Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 64
64 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Leggðu þig fram við að hjálpa öðrum í dag. Haltu þínu striki og þá mun allt fara vel. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú ert full/ur viðkvæmni og vænt- umþykju þessa dagana. Fjarlægðu tvo hluti af listanum sem þú ert með í koll- inum og sjáðu hvað þú hressist mikið. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Ekki reyna að fela hina léttu og jafnvel barnalegu hlið þína fyrir öðrum í dag. Gleymdu ekki að sinna áhugamálum þínum þó mikið sé að gera. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú hefur mikið að gera og skalt ekki fara út í stórar framkvæmdir á heim- ilinu. Ekki gefast upp! Þó öll þín áform gangi ekki eftir skaltu ekki flýja af hólmi. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú verður að brjóta odd af oflæti þínu og leita eftir samstöðu annarra við verkefni þitt. Þú ættir að fara til læknis ef eitthvað er að hrjá þig. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Verkefnin hlaðast upp og það veld- ur þér áhyggjum. Lestu þér til ef þú getur og þú leysir verkefnin ein/n og óstudd/ ur. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú þarft að læra ýmislegt um sjálfa/n þig með því að skoða nánustu sambönd þín. Þú leitar leiða til að auka tekjurnar. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það sem maður laðast að og það sem gerir manni gott er ekki endi- lega alltaf það sama. Gættu orða þinna. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þig langar til þess að kaupa eitthvað fallegt handa þér eða einhverjum nákomnum. Reynstu ráðþrota vini vel. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Láttu draumórana ekki ná þannig tökum á þér að þú hafir ekki hug- ann við vinnuna. Rómantíkin þarfnast bæði svigrúms og umönnunar. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Töfrar verða til hvar sem er og hvenær sem er ef þú ert með einhverjum sem þú heillast af. Vertu viss um hvað þú vilt. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Það eru allar líkur á því að þér takist nú ætlunarverk þitt ef þú aðeins treystir á sjálfa/n þig. Boð í brúðkaup hressir þig og kætir. R annveig Einarsdóttir er fædd 27. maí 1961 í Reykjavík og ólst upp í Árbæjarhverfinu. Á sumrin var hún ásamt systkinum og foreldrum að Urriða- fossi í Flóa þar sem fjölskyldu- faðirinn veiddi lax í net á æskuslóð- um sínum. „Ég hef enn sterk tengsl við Urriðafoss þar sem ég á jörð ásamt systkinum mínum. Einar fað- ir minn starfaði lengi sem umsjón- armaður í Iðnó sem þá hýsti Leik- félag Reykjavíkur. Ég starfaði þar með skóla og fylgdist vel með öllum leikritum sem þá voru sýnd. Þar vaknaði áhugi á leikhúsi sem haldist hefur æ síðan.“ Rannveig gekk í Ábæjarskóla og tók stúdentspróf frá Mennta- skólanum við Sund árið 1981. Hún útskrifaðist með BA-próf í félags- fræði og lauk starfsréttindanámi í félagsráðgjöf 1986, hvort tveggja frá Háskóla Íslands. Árið 2005 lauk Rannveig meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá HÍ. Eftir háskólanám 1986 hóf Rann- veig störf sem félagsmálastjóri á Ísafirði en síðan lá leiðin á Suður- nesin og starfaði Rannveig við fé- lagsþjónustu Keflavíkur og síðar Reykjanesbæjar í yfir 20 ár. Rann- veig bjó í átta ár í Grindavík og síð- an í Keflavík. Árið 2011 var Rann- veig ráðin sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðar. Með starfi hefur Rannveig m.a. leiðbeint félagsráðgjafarnemum frá HÍ og verið prófdómari í félags- ráðgjafardeild HÍ. Rannveig hefur setið í fjölda nefnda og starfshópa sem tengjast félagsþjónustu sveitarfélaga. Hún situr nú í félagsþjónustunefnd Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og er formaður Samtaka stjórnenda í vel- ferðarþjónustu sveitarfélaga. Einn- ig situr Rannveig í stjórn European Social Network, sem er evrópskur samstarfsvettvangur stofnana og samtaka í velferðarþjónustu. „Ég hef mikinn áhuga á velferðarþjón- ustu og hvers kyns þróun og nýj- ungum sem varða þjónustu við börn, fjölskyldur og einstaklinga.