Morgunblaðið - 27.05.2021, Qupperneq 44
Ný kryddlína frá Hagkaup hef-
ur litið dagsins ljós hér á landi
en línan er unnin í nánu sam-
starfi við Kryddhúsið sem hefur
komið inn á íslenskan krydd-
markað með spennandi brögð
og óvenjulegar áherslur. Við-
brögð íslenskra neytenda hafa
ekki látið á sér standa og eru
kryddin frá Kryddhúsinu gríð-
arlega vinsæl.
Kryddlínan inniheldur þrjár
kryddblöndur:
· SPG – Þessi blanda er göm-
ul klassík, salt, pipar og hvít-
laukur. Við ákváðum svo að
bæta espressó-kaffibaunum við
til að gefa þessu enn meiri kar-
akter. Útkoman er geggjuð
kryddblanda sem hentar sérlega
vel fyrir nautakjöt.
· AMG – Blandan er vandlega
valin fyrir íslenskt lambakjöt,
en í henni má finna á annan tug
kryddtegunda, meðal annars
papriku, salt, hvítlauk óreganó,
cumin, kóríander, timían, lauk,
cayenne og reykta papriku.
· RUB – Hér er á ferðinni út-
pæld blanda sem hentar vel á
kjúkling og grísakjöt, hönnuð til
að strá vandlega yfir kjötið og
nudda. Uppistaðan í blöndunni
er á annan tug krydda, meðal
annars paprika, salt, hvítlaukur,
óreganó, cumin, koríander, timí-
an, laukur, pipar og cayenne-
pipar.
Ný kryddlína er mætt í verslanir
Krydd í tilveruna Ný kryddlína Hagkaups
er unnin í nánu samstarfi við Kryddhúsið.
Hér er á ferðinni einfaldasta kvöldmáltíð sem
sögur fara af. Allt meðlætið er tilbúið til eldunar
í álbökkum og það eina sem þarf að gera er að
kveikja á grillinu. Lambakótelettur eru ein-
staklega góður biti og hér eru grillaðar sérvald-
ar kótelettur sem búið er að trufflumarinera.
Meðlætið var svo ekki af verri endanum en hér
var á ferðinni einfalt smælki, kokteiltómatar og
mozzarella-ostur, sérvalið rótargrænmeti,
ferskur maís og dýrindishvítlaukssósa.
Trufflumarineraðar lambakótelettur
Kryddað rótargrænmeti
Maís með kryddsmjöri
Kokteiltómatar og mozzarella
Hvítlaukssósa
Kóteletturnar grillaðar á meðalháum hita.
Snúið þeim eftir nokkrar mínútur uns þær eru
passlega eldaðar. Á sama tíma skal setja ál-
bakkana á grillið. Grillið uns tilbúið.
Berið fram með hvítlaukssósu.
Grillaðar lambakótelettur með mögnuðu meðlæti
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
Allir M E Ð M B L . I S O G H A G K A U Pgrilla
Þór Bær
skemmti
öll laugar
frá 20.00 ti
ing sér um að allir
sér vel á Þórskaffi
dagskvöld á K100
l 00.00