Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ÍMorgunblaðinuum liðna helgivar fróðleg lesning um vígvæð- ingu norðurkóreska hersins, en hann hefur sem kunnugt er eytt síðustu tveimur áratug- um í að koma sér upp bæði kjarnorkuvopnum og lang- drægum eldflaugum sem gætu borið þau alla leið að ströndum Bandaríkjanna og annarra óvina Kim-fjölskyldunnar. Að þessu sinni voru þó eld- flaugarnar ekki í fyrirrúmi, heldur lyklaborðin, þar sem greint var frá því að tölvuþrjótar á vegum norðurkóreskra stjórn- valda hefðu á síðustu árum stundað allmörg spellvirki. Þar á meðal hefðu þeir stundað það á vegum ríkisins að brjótast inn til þess að afla því fjár, en ljóst er að áralöng einangrun, fátækt og vosbúð almennings hefur ekki dregið úr fjárþörf einræðis- herranna. Var enda áætlað af Samein- uðu þjóðunum árið 2019 að Norður-Kórea hefði með þessum hætti aflað sér andvirðis um tveggja milljarða bandaríkja- dala, eða sem nemur um 246 milljörðum íslenskra króna, og hefur sú fjárhæð eflaust hækkað síðan þá. En peningarán eru bara hluti af glæpnum. Árið 2014 ákvað Norður-Kórea að láta tölvu- þrjóta „hefna“ sín á Sony- kvikmyndaverinu með því að brjótast inn í tölvur þess og deila skjölum þaðan út á alnetið, en kvikmyndaverið hafði dirfst að framleiða kvikmynd, þar sem einræðisherrann Kim Jong-un var dreginn sundur og saman í háði. Upplýsingalekanum fylgdu svo sprengjuhótanir á þau kvik- myndahús sem hugðust sýna viðkomandi mynd, og tókst þannig að koma í veg fyrir að myndin yrði sýnd á al- mannafæri. Þetta þótti var- hugaverð þróun, en við henni var ekki brugðist af alvöru. Staðan nú, sjö árum síðar, er sú að tölvu- þrjótarnir hafa orðið færari og bíræfnari í glæpum sínum, glæp- um sem framdir eru beinlínis á vegum norðurkóreska ríkisins. Og slíkir glæpir gætu jafnvel valdið heilmiklum skaða, án þess að hleypt verði af skoti. Og það undarlega er að sú staðreynd að almenningur hefur ekki aðgang að netinu varð ekki til að hindra stjórnvöld í að koma sér upp sveit hakkara í fremstu röð. Ljóst er, að með tölvuvæðingu heimsins hefur þar sprottið upp frjósamur akur fyrir þá, sem vilja gera óskunda. Viðkvæm tölvukerfi stýra til dæmis um- ferðarljósum og hægt væri að lama starfsemi sjúkrahúsa, svo dæmi sé nefnt, með ófyrirleitinni tölvuárás á borð við þá sem varð árið 2017, þegar „gíslatöku- forritið“ Wannacry dreifði sér með ógnarhraða um netið í enn einni fjáröflunartilraun Norður- Kóreumanna, og smitaði um 300.000 tölvur áður en árásin var stöðvuð. Í ljósi þess að norðurkóresk stjórnvöld hafa til þessa oft grip- ið til örþrifaráða þegar þau hafa viljað fá sitt fram, sem og að þau stunda slíkar fjárkúgunartil- raunir enn af miklu kappi, þyrfti ekki að koma á óvart þó að þau myndu reyna aftur árás af slíkri stærðargráðu. Það er því áleitin spurning hvernig vesturveldin hyggjast bregðast við þessari ógn af hálfu Norður-Kóreu- manna. Hingað til hefur hún vakið furðulitla athygli. Það þyrfti að breytast. Ekki aðeins flaug- arnar heldur einnig lyklaborðin geta valdið miklu tjóni} Ógninni þarf að mæta MacronFrakk-lands- forseti lýsti á þriðjudag þeirri skoðun sinni að Evrópusambandið þyrfti nýja stefnu gagnvart Rússlandi þar sem efnahags- þvinganir hefðu ekki skilað til- ætluðum árangri. Þetta kom mögulega í framhaldi af því að hann áttaði sig á því að Rússar hefðu ekki skilað Krímskaga og væru ekki líklegir til að gera það, hvað sem efnahagsþving- unum liði. Merkel Þýskalandskanslari lýsti sama dag svipuðum sjón- armiðum, lagði áherslu á stjórn- málaleg samskipti og samtal. Merkel, eins og fleiri, hefur enda sýnt að efnahagsþvingan- irnar mega alls ekki skaða hags- muni hennar ríkis. Gasleiðslan Nord Stream 2 hefur haldið sínu striki þrátt fyrir efna- hagsþvinganir í orði. Þrátt fyrir þessi sjónarmið leiðtoganna hafa þeir ekki enn gengið