Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Þetta er málverkasýning, ég hef verið með sýningu þarna áður. Ég hef verið að mála núna í Covid, það hefur ekki verið neitt annað að gera þannig að ég hef bara hrúgað niður myndum,“ segir Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi, um myndlistarsýningu sem hann opnar í kvöld í Smiðjunni, listhúsi og innrömmunarstofu, í Ármúla 36 í Reykjavík. Laddi seg- ist bæði sýna olíumálverk á striga og teikningar á pappír. Myndlist Ladda er fígúratíf, að hans sögn. „Þetta eru fígúrur, bara expressjónismi, svolítið svo- leiðis og örlítið súrrealískt,“ segir hann og að ýmsar týpur skjóti upp kollinum. Spurður út í fjölda verka á sýn- ingunni segir Laddi þau 38 talsins, 38 myndir. „Ég vona að þær kom- ist allar fyrir, við bara neglum upp í loftið ef þær gera það ekki,“ seg- ir Laddi. Stóð alltaf til En hvernig kviknaði þessi áhugi leikarans og grínistans ástsæla á myndlist? „Þetta stóð alltaf til, alveg frá því ég var mjög ungur, að vera listamaður. Ég hef alltaf verið að teikna og krafsa en hafði aldrei málað neitt og það stóð alltaf til en svo bara fór þetta í aðra átt, ég fór út í hljómsveita- og skemmtibrans- ann þannig að þetta varð að bíða. Það eru svona tíu ár síðan ég byrj- aði að mála, ég sagði þá að nú væri kominn tími á þetta, að ég myndi gera þetta þegar ég væri orðinn gamall. Það var ekki hægt að bíða lengur og ég byrjaði á þessu þegar ég var rúmlega sex- tugur, 63 eða 64 ára,“ svarar Laddi. Hann er spurður út í vinnu- aðstöðuna og segist hann hafa útbúið vinnustofu í einu herbergj- anna heima hjá sér sem áður var skrifstofa og þar áður barna- herbergi. „Ég er búinn að vera heima mestallan tímann,“ segir Laddi um vinnustofuna og segist hæstánægður með það fyrirkomu- lag. Sýning Ladda verður opnuð í kvöld kl. 20 og er sú þriðja sem Safnið heldur á myndlist hins þjóð- kunna gleðigjafa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölhæfur Laddi í Smiðjunni með eitt af malverkum sínum í bakgrunni. Hann opnar myndlistarsýningu í húsinu í dag og sýnir 38 myndir. Dældi út verkum í kófinu - Fígúrur og súrrealismi einkenna myndlist Ladda sem opnar sýningu á verkum sínum í dag í Smiðjunni í Ármúla Bandaríski leikarinn Kevin Spacey hefur verið ráðinn í hlutverk í ítalskri kvikmynd sem leikstýrt er af Franco Nero. Er það talið fyrsta kvikmyndahlutverk hans eftir að ásakanir hófu að birtast á hendur honum vegna kynferðisbrota og kynferðislegrar áreitini í garð ungra karlmanna og drengja árið 2017 em hátt í tuttugu sökuðu leik- arann um slík brot. Kvikmyndin sem Spacey mun leika í nefnist L’uomo Che Disegno Dio og er Vanessa Redgrave í einu hlutverkanna. Leikstjórinn Franco Nero er eiginmaður hennar en hann er einnig leikari og vakti upp- haflega athygli í spagettívestr- anum Django ár- ið 1966. Spacey mun leika rann- sóknarlögreglu- mann og er í aukahlutverki. Spacey átti far- sælan feril sem leikari fram að ásök- ununum og hefur í tvígang hlotið Óskarsverðlaun. Síðasta kvikmynd- in sem Spacey sást í var Billionaire Boys Club frá árinu 2018. Spacey ráðinn í ítalska kvikmynd Kevin Spacey AF KVIKMYNDUM Gunnar Ragnarsson Um auðugan garð er að gresjaí Bíó Paradís erStockfish-kvikmynda- hátíðin stendur sem hæst en henni lýkur á sunnudag. Sem fyrr er efnis- skrá hátíðarinnar