Morgunblaðið - 27.05.2021, Page 54

Morgunblaðið - 27.05.2021, Page 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 ✝ Ingvar Svein- björnsson fæddist í Kópavogi 25. september 1950. Hann lést á heimili sínu í Vest- urbæ Reykjavíkur þann 16. maí 2021. Foreldrar hans voru Ásgerður Ólafsdóttir sauma- kona úr Reykjavík, f. 26.5. 1917, d. 4.1. 1995, og Sveinbjörn Hannesson húsasmiður frá Sólheimum í Austur-Húnavatnssýslu, f. 17.10. 1915, d. 8.1. 1981. Systkini Ingv- ars eru: 1) Ásdís Lilja, f. 27.7. 1944, 2) Hannes, f. 27.9. 1946, 3) Ingibjörg, f. 13.10. 1952, 4) Jak- obína, f. 13.10. 1952, d. 17.11. 1992, 5) Elín Hallveig, f. 6.4. 1955, 6) Ívar, f. 22.10. 1956, d. 22.8. 2016, 7) Eygló, f. 22.12. 1957, 8) Ólafur Hrafn, f. 14.10. 1960. Ingvar kynntist Ingibjörgu kona hans er Íris Stella Heið- arsdóttir, f. 3.9. 1987. Dætur þeirra eru Hildur Elín, f. 3.8. 2013, og Eygló Sara, f 19.2. 2019, 4) Sólborg Erla, f. 21.2. 1987, gift Jóni Steini Elíassyni, f. 10.2. 1987. Synir þeirra eru Ingvar Sölvi, f. 1.5. 2019, og Þorkell Ari, f. 17.2. 2021, 5) Skúli, f. 12.9. 1994. Ingvar ólst upp í Kópavogi. Hann útskrifaðist frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1971. Þá stundaði hann nám við laga- deild Háskóla Íslands og útskrif- aðist þaðan árið 1978. Eftir út- skrift hóf hann störf hjá Bruna- bótafélagi Íslands, sem síðar sameinaðist VÍS, þar sem hann starfaði til ársins 2001. Ingvar fékk málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti árið 1994. Frá árinu 2001 starfaði hann sjálfstætt við matsmál og málflutning. Samhliða lögfræðistörfum vann Ingvar alla tíð við járna- bindingar. Hann lagði járn í mörg merk hús í borginni, svo sem hús Seðlabanka Íslands og hús Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýri. Útför Ingvars fer fram frá Neskirkju í dag, 27. maí 2021, klukkan 13. Eygló, f. 27.4. 1950, árið 1972 og þau giftust þann 18.3. 1978. Foreldrar hennar voru Elín Kjartansdóttir, f. 9.4. 1922, d. 3.8. 2003, og Óskar L. Ágústsson, f. 20.12. 1920, d. 14.10. 2013. Börn þeirra eru: 1) Óskar Örn, f. 26.12. 1973. Sambýliskona hans er Valgerður Ófeigsdóttir, f. 21.6. 1971. Dætur Óskars og Guðrúnar Bjargar Karlsdóttur eru Eygló Kristín, f. 31.1. 2001, og Karólína Björg, f. 4.5. 2007. Börn Valgerðar eru Þorbjörg Sigríður og Pétur Ófeigur, 2) Kjartan, f. 3.3. 1979, kvæntur Sólveigu Stefánsdóttur, f. 24.11. 1979. Börn þeirra eru Kári, f. 20.7. 2007, Hekla, f. 18.8. 2010, og Lóa Bryndís, f. 3.7. 2014, 3) Ágúst, f. 11.2. 1984, sambýlis- Það er þyngra en tárum taki að setjast niður og skrifa minn- ingarorð um pabba okkar, en slík skáldleg upphafsorð eru ein- mitt í hans anda. Gerðum við börnin oft grín að honum fyrir háleita texta hans. Hann var sérstakur áhugamaður um minningargreinar, enda áhuga- samur um fólk og hagi þeirra. Pabbi var víðlesinn, hvort sem var í skáldverkum, mann- kynssögu eða fréttum líðandi stundar. Hann var alltaf með staðreyndir á kristaltæru ef grípa þurfti til í rökræðum, kannski of miklar á stundum, þannig að viðmælanda gramdist. Pabbi hafði samt einstakan húmor og tók sig ekkert of al- varlega. Auk þess að vera vel lesinn lágu margvísleg verk vel fyrir pabba. Má meðal annars nefna að stjórna lögn steypustyrktar- járns í byggingar, leysa úr flóknum lögfræðilegum álitaefn- um og róa skapmikil börn og barnabörn. Hæg voru heimatök- in þar sem hann rak lögmanns- stofu og járnafyrirtæki frá sínu eigin heimili. Pabbi var ávallt stefnufastur og það var líkt og hann hefði innri áttavita sem skeikaði