Morgunblaðið - 28.05.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021
Það hefur veriðheldur ömurlegt
að fylgjast með um-
ræðu á Alþingi síð-
ustu daga, ekki síst
málatilbúnaði pírata
sem sökkva æ dýpra í
sýndarmennskufenið.
Á þriðjudag fór fram
sérstök umræða að
þeirra frumkvæði
undir yfirskriftinni:
„Traust á stjórn-
málum og stjórn-
sýslu.“ Þær umbúðir
voru þó aðeins yfir-
skin því að tilgangur
umræðunnar var bersýnilega að
stilla forsætisráðherra, sem var til
svara, upp og reyna að fá fram úti-
lokunaryfirlýsingu.
- - -
Útilokunarmenningin er það semheillar pírata mest um þessar
mundir og markmiðið er að útiloka
Sjálfstæðisflokkinn frá stjórnarþátt-
töku. Hingað til hafa flokkar reynt að
komast áfram á eigin verðleikum og
hafa í leiðinni bent á galla annarra,
en píratar hafa enga stefnu. Þeirra
markmið um þessar mundir er að
ræða spillingu, reyna að finna hana
hvort sem við á eða ekki, og klína svo
tilbúningnum á einn stjórnmálaflokk.
- - -
Píratar afhjúpuðu sig illilega íþessari sérstöku umræðu og
staðfestu að þeir standa ekki fyrir
neitt, ætla öðrum allt illt og vilja
nota uppnám og spillingartal til að
fleyta sér aftur inn á þing í haust,
langt umfram verðleika.
- - -
Í fyrradag bættu þeir svo um beturmeð því að senda erindi til ÖSE
með ósk um kosningaeftirlit í haust.
Átyllan er meint spilling hér á landi.
- - -
Það þarf enginn að undrast aðtraust á stjórnmálum sé lítið
hér á landi þegar slíkir menn veljast
á þing.
Ömurleg umræða
í boði pírata
STAKSTEINAR
Andrés Ingi
Jónsson
Björn Leví
Gunnarsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fjögur tilboð bárust í verkið „Bryggjuhverfi vest-
ur, landfylling“ sem Reykjavíkurborg bauð út fyr-
ir skömmu. Þegar tilboð voru opnuð á þriðjudag-
inn kom í ljós að þau voru öll langt yfir
kostnaðaráætlun, eða á bilinu 204-269%.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 720 milljónir
króna. Ístak hf. bauð lægst eða 1.469,7 milljónir
króna. Suðurverk hf. bauðst til að vinna verkið
fyrir 1.616 milljónir, Óskatak ehf. fyrir 1.611,5
milljónir og Snókur verktakar ehf. fyrir 1.936,8
milljónir. Verið er að yfirfara tilboðin.
Þetta verður fyrsti áfangi af þremur en alls eru
áformaðar landfyllingar þrettán hektarar að
stærð í Bryggjuhverfi. Seinni tvær landfyllingarn-
ar eiga eftir að fara í umhverfismat þar sem m.a.
verða könnuð áhrif þeirra á laxagengd í Elliðaárn-
ar. Verkið sem nú er boðið út felst í gerð landfyll-
inga, farghauga og varnargarðs fyrir vesturhluta
Bryggjuhverfis, ásamt tilfærslu á farghaugum
innan svæðisins. Einnig skal fjarlægja núverandi
hafnarbakka Ártúnshöfðahafnar, þar sem dælu-
skip Björgunar hafa haft viðlegu undanfarna ára-
tugi. sisi@mbl.is
Geysihá tilboð í landfyllingu
- Lægsta tilboðið var
204% af kostnaðaráætlun
Bryggjuhverfið Bryggjan í Ártúnshöfðahöfn
mun hverfa þegar nýja landfyllingin kemur.
Efnt er til atkvæðagreiðslu um nafn
á nýjan þjóðgarð á Vestfjörðum. Al-
menningi gefst kostur á að velja á
milli fimm nafna á vef Umhverfis-
stofnunar, ust.is.
Á auglýsingatíma áforma um
þjóðgarðinn óskaði Umhverfis-
stofnun eftir tillögum um nafn.
Barst 21 tillaga frá 28 manns. Sam-
starfshópur verkefnisins fór yfir
tillögurnar og valdi úr þeim fimm
nöfn sem hópnum fannst best.
Nöfnin sem valið er á milli eru
eftirfarandi. Skýringarnar koma
frá þeim sem sendu tillögurnar inn.
Vesturgarður. Talið einfalt nafn,
lýsandi og grípandi.
Þjóðgarðurinn Gláma. Nafnið
myndi halda á lofti nafni jökuls sem
er horfinn ásamt því að vísa til
Glámuhálendis.
Dynjandisþjóðgarður. Heitið vís-
ar til fossins Dynjanda sem er innan
þjóðgarðsins.
Arnargarður. Sú tillaga vísar til
stofns hafarna í þjóðgarðinum.
Vestfjarðaþjóðgarður.
helgi@mbl.is
Atkvæði greidd um
fimm tillögur að nafni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Einkenni Fossinn myndarlegi, Dynjandi, verður innan marka þjóðgarðs.
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Sundkjóll
15.990 kr
Stærðir 42-56
Bikiní haldari
8.990 kr
C-H skálar
Bikiní haldari
8.990 kr
Stærðir 42-54
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Verð