Morgunblaðið - 27.05.2021, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
36
Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna!
Farðu inn á mbl.is/happatala, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvíta-Rússlands, segir að viðbrögð
annarra ríkja við handtöku á blaða-
manninum og aðgerðasinnanum
Roman Protasevich hafi gengið of
langt. Protasevich og kærasta
hans, Sofia Sapega, voru um borð í
farþegaflugvél sem var á leið til
Litháen þegar henni var gert að
lenda í Minsk, höfuðborg Hvíta-
Rússlands. Við lendingu voru þau
Protasevich og Sapega handtekin.
Lúkasjenkó ávarpaði hvítrúss-
neska þingið í gær og lýsti hann
málinu sem enn einni tilraun
stjórnarandstæðinga til þess að
ráðast gegn réttmætum stjórnvöld-
um landsins. „Ég brást við innan
ramma laganna til þess að vernda
þjóðina,“ sagði Lúkasjenkó og sak-
aði Protasevich um að vera hryðju-
verkamann sem stæði á bak við
blóðug mótmæli. Hann neitaði því
að vígbúin orrustuþota hefði þving-
að farþegavélina til lendingar í
Minsk. Slík fullyrðing væri „hrein
og bein lygi“. Hann gaf þó í skyn að
hann hefði getað látið skjóta niður
flugvélina því henni hefði verið
flogið nærri kjarnorkuveri, þar sem
viðbúnaðarstig hefði verið hækkað.
Fyrrum samstarfsmaður Pro-
tasevicho, Stepan Putilo, brást við
ræðu Lúkasjenkó með því að segja
að ef stjórnvöldum væri svo um-
hugað um Protasevich að þeir vildu
skjóta niður flugvél hans, þá væru
þeir að gera eitthvað rétt og myndu
halda áfram baráttu sinni. Putilo
bætti þó við að hann óttist nú um líf
sitt og Protasevich. Mótmæli gegn
stjórnvöldum hafa blossað upp að
nýju innan Hvíta-Rússlands vegna
málsins og tugir þúsunda hafa kraf-
ist afsagnar Lúkasjenkó.
Kalla eftir sjálfstæðri rannsókn
Viðbrögð erlendra ríkja við
handtökunni hafa ekki látið á sér
standa. Þannig hafa þjóðarleiðtog-
ar í aðildarríkjum Evrópusam-
bandsins líkt handtökunni við
hryðjuverk og flugrán. Þá verður
hvítrússneskum flugvélum bannað
að fljúga í lofthelgi Evrópusam-
bandsins, en það hefur boðað hert-
ar viðskiptaþvinganir.
Norður-Atlantshafsráðið for-
dæmir aðgerðir Hvíta-Rússlands
og segir að um sé að ræða ólíðandi
aðgerð sem brjóti gegn almennum
reglum um farþegaflug í alþjóðlegri
lofthelgi. Jafnframt er kallað eftir
sjálfstæðri rannsókn á atvikinu af
hálfu Alþjóðaflugmálastofnunar-
innar (ICAO) og stuðningi lýst yfir
við aðgerðir vesturveldanna.
Ráðið segir í yfirlýsingu að hand-
taka Protasevich sé á pólitískum
grundvelli og beint gegn fjölmiðla-
frelsi. Er þess krafist að Protase-
vich og Sapega verði umsvifalaust
sleppt úr haldi. Þá er jafnframt lýst
yfir stuðningi við Lettland eftir að
lettneskum erindrekum var vísað
frá Hvíta-Rússlandi.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa hins
vegar brugðist við á annan veg, og
sagði Dmitrí Peskov, talsmaður
Vladimírs Pútín Rússlandsforseta,
í gær að engin ástæða væri til þess
að draga útskýringar Lúkasjenkós
á atvikinu í efa.
AFP
Neitar allri sök Lúkasjenkó ávarpaði hvítrússneska þingið í gær.
Hafnar öllum ásökunum
- Lúkasjenkó segir viðbrögð hafa gengið of langt - Gaf í skyn að flugvélin hefði
getað verið skotin niður - Norður-Atlantshafsráðið segir aðgerðina vera ólíðandi
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Dominic Cummings, fyrrverandi að-
alráðgjafi Boris Johnsons, forsætis-
ráðherra Bretlands, bar ríkisstjórn-
ina þungum sökum í gær, er hann bar
vitni fyrir vísinda- og tækninefnd
breska þingsins um upphaf heimsfar-
aldursins. Sagði Cummings að ríkis-
stjórnin hefði ekki gert sér grein fyrir
í upphafi hvers konar faraldur væri
um að ræða, og hefðu ráðherrar því
ekki gert réttar áætlanir um hvernig
ætti að koma í veg fyrir að kórónu-
veiran dreifði sér um Bretland. Um
128.000 manns hafa látist af völdum
faraldursins í Bretlandi samkvæmt
opinberum tölum, og er það hið mesta
af ríkjum Evrópu.
„Sannleikurinn er sá, að háttsettir
ráðherrar, háttsettir embættismenn
og háttsettir ráðgjafar eins og ég
stóðu sig langt undir þeim væntingum
sem almenningur hefur rétt á að gera
til ríkisstjórnar sinnar þegar hættu-
ástand geisar,“ sagði Cummings með-
al annars í vitnisburði sínum, og bað
hann fjölskyldur þeirra sem létust af-
sökunar á þætti sínum.