sjald- an. Hann setti sér markmið og stóð við þau. Hvort sem var í vinnunni eða að búa hag fjöl- skyldunnar sem best. Pabbi var nægjusamur en leyfði sér fleiri lystisemdir lífsins í seinni tíð, svo sem ómetanleg ferðalög með fjölskyldunni víðsvegar um heiminn. Milli þess sem torfærir slóðar á hálendinu voru kann- aðir og þröng stræti evrópskra borga kortlögð lagði pabbi í ferðalög um götur heimaborg- arinnar Reykjavíkur í daglegum göngutúrum. Það er sárt að hugsa til allra stundanna með pabba sem aldr- ei verða og ferðalaganna sem aldrei verða farin. Á sama tíma erum við þakklát fyrir þær stundir sem við fengum með honum og að hann hafi ávallt verið til staðar fyrir okkur. Við bíðum þess að hann setjist við eldhúsborðið með málaskjölin sín og blandi sér í eldhúsum- ræðuna. Elsku pabbi, við munum sakna þín. Óskar, Kjartan, Ágúst, Sólborg og Skúli. Ævisaga látins manns byggist upp af ótalmörgum litlum augnablikum, hversdagslegum atvikum, fáum stórum en mörg- um smávægilegum ákvörðunum og venjulegum dögum sem renna saman í eina stóra heild. Grunnstefið í ævisögunni eru gildin sem hann lifði eftir, með- vitað eða ómeðvitað, þræðir sem ristu svo djúpt í sálinni að ómeðvitað stýrðu þeir stefnunni og mótuðu þann farveg sem lífið flæddi áfram í. Nú á kveðju- stundu, þegar við ástvinir lítum yfir farin veg, blasa þessi lífs- mótandi gildi betur við en nokkru sinni áður. Ingvar tengdafaðir minn átti sér ólíkar hliðar. Margir myndu jafnvel kalla þær andstæður. Hann var einstaklega verklag- inn, en jafnframt vel lesinn og hafsjór af fróðleik um ýmis mál- efni. Ævistarf hans litaðist af þessu, á daginn starfaði hann sem lögfræðingur, mætti fyrir rétt snyrtilegur til fara í jakka- fötum og flutti mál sín af kost- gæfni, en að vinnudegi loknum skipti hann yfir í gatslitna lopa- peysu til þessa vinda sér í hitt ævistarfið, járnabindingar. Vinnusemin var Ingvari eðlis- læg og hann lagði mikið á sig til þess að byggja sér og sínum gott líf. Hann fór aldrei fram úr sér í fjárhagslegum skuldbind- ingum, heldur lagði fyrir og lét vera að dreyma um það sem hann gat ekki eignast. Var þó alltaf örlátur gagnvart sínum nánustu og studdi með ráðum og dáð fjölskyldu sína. Ingvar fór ekki hátt með það, en hann var mikill mannvinur og lagði sig fram við að hjálpa þeim sem urðu á vegi hans og minna máttu sín. Í framkomu hans í garð þessa fólks, hvort sem það tengdist honum blóð- böndum eða ekki, skein í gegn sú virðing sem hann bar fyrir fólki. Ingvar gaf af sér og hjálp- aði öðrum, ætlaðist ekki til neins í staðinn og hafði enga þörf fyrir að hampa sjálfum sér fyrir góðmennsku sína. Hjálp- semin virðist hafa verið næg umbun í sjálfri sér. Í samfélagi eins og okkar þar sem einstak- lingum farnast misvel á lífsins braut eru gildi eins og þessi hjálpsemi Ingvars mikilvægari en við gerum okkur grein fyrir. Ákvarðanir sem virðast smá- vægilegar fyrir okkur geta skipt sköpum fyrir aðnjótandi. Það er sárt að þurfa að kveðja Ingvar langt fyrir aldur fram og stórt skarð er hoggið í samheldna fjölskyldu. Sorgin er mikil og nú stöndum við frammi fyrir því að minningarnar verða að duga okkur, í stað vænting- anna sem við höfðum um bjarta framtíð og nægan tíma saman. Sjálf ætla ég að halda á lofti minningu að gagnvart börnum mínum um góðan afa sem lifði eftir mikilvægum gildum sínum, gaf af sér og lagði sig fram við að styðja þá sem minna máttu sín. Elsku Eygló og fjölskylda, mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Hvíl í friði kæri Ingvar, þín verður sárt saknað. Sólveig