afar forvitnileg fyrir aðdáendur listrænna kvik- mynda, og er nánast sama hvar drepið er niður fæti, iðulega er upp- skeran rík. Pistlahöfundur tók stikkprufu (þó ekki alveg af handa- hófi) af úrvalinu og sá þrjár ræmur sem verða á boðstólum næstu daga. Íranska kvikmyndin Það er ekkert illt (Sheytan vojud nadarad, 2020) eftir leikstjórann Mohammad Rasoulof (sýnd laugardaginn 29. maí kl. 16) hlaut Gullbjörninn, aðal- verðlaun alþjóðlegu kvikmynda- hátíðarinnar í Berlín, í fyrra og því nokkur fengur í henni. Myndin skiptist í fjórar mismunandi frá- sagnir er varða allar með einhverj- um hætti dauðarefsingu og áhrif hennar á líf fólks í írönsku sam- félagi. Áhrifarík nálgun verksins að eldfimu viðfangsefni er í gegnum persónur sínar. Fyrsti kaflinn greinir með klín- ískri nákvæmni frá daglegri rútínu millistéttarfjölskyldu (og einblínir á föðurinn) í Teheran. Frásögnin er úthugsuð og endar með hvelli og má hrósa fyrir stígandi í klippingu. Hver kafli myndarinnar byggist á þeim fyrri og verða sögurnar dramatískari þegar á líður með ítar- legri innsýn í sálarlíf og aðstæður persóna. Söguhetjur annars hluta flýja skyldur sínar innan dauða- sveitar hersins og syngja baráttu- sönginn „Bella Ciao“ á vegum úti. Pólítísk afstaða verksins er sem sagt á yfirborðinu og er það áhugavert ef hugsað er til stjórnarfars í Íran og ritskoðunarstefnu yfirvalda á kvik- myndum. Örlítill dæmisögubragur er á verkinu, en sögurnar eru þó nógu sértækar til að forða sér frá kæfandi fræðsluandrúmslofti. Eyði- Smakkað af skreiðarseðli Grátandi kona Úr La llorona frá Gvatemala sem setur atburði úr sögu landsins í fantasíubúning. merkursveit, skrykkjóttir fjallaveg- ir og slitrótt símasamband fjórða kaflans kinka kolli til kvikmynda- meistarans Abbas Kiarostamis á skemmtilegan hátt. Íranska listabíóið var einkar fyrirferðarmikið í alþjóðlegu kvik- myndalandslagi tíunda áratugarins og hefur gengið í endurnýjun líf- daga undanfarinn áratug. Tog- streita listræns frelsis og ritskoð- unarstefnu yfirvalda er einatt hluti af verkunum (og hluti af aðdráttar- afli þeirra) en birtist með misaug- ljósum hætti. Það er ekkert illt hef- ur ekki verið sýnd innan heima- landsins og er að stórum hluta gerð með þýsku fjármagni (en tökur hennar fóru víst fram leynilega). Leikstjórinn Rasoulof, líkt og starfs- bróðir hans Jafar Panahi, hefur uppskorið fangelsisdóma og ferða- bann fyrir kvikmyndir sínar frá yfirvöldum og stendur í áfrýj- unarferli í þessum rituðum orðum. Myndin er hluti af magnaðri hefð, sem þrífst enn þann dag í dag þrátt fyrir aukna kúgun stjórnvalda á kvikmyndagerðarmönnum. Einnig má sjá írönsku kvikmyndina Sól- arbörnin (2020) á hátíðinni (sýnd í kvöld kl. 20.15) en hún er eftir Majid Majidi, leikstjóra Himnabarnanna (1997) sem eflaust margir muna eft- ir. Norska heimildarmyndin List- málarinn og þjófurinn (Kunstneren og tyven, Benjamin Ree, 2020) (sýnd laugardaginn 29. maí kl. 17) hlaut Nordisk Panorama-verðlaunin sem besta heimildarmynd síðasta árs. Tveimur málverkum tékknesku myndlistarkonunnar Barboru Kysil- kovu er stolið úr galleríi í Osló en lögreglan finnur þjófana út frá upp- tökum í öryggismyndavélum. Karl- Bertil Nordland, annar þjófurinn, er karlmaður á fertugsaldri sem þjáist af fíknsjúkdómi og hefur lent á glæpabraut. Afdrif listaverkanna