bakka ekki með þar
sem þau eru ekki ætluð fyrir al-
menna umferð, aðeins flutninga til
og frá iðnaðarsvæðinu.
Gert er ráð fyrir því að eftirlit
með öryggiskröfum í jarðgöngum
verði flutt frá Vegagerðinni til
Samgöngustofu. Ætlast er til að
hún sjái um að gerðar verði reglu-
legar skoðanir og hefur Sam-
göngustofa heimild til að loka eða
takmarka notkun jarðganga ef ör-
yggiskröfum er ekki fullnægt.
Miðað er við að reglugerðin taki
gildi við birtingu en Vegagerðinni
verði veittur frestur til ársins 2026
til þess að laga tiltekinn búnað í
göngum í öðrum og þriðja flokki.
Mismunandi öryggiskröfur í göngum
- Drög að nýrri reglugerð um öryggiskröfur í jarðgöngum kynnt - Mestar kröfur gerðar til jarðganga
á hringveginum en minnstar til elstu ganganna - Samgöngustofa með eftirlitið í stað Vegagerðarinnar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Bolungarvíkurgöng Vegagerðin getur þurft að uppfæra öryggisbúnað.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aflaskipið Kleifaberg fær nýtt hlut-
verk í sumar þegar það verður annað
heimili ástralsks leiðangurs sem hef-
ur leyfi til að leita verðmætra málma
á norðausturströnd Grænlands. Um
rannsóknaleiðangur er að ræða og
verður meðal annars borað eftir sýn-
um með námuvinnslu í huga.
Gálginn hefur verið skorinn aftan
af Kleifaberginu og vinnu- eða þyrlu-
pallur settur upp á dekkinu. Skipið
var smíðað í Póllandi 1974 og var
lengi með fengsælustu frystitogur-
um landsins. Áður en haldið verður
til Grænlands fær skipið nýtt nafn.
Fiskvinnslu- og frystitæki hafa verið
fjarlægð úr skipinu og er mikið rými
á millidekki.
Til vinnu á sérútbúinni þyrlu
Ægir Örn Valgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Skipaþjónustunnar,
sem á Kleifabergið, segir að hug-
myndin sé sú að leiðangursmenn
gisti um borð í skipinu. Þeir fari til
vinnu á sérútbúinni þyrlu og komi
með henni heim á kvöldin. 28 kojur
eru um borð og reiknar Ægir með að
þær verði fullnýttar.
Hafnir eru ekki á þessu svæði við
austurströnd Grænlands og fer hóp-
urinn í næsta mánuði um leið og haf-
ísinn gefur eftir. Reiknað er með að
vera við Grænland fram í september-
október eða þar til ísinn lokar svæð-
inu á ný.
Til stóð að fara í stórt verkefni
með ástralska fyrirtækinu í fyrra, en
minna varð úr en efni stóðu til vegna
kórónufaraldursins. Þó var togarinn
Steinn um tíma við Grænland og
þjónustaði hóp á vegum Ástralanna.
Það skip bar meðal annars áður
nafnið Kristín GK og var síðast gert
út af Vísi í Grindavík. Skipið var
smíðað í Austur-Þýskalandi 1965.
Faraldurinn hefur enn áhrif á verk-
efnið, en þó ekki þannig að því verði
frestað.
Auglýst hefur verið eftir yfir-
mönnum á Kleifabergið til að fara í
Grænlandsverkefnið. Helstu verk-
efni Skipaþjónustunnar og Icetugs
eru hins vegar rekstur dráttarbáta,
sem eru bæði með ýmis föst og til-
fallandi verkefni. Þá er verið að
undirbúa að sigla togaranum Mars
RE, áður Sturlaugi Böðvarssyni AK,
til Belgíu, þar sem skipið fer í brota-
járn. Að sögn Ægis liggja öll leyfi
fyrir siglingunni nú fyrir.
Morgunblaðið/Sisi
Gert klárt Unnið hefur verið að undirbúningi ferðarinnar í Reykjavík.
Þyrlupallur um
borð í „hótel“
Kleifabergi
- Aðstoðar við málmleit á Grænlandi
Morgunblaðið/sisi