Morgunblaðið - 28.05.2021, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 28.05.2021, Blaðsíða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 2021 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ Í Feneyjum hefur tvíæringurinn í arkitektúr verið opnaður, ári seinna en til stóð – vitaskuld vegna farald- ursins. Fyrir vikið hefur myndlistar- tvíæringnum gamalgróna, sem hefur verið haldinn í sömu görðum og söl- um í Feneyjum þau ár sem arkitekt- úr tekur ekki yfir, líka verið ýtt aftur um eitt ár og verður opnaður að ári. Íslendingar tóku fyrst þátt í mynd- listartvíæringnum árið 1960 og hafa sent fulltrúa sína reglulega frá 1978. Við höfum hins vegar ekki tekið þátt í arkitektúrtvíæringnum, en þótt helmingi færri þjóðir taki þátt í hon- um, þá er ætíð mikið í hann lagt og þykir áhugavert að sjá hvaða hug- myndir í arkitektúr og skipulagi eru kynntar, í þjóðarskálum og viðameiri sýningum, sem og í ýmsum sölum og sýningarsvæðum úti um borgina. Íslendingar eiga sinn fulltrúa á einni aðalsýninganna, en Guðjón Bjarna- son arkitekt og myndlistarmaður var valinn til þáttöku á sýningu sem ber heitið CITYX 2021. Hann sýnir úrval verkefna sem hann hefur unnið á list- og hönnunarstofu sinni GB-AAA – Gudjon Bjarnason Art & Architect- ure Ateliers – síðastliðinn áratug. Framlag Guðjóns byggist á sex mín- útna vídeóverki þar sem sérstök áhersla er á tónlistarhús á Indlandi sem Guðjón/GB-AAA hannaði. Að þessu sinni taka 112 þáttak- endur frá 46 þjóðum þátt í arki- tektúrtvíæringnum. Meginþemað er spurningin „Hvernig munum við búa saman?“ og hafði það verið valið löngu áður en veirufaraldurinn skall á. En að sögn blaðamanns The New York Times, sem hefur skoðað sýn- ingarnar og er hrifinn, þá hefur spurningin öðlast margfalda dýpt í faraldrinum og þar með þær hug- myndir sem varpað er upp í margs konar framsetningu í sýningarsöl- unum. Hashim Sarkis sem er að- alsýningarstjórinn valdi þemað. Segja blaðamenn sem fjalla um tvíæringinn að það hafi í raun ekki getað átt betur við því tekist sé á við það hvernig sambúð manna geti þróast og breyst en faraldurinn hafi einmitt neytt heilu samfélögin til að takast á við sömu spurningar. „Að- kallandi vandamál og spurningar eru þau sömu og áður en faraldurinn hjálpaði okkur við að setja þau í for- gang og ýtti okkur til viðbragða sem við höfum hingað til hikað við að ráð- ast í,“ segir Sarkis. Frestun tvíæringsins hafði margs konar afleiðingar og áhrif, og ekki all- ar slæmar. Þátttakendur höfðu lengri tíma en til stóð til að þróa hug- myndir sem iðulega eru kynntar í flóknum og umfangsmiklum mód- elum og innsetningum. Margir voru á því að tvíæringnum hefði átt að fresta að nýju, því ástandið er víða enn slæmt og til að mynda komust ekki allir sýnendur á staðinn og þurftu að stýra uppsetningu verka sinna að heiman. Þá er búist við því að aðsókn að sýningum verði bara brot af því sem vant er. Þó vantar ekki að tekist sé á við mikilvægar spurningar og ögrandi verkefni með skapandi hætti, hvort sem þær snúast um þróun mannlífs í Amazon-frumskóginum, ódýrar byggingar úr forsniðnum ein- ingum eða þau áhrif sem opin rými geti haft á mannlíf. „Áður fyrr sýndu Evrópuþjóðir hér hvað væri gott og hvað slæmt og reyndu að kenna heimsbyggðinni,“ segir Sarkis. „Nú hefur það snúist við. Nú kemur allur heimurinn til Feneyja að sýna hvað er verið að gera í öllum heimshornum og hvernig við getum lært hvert af öðru.“ Kynni Sýningin í og við þjóðarskála Síle gengur út á byggingar sem stuðli að bættum kynnum. Samband Gestir tylla sér í „Con-nect-ed-less“ eftir Lundgaard & Tranberg í danska skálanum. Sambúð manna þema tvíæringsins AFP Í sátt Framlag Aerocene Foundation í meginsýningu tvíæringsins, þar sem fjallað er um sambúð manna. Hlýlegt Viðarverk í sameiginlegum skála Finnlands, Svíþjóðar og Noregs. Myndað og mælt Gestur virðir fyrir sér sýninguna „Architecture as Meas- ure“ í sýningarskála Tyrklands. Tvíæringurinn er nú haldinn í 17. skipti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.