Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 55

Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 55
MINNINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 sem ég var hjá ömmu minni Ás- gerði Ólafsdóttur og afa mínum Sveinbirni Hannessyni að Fífu- hvammi 13 í Kópavoginum. Ég heillaðist strax af þessum frænda mínum og hann sýndi mér sérstaka ást og umhyggju. Mér fannst Ingvar vera vitur og frásagnir hans voru skemmtileg- ar. Ingvar sagði að hann væri að læra lögfræði og þá meðal ann- ars til þess að sigra fjarstýrða og ekki fjarstýrða óvini okkar. Ég kom svo oftar í heimsóknir til ömmu og afa í Kópavogi og ég gisti þá nokkrar nætur og þá var glatt á hjalla. Ingvar frændi minn kom vel fyrir sig orðum og hann gerði umræðurnar þar sem við skyldmennin sátum við borðið í eldhúsinu mjög líflegar. Við skyldmennin vorum sam- mála um að hann Ingvar væri greindur maður og mikill leið- togi. Ingvar kom oft til okkar fjölskyldunnar að Víðivöllum 17 á Selfossi og þá stundum einn eða með fleiri skyldmennum okkar eða fjölskyldu hans sem stækkaði hratt. Ingvar kom oft að máli við mig og hann gaf mér dýrmætt veganesti fyrir fram- tíðina. Ingvar og eiginkona hans Eygló Óskarsdóttir byggðu sér fallegt hús að Granaskjóli 90 á Seltjarnarnesi og mér leið ein- staklega vel hjá þeim og fallegu börnunum þeirra þar. Ingvar Sveinbjörnsson átti mjög far- sælt starf hjá Vátryggingafélagi Íslands með því frábæra starfs- fólki sem hefur unnið þar. Ingv- ar var fjárhaldsmaður minn í nokkur ár frá því ég var búsett- ur að Meðalholti 13 í Reykjavík. Ég lauk námi frá guðfræðideild Háskóla Íslands og námi frá Kennaraháskóla Íslands en því miður misstum við flest af þeim, sem vorum samferða í námi í báðum skólunum, minnið. Ég missti prófskírteini mín en lög- reglufólkið sem ég var í sam- bandi við þá sagði að það myndi senda þau til mín þegar yrði bú- ið að vista ekki fjarstýrða óvini okkar í fangelsi. Ingvar frændi minni fræddi mig um ástæð- urnar fyrir því að fjarstýrðu og ekki fjarstýrðu óvinir okkar vildu svipta mig minninu og prófskírteinum mínum og hann sagði að þeir vildu gera prest- dæmi þeirra máttugra. Ingvar var von mín um að ég myndi eiga góða framtíð og að heilsa mín myndi batna. Ég er ekki frá því að Ingvar var mikill græðari og ég veit að hann hafði mjög góð áhrif á þá einstaklinga sem voru nálægt honum. Ég sendi fjölskyldu Ingvars, fjölskyldu minni og skyldmennum mínum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin um góðan dreng mun lifa. Kristján Gissurarson. Snöggt andlát mágs míns Ingvars Sveinbjörnssonar kem- ur róti á hug okkar allra sem þekktum hann. Hugurinn fyllist af sorg og eftirsjá en jafnframt þakklæti. Sorg yfir missi svo margra. Þakklæti fyrir alla hjálpsemina og greiðviknina. Hann stærði sig ekki af vel- gjörðum sínum, laumaði gjarnan seðli í lófa þeirra sem höllustum standa fæti, gaf mörgum góð ráð og stuðning sem um hefur munað. Leitun er að samhentari fjöl- skyldu en þeirri sem þau systir mín hafa staðið vörð um, hlúð að á alla lund. Þannig lifir ljúf minning áfram, gott atlæti barna erfist langt fram í fram- tíðina, barn af barni. Ingvar varði frítíma sínum eingöngu í þágu fjölskyldu sinn- ar. Bæði með vinnuframlagi í ófáum íbúðum sem lagfæra þurfti þegar börnin stofnuðu sín eigin heimili sem og barnapöss- un og öðru tilfallandi sem upp kemur í stórri fjölskyldu. Þegar Ingvar var í lögfræði- námi vann hann samhliða við járnabindingar til að fjármagna námið. Eftir að námi lauk vann hann sem lögfræðingur á daginn en hélt áfram járnabindingum á kvöldin og um helgar. Fyrstu árin voru frí fjölskyld- unnar bundin við sumarbústa- ðadvöl í leigubústað með barna- hópinn sinn góða, en seinustu árin leyfðu þau sér að fara í langar ævintýraferðir með börn, tengdabörn