Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Mörgum fyrirtækjanna sem skráð
hafa verið á First North-markaðinn
á síðustu árum hefur ekki vegnað í
takt við væntingar og raunar eru
mörg komin í fjárhagsvandræði.
Meðal þeirra eru nýsköpunar-
fyrirtæki sem boðað hafa öran vöxt
en raunin orðið allt önnur.
Þessu eru haldið fram í danska
viðskiptablaðinu Børsen og er mál-
inu slegið upp á forsíðu. Segir þar að
alls 13 félög sem skráð voru á First
North milli 2017 og 2019 hafi ekki
náð markmiðum sínum um vöxt.
Blaðið ræðir við Carsten Tangga-
ard, prófessor í viðskiptafræðum við
Árósaháskóla, sem bendir á að um-
rædd fyrirtæki séu svo lítil að eini
möguleiki þeirra á að komast á legg
sé að ná hröðum vexti eftir skrán-
ingu á markað. Ella sé hætt við að
þau fari í þrot. „Timburmennin frá
upphafi veislunnar á hlutabréfa-
markaði, sem hefur staðið yfir frá
2017, eru að koma fram,“ skrifar
Børsen um þessi hættumerki.
Alls 35 félög verið skráð
Fyrirtækin Green Mobility og
Conferize hafi brotið ísinn í maí 2017
og verið fyrstu nýskráðu félögin hjá
First North í næstum áratug. Síðan
hafi alls 35 félög verið skráð hjá Nas-
daq í Danmörku – þar af 13 sem hafi
verið á hlutabréfamarkaði lengur en
í tvö ár og þegar sé farið að bera á
fjárþurrð hjá einstaka félögum.
Athugun sýni fram á að gengi
bréfa í níu þessara fyrirtækja sé nú
lægra en þegar þau voru skráð á
markað. Þá hafi markaðsvirði nokk-
urra þeirra helmingast. Dæmi um
fyrirtæki sem hafi lent í fjárþurrð
séu Scape Technologies, sem þróar
þjarka, og Happy Helper, sem sinnir
þrifum. Þá hafi fyrirtækin Conferize,
Agillic og Odico selt bréf og gervi-
greindarfyrirtækið Hypefactors um-
breytt skuldum í nýtt hlutafé.
Markmiðin víðs fjarri
Samandregið segir Børsen að nær
öll fyrirtækin sem verið hafi á First
North í nokkur ár hafi sett sér mark-
mið um mikinn vöxt og áformað að
skila hagnaði í fyrirsjáanlegri fram-
tíð. Raunin sé allt önnur. Þannig leiði
greining blaðsins í ljós að langur
vegur sé frá því að flest þeirra nái að
rísa undir þessum væntingum.
Til dæmis hafi forsvarsmenn áður-
nefnds gervigreindarfyrirtækis,
Hypefactors, sagt í kynningu árið
2018 að fyrirtækið stefndi á að velta
100 milljónum danskra króna árið
2021. Til samanburðar hafi veltan
verið um 4,2 milljónir í fyrra.
Sömuleiðis hafi tæknifyrirtækið
Waturu reiknað með að velta 120
milljónum danskra króna árið 2023
en hafi enn ekki náð upp neinni veltu.
Fyrirtækið þróar lausnir til að nýta
betur vatn en þær eru á vefsíðu þess,
waturu.com, sagðar gagnast í bar-
áttunni gegn loftslagsbreytingum.
124 þúsund viðskiptavinir
Børsen segir fyrirtækinu Green
Mobility hafa vegnað hvað best af
þessum nýskráðu fyrirtækjum. Það
hafi velt 34,6 milljónum danskra kr. í
fyrra og hafi haft tæplega 124 þús-
und viðskiptavini í lok mars. Engu að
síður skili félagið tapi og það sé langt
frá því markmiði að hafa 400 þús.
viðskiptavini í ár. En það þróar smá-
forrit sem veitir aðgang að rafbílum.