svo langt að segja að hætta eigi við þvinganirnar. Í næsta mánuði kann hins vegar að koma að því, en þá kemur út skýrsla framkvæmdastjórnar ESB sem var falið að finna aðr- ar leiðir í samskiptunum við Rússland. Ísland hefur, ólíkt þeim sem settu þvinganirnar á, farið afar illa út úr þeim. Það var van- hugsað og skaðlegt og nú er sjálfsagt að taka þessa tvo leið- toga á orðinu og endurskoða af- stöðu Íslands. Æ fleiri sjá að aðgerðirnar gegn Rússlandi ganga ekki upp} Endurskoðun þvingana A lþingi samþykkti í vikunni lög um stuðning við einkarekna fjöl- miðla. Stuðningurinn er veittur í formi endurgreiðslu á hluta af kostnaði sem fellur til við að afla og miðla fréttum, fréttatengdu efni og um- fjöllun um samfélagsleg málefni. Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa verði um 400 milljónir króna. Þá verður stofnsett sérstök úthlutunarnefnd sem hefur með höndum úthlutun styrkjanna. Þetta væri í sjálfu sér hið besta mál, ef ekki væri fyrir það að annar og miklu stærri vandi er skilinn eftir, þar sem er rekstur Rík- isútvarpsins, sem er eins og risastórt nátttröll á fjölmiðlamarkaði hérlendis. Einkareknir fjölmiðlar glíma við mikinn rekstrarvanda sem hefur aukist síðustu ár, ekki síst vegna tilkomu netmiðla, sem fullnægt hafa fréttaþörf og fróðleiksfýsn margra. Þá er ekki öll sagan sögð, því tekjur innlendra fjölmiðla af auglýsingum hafa á sama tíma dregist verulega saman við það að erlendar efnisveitur taka til sín æ stærri hluta þeirra tekna. Héraðsfréttamiðlar fá eilítinn skerf sem líta má á sem viðurkenningu á mikilvægu hlutverki þeirra í hinum dreifðu byggðum. Hvers virði er fjölmiðill sem er háður ríkinu? Hver verður trúverðugleiki hans? Og hvað er fjölmiðill? Er það fjölmiðill þar sem engin eiginleg fréttaöflun fer fram og mætti fremur kalla skoðanasíðu? Er ástæða til þess að ríkið styrki starfsemi af þessu tagi? Þrátt fyrir að það kunni að hafa verið nauðsynlegt að styðja á einhvern hátt við frjálsa fjölmiðlun komu aðrar og betri leiðir til greina. Í lögunum eru styrkir til einkarekinna fjöl- miðla látnir líta út sem eins konar neyð- araðstoð við þá. Við þetta er það að athuga að á sama tíma og ríkisvaldið tekur einkarekna fjölmiðla upp á sína arma með ríkisstyrkjum eru skattgreiðendur skyldaðir til að greiða fimm milljarða til Ríkisútvarpsins. Ekkert er heldur tekið á því að Rík- isútvarpið fær að beita öllu sínu afli í sam- keppni við einkareknu fjölmiðlana á auglýs- ingamarkaði. Þar tekur ríkisfjölmiðillinn inn tvo milljarða, sem gætu nýst vanmáttugum frjálsum fjölmiðlum. Miklu nær væri að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýs- ingamarkaði í stað þess að leggja skattfé til einkarekinna fjölmiðla. Þá er löngu tímabært að grípa til aðgerða vegna er- lendra efnisveitna, sem sópa að sér auglýsingafé, en greiða enga skatta hér á landi. Ríkisútvarpið hefur í sögulegu tilliti gegnt mikilvægu hlutverki, ekki síst á sviði þjóðlífs og menningar, en hlut- verk þess á sviði almannavarna er e.t.v. ekki jafnt og á fyrri tíð. Hið menningarlega hlutverk Ríkisútvarpsins ber að virða rétt eins og nágrannaþjóðir gera með rekstri sam- bærilegra stofnana. Starfsemi og umsvif stofnunarinnar er reyndar komin langt út fyrir slík mörk. Karl Gauti Hjaltason Pistill Risastórt nátttröll Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. kgauti@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er gert ráð fyrir auknum út- gjöldum til að bjarga rekstri hjúkr- unarheimila landsins í breytinga- tillögum meirihluta fjárlaganefndar við þingsályktunartillögu rík- isstjórnarinnar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Framkvæmda- stjóri Samtaka fyrirtækja í velferð- arþjónustu gagnrýnir það harðlega. Formaður fjárlaganefndar segir að frekari gögn þurfi til að hægt sé að meta fjárþörfina