Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 SÓLGLERAUGU frá Aspinal of London LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Hún var ósvikin, gleðin semfylgdi því að geta loks num-ið kraftinn og sköp- unargleðina í grasrót íslenskrar tón- listar eins og hún birtist á hinum dásamlegu Músíktilraunum. Hefst nú yfirferð. 1. kvöld Grafnár opnaði Tilraunirnar með bylmings-harðkjarnarokki, keyrslan ógurleg og allt sett í botn. Svona á að byrja þetta! Þétt spilamennska, geggjaður söngur hjá Hrafnsunnu og lagasmíðar lunknar. Engu að síður var þessi tiltekna framkoma sveitar- innar eilítið flöt. Hvað því olli er erfitt að segja til um. Fyrsta band á svið eða bara eðlilegt stress? Hin fjölskip- aða Keikó lék órætt popp og var fyrsta lagið heldur brösótt og ein- kennalaust. Síðara lagið var betra og bjó yfir meiri dýpt. Það er eitthvað að gerjast þarna en reynsluleysið er enn hamlandi, eðlilega. Það vantaði ekki öryggið í hinn sextán ára gamla Konráð Óskar sem leiddi fjöldasöng eins og íslensk útgáfa af Ed Sheeran. Tónlistin sem slík þó temmilega meinlaus, í hefðbundnum söngva- skáldagír. Fógeti mætti sömuleiðis svellkaldur á sviðið, í slagtogi við bassaleikara sem hann kallaði „uku- lele-spilarann“ sinn. Sjálfur lék hann á rafgítar og rappaði og söng. Fógeti hafði mikið að segja og gefa og reiddi það fram með nokkuð glúrinni tónlist sem mætti lýsa sem ástríðufullu og nett tilraunakenndu narðapopp- rokki. Fógeti hikaði ekki og það fleytti honum langt. Hin keflvíska DEMO lagði sig eftir dramatísku leikvangarokki að hætti Coldplay og Valdimars sem er samt ekki mikið meira en fokhelt á þessu stigi máls- ins. Innlifunin á sviði var hins vegar ósvikin og sérstaklega átti gítarleik- arinn Sigurður stórleik í þeim efnum. Tær er ansi efnileg sveit en eins og með marga þátttakendur er hún til- tölulega stutt á veg komin samhrist- ingslega séð. Kammerpopp sem minnti á Hjaltalín, brassið hugvit- samlegt og ef liðsmenn leyfa þessu að marinerast áfram er aldrei að vita nema þróunin verði farsæl. Hin kornunga Continue lék gegnheilt Músíktilraunarokk, þ.e. einfalt þriggja gripa rokk beinustu leið út úr bílskúrnum. Það er í raun lítið hægt að segja á þessu stigi málsins, sveitin er greinilega enn að fóta sig og lítið var um sérkenni eða sérstaka spretti (nema þegar trommarinn kom inn í bakrödd í seinna laginu, það var smekklega af hendi leyst). Rós er dúett þar sem Melkorka Rós Hjart- ardóttir sér um söng. Frábær söng- kona og sýndi hún það svo um mun- aði. Lagasmíðarnar fremur hefð- bundnar þó og studdu ekki nægilega við glæsisönginn. Little Menace lok- aði svo þessu fyrsta undanúrslita- kvöldi. Á borð var borið einslags sveitaballaþungarokk sem mátti hafa nokkuð gaman af. Síðara lagið var stórskemmtilegt, líkt og Mini-Pops hefði ákveðið að henda í Killing Joke- lag. Bassaleikarinn setti þá upp gas- grímu, borginmannlegur, og það stafaði sérkennilegur sjarmi af þessu öllu saman. Betur má þó ef duga skal og ef tekið er tillit til þess að sveitin er búin að vera starfandi í þrjú ár er ekki óvitlaust að ganga að teikni- borðinu á nýjan leik. Salur valdi síð- an Keikó áfram en dómnefnd veitti Fógeta brautargengi. 