Í máli Cummings kom fram að
Vesturlönd hefðu verið með höfuðið í
sandinum í janúar og febrúar, þrátt
fyrir að Taívan hefði lokað á farþega-
flug þegar í janúar. Þeim viðvörunar-
bjöllum hefði hins vegar ekki verið
hlýtt. Sagði Cummings að fyrstu sam-
töl sín við Johnson um veiruna hefðu
verið um miðjan janúar. Enginn í
breska stjórnkerfinu hefði hins vegar
tekið málið alvarlega fyrr en í lok
febrúar, og sagði Cummings að hátt-
settir embættismenn hefðu farið í
skíðaferðir til Evrópu um miðjan
mánuðinn.
Sóttust eftir „hjarðónæmi“
Í máli Cummings kom fram að
breska stjórnkerfið hefði talið að
Covid-19 væri svipaður sjúkdómur og
inflúensa, og sagði hann að því hefði í
upphafi verið talið best að sækjast
eftir svonefndu „hjarðónæmi“, en
talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa
neitað því harðlega að það hafi nokk-
urn tímann verið á dagskrá.
Sagði Cummings það fráleita af-
sökun, og bar að æðsti yfirmaður
embættismannakerfisins hefði lagt til
við Johnson í marsmánuði að hvetja
til „hlaupabólu“-smitboða, svo að
dreifa mætti kórónuveirunni sem víð-
ast á sem skemmstum tíma.
Cummings sagði einnig að Johnson
hefði verið tregur til að grípa til sótt-
varnaaðgerða og haft þungar áhyggj-
ur af þeim efnahagslega skaða sem
þær myndu valda. Faraldurinn hefði
valdið samskiptum þeirra skaða, þar
sem Johnson hefði talið að Cummings
hefði svínbeygt sig til að loka landinu.
Cummings, sem yfirgaf Downing-
stræti í desember síðastliðnum, bar
þó Matt Hancock, heilbrigðisráð-
herra landsins, verst söguna. Sagði
Cummings að hann hefði logið að koll-
egum sínum í ríkisstjórn ítrekað um
viðbúnaðarstig Breta og að hann
hefði átt skilið að vera rekinn úr ríkis-
stjórninni fyrir 15-20 slíkar lygar.
Johnson sat fyrir svörum í fyrir-
spurnatíma þingsins í gær. Varði
hann þar framgöngu stjórnvalda og
sagðist bera fulla ábyrgð á þeim
ákvörðunum sem teknar hefðu verið.
Ríkisstjórnin hafi brugð-
ist í upphafi faraldursins
- Cummings ber Boris Johnson þungum sökum fyrir nefnd
AFP
Ráðgjafi Dominic Cummings (t.h.) bar Boris Johnson forsætisráðherra,
fyrrverandi yfirmann sinn, þungum sökum í vitnisburði sínum fyrir þinginu.
Stjórnvöld í Sviss tilkynntu í gær að
þau hygðust slíta viðræðum sínum
við Evrópusambandið um samstarf,
sem átti að koma í stað þeirra fjöl-
mörgu samninga sem nú stýra sam-
skiptum Sviss við nágrannaríki sín.
Viðræðurnar um slíkan ramma-
samning hafa staðið yfir í 13 ár, en
Guy Parmelin, forseti Sviss, sagði
að of mikill munur væri á milli aðila
til þess að hægt væri að semja. Par-
melin fór til Brussel í lok aprílmán-
aðar og ræddi við Ursulu von der
Leyen, forseta framkvæmda-
stjórnar sambandsins, en þær við-
ræður sigldu í strand þar sem Evr-
ópusambandið vildi ekki láta undan
kröfum Parmelins um að ríkis-
aðstoð, launavernd og ferðafrelsi
yrðu undanskilin samningunum.
Ríkisstjórn Sviss lýsti því yfir að
hún sæktist áfram eftir samstarfi
við Evrópusambandið, en meira en
helmingur útflutningsvara þeirra
fer þangað.
SVISS
AFP
Sviss Ekki varð af samningum milli
Parmelins og von der Leyen í apríl.
Slíta viðræðum við
Evrópusambandið
Þrír menn hafa verið handteknir í
tengslum við rannsókn á kláfslysi
sem varð á sunnudag á norðanverðri
Ítalíu, þar sem fjórtán létu lífið.
Rannsakendur segja að svo virðist
sem neyðarhemlar kláfsins hafi ver-
ið gerðir óvirkir til þess að koma í
veg fyrir seinkanir á ferðum hans og
þremur starfsmönnum rekstrar-
fyrirtækisins hafi verið kunnugt um
það. Þeir handteknu eru forstjóri
fyrirtækisins auk rekstrarstjóra og
verkfræðings. Ákæruefnin eru
nokkur, þar á meðal manndráp af
gáleysi.
Slysið varð þegar dráttarkapall
slitnaði og kláfurinn rann stjórn-
laust niður eftir burðarkapli, skall á
stálmastri og hrapaði til jarðar. Þeir
handteknu töldu að dráttarkapallinn
myndi aldrei slitna og því væri
óhætt að gera hemlana óvirka.
Fimmtán voru í kláfnum þegar þetta
gerðist en aðeins einn, fimm ára
drengur, komst lífs af.
urdur@mbl.is
Neyðarhemlarnir
voru gerðir óvirkir
- Þrír menn hafa verið handteknir
AFP
Slys Fimmtán voru í kláfnum þegar hann féll en einungis einn lifði af.