Þá er í umfjöllun Børsen vitnað til
Søren Hougaard, aðjúnkts við Ár-
ósaháskóla, sem hafi í aðsendri grein
til blaðsins árið 2018 sett fram varn-
aðarorð um styrkleika nýrra félaga
hjá First North og sett spurningar-
merki við markaðssetninguna á þeim
sem vænlegum fjárfestingarkostum.
Segir Hougaard að félögin dragi
upp ýkta mynd af stöðu sinni. Þau
séu í raun nýsköpunarfyrirtæki sem
séu komin skemmra á veg á þroska-
braut sinni en látið er í veðri vaka.
Það skorti eftirlit með skráningu
slíkra félaga til að tryggja almanna-
hagsmuni og spyrja spurninga um
ætlað verðmæti félaganna.
Þá er rætt við Søren Jonas Bruun,
sérfræðing hjá Gemstone Capital,
sem heldur því fram að fagfjárfestar
hafi hafnað mörgum þessara félaga
og hafi þau því leitað skráningar hjá
First North í Danmörku.
Vildu ekki tjá sig um málið
Fulltrúar Nasdaq vildu ekki tjá
sig um málið þegar Morgunblaðið
leitaði viðbragða við fréttinni en
Børsen hafði fengið sama svar.
Snorri Jakobsson, greinandi hjá
Jakobsson Capital, segir mikla eftir-
spurn hafa verið eftir bréfum í
tæknifyrirtækjum og mörg slík farið
á markað um heim allan síðasta árið.
„Sömu sölufrasar og voru fyrir
rúmlega 20 árum hafa verið dregnir
fram síðasta árið en það verða ekki
öll fyrirtæki næsta Google eða Ama-
zon,“ sagði Snorri sem tók fram að
hann væri ekki sérfróður um danska
markaðinn. Hann hefði eftir atvikum
ekki forsendur til að meta hvort of
mikið hefði verið gert úr möguleik-
um umræddra fyrirtækja.
Óraunhæfar væntingar
Ljósmynd/GreenMobility A/S
Rafbílavæðing Danska félagið GreenMobility þróar rafbílalausnir.
- Danska viðskiptablaðið Børsen gerir upp árangur nýrra félaga á First North
- Heilt yfir séu þau fjarri því að ná boðuðum markmiðum í fjárfestakynningum
Samanlagt séu því um 2.500 fé-
lagsmenn í SSF starfandi hjá við-
skiptabönkunum eða álíka margir
og störfuðu hjá Landsbankanum,
Búnaðarbankanum (síðar Arion
banka) og Íslandsbanka árið 1994.
Sameinuðust í Íslandsbanka
Árið 1994 höfðu bankar sameinast
og meðal annars Útvegsbankinn,
Iðnaðarbankinn, Verslunarbankinn
og Alþýðubankinn runnið saman í
nýjan Íslandsbanka árið 1990.
Friðbert bendir á að félagsmenn
SSF séu einnig starfandi hjá Seðla-
bankanum og þar með hjá Fjár-
málaeftirlitinu, hjá Valitor, Borg-
un, Reiknistofu bankanna, Kviku,
Verði, Byggðastofnun, sparisjóð-
um, ýmsum sjóðum og hjá eigna-
stýringarfyrirtækjum í eigu bank-
anna og raunar víðar.
Um síðustu áramót hafi heildar-
fjöldi félagsmanna verið um 3.750.
SaltPay (Borgun) hafi sagt upp um
50 starfsmönnum í hópuppsögn í
apríl, en þeir eru enn á uppsagnar-
fresti og enn skráðir félagsmenn
hjá SSF. baldura@mbl.is
Um 2.500 félagsmenn í Samtökum
starfsmanna fjármálafyrirtækja
(SSF) starfa nú hjá viðskiptabönk-
unum og hefur þeim fækkað um 50
frá því í nóvember. Áður hafði þeim
fækkað um 50 frá júlí 2020.
Friðbert Traustason, fram-
kvæmdastjóri SSF, segir Íslands-
banka hafa sagt upp 12 manns í
mars og Arion banka 18 manns í
maí sl. Þá hafi um 20 til viðbótar
látið af störfum í ár fyrir aldurs
sakir eða af öðrum ástæðum.