2. kvöld Piparkorn hóf leika, djassbundin sveit og fjölskipuð. Samspil var með miklum ágætum og fyrsta lagið vel hugsað þar sem það reis upp hægt og rólega. Sveitir af þessum toga missa sig oft út í hljóðfærafimleika og á því bar að einhverju leyti. En mest var samt verið að leita að kjarna sjálfrar smíðinnar/lagsins, umleitun sem er merki um tónlistarlegan þroska. Piparkorn er á réttri og góðri leið. Hljómsveitin Rúnar Breki (!) minnti á losaralega útgáfu af Red Hot Chili Peppers í fyrsta laginu. Rapp og fönksprettir en framvindan undar- lega óþétt. Seinna lagið var þá eins- lags sumarpönk með Botnleðjuívafi. Rúnar sjálfur var staffírugur í stafni en tónlistin, eins og ég lýsi, óþægi- lega upp um alla veggi. Krownest er firnaþétt þungarokkssveit og keyrði af eftirtektaverðu afli í gegnum fyrsta lagið. Lagasmíðar voru í senn bæði hugmyndaríkar og stefnu- lausar, þannig var annað lagið til muna síðra og riff og pælingar í súpu sem á eftir að þykkja til muna. En þarna er vissulega einhver neisti, eitthvað til að vinna með. Aria kom ein fram með rafgítar og rödd. Söng- röddin var góð og textarnir með tí- unda áratugar angistarblæ. Lögin voru þó heldur ófrumleg og gítarspil dálítið stíft á köflum. En ég kalla hana góða að hella svona úr hjartanu fyrir fullum sal. Límbandið var mikið flipparaband og meira gjörningur en hljómsveit. Forsöngvarinn var öruggur og sjarmerandi en gamanið kárnaði því miður með hverri mín- útu, var farið að minna á skets úr árshátíðarmyndbandi einhvers menntaskólans undir rest. The Parasols tók þátt sem Parasol árið 2019, vakti verðskuldaða athygli og fór alla leið í úrslit. Tónlistin óræð indítónlist, ýmislegt í hana spunnið og söngvarinn Tómas Árni með sterka nærveru. Ég varð því dulítið hissa yfir fyrsta laginu sem var ein- kennilega flatt og óspennandi. Djús- inn fór þó sem betur fer að flæða í seinna laginu, meiri broddur, meiri spenna og meiri sköpun. 7.9.13 kem- ur frá Akureyri, prúðmannleg og vel æfð eins og oft er raunin með sveitir þaðan. Tónlistin sérkennalaust popp- rokk, fyrra lagið í þynnra lagi og sama má í raun segja um það síðara, hvar þéttleiki í framfærslu hefði mátt vera mun meiri. Særún söngkona gerði þó vel í framlínunni, hélt þessu vel saman og býr yfir útgeislun sem vel er hægt að vinna með. Buttercups er strípaður dúett, píanó og söng- rödd og Sóley söngkona beraði sálu sína fyrir stútfullum sal líkt og Aria hafði gert áður. Hetjulega gert og hún gekkst skemmtilega við kæfandi stressinu. Ég hrósa Sóleyju fyrir að standa keik en lögin runnu engu að síður heldur stirðlega verður að segj- ast. Hitt ber á að líta að dúettinn hef- ur bara verið starfandi í mánuð og því meira en nóg rými til bætingar. Tötrar brúkuðu m.a. melódíku í laus- legum, djassskotnum spuna hvar Canterbury-senan og áttunda ára- tugar geimdjass flugu í gegnum höf- uðið. Súrir og nokk skemmtilegir sprettir skutu upp kolli en mestan- partinn var þetta heldur „töturslegt“ djamm, líkt og okkur hefði verið varpað inn á óundirbúna æfingu. Sleem rokkaði vel og vísaði skemmti- lega í ýmsar fornfálegar áttir; Hawkwind, eðjurokk („sludge“), grugg, eyðimerkur- og „stoner“- rokk. Framreiðslan býsna góð, kraft- mikill söngur, skemmtilegur hljóð- gervill og heilt yfir nokkuð þétt. Bandið fór þó nánast út af teinunum í seinna laginu sem var vel ófókuserað, lagakaflar á tvist og bast. Oddweird lauk kvöldinu skemmti- lega. Mér leið eins og ég væri að horfa á tékkneska kvikmynd um tvo víraða, snarbrjálaða vísindamenn sem leggja sig eftir því að dirka upp ýmis furðuhljóð. Flippið keyrði hins vegar um þverbak undir rest, tónlist- in tók sér stöðu baksviðs mætti segja og betri og úthugsaðri samfléttun á tónlist og leik hefði verið ákjósanleg. Áhorfendur kusu svo Límbandið áfram en dómnefnd ákvað að senda Krownest í úrslit. 