Stefánsdóttir. Ingvar, þú varst mikil kjöl- festa í lífi litlu fjölskyldunnar okkar og skilur eftir þig stórt og mikið tómarúm sem mun reynast erfitt að fylla. Við eigum bágt með að trúa því að þú sért far- inn. Þú hjálpaðir okkur virkilega mikið með alls konar hluti sem var ekki sjálfgefið. Við verðum þér ævinlega þakklát. Þú hjálp- aðir okkur mikið með húsið okk- ar, hvort sem það var í formi ráðgjafar eða með líkamlegri vinnu. Nú seinast buðuð þið Eygló heimili ykkar á meðan við tækj- um nýja húsið okkar í gegn. Á meðan við fengum að búa hjá ykkur var svo gaman að fylgjast með hvað þú varst góður afi stelpnanna okkar og vildir allt fyrir þær gera. Sem dæmi þá gafstu alltaf Hildi dóttur okkar sætið þitt við morgunverðarborð- ið, því þú vissir að henni fannst þægilegra að sitja á bekknum. Einnig varstu í miklu uppáhaldi hjá henni Eygló Söru. Þú varst maðurinn sem gat lagað allt. Ef eitthvað brotnaði þá hafði hún ekki miklar áhyggjur af því og sagði einfaldlega afi laga. Við erum þakklát fyrir allar samverustundirnar og öll ferða- lögin sem við fengum að fara með þér. Við munum sakna þín og varðveita þessar minningar alla daga. Ágúst, Íris, Hildur Elín og Eygló Sara. Við vorum döpur þegar við heyrðum að þú værir farinn , svona allt of fljótt. Þú varst sér- stakur maður á svo margan hátt. Örugglega með heilsteypt- ari mönnum sem ég hef kynnst um ævina, einstaklega hjálpleg- ur og traustur vinur. Alltaf gott að geta leitað í Vesturbæinn. Ég skrifa þessi fátæklegu orð fyrir hönd systur þinnar og mín. Henni þótti svo innilega vænt um þig og er miður sín yfir því að vera á spítala og geta ekki kvatt þig almennilega. Hvíl í friði vinur. Elsku Eygló og börn, inni- legar samúðarkveðjur. Þín systir Ingibjörg (Imba) og Örn. Það er andvökubjart, himinn, kvöldsólarskart. Finnum læk, litla laut, tínum grös, sjóðum graut. (Mugison) Ingvar var mikill náttúruunn- andi og naut þess að fara með fjölskyldunni út fyrir bæinn og „finna læk og litla laut“, gæða sér síðan á flatkökum með hangikjöti og drekka jafnvel kók með! Áhugi hans á íslenskri nátt- úru vaknaði snemma. Hann ólst upp í stórum systkinahópi við gamla Fífuhvammsveginn þar sem óbyggð víðerni freistuðu þessara kraftmiklu systkina. Þar gáfust endalausir möguleikar til að leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín bæði við Kópavogslæk og í móunum hinum megin. Það var snemma ljóst, að Ingvar bjó yfir mikilli skapfestu og metnaði. Hann var ákveðinn í að öðlast góða menntun og lagði hart að sér í lögfræðinámi til að verða framúrskarandi lögmaður. Aðalstarf Ingvars eftir nám var lögmannsstörf, fyrst hjá Brunabótafélagi Íslands og síðar í ábyrgðarstörfum hjá VÍS. Hann varð hæstaréttarlögmaður á þessu tímabili og rak mörg mál fyrir Hæstarétti bæði þá og síðar. Sem unglingur fór hann í sumarvinnu með húsasmiðnum pabba sínum. Þá var Hákon Tryggvason, magister og menntaskólakennari, að vinna í sömu húsbyggingu við járna- bindingar. Ingvar fylgdist grannt með honum og hand- brögðum hans og sumarið á eftir falaðist hann eftir vinnu hjá Há- koni. Hann var fljótur að læra og snemma gat Hákon sent hann einan í ýmis verkefni. Þar með var brautin lögð og hann gat unnið fyrir sér og sínum á námsárunum með járnabinding- um og áfram þegar tækifæri gáfust. Með árunum tók Ingvar að sér ýmis verkefni í járnabind- ingum, jafnvel stór eins og Seðlabankann og Erfðagrein- inguna. Bræður hans þrír, öll börnin hans, börnin okkar fjög- ur og ótal margir ættingjar og vinir fengu sína eldskírn á