Morgunblaðið - 27.05.2021, Qupperneq 67
Mourinho minnkar líkurnar á að fá
á sig mark eins og mögulegt er. Liðin
hans bakka og bíða eftir því að mót-
herjinn missi boltann. Þau nýta
augnablikið þegar hann er veikastur
fyrir til að sækja hratt með sem fæst-
um snertingum. Með lágt skrifuðu
liði Porto vann hann UEFA-bikarinn
2003 og Meistaradeildina 2004. Lið
hans fékk ekki á sig mark í undan-
úrslitum eða úrslitaleikjum. Þegar
við í Bayern mættum Inter og Mour-
inho í úrslitaleiknum 2010 vorum við
mátaðir. Um það leyti snerist allt um
að spila gegn boltanum.
Diego Simeone er einn af læri-
sveinum Mourinhos. Hann hefur
mótað Atlético Madrid, litla liðið í
Madrid, sem ellefu manna varnar-
múr í heilan áratug. Hann hefur unn-
ið Evrópudeildina tvisvar og nú er
hann orðinn spænskur meistari í ann-
að sinn. Tvisvar hefur hann komist í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar og
tapað naumlega í bæði skiptin.
Lokaði mótherjana inni
Það var árin 2014 og 2016 en þá
voru samt nýir tímar löngu runnir
upp.
Þetta var blómatími „possession-
fótboltans“. Hann fór af stað með
Pep Guardiola sem svaraði Mourinho
með Sacchi-útfærslu á sóknar-
leiknum. Guardiola gaf svigrúm fyrir
rómantíkina í „total-football“ sem
Cruyff hafði náð fullkomnun með hjá
Barcelona í lok síðustu aldar og leyfði
henni að þróast í nýju blómaskeiði
Barcelona. Hann vildi ná algjörum
tökum á leiknum, lið hans lokaði mót-
herjana inni á eigin vallarhelmingi,
og ef boltinn tapaðist þá átti að vinna
hann strax aftur með fremstu mönn-
um. Þannig lokarðu á uppbyggingu
mótherjanna, þú skapar stanslausan
sóknarleik, sem er bara hægt með
tæknilega frábærum leikmönnum.
Árið 2009 töpuðum við í Bayern 0:4. Í
úrslitaleikjunum 2009 og 2011 fékk
Manchester United nánast aldrei
boltann. Barca hafði yfirburði.
Aðferð Guardiola gegnumsýrði al-
þjóðlegan fótbolta. Nú gerðist allt
hraðar en á tímum Sacchis. Þjálfarar
fundu nýjar lausnir. Real Madrid tók
völdin um miðjan síðasta áratug og
vann titilinn 2014, 2016 og 2018.
Stærsta félag heims nær alltaf í bestu
leikmennina vegna dýrðarljómans.
Það hefði verið erfitt að styrkja frek-
ar lið með Luka Modric, Ronaldo,
Sergio Ramos, Karim Benzema og
Toni Kroos innanborðs. Real hefur
líka sýnt boltameðferð í anda Guar-
diola og notað 4-3-3 byggt á Sacchi,
en aldrei farið út í miklar breytingar
á leikskipulagi. Yfirburðageta ein-
staklinganna er aðalatriðið.
Skipulag lítilmagnans
Árið 2019 komst Jürgen Klopp á
toppinn. Hann svaraði Guardiola með
skipulagi lítilmagnans. Með ástríðu,
líkamsþjálfun, trú og ákveðnu stjórn-
leysi einfaldaði hann fótboltann.
Hann er ekki háður því að vera með
bestu leikmennina, hjá honum er lyk-
ilorðið að vera náinn þeim. Hann
komst með Dortmund í úrslitaleikinn
2013 sem var gríðarlega sterkt. Hjá
Liverpool, rótgrónu félagi sem hent-
ar hugmyndafræði Klopps full-
komlega, tók hann lokaskrefið til
heimsfrægðar. Klopp veit líka að
hann þarf að vera með lið í nokkur ár
til að ná árangri.
Hinn þrefaldi bakgrunnur
Hvað munum við sjá í Porto? Eins
og öll bestu liðin eru liðin tvö sem
leika til úrslita með þrefaldan bak-
grunn. Eins og alls staðar annars
staðar, líka í neðri deildunum nú á
dögum, er byggt á Sacchi. Bæði lið
eru líka með blöndu af Mourinho og
Guardiola. City og Chelsea verjast
með áherslu á boltann, vilja gera
harða atlögu að mótherjanum við
hans vítateig og pressa hann þar, en
þau vilja líka bakka af og til og leyfa
mótherjanum að vera með boltann.