Áfram fækkar í röðum bankafólks
- Um 2.500 starfa hjá stóru bönkunum
2.5002.550
4.650
3.300
Fjöldi starfsmanna hjá
viðskiptabönkunum
Starfsmenn Fjöldi útibúaHeimild: SSF
2007 2014 2020 2021
157
95
7373
nóvember
2020
maí
2021
« TM tryggingar hf., sem er dótt-
urfélag Kviku banka hf., hefur selt
allan eignarhlut sinn í Stoðum hf. Fé-
lagið átti 1.569,7 milljónir hluta í
Stoðum eða sem svaraði til 11,6%
hlutafjár félagsins. Eignarhluturinn
var samkvæmt tilkynningu frá Kviku
stærsta fjárfestingareign TM eða
14% af heildarfjárfestingareignum
félagsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs
var hluturinn metinn á 4,3 milljarða
króna. Söluandvirðið var greitt með
handbæru fé og mun hafa jákvæð
áhrif á afkomu TM á öðrum ársfjórð-
ungi sem nemur 200 milljónum
króna. Hluturinn var seldur til hóps
fjárfesta. Stoðir hf. eru í hópi
stærstu hluthafa Arion banka, er
raunar í fjórða sæti á lista yfir þá
með tæplega 5% hlut.
TM og Kvika losa sig al-
farið út úr Stoðum hf.
27. maí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.02
Sterlingspund 171.11
Kanadadalur 100.42
Dönsk króna 19.944
Norsk króna 14.54
Sænsk króna 14.638
Svissn. franki 135.03
Japanskt jen 1.1102
SDR 174.98
Evra 148.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.5004
Hrávöruverð
Gull 1882.8 ($/únsa)
Ál 2305.0 ($/tonn) LME
Hráolía 68.47 ($/fatið) Brent
« Íslensk heimili
halda áfram að
veðja á óverð-
tryggð húsnæðis-
lán með breyti-
legum vöxtum.
Þetta kemur fram í
nýbirtum tölum
Seðlabankans inn-
an úr bankakerfinu.
Þar kemur fram að
ný útlán, með veði í
íbúð, sem bera breytilega óverðtryggða
vexti, námu 29,6 milljörðum króna í
aprílmánuði. Eru tölurnar birtar að
teknu tilliti til umfram- og uppgreiðslna.
Hins vegar námu ný óverðtryggð lán
með föstum vöxtum 6,3 milljörðum
króna. Verðtryggðu lánin halda áfram
að gefa eftir líkt og síðustu mánuði og í
apríl voru verðtryggð lán með breyti-
legum vöxtum greidd upp, umfram ný
lán í sama flokki, sem nam 2,7 millj-
örðum króna. Verðtryggð lán með föst-
um vöxtum voru með sama hætti
greidd upp fyrir sem nam 365 millj-
ónum króna.
Færa sig áfram í óverð-
tryggð og breytileg lán
Húsnæði Lántak-
endur velja leið.
STUTT
TOYOTA AYGO X-PLAY CONNECT
RN. 153701, Nýskráður 9/2019, ekinn 18 þ.km.,
bensín, ljósgrár, beinskiptur, stöðugleikakerfi,
bakkmyndavél, bluetooth, hiti í framsætum.
Verð 1.790.000 kr.
MERCEDES-BENZ C300 DE AMG PLUG IN HYBRID
RN. 153592. Nýskráður 11/2019, ekinn 27 þ.km.,
dísel/rafmagn, svartur, sjálfskipting, 9 gíra, GPS,
bluetooth, bakkmyndavél, litað gler, túrbína.
Verð 7.490.000 kr.
VW GOLF GTE COMFORT – RN. 331250
Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km. bensín/
rafmagn, hvítur, sjálfskipting, bluetooth, litað gler,
bakkmyndavél, 360° nálgunarvarar, akreinavari.
Verð 4.890.000 kr.
RENAULT TRAFIC - EXTRA LANGUR
RN. 330908, nýskráður 6/2018, ekinn 68 þ.km.,
dísel, ljósgrár, beinskipting 6 gíra, 9 manna,
spólvörn, bluetooth, hiti í framsætum.
Verð 3.390.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is