“ Meðal nýjunga sem hún hefur tekið þátt í að leiða má nefna Brúna, sem samþættir þjónustu við börn, Áfram- verkefnið sem virkjar vinnufæra einstaklinga á fjárhags- aðstoð og Geitungana sem er at- vinnuúrræði fyrir ungt fatlað fólk. Hvammeyri við Tálknafjörð, sem er fæðingarstaður Halldóru móður Rannveigar, er sælureitur fjöl- skyldunnar. „Hvammeyri er ævin- týraheimur þar sem hægt er að sækja sjóinn, ganga á fjöll, njóta myndarlegrar skógræktar og nátt- úrunnar. Þar er fjöldi bygginga sem eru minnisvarði um forna lífs- og atvinnuhætti og hefur fjöl- skyldan lagt metnað sinn í að hlúa að þeim verðmætum.“ Rannveig og Sigurður Helgi Helgason, sambýlismaður hennar, eiga börn sem eru búsett á Íslandi, í Bretlandi, Danmörku og Sviss. „Við leggjum mikla áherslu á að halda góðu sambandi við börn okkar sem kallar á ferðalög sem við bæði höf- um ánægju af. Auk þess höfum við ferðast til fjarlægari staða. Barna- börn Sigurðar eru orðin tvö og er orðið langþráð að sjá fyrir endann á Covid-19 til að hitta þau án hjálpar netsins. Auk þess má nefna að síð- ustu 6 árin hefur beagle-hundurinn Lúcý verið órjúfanlegur þáttur í lífi okkar. Hún var tekin í fóstur eftir að Dóra dóttir Rannveigar flutti til London í nám og síðan til starfa. Meðal helstu áhugamál okkar Sigurðar eru ýmiss konar útivera, s.s. gönguferðir, sund, skíðaferðir og nú síðustu árin er golfið komið á dagskrá. Í fjölmörg ár var farið með börnunum og systkinum norð- ur á Akureyri á skíði um páskana. Við erum í gönguhópi, Derri, sem hefur til margra ára skipulagt gönguferðir og dvalið saman viku- langt um mitt sumar. Ferðirnar eru vel skipulagðar og fara saman góð- ur félagsskapur, göngur, fróðleikur og matargerðarlist. Góður félagsskapur er mikil- vægur og ekki verra ef tónlist og söngur fylgir með. Sunnlenzka menningarfélagið er mikilvægur og framsækinn hópur og hef ég verið þar í forsvari um árabil. Helstu verkefni þar eru ýmsar menning- Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðar – 60 ára Hvammeyri Börnin Ásmundur og Dóra, ásamt Róbert tengdasyni. Sterk tengsl við ættjarðirnar Á Sveinstindi Sigurður og Rannveig. Á Tálknafirði Rannveig í kajak. Jóhann Leó Gunnarsson og Svala Svanfjörð Guðmunds- dóttir eiga sextíu ára brúðkaups- afmæli í dag. Þau voru gefin sam- an í Laugarneskirkju 27. maí 1961 af séra Árelíusi Níelssyni. Jóhann er ættaður frá Eyði í Eyrarsveit og hefur hann starfað sem vélstjóri og múrari. Svala fæddist á Hólmakoti á Mýrum og hefur starfað á Landspítalanum og í Ártúnsskóla. Fyrstu kynni urðu í Reykjavík 1959 og hófu þau sambúð haust- ið 1961 hér í Reykjavík. Þau eiga fjóra syni og tengdadætur ásamt tíu barnabörnum og fjórum barnabarnabörnum. Árnað heilla Demantsbrúðkaup Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. VARANLEG Laser háreyðing •Öflug og áhrifarík háreyðing • Fjarlægir óæskilegan hárvöxt Kostir okkar háreyðingalaser umframönnur lasertæki: . Auðveldara er að losna við ljósari og fíngerðari hár. . Hægt er að losna við hár ámilli augabrúna og í kringumaugabrúnir. . Hægt er að losna við hár inni í eyrumog nefi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.