eru á huldu þar sem Karl-Bertil man ekki eftir kvöldinu afdrikaríka sök- um vímunnar. Karl-Bertil iðrast innilega, Barbara notar hann sem módel fyrir verk sín og með þeim tekst vinskapur. Þessi sérstæða at- burðarás er eflaust nóg til að vekja athygli lesenda og er óhætt að mæla með myndinni, sem er afar mannleg í nálgun sinni. Fylgst er með persón- unum tveimur yfir langt tímaskeið – og eru sömu atburðir sýndir tvisvar, út frá mismunandi sjónarhorni, og gætir myndin á þennan hátt að því að rödd beggja fái að heyrast, sem skilar af sér dýpri mynd af mann- eskjunum. Nokkur atriði (litlar hag- ræðingar á „sannleikanum“) eru fullaugljóslega sviðsett til að þjóna framvindunni – þetta er óumflýjan- legur hluti af heimildarmyndagerð en ögn klunnalega útfært í þessari annars góðu kvikmynd. Fremst meðal jafningja stendur Grátandi konan (La llorona, Jayro Bustamante, 2019) (sýnd í kvöld kl. 22.20) frá Gvatemala. Myndin setur atburði úr sögu landsins í fantasíu- búning. Réttað er yfir öldruðum hershöfðingja, Enrique að nafni, en hann fyrirskipaði þjóðarmorð á Maya-þjóðflokknum þar í landi. Enrique hlýtur dóm en er þó á end- anum sýknaður af ríkisvaldinu. Hann ásamt eiginkonu, dóttur og dótturdóttur, verður innlyksa í stór- hýsi sínu. Fyrir utan standa yfir linnulaus mótmæli Mayanna. Þjón- ustufólkið (allt af Maya-ættum) yfir- gefur býlið sökum ótta, en það virð- ist reimt í húsinu. Valeriana stendur ein eftir af þjónustuliðinu (en tryggðaböndin hennar til húsbónd- ans virðast ná dýpra) og biðlar til fólks úr heimabyggð sinni að koma til vinnu. Aðeins ein dularfull ung kona svarar kallinu og gegnir hlut- verki óþekkta aflsins innan frásagn- arinnar. Söguþráður þessi byggist á þjóðarmorði þarlendra yfirvalda á Maya-fólki við upphaf níunda ára- tugarins, en tugþúsundir voru myrt- ar og hurfu sporlaust. Myndin er eiginlegt stofudrama með hryllings- eða draugasöguundirtóni. Kjarninn er þó kvenlæg fantasía þar sem vit- und kvenna – þeirra hvítu og með- virku – og þolenda er sameinuð til að ná hefndum á patríarknum sem hefur myrt og misþyrmt um árabil. Þessi greinablöndungur er afar frjó leið til að tjá tráma sem umlykur og skilgreinir allt í kringum sig. Niður með ógeðið, niður með feðraveldið. Margt annað af dagskrá helgarinnar freistar undirritaðs. Nóg er að fá af gæðaraunsæi og líta hin georgíska Upphaf (Dea Kulum- begashvili, 2020) (28. og 30. maí kl. 19.10) og ástralska Barnatennur (Shannon Murphy, 2019) (29. maí kl. 19) vel út. Þó er skylda að sjá eitt- hvað skringilegt á kvikmyndahátíð og er líklegt að rússneskur súrreal- ismi í formi Tzarevna Scaling (Uldus Bakhtiozina, 2020) (30. maí kl. 22) eða kanadískur furðuvísindaskáld- skapur Tuttugasta öldin (Matthew Rankin, 2020) (28. maí kl. 22.15) uppfylli þær þarfir. Ekki má gleyma Sprettfisknum, þar sem nýjum ís- lenskum stuttmyndum er gert hátt undir höfði, og Physical Cinema- anga hátíðarinnar. Góða skemmtun. » Sem fyrr er efnis- skrá hátíðarinnar af- ar forvitnileg fyrir aðdá- endur listrænna kvikmynda, og er nán- ast sama hvar drepið er niður fæti, iðulega er uppskeran rík. Vissir þú að K100 130% * er ferskasta útvarpsstöð landsins og hlutdeild á fyrsta ársfjórðungi 2020 vs 2021 fór upp um * G a llu p Q 1 2 0 2 0 til Q 1 2 0 2 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.