3. kvöld Dopamine Machine rúllaði kvöld- inu af stað með djassskotnu poppi undir sterkum áhrifum frá Moses Hightower (einkum sönglega séð). Skólagengið fólk og samspil með ágætum þó að rennsli kvöldsins væri með eilitlum losarabrag. Seinna lagið var betra og endaði á glúrinni skrum- skælingu. Ælupestó lék „hreint og beint“ pönk og heyra mátti í sveitum eins og Rass og Blóðmör. Kraftmikið vissulega en heilt yfir var þetta þó lítt sannfærandi, aðeins of mikið flipp og aðeins of lítill fókus. Ólafur Kram var hreint út sagt framúrskarandi. Risa- eðlan, Grýlurnar og Slits svifu yfir vötnum þar sem stúlkurnar sem bandið skipa (ásamt Sævari Andra trommara) léku frumlega, ástríðu- fulla og leitandi tónlist á samhentan og hrífandi hátt. Iðunn Gígja, hljóm- borðsleikari og söngkona, fór ham- förum! YoYo69 er eitt af þeim fjöl- mörgu verkefnum sem Eli Frost Ara kemur nálægt þetta árið. Ég tek ofan fyrir viðleitni hans til að skekja kerf- ið aðeins, ýta á takka og keyra hluti fram af hengiflugi. Hann spilar á allt, og spilar allt, oft í dásamlegri óreiðu. YoYo69 var einmitt vettvangur fyrir slíkt, opin og hömlulaus sköpun. Eilíf sjálfsfróun átti firnagóða inn- komu árið 2019 en tók það allt saman á næsta stig núna. Það var þræl- skemmtilegt að fylgjast með atinu sem boðið var upp á og Halldór Ívar forsöngvari fór gjörsamlega á kost- um. Drengurinn er náttúrubarn þeg- ar kemur að leikrænum tilþrifum í söng og sprelli og salurinn tókst hreinlega á loft undir gríðarlega skemmtilegu og vel útfærðu „setti“ þeirra pilta. Úthugsað, þaulæft og metnaðarfullt í hvívetna. Karma Brigade hefur sett mark sitt á Til- raunirnar undanfarin ár og iðulega farið í úrslitin. Fyrra lagið var nokk- uð vel uppbyggt útvarpspopp með bandarísku sniði á meðan síðara lag- ið, sem reyndi sig við epíska upp- byggingu, féll flatt. Salamandra lék sér með hæggengt og dramatískt „goth“, minnti eilítið á Kæluna miklu. Gott flæði í fyrra laginu og Salóme söngkona gerði vel í seiðandi dansi. Seinna lagið var í svipuðum gír en kannski helst til yfirdrifið og langt. En efnilegt er það. Sauðkrækingurinn Atli kom einn fram með gítar og lykkjuvél („loop- station“). Fyrra lagið ámátleg Ed Sheeran-ballaða en gítarspil gott. Seinna lagið, hvar tónlykkjurnar fóru á fullt, var mjög flott og mikil stemning myndaðist í salnum. Það er meira en vert að fylgjast með pilti á næstu misserum. Laminar Flow kom örugg til leiks og mikil stemning í bandinu. Tónlistin tónaði því miður ekki við hressleikann á sviðinu, órætt popprokk eins og ég kalla það stund- um og lítið að frétta í einstökum lög- um. Cosmic Onion hljómaði dálítið eins og sveitarheitið gefur til kynna. Gott, hippískt „grúv“ á köflum en það vantaði alveg heildarhugsunina í lög- in. Eins og góðum brotum hefði verið slengt einhvern veginn saman og svo Máttur Músíktilrauna Hér fara stuttar um- sagnir um allt það lista- fólk sem atti kappi á undanúrslitakvöldum Músíktilrauna þetta ár- ið. Kvöldin fóru fram í Hörpu dagana 22.-25. maí. Ljósmyndir/Brynjar Gunnarsson Eilíf sjálfsfróun Átti firnagóða innkomu árið 2019 en tók það allt saman á næsta stig núna, skrifar pistilritari. Fógeti Var með bassaleikara sem hann kallaði „ukulele-spilarann“ sinn. Keikó Annað lagið var dýpra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.