nákvæmlega. Reiknar hann með að tekið verði á vandanum í fjáraukalögum og fjár- lögum í haust. Í nefndaráliti meirihluta fjár- laganefndar er bent á að rekstur nýrra hjúkrunarheimila sé ekki að fullu fjármagnaður frá og með árinu 2023 og leggur nefndin til að níu milljörðum verði bætt við út áætl- unartímann til að standa undir því. Meirihluti fjárlaganefndar telur ljóst að skýrsla verkefnishópsins sem greindi rekstrarvanda hjúkr- unarheimilanna svari ekki öllum þeim spurningum sem þarf til að bregðast við rekstrarvandanum né sé gerð nægileg grein fyrir því með hvaða hætti væri heppilegast að taka á honum. Nefnt er að ekki komi skýrt fram af hverju einstök heimili eru rekin með afgangi eða í jafnvægi á meðan flest þeirra eru rekin með miklum halla. Meirihlutinn áréttar þó að aðkallandi sé að taka á vand- anum og þurfi að taka markviss skref í þá átt við næstu fjárlagagerð. Geta ekki beðið haustsins Eybjörg Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, er furðu lostin eftir lestur greinargerðar meirihluta fjárlaganefndar. „Það veldur okkur gríðarlegum vonbrigðum ef þetta eru viðbrögðin. Við höfum beðið í heilt ár eftir skýrslu sem greinir rekstrarstöðu hjúkrunarheimilanna. Hún er komin og sýnir vanfjár- mögnun heimilanna. Niðurstaðan frá 2019 er frekar vanmat en hitt því síðar komu til afturvirkar kjara- samningsbundnar launahækkanir. Augljóst er að staðan er mjög þröng og hjúkrunarheimilin stefna í þrot. En ekkert á að gera. Ríkisstjórnin virðist hvorki vilja sjá né heyra af þessum málum,“ segir Eybjörg. Hún segir að hjúkrunarheimilin geti ekki beðið til haustsins eftir hugsanlegum leiðréttingum í fjár- aukalögum og fjárlögum næsta árs. Grípa verði til aðgerða strax. Hún bendir á að þjónustusamningar hjúkrunarheimilanna við Sjúkra- tryggingar renni út í lok ársins. Ekki verði samið um óbreytt daggjöld sem keyri heimilin í þrot og telur hún ljóst að fleiri muni skila rekstrinum til rík- isins en þegar er orðið. Vantar frekari upplýsingar Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar, segir ekki undan því vikist að ná utan um fjárhagsvanda hjúkrunarheimilanna. Hann segir að verkefnið núna sé að leggja mat á og rýna skýrsluna og kalla eftir frekari gögnum og upplýsingum til að meta fjárþörfina nákvæmlega. Venjan sé að leggja fram fjáraukalög á haustin og síðan þurfi að gera samninga til framtíðar á réttum grundvelli og taka mið af þeim við fjárlagagerð fyrir næsta ár. Spurð um aðfinnslur við skýrslu verkefnishópsins segir Eybjörg að í hópnum hafi setið fulltrúar Sjúkra- trygginga og heilbrigðisráðuneytisins og ráðherra hafi skipað formanninn. Ef ekki séu nægar upplýsingar komnar fram til að taka ákvarðanir sé það á ábyrgð ráðuneytisins. Ekki tekið á vanda hjúkrunarheimilanna Morgunblaðið/Eggert Hjúkrunarheimili Heimilisfólkið í Seljahlíð viðraði sig í hléi á kórónuveiru- faraldrinum og tileinkaði gönguna þríeykinu þekkta. Verkefnishópur sem heilbrigð- isráðherra skipaði undir forystu Gylfa Magnússonar prófessors til að greina rekstur hjúkr- unarheimila komst að þeirri nið- urstöðu að halli af rekstri hjúkr- unarheimilanna í landinu var á árunum 2017 til 2019 samtals 3,5 milljarðar, án meðgjafar sveitarfélaganna, eða rúmur milljarður á ári. Daggjöld þeirra sem voru rekin með halla árið 2019 hefðu þurft að hækka að meðaltali um 6,3%, eða kostn- aður að lækka samsvarandi, til þess að endar hefðu náðst sam- an. Fleira kemur fram í skýrsl- unni sem sýnir hnignandi rekst- ur og þjónustu. Helstu leikendur flytja erindi á málþinginu „Á ystu nöf“ sem Samtök fyrirtækja í velferð- arþjónustu standa fyrir í Laug- arásbíói í dag kl. 13.30. Meðal fyrirlesara eru heilbrigðis- ráðherra, Gylfi Magnússon og fulltrúar þingnefnda Alþingis. Tapa milljarði á hverju ári Á YSTU NÖF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.