Áhrif Guardiola eru áfram sýnileg, en
hann lætur sitt lið verjast af meiri
krafti en áður. Hann hefur fengið lán-
að frá Mourinho því hann er ekki með
sömu leikmannagæði og Real eða
Barca.
Thomas Tuchel hefur líka unnið
sér sess í hópi tíu ríkustu liða Evr-
ópu. Hann vann bikarinn á tveimur
árum hjá Dortmund. Hann varð
tvisvar franskur meistari með París
SG á tveimur og hálfu ári. Í janúar
var hann ráðinn til Chelsea, móður
nútímafótbolta, þar sem rússneski
ólígarkinn Roman Abramovich hefur
fjárfest í tvo áratugi. Hann er fyrsti
þjálfarinn til að komast í tvo úrslita-
leiki í röð með tveimur liðum. En
hver Tuchel er og hver hans arfleifð
verður á eftir að koma í ljós.
Morgunblaðið/Hanna
Spánn Pep Guardiola blés til sókn-
ar með lið Barcelona.
ÍÞRÓTTIR 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
Steinþór Már Auðunsson markvörður KA er besti leikmaður 6. umferðar
Pepsi Max-deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins en hann lék frá-
bærlega í marki Akureyrarliðsins þegar það vann Stjörnuna 1:0 í Garðabæ
á mánudagskvöldið.
Þótt Steinþór sé orðinn 31 árs gamall leikur hann nú í fyrsta skipti í
efstu deild en hann hefur varið mark KA í fyrstu sex leikjum Íslandsmóts-
ins. Hann hljóp óvænt í skarðið fyrir Kristijan Jajalo sem handarbrotnaði
rétt áður en mótið hófst en undanfarin ár hefur Steinþór aðallega varið
mark Magna, Völsungs og Dalvíkur/Reynis og leikið stærstan hluta ferils
síns í 2. deild.
Steinþór fékk tvö M fyrir frammistöðu sína, eins og þeir Rasmus Christi-
ansen úr Val, gegn Keflavík, og Kristinn Steinþórsson úr Breiðabliki, gegn
ÍA. Þeir eru í úrvalsliði 6. umferðar eins og sjá má hér fyrir ofan. Þar eru
fjórir leikmenn sem eru valdir í liðið í annað sinn á tímabilinu en hinir sjö
eru allir valdir í fyrsta skipti. vs@mbl.is
6. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2021
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-5-1
Steinþór Már Auðunsson
KA
Rasmus
Christiansen
Valur
Guðmundur Þór
Júlíusson
HK
Dusan Brkovic
KA
Bjarki
Aðalsteinsson
Leiknir R.
Höskuldur
Gunnlaugsson
Breiðablik
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Valur
Helgi Valur
Daníelsson
Fylkir
Pálmi Rafn
Pálmason
KR Kristinn
Steindórsson
Breiðablik
Sævar Atli Magnússon
Leiknir R.
2
2
2
2
2
Nýliðinn sem er 31 árs er
besti leikmaður 6. umferðar
Hamar úr Hveragerði vann í gær-
kvöld sinn fyrsta Íslandsmeist-
aratitil í flokkaíþrótt með því að
sigra KA 3:0 í öðrum úrslitaleik lið-
anna á Íslandsmóti karla í blaki
sem fram fór á Akureyri.
Hamar vann fyrsta leikinn á sín-
um heimavelli, 3:0, og hefði fengið
oddaleikinn í Hveragerði ef til hans
hefði komið. Hvergerðingar unnu
því þrefaldan sigur á þessu keppn-
istímabili en þeir urðu áður bæði
bikarmeistarar og deildarmeist-
arar.
Hamar vann fyrstu hrinuna eftir
nokkuð jafna baráttu, 25:23, og
aðra hrinu með aðeins meira ör-
yggi, 25:19.
Í þriðju hrinu náðu þeir fljótlega
undirtökunum og komust í 10:5.
Eftir að KA minnkaði muninn í 13:9
svöruðu Hamarsmenn því vel, 16:9,
og eftir það var aldrei spurning um
úrslit. Síðustu fjörbrot KA-manna
voru að minnka muninn úr 23:14 í
24:19 en lokatölur urðu 25:19 og Ís-
landsmeistaratitillinn þar með í
höfn. vs@mbl.is
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Meistarar Hamarsmenn, með bræðurna Kristján og Hafstein Valdimars-
syni í stórum hlutverkum, fagna í KA-heimilinu á Akureyri í gærkvöld.