og barnabörn til út- landa. Þetta hefur þeim tekist með eljusemi og sameiginlegri sýn á hvað skiptir máli í lífinu. Skarð Ingvars er stórt og ekki séð að það verði auðveld- lega fyllt. Bestu þakkir, Ingvar. Erla Sólveig. Við höfum þekkt Ingvar Sveinbjörnsson í tæp 50 ár, en fundum okkar bar fyrst saman á Haðarstíg 12 sem var fyrra heimili Ingvars og Eyglóar. Þar komum við oft í mörg skemmtileg afmælisboðin, í þetta litla vinalega hús, þar sem börn okkar voru á svipuðum aldri og þeirra. Síðan liðu árin og þau byggðu heimili í Granaskjóli 90 og það- an eru margar góðar minningar. Fjölskylduferðir voru alltaf farnar á sumrin hjá þessari stórfjölskyldu og var Ingvar ávallt þar fremstur í flokki. Ingvar hafði gaman af rökræð- um og var góður í þeim. Gott var að leita til hans með ým- islegt hvort sem var lögfræði eða járnabindingar því Ingvar var einnig verktaki í járnabind- ingum. Við hjónin byggðum hús í Hafnarfirði og þar kom óvart kjallari vegna mælingarskekkju og gólf var ekki sett í hann í upphafi. Ingvar lagði járn í gólf- ið og var það bara vinargreiði. Við kveðjum hér góðan, gegn- heilan og traustan vin. Við vottum Eygló og öllum aðstandendum innilega samúð. Auður og Sigurður. Kæru eftirlifandi systkini Ingvars Sveinbjörnssonar: Það er áfall þegar svo aug- ljóslega ágætur maður sem bróðir ykkar fellur frá; ekki bara fyrir ykkur og börnin hans, heldur líka fyrir mig og systkini mín, sem þekktu ykkur flest í Kópavogi austurbæ í gamla daga, í tengslum við skólagöngu, sem og svo Ingvar sjálfan löngu síðan! Að ekki sé nú talað um alla hina nágrannana sem hafa þekkt ykkur þar þá líka. Fyrir mér var Ingvar þessi duglegi og vinnusami mennta- maður, sem átti þó sínar mjúku hliðar, í bókmenntaáhuga, jafn- réttisáhuga og fjölskyldumálum. Það snart mig líka djúpt þegar ég frétti af fráfalli annarra fjöl- skyldumeðlima hans í gegnum tíðina. Hann virtist sjálfur hafa átt vel heppnaða tíð út starfsævina. Hann þáði og ljóðabækur og önnur skáldrit mín frá mér. Því þykir mér nú viðeigandi að þakka fyrir kynnin með því að vitna að lokum í eitt ljóða minna, sem á að lýsa alþýðu- manni sem finnst að lífið hafi gengið upp nokkurn veginn eins og vona mátti, en það heitir: Bóndasonur og MA-stúdent, og hefst það á þessum orðum: Ég ólst upp við sumarvinnu í steikjandi hita sláttanna; þar sem hjartað hoppaði hæð sína við titrandi tíbrá fjalla! En vildi þó, sem kappi, ennþá meira; og náði þá að þrýstast inn í MA; sjálfan Menntaskólann á Akureyri; þar sem menntaskólastúlkur skvöldruðu meira en fiskvinnslu- og bændakonur; og undi mér svosem dável hjá þeim … Tryggvi V. Líndal. Hávaxinn, nokkuð hraðskreið- ur á göngu, farinn aðeins að grána eins og gengur, yfirleitt útitekinn í sinni brúnleitu jak- kaúlpu, ekki með fartölvu eða tösku heldur skjöl undir hendi, sitjandi íbygginn yfir skjölum oft með hönd í hári eða hallandi sér aftur í stólnum með gler- augun á enni, jafnvel með annan gleraugnaarminn í munnviki, kankvís og glettinn hrærandi í kaffibolla með skeið. Þannig birtist mér góður vinur og náinn samstarfsmaður, Ingvar Svein- björnsson, ljóslifandi fyrir aug- um en Ingvar minn hefur nú óvænt kvatt okkur allt of fljótt. Það var sameiginlegur vinur okkar Gylfi Thorlacius sem kynnti okkur til leiks og við tók farsælt samstarf til fjölda ára, svo farsælt að við vorum oftast komnir að sömu niðurstöðu án orða. Ingvar var ákaflega virtur lögmaður með mikla reynslu úr tryggingageiranum en vel að sér um alla almenna lögfræði auk þess að vera gegnumheilt vel lesinn. Það var ekki bara bókvit- ið sem sett hafði verið í aska hans heldur einnig gott verksvit en Ingvar var víðfrægur járna- bindari og starfaði við það jafn- framt lögmannsstörfum sem þótti ekki á hvers manns færi. Sú verklega þekking reyndist honum einnig