veg- um Ingvars við sumarvinnu í járnabindingum. Ingvar var mjög hávaxinn og kraftmikill maður með þykkt, ljóst og liðað hár. Hann bar með sér höfðinglegt yfirbragð og var fyrst og fremst ímynd hins trausta leiðtoga. Gjafmildi hans var einstök og umhyggja fyrir þeim sem minna máttu sín var orðlögð en hann gat líka verið mjög fastur fyrir. Hann var ein- stakur fjölskyldumaður og það sem hann unni mest af öllu í líf- inu var Eygló eiginkona hans, börnin fimm og fjölskyldur þeirra. Hann var einstaklega umhyggjusamur og góður sonur og bróðir. Á miðjum aldri yfirgaf hann fast starf og flutti lögmanns- störfin heim, þar sem hann gat unnið innan um skjöl sín og bækur. Það truflaði hann ekki þó að barnabörnin lékju sér í kringum hann, síður en svo. Þannig vildi hann hafa lífið. Hann var vel lesinn bæði í skáldskap og margs konar fróð- leik, sem sýndi sig best í ferða- lögum fjölskyldunnar um heim- inn. Við hjónin kveðjum einstakan mann – kæran bróður og mág – heilsteyptan öðling með hjartað á réttum stað. Börnin okkar Sveinbjörn, Einar, Ásgerður og Sigurður sakna föðurbróður sem reyndist þeim ætíð sem best. Megi minning hans lifa með öll- um þeim fjölmörgu sem dáðu hann og elskuðu. Við vottum Eygló, börnunum, tengdabörn- um og barnabörnum innilega samúð okkar. Hvíl í friði elsku bróðir og mágur, Hannes Sveinbjörnsson og María Louisa Einarsdóttir. Ég man fyrst eftir Ingvari Sveinbjörnssyni þegar ég var fjögurra ára gamall drengur þar Ingvar Sveinbjörnsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR ÁRNASON, fv. framkvæmdastjóri, Jaðarleiti 4, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu laugardaginn 22. maí. Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hins látna. Margrét Ingvarsdóttir Hrefna Ingólfsdóttir Auðunn Pálsson Erna Vigdís Ingólfsdóttir Kjartan Ísak Guðmundsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn og bróðir okkar, INGIMAR ADÓLFSSON, lést laugardaginn 8. maí í Malmö, Svíþjóð. Jarðarförin fer fram í Malmö laugardaginn 29. maí. Lotzy Adólfsson Reynir Adólfsson Friðrik Adólfsson Ástkær móðir mín, amma og langamma, HRAFNHILDUR RAGNARSDÓTTIR, Höfðavegi 3, Húsavík, lést þriðjudaginn 27. apríl. Útförin fór fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 15. maí. Þökkum hlýhug og vinsemd alla. Ragnheiður Gísladóttir Hrafnhildur, Gísli Björn, Matthías og langömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍS GUNNAR KRISTJÁNSSON húsasmíðameistari, lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 25. maí. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaða fyrir einstaka hlýju og umhyggju. Ólafur Elísson Stella Skaptadóttir Anna Björg Elísdóttir Stefán Jóhann Björnsson Atli Þór Elísson Hlynur Elísson Addý Ólafsdóttir Trausti Elísson Sif Þórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg mamma mín, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, HELGA STEINUNN JÓNSDÓTTIR frá Syðstabæ í Hrísey, verður jarðsungin frá Hríseyjarkirkju laugardaginn 29. maí klukkan 14. Athöfninni verður einnig streymt á https://fb.me/e/1sKY6iDrD Jóna Jóhannsdóttir Hannes Sveinn Gunnarsson ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT VALTÝSDÓTTIR, Ársölum 3, Kópavogi, lést á heimili sínu laugardaginn 22. maí. Útförin fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn 1. júní klukkan 15. Arnar Viðar Halldórsson Valdís Arnarsdóttir Guðmundur Hrafnkelsson Halldór Arnarsson Borghildur Sigurðardóttir Sigurborg Arnarsdóttir Helgi Ólafsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.