Fyrstu Íslandsmeist-
arar Hamars
_ Handknattleiksmarkvörðurinn Aron
Rafn Eðvarðsson er á leiðinni til upp-
eldisfélagsins, Hauka, í sumar frá Bie-
tigheim í Þýskalandi. Haukar skýrðu
frá því í gær að hann hefði skrifað
undir þriggja ára samning við félagið
og leysir því af hólmi fyrrverandi sam-
herja sinn í landsliði Íslands, Björgvin
Pál Gústavsson, sem fer til Vals í sum-
ar. Aron hefur leikið erlendis frá 2013
ef undanskilið er eitt tímabil með ÍBV.
_ Arnór Ingvi Traustason, Viðar Örn
Kjartansson og Rúnar Már Sig-
urjónsson verða ekki með íslenska
landsliðinu í knattspyrnu í vináttuleikj-
unum í Færeyjum og Póllandi 4. og 8.
júní. Arnór er að laga sig að nýju lífi í
Bandaríkjunum, Viðar fer ekki vegna
sóttvarnareglna í Noregi og Rúnar
meiddist á æfingu hjá CFR Cluj í Rúm-
eníu. Þeir áttu ekki að leika gegn
Mexíkó í Texas á laugardagskvöldið en
áður hafði Kári Árnason hætt við að
fara með landsliðinu þangað.
_ Þremur leikjum sem fram áttu að
fara í Pepsi Max-deild karla í fótbolta
30. og 31. maí hefur verið frestað þar
sem leikmenn úr nokkrum liðanna
fóru með landsliðinu til Texas í gær.
Leikirnir KA – Breiðablik, FH – Kefla-
vík og Valur – Víkingur verða spilaðir
mánudagskvöldið 7. júní í staðinn.
Eitt
ogannað
Philipp Lahm var fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu þegar það varð
heimsmeistari árið 2014 og lék með Bayern München í fimmtán ár. Hann
er mótsstjóri Evrópumóts karla sem fram fer árið 2024. Pistlar hans um
knattspyrnu, „Mitt sjónarhorn“, birtast reglulega í Morgunblaðinu. Þeir
eru skrifaðir í samvinnu við Oliver Fritsch, íþróttaritstjóra þýska netmið-
ilsins Zeit Online, og birtast í fjölmiðlum nokkurra Evrópulanda. Í öðrum
pistli sínum fjallar Lahm um þrjá áhrifamestu knattspyrnuþjálfara seinni
ára og hvernig þeir hafa sín áhrif á úrslitaleik Chelsea og Manchester City
í Meistaradeild Evrópu sem fram fer í Porto á laugardagskvöldið.
Pistlahöfundurinn Philipp Lahm
AFP
Úrslitaleikur Chelsea og Manchester City leika til úrslita um Evrópumeist-
aratitilinn á Drekaleikvanginum í Porto á laugardagskvöldið.
Þróttarkonur unnu sinn fyrsta leik í
Pepsi Max-deild kvenna í knatt-
spyrnu í gærkvöld þegar þær lögðu
Stjörnuna 5:1 í Garðabæ og komust
með því alla leið upp í fjórða sæti
deildarinnar.
Katherine Cousins skoraði tvö
mörk fyrir Þrótt, Ólöf Sigríður
Kristinsdóttir, Lea Björt Kristjáns-
dóttir og Shaelan Murison eitt mark
hver en Þróttur var yfir í hálfleik,
2:0. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir
minnkaði muninn fyrir Stjörnuna
með síðasta marki leiksins á 85. mín-
útu.
2 M: Andrea Rut Bjarnadóttir og
Katherine Cousins (Þrótti)
1 M: Hildigunnur Ýr Benedikts-
dóttir og María Sól Jakobsdóttir
(Stjörnunni). Íris Dögg Gunn-
arsdóttir, Ólöf Sigríður Krist-
insdóttir, Shea Moyer og Álfhildur
Rósa Kjartansdóttir (Þrótti).
Dómari: Elías Ingi Árnason – 7.
Stórsigur hjá
Þrótturum
Manchester United og Villarreal
voru jöfn eftir venjulegan leiktíma í
úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fót-
bolta í Gdansk í gærkvöld, 1:1. Ger-
ard Moreno kom Villarreal yfir á 29.
mínútu en Edinson Cavani jafnaði
fyrir United á 55. mínútu. Fram-
lenging stóð yfir þegar blaðið fór í
prentun, sjá mbl.is/sport/fotbolti.
AFP
Jafnaði Edinson Cavani með bolt-
ann eftir jöfnunarmarkið.
Framlengt
í Gdansk