mjög vel þegar kom að lögfræðilegu mati. Ingv- ar, sem hafði ferðast víða, bæði hérlendis og erlendis, var ein- staklega fróðleiksfús og það var varla sú þúfa hérlendis sem hann ekki þekkti. Þetta braut ósjaldan upp fundi okkar með fólki utan af landi því hann þurfti þá oft að vita ýmislegt ótengt, s.s. hvort ákveðinn bóndi væri búinn að stækka fjósið eða hvort búið væri að lagfæra ein- hverja brú í sveitinni. Ingvar gekk í gegnum tvo erfiða sjúk- dóma með stuttu millibili fyrir þó nokkrum árum en hristi það fljótt af sér og ekki lengi frá vinnu. Hugði vel að heilsunni og þau hjónin fóru reglubundið í góða göngutúra. Ekki var annað að sjá en hann væri hreystin uppmáluð og því kom skyndileg brottför hans mikið á óvart. Ingvar er nú farinn heim eins og skátarnir segja og ég er viss um að þeir Gylfi skiptast nú sem fyrr á sögum. Eftir situr þó fjöl- skyldan harmi slegin og bið ég almættið að styrkja þau og styðja en minningin um góðan og einstakan mann lifir. Far vel minn kæri vinur og við þrímenn- ingarnir spjöllum betur síðar. Sigurður Ásgeir Kristinsson. Góður samstarfsfélagi til margra ára er fallinn frá. Okkur setti alla hljóða við þessar óvæntu fréttir. Efst í huga okk- ar er þakklæti fyrir áratuga gott samstarf og innlegg hans í þró- un matsstarfa í samstarfi lækna og lögfræðinga. Það var ánægju- legt og gefandi að vinna með Ingvari, þar sem léttleiki hans og fagmennska var í fyrirrúmi. Hann var ráðagóður og gott að leita til hans þegar lögfræðileg álitmál og vangaveltur voru til skoðunar. Ingvar hafði oft mjög ákveðnar skoðanir og gat verið nokkuð fastur fyrir, en það kom ekki í veg fyrir samkomulag við frágang verkefna þannig að allir væru sáttir. Við söknum venju hans að hafa alltaf gott bakkelsi á borðum í kaffitímum sem hann veitti sáttfús. Þá var mikið spjallað og víða komið við. Minningin lifir um góðan dreng og fagmann. Við sendum eiginkonu hans, börnum og ætt- ingjum innilegar samúðarkveðj- ur. F.h. Læknaráðs ehf., Guðmundur Björnsson, Guðni Arinbjarnar, Ragnar Jónsson. Foringinn er fallinn. 1988 hóf ég störf sem járnabindingamað- ur. Fyrsta verkið var með Hannesi bróður Ingvars. Fékk að vita að ég væri að hefja störf með hópi manna sem stjórnað væri af lögfræðingi sem ynni hjá Brunabótafélaginu. Þetta væri hópur háskólamenntaðra manna, skálda, listamanna og lífskúnst- nera. Stjórnað af lögfræðingi? Mitt frjóa ímyndunarafl kallaði fram mynd af fölleitum manni sem dagsdaglega velti við blöð- um á skrifborði. Skömmu síðar á sólríkum degi sem ég var að bogra yfir járnum fellur skyndi- lega á mig skuggi. Yfir mér stóð risi, þetta var Ingvar Svein- björnsson. Við tókumst í hendur og þar með hófst áratuga sam- starf. Járnabindingar eru harðræði, sérstaklega þegar um aukavinnu er að ræða. Elja og úthald Ingv- ars var með ólíkindum. Nú er flokkurinn í lágmarki en þegar best lét var á annan tug manna að störfum, bæði lausamenn og aðrir í fullu starfi. Ingvar hélt um alla enda stjórnaði eins og góðum foringja sæmir. Stóð jafnvel inni á miðju dansgólfi fyrir austan fjall og benti ung- um mönnum á að þeir ættu að mæta til vinnu daginn eftir, þannig að það væri eins gott að koma strax með í bæinn. Ingvar var harður af sér, hlífði sér aldr- ei en mikill mannvinur. Gegnum tíðina hefur hann bjargað fjár- hag margra lífskúnstnera sem rekið hefur á fjöru hans. Ingvar var afar íhaldssamur járnamaður. Allt átti að gerast eftir hans lögmáli og hans leið var hin eina rétta. Hann átti einnig erfitt með nýjungar eins og rafklippur og beygjuvélar. Við áttum samræður um hvort rétt væri að fjárfesta í bindi- vélum, munu þær virka? Það tók víst sinn tíma fyrir Ingvar að taka þvíumlíkar græjur í sátt. Það sama má segja um allan ör- yggisbúnað eins og heyrnarhlíf- ar, hjálma og öryggisskó. Má þar vitna í mentor Ingvars í járnabindingum, hann Hákon Tryggvason. Hákon var spurður á vinnustað hvort hann vildi ekki bera hjálm, Hákon greip í derið á húfunni sinni og sagði: „Þessi hefur dugað mér hingað til.“ Ingvar var fyrstu ár mín í dönskum fótlaga skóm úr mjúku leðri. Ég skil ekki enn hvernig Ingvar gat beygt niður járn í heilu plötunum með því að spyrna á móti með mjúkri skótá. En auðvitað varð á þessu breyt- ing. Þegar við vorum að binda járn í vegskálann norðan megin við Hvalfjarðargöng var Ingvar ekki búinn að vera þar í marga klukkutíma þegar yfirverkstjóri verksins koma að máli við hann og tjáði Ingvari að það væri skylda að ganga í öryggisskóm á svæðinu og hann ætti par sem væri nægilega stórt. Ingvar var varla búinn að vera í örygg- isskónum í korter þegar þung stæða af járni hrundi úr tölu- verðri hæð ofan á tærnar á hon- um, fótlaga skórnir hefðu dugað skammt. Ingvar fór strax og keypti öryggisskó á alla sína drengi. Ingvar var þjóðsagnapersóna í lifandi lífi og margar sögur sagðar af honum í kaffiskúrnum, en nóg er komið. Mér er þungt fyrir brjósti og harma Ingvar. Ég á örugglega eftir að orna mér við sögur og minningar um foringjann meðan ég man. Ég votta Eygló, börnum og barnabörnum innilegustu sam- úð. Gísli Þór Sigurþórsson. Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Kæru ættingjar og vinir, hjartans þakkir fyrir þá hlýju og samúð sem okkur var sýnd við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGFÚSÍNU STEFÁNSDÓTTUR, Sínu. Sérstakar þakkir eru sendar til alls starfsfólks HSN Siglufirði fyrir einstaka umönnun og hlýju. Jón S. Björgvinsson Ingibjörg H. Kristjánsdóttir Gunnlaugur S. Vigfússon Þóra B. Jónsdóttir og fjölskyldur Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við fráfall elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR J. AÐALBJARTAR EINARSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Roðasölum fyrir einstaka umönnun. Björgvin Sigurjónsson Sædís Magnúsdóttir Margrét Björnsdóttir Guðmundur Hallgrímsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir samúð, stuðning og hlýhug við veikindi, andlát og útför elsku TRAUSTA Ó. LÁRUSSONAR fv. framkvæmdastjóra. Hanna M. Kjeld Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason Anna Kristín Traustadóttir Sigrún Traustadóttir Elín Ósk Guðmundsdóttir Ómar Bendtsen Trausti Guðmundsson Ása Bergsdóttir Sandholt Svava Dís Guðmundsdóttir Friðjón Ástmundsson Bjarni Guðmundsson Vaka Dagsdóttir og langafabörn Elsku Ingi frændi, ég minnist þín með hlýju og ást í hjarta en þú áttir alltaf sérstakan stað í hjarta mínu. Þú passaðir okkur systkinin þegar við vorum lítil og fórst með okkur á Kaffi- vagninn og að skoða bátana við höfnina. Þegar ég var farin að búa komstu við í kaffi endrum og eins og þú bankaðir ekkert held- ur labbaðir bara inn og sagðir hátt og snjallt „halló“. Ég átti alltaf til molasykur í kaffið bara fyrir þig en þú varst þó farinn að geyma mola í vasanum þar sem ekki var alltaf til moli á öllum Ingi Þór Bjarnason ✝ Ingi Þór Bjarnason fæddist 31. desem- ber 1943. Hann lést 10. maí 2021. Útför Inga Þórs fór fram 20. maí 2021. heimilum í seinni tíð. Þú hjálpaðir okkur að mála húsið þegar við fluttum til Íslands og ekki stóð á því að koma hið snarasta með næsta strætó frá Akranesi og ganga í verkið. Þú varst yndislegur með börnunum mín- um og þeim fannst þú spennandi og skemmtilegur. Þú varst svo þakklátur og kátur þegar ég hringdi í þig til að bjóða þér að vera með okkur nokkur áramót og á afmælinu þínu en þú áttir af- mæli á gamlársdag. Elsku Ingi frændi, með sorg í hjarta kveð ég þig og bið Guð að vera með þér og trúi því að Þóra frænka gefi þér nýbakaðar kleinur og kaffi með mola. Þín frænka, Þóra Leifsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.